Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
Bókatíðindi Idunnar
Leiknum
er lokið
Ásgeir Hjartarson:
Leikdómar og greinar
Leiknum er lokið heitir safn
leikdóma og greina um leikhús-
mál eftir Ásgeir Hjartarson. Ólaf-
ur Jónsson sá um útgáfuna og
skrifar eftirmála um höfundinn
og bókina.
Ásgeir var einn fremsti leikgagn-
rýnandi landsins á sinni tíö. Hann
skrifaöi að staöaldri um leiksýn-
ingar í Þjóöviljann í tæpan aldar-
fjórðung. Fyrir nokkru kom út safn
af greinum hans 1948—1958-undir
nafninu Tjaldiö fellur. í Leiknum
er lokió er aö finna úrval greina frá
árunum 1959—72, um fimmtíu
greinar, þar á meöal afmælis- og
Bók og
kvik-
mynd
Pétur Gunnarsson, höfundur
metsölubókanna: Punktur,
punktur, komma, strik og Ég,
um mig, frá mér, til mín, er nú
aó vinna aö nýrri bók um þá
þjóðfrægu persónu Andra Har-
aldsson.
Fyrri bækurnar tvær eru nú
aftur fáanlegar. Pétur kvaöst
ekkert geta sagt nákvæmlega til
um hvenær nýja bókin kæmi út
annaö en aö þaö yröi bráðlega,
hann væri nú aö leggja síöustu
hönd á verkið. Ef dæma má af
viðtökum fyrri bóka Péturs eru
þeir ófáir sem bíöa með mikilli
eftirvæntingu eftir þessari nýju
bók.
Þorsteinn Jónsson kvikmynda-
gerðarmaður er um þessar
mundir í miöju kafi í kvikmynd
byggöri á Punktur, punktur,
komma, strik, og sagöi Pétur
aö tökum væri nú lokið en þó
væri mikil vinna eftir viö mynd-
ina. Frumsýning er fyrirhuguö í
marsbyrjun á næsta ári.
minningargreinar um leikhúsfólk.
Bókin er hiö fróðlegasta heimildar-
rit um íslenska leiklistarsögu, auk
þess sem Ásgeir var svo ritsnjall
höfundur aö greinar hans halda
gildi af þeim sökum.
Tvö
leikrit
í vor sem leiö gaf löunn út tvö
leikrit, samtímis því aö þau voru
sýnd í leikhúsum. Þetta eru leikrit-
in Hemmi eftir Véstein Lúövíksson
sem sýnt var lönó og Smalastúlk-
an og útlagarnir eftir þá Þorgeir
Þorgeirsson og Sigurö Guö-
mundsson málara sem sýnt var í
Þjóöleikhúsinu.
Hemmi er þjóðfélagsstúdía líkt og
fyrra leikrit Vésteins Stalín er ekki
hér sem sýnt var í Þjóöleikhúsinu
fyrir nokkrum árum og einnig kom
út á bók.
Smalastúlkan og útlagarnir er
afar forvitnilegt verk sem Siguröur
málari samdi skömmu fyrir andlát
sitt 1874, en Þorgeir Þorgeirsson
hefur sniöiö verkiö ugp og aölagaö
nútíma leikhúshugmyndum.
