Morgunblaðið - 26.11.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980
35
Nú fá margir glaðning
frá getraunum því að
842 voru með 11 rétta
12 réttir gáfu
aðeins 147.000.-
í 14. leikviku Getrauna komu
fram 56 raðir með 12 réttum og
var vinningur fyrir hverja röð
kr. 147.000.- en 842 raðir reynd-
ust með 11 réttum og vinningur
fyrir hverja röð kr. 4.100.-. Vinn-
ingar fyrir seðla, sem aðeins eru
með 11 rétta, verða sendir í pósti
á næstu dögum.
Það má alltaf gera ráð fyrir því,
að leikir seðilsins fari stöku sinn-
um á þann veg, sem flestir geri ráð
fyrir eða „eftir bókinni". Það er
einn þáttur knattspyrnugetrauna,
að margir geti verið með sama
vinnings „númerið", en versta eða
bezta útkoman, eftir því hvernig á
slíka uppákomu er litið, var vetur-
inn 1971—72. í nóvember komu
upp 228 raðir með 12 rétta og
vinningur á hverja kr. 2.500,- (ca.
40.000.- í dag), og í lok febrúar
komu upp 17 raðir með 12 réttum
(kr. 17.000-) og í byrjun marz
aftur 60 raðir með 12 réttum sem
þá gáfu kr. 10.000.-
Einu sinni kom það fyrir í
Danmörku að 28.100 voru með 12
rétta, og hvorki meira né minna
en 116 þúsund með 11 rétta sem
gáfu aðeins 6 krónur danskar í
vinning. Potturinn núna síðast hjá
íslensku getraununum var 11,7
milljónir króna. Er það næst
mesta upphæð sem hefur komið til
greiðslu vinninga.
Salan gengur vel
hjá félögunum
Salan á getraunamiðunum
gengur mjög vel hjá íslensku
íþróttafélögunum og er þeim veru-
leg tekjulind. Framarar eru í
augnablikinu söluhæstir. Selja
vikulega mjög vel og fá í hagnað
krónur 750 þúsund vikulega.
KR-ingar eru í öðru sæti, fá 740
þúsund og síðan kemur ÍR með 407
þúsund. Þessi sala er hjá öllum
deildum félaganna. Þau félög sem
koma næst hvað vikulegar tekjur
snertir eru Valur 286 þús., Ar-
mann 250 þús., Þróttur 256 þús.,
ÍBK 218 þús., Haukar 195 þús. og
FH 170 þús.
- þr.
Getrauna- spá MBL. Morgunblaðið Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the World Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Aston Villa — Arsenal X X X 1 1 1 3 3 0
Coventry — Nott. Forest X X 2 X X X 0 5 I
Cr. Palacc — Man. City X 1 1 X X 2 2 3 1
Everton — Birmingh. 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Ipswich — Middlesbr. X 1 1 1 1 1 5 1 0
Leeds — Brighton X 1 1 1 1 1 5 1 0
Leicester — Norwich 1 1 1 X X X 3 3 0
Man. Utd. — Southampton 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Sunderland — Livcrpool X X 2 2 2 X 0 3 3
Tottenham — WBA X X X 1 1 1 3 3 0
Wolves — Stoke X X X 2 X 1 1 4 1
N. County — Chelsea 2 X 2 X X X 0 4 2
Sportvöruverslunin Sporthúsið færði sig í síðustu viku
um set í Hafnarstrætinu á Akureyri og opnaði í nýju og
skcmmtilegu húsnæði. í spjalli við eiganda verslunar-
innar, Sigbjörn Gunnarsson, kom það fram að hann
væri með á boðstólum íþróttavörur frá öllum þekktustu
framleiðendum á markaðnum í dag. Hann sagðist vera
með allt það sem boltaíþróttamenn þörfnuðust og einnig
verður liann með mikið úrval af skíðavörum. Verslunar-
stjóri Sporthússins er Gunnar Gunnarsson.
— sor
'
Þetta er ekki stór hópur, en engu að síður mjög kröftugur og duglegir
krakkar. Þetta unga og efnilega sundfólk er frá Vestmannaeyjum og
tryggði ÍBV setu í 1. deild í sundi á næsta ári. Lið ÍBV vann
sannfærandi sigur i 2. deildinni um síðustu helgi í Vestmannaeyjum.
Myndin er tekin þegar hópurinn fagnaði sigri og hentu hvort öðru út
í sundlaugina í æfingabúningum eftir að sigurinn var í höfn.
Ljósm. Sigurgeir.
Ráðstef na um jþr ótta-
kennaraskóla íslands
UM NÆSTU helgi, laugardaginn
29.11., mun íþróttakennarafélag
íslands standa fyrir ráðstefnu
um íþróttakennaramenntunina á
íslandi og verður hún haldin i
Kennaraháskóla íslands
v/Stakkahlið, stofu 301.
Þáð hefur lengi verið mál
manna að íþróttakennaraskóli ís-
lands hafi um árabil verið í
öskustónni í íslenskum skólamál-
um og standi íþróttakennara-
menntunin því orðið höllum fæti
miðað við aðra kennaramenntun í
landinu. Má í því sambandi benda
á að á sama tíma og Kennaraskóla
íslands var breytt í Kennarahá-
skóla, breyttust kröfur til inntöku
í Iþróttakennaraskólann ekkert. í
annan stað má benda á að t.d.
handavinnukennarar öðlast í
námi sínu jöfnum höndum al-
menna kennaramenntun og geta
þeir því auðveldlega ráðið sig til
starfa við smáskóla sem ekki hafa
nóga handavinnukennslu í fullt
starf. Þennan möguleika hafa
íþróttakennarar ekki. Að lokum
skal á það bent að möguleikar
íþróttakennara til framhaldsnáms
hér á landi eru engir.
A allt þetta er hægt að benda á
sama tíma og allir virðast sam-
mála um að íþróttaiðkun lands-
manna þurfi að auka að stórum
mun.
Því er það að íþróttakénnarafé-
lag íslands stendur fyrir ráð-
stefnu þessari til að reyna að fá
fram opna umræðu um þessi mál
öll svo mönnum megi ljóst vera að
þau eru ekki að öllu leyti sem
skyldi.
Einkunnagjöfin
Lið FII:
Gunnlaugur Gunnlaugsson 7
Geir Hallsteinsson 5
Kristján Arason 5
Valgarð Valgarðsson 5
Sæmundur Stefánsson 5
Hans Guðmundsson 3
Sveinn Bragason 4
Guðmundur Á. Stefánsson 5
Þorgils Óttar 7
Árni Árnason 4
Lið Vals:
Þorlákur Kjartansson 8
Þorbjörn Jensson 4
Þorbjörn Guðmundsson 4
Gunnar Lúðvíksson 4
Bjarni Guðmundsson 6
Steindór Gunnarsson 5
Gísli Blöndal 4
Stefán Halldórsson 5
Brynjar Harðarson 4
Björn Björnsson 5
t'
V.#'' v.<#
a
PIKHr
íþróttaskór
fyrir alla
fjölskylduna
Höfum nú fengiö hina frá-
bæru Stenzel íþróttaskó frá
Pinnr
Skórnir eru níösterkir enda
unnir úr leöri, sérlega þægi-
legir hvort sem er fyrir inni-
eöa útinotkun.
Staaröir 31/i—12.
Verð kr. 28.700.-
sem er lágt
verö fyrir
jafngóða skó.