Morgunblaðið - 26.11.1980, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980
33
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
AyyjMrioruM'jj ir
legum forföður, sem hvorki sé hægt
að flokka undir nútíma apa eða
nútíma menn.
Ekki langt í land
meÖ aÖ skapa e.k. líf
Síðan birtist þann 20.11 grein
eftir Guðmund Geir nokkurn Sig-
urðsson. Hann er undir sömu fjölina
felldur og Sóley hvað þekkingarleys-
ið varðar. Hann kveður þróunar-
kenninguna segja að líf hafi þrifist
á jörðinni í „um milljarð ára eða um
það bil“. Um þetta tæknilega atriði
segir þróunarkenningin ekkert, en
rannsóknir vísindmanna benda til
þess að lífið muni hafa „kviknað"
fyrir um 3,5 milljörðum ára, en það
samræmist kannski ekki tímatali
biblíunnar! Síðan telur hann sig
geta reiknað út, eftir skilningi
sínum á þróunarkenningunni, að
það taki 400 ár fyrir eina tegund að
„breytast í aðra“. Guðmundur virð-
ist halda að þróunin sé e.k. stigi,
þannig að fyrst komi fram ein
tegund, t.d. belja, sé uppi í 400 ár og
breytist svo skyndilega í t.d. marg-
lyttu, sem sé uppi í 400 ár og verði
svo allt í einu 3. tegundin, e.t.v.
fiðrildi! Þróunarmeiðurinn er nefni-
lega e.k. tré með ótal mörgum
sprotum og greinum, eins og Reynir
Harðarson benti réttilega á í grein
þann 16. nóv. sl. Að lokum spyr
Guðmundur hví ekki sé hægt að
leika eftir myndun lífsins og telur
að það muni vera einfalt, fyrst það
gat gerst af sjálfu sér. Við getum
frætt hann á því, ef það er þá til
nokkurs, að þetta var fyrst gert
fyrir nokkrum áratugum, þannig að
rafneistar voru látnir híaupa gegn
um loftblöndu eins og menn telja
andrúmsloft jarðar hafa verið fyrir
3,5 milljörðum ára. Eftir nokkurn
tíma voru farin að myndast frum-
stæð ammínósýrusambönd, en þau
eru frumstig lífsins. Rafneistarnir
svöruðu til hinna miklu eldinga í þá
tíð. Nýjustu fréttir herma, að líf-
efnafræðingar eigi ekki langt í land
með að skapa e.k. líf í tilraunaglös-
um sínum.
Betri lífsskilyrði fyrir
aðra geta myndast
Svipaðs misskilnings gætir hjá
Jóni Þ. Halldórssyni, sem skrifar 13.
nóvember en hann varpar fram 2
spurningum varðandi þróunarkenn-
inguna. Annars vegar hvaða fugl
hafi komið fram þegar geirfuglinum
var útrýmt og hins vegar hvaða
dýrategund hafi komið fram er
amerískum innflytjendum tókst að
útrýma vissum indíánakynstofnum.
Ef við höldum okkur við trésamlík-
inguna, þá er ekki þar með sagt að
þótt ein grein hætti að vaxa, þá
verði önnur til. Hitt er svo annað
mál, að við hvarf ýmissa stofna geta
myndast betri lífsskilyrði fyrir
aðra. Þannig er hugsanlegt, að við
dauða geirfuglanna hafi fjölgað í
einhverjum öðrum stofni, lífsskil-
yrði hans batnað og orðið fjölbreytt-
ari, sem svo gat leitt af sér aukna og
margvíslegri þróun. Við dauða indí-
ánanna gat hið sama gerst.
Andans nátttröll
Það kreddufasta bókstafstrúar-
fólk, sem undanfarnar vikur hefur
háð sína innblásnu baráttu undir
kjörorðinu „eigi skal hafa þat er
sannara reynisk", má með sanni
kallast andans nátttröll vorra tíma,
sem dagað hefur uppi er sól hinna
frjálsu vísinda reis. Því fer fjarri að
málefnaleg umræða hafi einkennt
skrif þeirra. Ekki hefur verið vikið
að þeim rökum er styðja umræðu-
efnið, þróunarkenninguna, heldur
aðeins talað um sköpunarsögu og
einhvern „skapara" sem sjálfsagðan
hlut, og frásagnar biblíunnar af
þeim taldar óskeikular, og ofar
öllum rökum, sama hverjum. Að
lokum viljum við minna á orð
Júlíusar Sesars, en þau skýra margt
og svara ýmsum spurningum: „Það
er almennur veikleiki mannlegs
eðlis, að hafa takmarkalausa trú á
hlutum, sem þeir hvorki sjá né
þekkja og stjórnast ótilhlýðilega af
þeim.“
Með þökk fyrir birtinguna."
fyrir 50 árum
„Hjúkrunarstofnunin í
Sólheimum.
