Morgunblaðið - 26.11.1980, Síða 36
28
til jóla
^ull Sc ;§>ilfur
Laugavegi 35
Síminn á afgreiðslunni er
83033
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980
Landhelgisgæzluflug í gær:
Rússar að veiðum í
landhelgi Jan Mayen
Norskt varðskip lét skipin afskiptalaus
skammt frá á meðan skipin voru
að veiðum. „Það þætti saga til
næsta bæjar hér á landi," sagði
Guðmundur Kjærnested skip-
herra í samtali við Morgunblaðið í
gær, en skipherra á gæzluvélinni
var Kristinn Árnason.
Varðskipið Farm er 950 tonn að
stærð og hefur 32 manna áhöfn.
Ekki er vitað til þess að Rússar
hafi gert neina samninga við
Norðmenn um veiðar innan land-
helgi Jan Mayen, en íslendingar
hafa krafizt þess að ekkert sé gert
í þeim efnum án vitundar ís-
lenzkra stjórnvalda.
FLUGVÉL LandhelKÍs-
gæzlunnar kom að þremur
rússneskum togurum að
veiðum langt innan land-
helRÍ Jan Mayen skömmu
fyrir hádegi í gær. en
norskt varðskip, sem var
þar skammt frá, virtist
ekki aðhafast neitt þótt
skipin væru að veiðum.
Rússnesku togararnir voru um
3000 tonn að stærð og lét norska
varðskipið Farm W 301 reka þar
Sannfærður um að
tillagan verði felld
— segir Benedikt Þ. Guðbjartsson, formað-
ur Starfsmannafélags Landsbanka íslands
_ÉG HEF mælt eindregið með þvi
við okkar fóik, að þessi sáttatil-
laga verði felld og ég cr reyndar
sannfærður um að svo verði,“
sagði Benedikt Þ. Guðhjartsson.
formaður Starfsmannafélags
Landsbanka íslands, i samtali við
Mbl., er hann var inntur eftir
hans áliti á sáttatillogu þeirri,
sem sáttasemjari lagði fram um
helgina.
langan tíma tæki að senda eftir
atkvæðum víða um land. „Sátta-
nefnd frestaði verkfalli okkar til 8.
desember nk. og við gerum okkur
því vonir um, að samninganefnd
bankanna taki upp viðræður við
okkur eftir atkvæðagreiðsluna ef
samningarnir verða felldir eins og
ég geri fastlega ráð fyrir," sagði
Benedikt Þ. Guðbjartsson.
Gunnar Kr. Guðmundsson við hljóðfærið og upptökutækin.
LjoNmynd Kristján.
Óvenjuleg „kassetta44 á markaðinn:
Leikur eigið efni
blindur og einhentur
UM ÞESSAR mundir er að koma á markaðinn óvenjuleg sptila
eða „kassetta“. Þar er að finna tólf lög eftir Gunnar Kr.
Guðmundsson símavörð hjá Samhandinu. Hið óvenjulega við
spóluna er það að Gunnar er hlindur og hægri höndina hefur
hann misst en eigi að síður annast hann allan hljóðfæraieik
sjáifur og hijóðritaði að auki lögin upp á eigin spýtur.
„Ég tók mig til fyrir nokkrum
mánuðum og keypti mér hljóð-
upptökutæki," sagði Gunnar.
„Hljóðfærin átti ég áður, en þau
eru rafmagnsorgel, gítar,
„cordovox", sem framleiðir
harmónikkutónlist, og „synthes-
iser“ eða tóngerfill. Á spólunni
eru 12 frumsamin lög, sem taka
um 40 mínútur í flutningi.
Ég tek upp hvert hljóðfæri
fyrir sig og blanda röddunum
svo saman með fjögurra rása
blöndunartæki. Tónlistin kemur
því út eins og um hljómsveit
væri að ræða. Ég geri þetta allt
með vinstri hendinni, svo ég hef
kailað spóluna „Vinstrihandar
spil“.
Ég spila aðallega gömlu dans-
ana, valsa, polka, masúrka og
fleira því líkt. Poppið læt ég
alveg eiga sig. Þetta gekk sæmi-
lega en þó misjafnlega. Þetta var
margra mánaða vinna."