Mánasilfur
Úrval úr endurminningum
Nú er komið annað bindi Mána-
siifurs sem Gils Guðmundsson
hefur haft umsjón meö og búið
til útgáfu. í formála að fyrsta
bindinu segir Gils meöal ann-
ars:
„Síðastliöna hálfa öld hefur veriö
mikiö samiö - og gefið út af
minningum hvers konar. í því
flóöi kennir aö vonum margra og
misjafnra grasa. Hér hafa lagt
fram sinn skerf karlar og konur
úr öllum héruöum og flestum
stéttum þjóöfélagsins. Forseti
lýðveldisins hefur ritað minningar
sínar, rithöfundurinn, læknirinn,
þresturinn, stjórnmálamaðurinn,
kennarinn, kaupmaöurinn, hús-
móöirin, bóndinn, sjómaöurinn,
verkamaöurinn . . . Eftir því sem
minningabókum fer fjölgandi, má
segja aö lesendum reynist tor-
veldara að fylgjast meö fram-
leiöslunni og skilja kjarnann frá
hisminu. Ég hef löngum lesiö
allan þorra þess, sem út hefur
komiö á íslensku af endurminn-
ingabókum. Nokkur hin síðari ár
hefi ég leitt aö því hugann, hvort
ekki væri ástæöa til aö gafa út í
safnriti allfjölbreytilegt úrval og
sýnishorn endurminninga ís-
lenskra karla og kvenna . ..“
En þaö eru ekki einungis seinni
tíma höfundar sem fá inni í
Mánasilfri. Elsti höfundurinn í
fyrsta bindinu er Jón Stein-
grímsson, eldklerkurinn frægi og
í ööru bindi Árni Magnússon frá
Geitastekk, Kínafari, en báðir
voru þeir fæddir á öndveröri
átjándu öld. Nítjánda öldin á
einnig sína fulltrúa í báöum
bindunum og hvaö ööru bindi
viövíkur þá eru sex höfunda á lífi.
Skuggsjá
íslensks mannlífs
Gils Guömundsson hefur meiri
og víötækari þekkingu á þessu
efni en flestir aörir og góöa
smekkvísi til aö finna hvar feitt er
á stykkinu. Mánasilfur er eins
konar skuggsjá íslensks mannlífs
fyrri tíöar, myndasýning sem
ungum sem öldnum mun veröa
til fróöleiks og skemmtunar og
vex aö gildi er stundir líða.
í fyrsta bindinu eiga þætti eftir-
taldir höfundar:
Anna Thorlacius, Ágúst Vigfús-
son, Árni Óla, Bernharö Stefáns-
son, Bjartmar Guðmundsson,
Bríet Bjarnhéöinsdóttir, Elínborg
Lárusdóttir, Gísli Jónsson, Guö-
mundur Björnsson, Guömundur
Jónsson, Guöný Jónsdóttir,
Guörún Jónsdóltir Borgfjörö,
Hermann Jónasson, Þingeyrum,
Indriöi Einarsson, Ingólfur Gísla-
son, Jón Steingrímsson, Jónas
Sveinsson, Magnús Á. Árnason,
Magnús Pálsson, Ólína Jónsdótt-
ir, Sigurður Breiöfjörö, Sveinn
Björnsson, Sveinn Gunnarsson,
Tryggvi Gunnarsson, Þorsteinn
Jónsson, Þórbergur Þóröarson.
Þessir höfundar leggja fram efni í
annað bindi:
Ari Arnalds, Árni Magnússon frá
Geitastekk, Björn Sigfússon,
Bogi Ólafsson, Daníel Daníels-
son, Einar Jónsson myndhöggv-
ari, Eiríkur Ólafsson frá Brúnum,
Guömundur G. Hagalín, Guö-
mundur Hannesson, Guörún
Guðmundsdóttir, Gunnar Bene-
diktsson, Gunnar M. Magnúss,
Gunnar Ólafsson, Hafsteinn Sig-
urbjarnarson, Hannes Þor-
steinsson, Hulda (Unnur Bene-
diktsdóttir Bjarklind), Ingibjörg
Lárusdóttir, Ingunn Jónsdóttir,
Jóhannes Birkiland, Karólína
Einarsdóttir, Magnús F. Jónsson,
Matthías Jochumsson, Ólafur
IfXJNN
SAFN ENDURMINNINCA
GILS GUÐMUNDSSON
VALDI EFNID
IOUNN
MANA
Tryggvason, Ólöf Siguröardóttir
frá Hlöðum, Páll Melsted, Sigur-
björn Þorkelsson, Skúli Guö-
jónsson, Sæmundur Stefánsson,
Þórarinn Sveinsson.
