Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 frystiiðnaði? Rætt vid framkvæmdastjóra Pólsins hf. á ísafirði um nýja samvalsvél fyrir frystihúsin, samkeppni við opinbera aðila og fleira. LJósmyndir Úlfar Við framleióslu borðavoga. örn Ingólfsson raftæknifræðingur og forstöðumaður hönnunardeild- ar Pólsins. Við hlið hans er þróun- arkefiö en framar ó myndinni er heilinn úr samvalsvélinni. Fyrirtækið Póllinn hf. á ísa- firði hóf á sl. ári framleiðslu á tölvustýrðum borðvoKum fyrir frystihús. Nú standa yfir tilraun- ir á svokallaðri samvalsvél sem sama fyrirtæki hefur hannað ok smíðað. VoKÍn mun vinna í sam- bandi við sjálfvirka pokkunarvél sem er þýsk smíði. ÞeKar flaka- pakkarnir koma úr pokkunarvél- inni vÍKtar samvalsvélin þá o>? velur saman. þannÍK að réttur þungi fer í hverja öskju. Með tilkomu þessarar vélasamstæðu ætti að fást aukin nákvæmi auk þcss sem hún leysir mar>?ar mannshendur af hólmi. Auk þessa hefur Póllinn hannað og smíðað ýmis önnur tæki og útbúnað fyrir bíla, báta og frysti- hús. Mbl. heimsótti fyrirtækið á ísafirði og ræddi við þá Ásgeir Erling Gunnarsson, fjármála- legan framkvæmdastjóra og Óskar Eggertsson tæknilegan framkvæmdastjóra fyrirtækisins um störf þess. Fyrsta rafeindavogin Póllinn hf. var stofnaður árið 1966. Stofnendur voru 4 rafvirkjar og 1 viðskiptafræðingur. Fyrir- tækið var fyrst í stað rafmagns- verkstæði en eftir tvö ár var opnuð verslun með alls konar raftæki. Síðan hefur fyrirtækið stækkað smám saman og í dag starfar það í fjórum deildum, viðgerðadeild, verslun, efnislager og loks framleiðsludeild sem var stofnuð árið 1969. í upphafi var aðeins framleiðsla á minni tækjum í bíla og báta, svo sem spennustillum og lekaaðvör- „Við teljum okkur eiga fyrstu íslensku rafeindavogina og var hún tekin í notkun í júní 1978,“ sögðu þeir Ásgeir og Óskar. „Við hófum smíðar á vogunum mikið til fyrir áeggjan frystihúsanna í kring. Þetta hefði ekki komið til ef forráðamenn frystihúsanna hefðu ekki verið jákvæðir og hjálpað til við byrjunina. Það sama má segja um útgerðina hvað varðar fram- leiðslu á búnaði í báta.“ Bylting í frystiiðnaðinum Árið 1979 gerði Póllinn samning við Hagræðingarfélag frystihús- anna við ísafjarðardjúp um þróun og smíði tölvuvoga fyrir frystihús. Nú hefur Póllinn framleitt borð- nokkuð dýr miðað við það sem við höfum framleitt hingað til. Próf- unum á vélinni ætti að verða lokið um áramótin og á næsta ári ættum við því að geta hafið framleiðslu ef allt gengur að óskum. Ef svo fer mun samvals- vélin valda byltingu í frystiiðnað- inum, þeirri mestu frá því flökun- arvélin kom til sögunnar. En við eigum enn eftir að svara ýmsum spurningum, bæði hvað varðar hönnun vélarinnar sjálfrar og svo er það stóra spurningin hvernig kaupendunum lýst á nýju pakkn- ingarnar. Bretar framleiddu eina tegund samvalsvélar sem var mjög stór og flókin og dýr í framleiðslu. Sú vél er ekki framleidd lengur. í staðinn hefur komið á markaðinn Bylting í unartækjum. En árið 1976 kom til fyrirtækisins tæknifræðingur, Örn Ingólfsson, sem áður hafði lært rafvirkjun hjá Pólnum. Við það kom meiri skriður á aila þróunarvinnu innan fyrirtækisins. Var hafist handa á því að endur- bæta og þróa hleðslutæki fyrir báta en síðan farið fljótlega út í þróun á tölvuvogum fyrir frysti- hús. Vogirnar eru að öllu leyti hugmynd og hönnun Pólsins. Hvert einasta stykki í þær er smíðað á staðnum. vogir, innvigtunarvogir og flokk- unarvélar fyrir frystihús og eins og nefnt var í upphafi eru nú hafnar tilraunir á enn einni ný- smíðinni, samvalsvélinni. í frysti- húsi íshússfélags ísfirðinga hefst á næstunni prófun á vélinni á vegum Pólsins og sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. „Við gerum okkur ekki alveg grein fyrir því hvað vélin mun kosta í framleiðslu. Við ætlum fyrst að sjá hvernig hún reynist, en við búumst við því að hún verði RAFEINDA @¥DG ' W ' • m i§i, í • . .. .. ' 2W~ , . * Á •krifstofu Noröurtangans ar afleatrartafla innvigtunar- vogarinnar sem Póllinn helur einnig hannað og smíðað. Húsnæði Pólsins hf. é ísafirði japönsk vél sem er ekki nema partur af því sem okkar vél kemur til með að vera, hún er aðeins að litlu leyti sjálfvirk." Útflutningur Hingað til hefur Póllinn aðal- lega framleitt fyrir innanlands- markað en á síðasta ári var hafinn undirbúningur að útflutningi. Þegar hafa nokkrar vogir verið fluttar út til Færeyja. „Við tókum þátt í sýningunni World Fishing í Kaupmannahöfn í júlí sl. sumar. Þar þreifuðum við fyrir okkur með útflutning í huga í samráði við Útflutningsmiðstöð iðnaðarins. Síðan tókum við óbeint þátt í Nord Fishing í Þrándheimi og núna vorum við að koma af sýningu í Boston. Eins og er má segja að við séum komnir með umboðsmenn í Fær- eyjum og Noregi. Á næstu dögum eru væntanlegir til landsins full- trúar frá Nýfundnalandi sem mögulega taka að sér umboð fyrir alla austurströnd Kanada. Það líður varla sú vika að við fáum ekki fyrirspurnir einhvers staðar að úr heiminum. Við vonumst til að geta hafið útflutning af fullum krafti á næsta ári þegar búið verður að ganga frá öllum nauð- synlegum atriðum." Enginn jafnfætis Hvað með samkeppni? „Ef við byggjum á reynslu okkar af þessum sýningum má segja að það sé enginn erlendur framleið- andi kominn í beina samkeppni við okkur. En það styttist í það. Tölvuvogirnar okkar eru þær fyrstu sem þola vatn og eru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.