Jólatréssal-
an hefst um
aðra helgi
Hækka líklega um
35—40% í verði
JÓLATRÉN i ár hækka líklega um
35—40% i söluverði frá því sem var
á fyrra ári, skv. upplýsingum frá
Landgræðslusjóði. Sala trjánna
hefst væntanlega fyrstu helgina i
desember, þ.e. 5. og 6. des.
Innfluttu jólatrén koma öll frá
Jótlandi, en einnig verða á markað-
inum íslenzk tré og hefur hlutur
þeirra í magni verið um þriðjungur.
Verð trjánna hefur enn ekki verið
ákveðið, því samþykki verðlagsyfir-
valda þarf að liggja fyrir. Áðurnefnd
prósentuhækkun er byggð á útreikn-
ingum kostnaðarverðs og fyrri
álagningu. Á sl. ári kostaði eins og
hálfs meters hátt rauðgrenitré kr.
11.200 en furutré af sömu stærð kr.
14.500.
Siglufjörður:
Kjálkabrotinn eftir
árás á dansleik
Siglufirði. 24. nóv. 1980.
Á DANSLEIK sem haldinn var að
Hótel Höfn sl. laugardagskvöld varð
ungur Siglfirðingur fyrir árás eins
gestanna. Sparkað var í hann og
hann laminn, þannig að hann kjálka-
brotnaði báðum megin og einnig
hlaut hann önnur meiðsli. Flytja
þurfti piltinn í læknismeðferð til
Reykjavíkur.
Ekki náðist í árásaraðilann og er
málið í athugun.
- m.j.
„í tillögunni er gert ráð fyrir um
4% meðalhækkun til bankastarfs-
manna, sem er auðvitað alveg út í
hött, sérstaklega með tilliti til þess,
að 3% voru tekin af okkur með
Ólafslögum. (Við lítum á það sem
algjöra lágmarkskröfu, að okkur
verði bætt þessi 3%,“ sagði Bene-
dikt ennfremur.
„Annars má segja um þessa
sáttatillögu, að hún er frekar illa
unnin. Sáttanefndin var ekki við-
stödd neinar efnislegar viðræður.
Vilhjálmur Hjálmarsson var
skipaður sáttasemjari í deilunni 14.
nóvember og bankarnir sýndu
okkur ekki þá kurteisi, að ræða eitt
eða neitt af þeim efnisatriðum, sem
við höfðum lagt fram," sagði Bene-
dikt.
Heildarfjöldi bankamanna er
milli 2200—2300, en þar af eru
starfsmenn Landsbanka íslands
um 840—870 eða um 40%. At-
kvæðagreiðslan um sáttatillöguna
fer síðan fram á fimmtudag og
föstudag, en ekki má búast við
niðurstöðum úr henni fyrr en á
þriðjudag að sögn Benedikts, því
r *
Asmundur Stefánsson framkvæmdastjóri á ASI-þingi:
Stjórnmálamennirnir sof a
á milli verðbótaútreikninga
MIKLAR umræður urðu á ASÍ-
þingi i gær um kjaramálin og
kom þar fram hörð gagnrýni á
ríkisstjórn fyrir aðgerðarleysi i
efnahagsmálum. krafa var sett
fram um afnám ákvæða í Ólafs-
lögum, er skerða verbótaákvæði
sólstöðusamninganna frá 1977 og
þingfulltrúar vildu að ríkis-
stjórnin g::rði grein fyrir áform-
um sínum áður en ASÍ-þingi lyki,
ekki væri forsvaranlegt að slíta
þinginu. fyrr en áformin lægju
fyrir.
Ásmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri ASÍ kvað umræður
stjórnmálamanna valda sér meiri
og meiri gremju. Engu væri líkara
en þeir svæfu í þrjá mánuði, en
vöknuðu síðan upp með andfælum
skömmu fyrir verðbótaútreikn-
inga og spyrðu sjálfa sig af
undran: Er það virkilega rétt, að
kaupið eigi að fara að hækka um
10%, „Að þessi 10% kauphækkun
sé afleiðing 11% verðhækkana á
meðan þeir sváfu, virðist ekki
komast inn í kollinn á þeim,“ sagði
Ásmundur.