Þær ungfrúrnar, Ása Ás-
mundsdóttir ljósmóðir og
Elisabet Erlends hjúkrun-
arkona, hafa nú nýlega
opnað sængurkvenna- og
hjúkrunarstofnun í Sól-
heimum við Tjarnargötu
hjer i bæ ( húsi Jóns heit.
Laxdal).
Er þar all-myndarlega á
stað farið, húsið stórt og
vandað og er það alt tekið
til notkunar fyrir stofnun-
ina.
Sjúkrastofurnar eru
hjartar og rúmgóðar, litur
þeirra þægilegur. innan-
stokksmunir nýkeyptir og
smekklega valdir. Skurða-
stofa er þar og fæðingar-
stofa. báðar vel úr garði
gerðar...
Mun stofnunin geta tekið
á móti 15—20 sjúklingum
alls.
Húsið stendur á rólegum
stað, garður að baki og
útsýni frítt...
Það er næsta eftirtektar-
vert hvað konur hafa gengið
á undan og haft forystu i
spítalamálum þessa bæjar.
Sct. Josephssystur hafa nú i
áratugi haft sjúkrahús hjer.
Konur beittu sjer fyrir
Landspítalamálinu, frk.
Þ.B. setti á stofn fyrstu
fæðingarstofnun þessa bæj-
ar og nú hrinda þær ung-
frúrnar Ása og Elísabet i
framkvæmd gömlu og nýju
áhugamáli margra lækna og
e.t.v. fleiri, einkastofnun
þessari...“
Fossvogsskóli:
Avallt annast inn-
kaup á skólavörum
Kári Arnórsson skólastjóri
skrifar 21. nóv.:
„Velvakandi!
Vegna umræðna í Velvakanda
um „pappírsgjald" þar sem vikið
er að greiðslu efnisgjalds í Foss-
vogsskóla vil ég taka fram eftir-
farandi:
Fossvogsskóli hefur ávallt ann-
ast innkaup á ýmsum skólavörum
svo sem stílabókum, ritföngum,
pappír, litum og möppum.
Flest af þessum vörum hefur
skólinn fengið í heildsölu. Nem-
endur hafa síðan fengið í skólan-
um það sem þeir þurfa að nota
fyrir veturinn og greitt fyrir það
efnisgjald, sem greiðist í tvennu
lagi. Með þessum hætti hafa
nemendur fengið þessar vörur
mun ódýrari en þær eru seldar í
smásölu.
Foreldrum hefur verið gerð
grein fyrir þessu á hverju hausti,
bæði upphæð gjalds svo og hvað
greitt er fyrir. Almenn ánægja
hefur ríkt hjá foreldrum með
þetta fyrirkomulag. Nemendur fá
kvittun fyrir greiðslum sínum og
bókhald skólans, sem og annarra
skóla, fer til endurskoðunar hjá
fræðsluskrifstofu Reykjavíkur.
Hér með fylgir hluti úr bréfi
frá skólanum er sent var í
skólabyrjun síðastliðið haust, og
varðar efnisgjaldið.
„Eins og áður leggur skólinn til
stílabækur, ritföng, pappír,
möppur, liti o.fl. og nemendur
greiða efnisgjald kr. 10.000.- í
tvennu lagi. Fyrri hluti gjalds kr.
5.000- greiðist föstudaginn 12.
sept.“
Með þökk fyrir birtinguna."
Eins o* áður le?rur ekilinn til stllab»*ur ritfbnp papplr “bpjur
llti o.fl. op nemendur preiða efnispjald Kr. 10.0P0,- t '
Pyrri hluti pjalds kr. 5-000,- preiðiet föstudapinn 12. sept.
Forsetakjör 1980
eftir Guðjón
Friðriksson og
Gunnar Elísson
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg-
ur hf. hefur sent frá sér bókina
Forsetakjör 1980 eftir Guðjón
Friðriksson og Gunnar Elisson.
Eins og bókartitillinn ber með
sér fjallar þessi bók um hið
sögulega forsetakjör sem fór
fram á íslandi 29. júní 1980, en
þá var Vigdís Finnbogadóttir
kjörin forseti íslands, og varð
þar með fyrsta konan sem kjörin
er til þjóðhöfðingjaembættis í
lýðræðislegri kosningu í heimin-
um.
í bók sinni rekja þeir Guðjón og
Gunnar sögu forsetaembættisins
á Islandi, en taka síðan fyrir
forsetakjörið sl. sumar. Er þar
fyrst fjallað um kosningabarátt-
una, síðan kosningarnar sjálfar,
úrslit þeirra og viðbrögð bæði hér
heima og erlendis. Þá er í bókinni
æviágrip forseta íslands, Vigdísar
Finnbogadóttur, fjallað um emb-
ættistökuna og fyrsta embættis-
hlutverk hennar sem forseti,
Hrafnseyrarhátíðina er minnst
var hundruðustu ártíðar Jóns Sig-
urðssonar í ágústbyrjun.