Glæpur og refsing;
Stattu þig drengur, eftir Stefán
Unnsteinsson fjallar að mestu
leyti um Sævar Ciesielski eina
aðalpersónu einhvers frægasta
sakamáls hér á landi fyrr og
síðar, Geirfinnsmálsins. Rakinn
er æviferill hans, sjálfsmynd,
hugmyndir kunningja og vina um
hann, hugleiðingar um það hvern
þátt samfélagiö á í að móta slíkan
mann en síöasti hluti bókarinnar
fjallar um rannsóknaraðferðir
þær sem lögreglan beitti við
rannsókn málsins.
„Þar eru stórar ásakanir á ferð,
miklu stærri en svo', aö yfirvöld
réttarfarsins geti hummaö þær fram
af sér.“
(Árni Bergmann, Þjóöviljinn)
„Aö þetta eru hrfessileg skrif skiptir
kannski ekki öllu máli, heldur hitt aö
þau eru alvarleg ákæra sem vissir
aöilar þurfa að taka afstöðu til ...
Lýsingarnar á yfirheyrslum og þving-
unaraögeröum í Síöumúlafangelsinu
geta ekki allar veriö lognar. .."
(Jóhann Hjálmarsson,
Morgunblaöið)
„Stefán Unnsteinsson dregur upp
skýra mynd og ógnvekjandi af
ástandinu í fangelsinu þessa dimmu
vetrarmánuöi 1976 ...“
(Ómar Valdimarsson,
Dagblaðiö)
„Stefán leiöir hugi lesenda sinna aö
mlkilli og átakanlegri harmsögu og
mannfélagsböli ... Stefán hefur
vandað verk sitt."
(Halldór Kristjánsson,
Tíminn)
„... umrædd bók er eins og köld
vatnsgusa í andlit þeirra sem héidu
aö fariö væri með sakamenn á
íslandi eins og manneskjur."
(A.G., lesandabréf,
Þjóöviljinn)
„Enda þótt aðeins þriöjungur af
bókinni væri sannur, fyllti þaö mig
sektarkennd."
(Gréta Petersen,
Morgunblaðið)
„Mun lögreglan nokkurn tíma viöur-
kenna aö hafa beitt líkamlegum
misþyrmingum og andlegum pynt-
ingum þó svo að ásakanir um slíkt
eigi við veruleg rök að styöjast?"
(Gunnlaugur Ástgeirsson,
Helgarpósturinn)
„Jú, í sem skemmstu máli viröist
gert samsæri þagnarinnar. Ekkert
heyrist. Embættismennirnir þegja,
hvort heldur það er sálfræðingur eöa
fangavöröur, lögmaöur eöa lög-
regluþjónn . . . Þögnin skelfir mig ...
á öllu veltur hver viðbrögö manna
veröa ... Veröi bók Stefáns þöguö í
hel, hygg ég fleirum fari sem mér:
Þeim þyki grunsemdirnar nálgast / -te\\
vissu, draumurinn breytast í mar- i /AÁAl
tröö.“
(Heimir Pálsson,
Helgarpósturinn)
víivuNOun
anr&soN
fjóÁ
Ljóð
Vilmundur Gylfason
X
>wm
Ut er komin Ijódabók eftir
Vilmund Gylfason alþing-
ismann. Vilmundur er
þjóökunnur fyrir afskipti
sín af stjórnmálum en
síöur fyrir skáldskapar-
iöju. Þó er þetta önnur
bók höfundar, hin fyrri
kom út fyrir tíu árum.
Ýmsum kann aö þykja
sem kveöi viö nýjan tón
í Ijóðum hans sem eru
rómantísk og persónu-
leg. Þau eru flest hver
blíð ástarljóð, órafjarri
haröskeyttum heimi
stjórnmálanna. Þaö er
ekki aö efa aö þeim sem
fylgst hafa meö stjórn-
málamanninum Vilmundi
Gylfasyni þykir forvitni-
legt aö kynnast skáldinu
Vilmundi Gylfasyni.