Magnús L. Sveinsson formaður
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur vitnaði til þessara ummæla
Ásmundar og kvað rétt ályktað
hjá Ásmundi að ráðherrarnir
svæfu. Hins vegar kvaðst hann
ekki sammála honum í að ráðherr-
arnir vöknuðu. Engu líkara væri
en þeir svæfu alltaf, en töluðu
hins vegar upp úr svefni rétt fyrir
verðbótaútreikningana. Magnús
lagði fram tillögu á fundinum
ásamt Bjarnfríði Leósdóttur frá
Akranesi um að ASÍ-þing skoraði
á Alþingi að það afnæmi þau
ákvæði Ólafslaga, sem kveða á um
skerðingu verðbótavísitölunnar,
sem um var samið í sólstöðusamn-
ingunum.
Einn fulltrúanna á ASÍ-þingi
kvaðst hafa verið samþykkur
Ólafslögum á sínum tíma, vegna
þess að hann hefði trúað því að
verkalýðshreyfingin byggi við vin-
veitt stjórnvald. „Ég hef orðið mér
til skammar fyrir það,“ sagði þessi
'U"trÚi Sjá frá ASI-Mwf
bls. 14 og 15
Færð yfirleitt góð
FÆRÐ á landinu var yfirleitt g(>ð í
gær skv. upplýsingum vegaeftir-
litsins. en spáð var versnandi veðri
og má þvi búast við að færðin
spillist.
Á Suður- og Vesturlandi var færð
þokkaleg, þó snjóað hefði víða, en
hálka var á vegum. Sömu sögu var
að segja um Snæfellsnes og Dali. Á
Hálsum í Barðastrandarsýslum var
aðeins fært jeppum og stórum
bifreiðum.
Á Vestfjörðum var þá sögu að
segja, að ágæt færð var í nágrenni
Patreksfjarðar og yfirleitt góð færð
á láglendi á Vestfjörðum. Hrafns-
eyrarheiði var aðeins fær jeppum
og stórum bifreiðum og Breiðadals-
heiði og Þorskafjarðarheiði voru
ófærar.
Þá var fært norður til Akureyrar
og í gærmorgun voru vegirnir á
Öxnadalsheiði og í Vatnsskarði
ruddir, eins Siglufjarðarleið, þann-
ig að þessir vegir voru færir í gær,
hvað sem verður í dag. Þá var færi
gott allt austur á Vopnafjörð.
Á Austurlandi var svipaða sögu
að segja en ófært var til Borgar-
fjarðar eystri. Þá er fært suður og
vestur um allt til Reykjavíkur, en
þó var mikill lausasnjór á Breiða-
merkursandi.
Samgönguráðherra:
Innflutningur og sala á
símtækjum verði frjáls
STEINGRÍMUR Hcrmannsson
samgönguráðherra lýsti því yf-
ir á Alþingi í gær, að hann
myndi innan skamms leggja til.
að innflutningur á símtækjum
verði gefinn frjáls, en hingað til
hafa aðrir aðilar en Póstur og
sími ekki haft leyfi til innflutn-
ings slíkra tækja.
Þá sagði ráðherrann einnig, að
hann teldi nú tímabært, að leyfa
öðrum aðilum en Pósti og síma
að annast viðhald og viðgerðir á
símtækjum, auk uppsetningar
þeirra. Kvað ráðherrann nú vera
það marga menn vel menntaða á
þessu sviði, að óhætt væri að
einstaklingar tækju að einhverju
leyti í sínar hendur það hlutverk
er Landsíminn hefði séð um
fram til þessa.
Svipað ástand
á Kröflusvæðinu
ÁSTAND á Kröflusvæðinu var
svipað i gærkvöldi og undanfarna
daga. skv. upplýsingum frá
skjálftavaktinni. Landris var orð-
ið mikið í fyrradag eins og komið
hcfur fram í fréttum, en í gær stóð
það nokkuð í stað.
Að sögn Eysteins Tryggvasonar
getur ris og sig til skiptis varað í
langan tíma og sagði hann síritandi
mæla á staðnum hafa sýnt þá þróun
í langan tíma. Þá sagði hann, að
búið væri að koma fynr aðstöðu
fyrir vísindamenn á staðnum og
menn væru við öllu búnir. Eysteinn
sagði einnig, að ómögulegt væri að
spá nokkru um á þessu stigi hvenær
né hvar umbrot yrðu næst, en
yfirleitt væri einhver fyrirvari frá
því að land færi að síga þar til gos
hæfist.