Forsetakjör
Fjölmargar ljósmyndir eru í
bókinni, margar þeirra i lit. Meðal
myndanna eru margar myndir úr
einkasafni forsetans, Vigdísar
Finnbogadóttur.
Bókin Forsetakjör 1980 mun
einnig koma út á ensku. Nefnist sú
bók Mrs. President. Þýðingu önn-
uðust Sonja Diego, Paul Richard-
son og Bogi Ágústsson.
Forsetakjör 1980 er sett, um-
brotið og prentuð i Odda hf. en
bundin i Sveinabókbandinu hf.
Hönnun og útlit bókarinnar önn-
uðust Guðjón Sveinbjörnsson og
Ólafur Ingi Jónsson. Teikningar á
fremstu og öftustu opnu bókarinn-
ar eru eftir Hring Jóhannesson,
listmálara.
Fréttatilkynning
Ný sakamálasaga eft-
ir Jón Birgi Pétursson
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur
hefur sent frá sér bókina Einn á
móti milljón, sakamálasögu eftir
Jón Birgi Pétursson fyrrum
fréttastjóra. Er þetta önnur bók
höfundar, en í fyrra skrifaði hann
bókina Vitnið sem hvarf.
Aðalpersóna fyrri bókarinnar,
„Rauða ljónið", er einnig söguhetja
í hinni nýju bók og fær hún nú
erfitt viðfangsefni að glíma við.
Aðalsögusvið bókarinnar er
Reykjavík, en leikurinn berst einn-
ig til Hollands, en þar dvaldi
höfundur meðan hann skrifaði bók-
ina. Einn á móti milljón fjallar um
fjölskyldu i Reykjavík og svartan
sauð hennar, þótt allt virðist slétt
og fellt á yfirborðinu er stutt í
ýmislegt, sem fjölskyldan hefur
lítinn áhuga á að komist upp á
yfirborðið, segir m.a-. í frétt frá
útgáfunni. Bókin er sett, brotin um,
filmuunnin og prentuð hjá Prent-
smiðjunni Hólum hf. og bundin hjá
Arnarfelli. Káputeikning er eftir
Bjarna D. Jónsson.
Káputeikning hókarinnar er eft-
ir Bjarna D. Jónsson.
Þrjár nýjar „Rauö-
ar ástarsögur44
BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá, Hafn-
arfirði. hefur gefið út þrjár hækur
í bókaflokknum „Rauðu ástarsög-
urnar“.
Alls hafa þá komið út í þessum
flokki 15 bækur. Nýju bækurnar
heita Barnlaus móðir eftir Else-
Marie Nohr, í þýðingu Skúla Jens-
sonar, Örlögin stokka spilin eftir
Sigge Stark, í þýðingu Skúla Jens-
sonar og Ástin er enginn leikur eftir
Signe Björnberg, í þýðingu Sigurðar
Steinssonar. „Rauðu ástarsögurnar“
hafa notið mikilla vinsælda undan-
farin ár og þessar þrjár nýju bækur
gefa hinum fyrri ekkert eftir, segir í
tilkynningu frá útgefanda.
Enn um papp-
írsgjaldið
llalldóra Friörlksdóttlr
hrinjrdi vegna umrædna um papp-
iranjald i skólum o« saRÓi: — Rg á
tvö börn í Fossvogsskóla, sem
|>ejfar hafa Rreitt |H»tta umtalaÖa
pappirs^jald. Kvittanirnar eru
ónúmeraóar oj? hljóöa upp á kr.
5000. Á annarri stendur aö þetta
sé efnisRjald. á hinni að þetta sé
„fyrri hluti efnisRjalds44. Það kem-
ur heim við það sem ég þekki frá
undanförnum árum, þ.e. að þessi
Rjöld séu greidd tvisvar á vetri. Ér
er ekki að ásaka neinn eða kvarta,
fannst bara rétt að þetta kæmi
fram, fyrst verið er að tala um
þessi mál.
03^ SlGtA V/öGA i ÁlLVtkAH
vmn VfMWLíM
V/ÁJií? \MST(Möíc
STÓW, <bóS)A
tK v£S$/ wotw
VÍN L\\(A \
SWsTA LtKúi,'
$L$)A H//sl'7
tóu tíŒMKu
llj vu {ýEGA$ MÚN TU)TT/sV
YTOjjgMSTKALÍO
’D
Ymi \\Am
Mv<o
\9BGM M VLOTr/ST,
4[/- AmAL\0
JöA WÆMKA
\iEWI wmf
M\9aq \LimsV
\\'L Asr^ao
w
Wk
111
<: -i sf7^