Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 19
Bókatíðindi Iðunnar MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 51 Anna-Greta Winberg: Ég er kölluð Ninna NINNA vissi af reynslunni, að fyrsti dagurinn í nýjum skóla var afar mikilvægur; það mátti ekki segja neitt kjánalegt, ekki kunna of mikið, ekki hlæja að neinu fyrr en einhver annar hló. Stundum datt henni í hug, að hefði hún tóm til, skyldi hún einhvern tíma skrifa bók sem héti: Listin að skipta um skóla og lifa það af... Anna-Greta Winberg hef- ur getið sér góöan orðstír á Noröurlöndum fyrir raun- sæjar og lifandi sögur um unglinga nú á tímum. Völundur Jónsson þýddi Ég er kölluð Ninna, sem er fyrst bóka höfundar til að koma út á íslensku. Hver man ekki ÆlflNTÝRA-RÆKIIRNAR? ni w iiæ ■ ■ ii^i i#j^ii*wiiiinii ■ Ævintýra-bækurnar eftir Enid Blyton eru vinsælustu unglinga- bækur á íslandi fyrr og síðar. Ný útgáfa Gefum unglingum níunda áratugarins tækifæri til aö sökkva sér niður í og njóta hinna óviðjafnanlegu Ævintýra-bóka. Skemmtilegri félaga en þau Finn, Jonna, Önnu og Dísu, aö ógleymdum Kíkí er ekki hægt að hugsa sér. Ævintýra-bækurn- ar eru ekkert venju- lega spennandi — þær eru einfaldlega ÓGLEYMANLEGAR þeim sem einu sinni les þær. GUÐRÚN Helgadóttir hefur ein- stakt lag á aö skrifa sögur, sem allir aldursflokkar hafa gaman af aö lesa. Hún brúar kynslóöabiliö eins og aö drekka vatn, hún skáldar án þess að skrökva: Af sögum hennar stafar hlýju án þess þó aö í þeim só raunveruleikinn fegraöur á nokkurn hátt. „Maöur getur hugsanlega reynt aö skýra erfiðari staðreyndir lífsins nær- gætnislega," sagði Guörún í grein í sænsku tímariti nýlega. En þaö er ekki síst húmorinn, sem Guörún er fræg fyrir, hin áreynslulausa, létta fyndni sem einkennir bækur hennar og kemur ungum jafnt sem öldnum í gott skap. Evi Bögenæs: Þokkaf ull og rómantísk „Kitta og Sveinn44 þriðja Kittu-bókin FYRSTA Kittu-bókin, Drauma- haimur Kittu, kom út áriö 1978 og ( fyrra fylgdi önnur ( kjölfariö, sem hét einfaldlega Kitta. Um Kittu skrifaöi Siguröur Helgason í Vísi: „Yfir bókinni er þokki... eitthvaö er það sem heldur manni viö efnið og erfitt er að hætta fyrr en bókin er búin.“ Þaö er því líklegt aö þeir unglingar, sem þegar hafa kynnst Kittu, séu áfjáöir í aö fylgjast meö henni áfram og veröa vonandi búnir aö lesa hana áöur en skólinn hefst aö nýju. Sórhverja bók í flokknum má lesa sem sjálfstæöa sögu. Andrés Kristjánsson þýddi. Enn af Jóni Oddi og Jóni Bjarna Nú er þriöja bókin um þá bræöur Jón Odd og Jón Bjarna komin út. Þeir tvíburar eru orönir víöförulir piltar, þar sem bækurnar um þá hafa veriö gefnar út víöa erlendis viö góöan oröstír. Enn af Jóni Oddi og Jóni Bjarna sýnir glögglega, að enn eykst Guörúnu leikni og vald á viöfangsefni sínu .. . Óviðjafnan- lega skemmtileg saga handa börn- um — og fullorðnum. Við spuröum Guörúnu hvort hún reyndi vísvitandi aö skrifa sögur þannig aö bæöi börn og fullorðnir gætu haft gaman af. — Ætli nokkur fulloröin mann- eskja viti nákvæmlega hvaö börn- um kann aö falla í geö, fyrr en þau hafa sagt eitthvað um það sjálf? Ég á hins vegar aö heita fulloröin, svo aö ég þykist vita eitthvaö um, hvaö fulioröiö fólk getur afboriö aö lesa fyrir börnin sín. Ég hugsa meira um aö skrifa þokkalega sögu á sóma- samlegu máli, en fyrir hvaöa aldurs- flokk ég er aö skrifa. Allt í plati — ný saga í nýjum stíl Saga með myndum eftir Sigrúnu Eldjárn EYVINDUR er að rölta um í „ósköp venjulegri fýlu“, þegar hann hittir Höllu. En Halla er einmitt búin að finna upp nýjan leik. Það er splunkunýr leikur sem ALLT I PLATI! JX _ ifii SIGRÚN ELDJÁRN heitir „Hugsanablöðruleik- ur“. Hugsanablöðrur eru blöörur eins og í teikni- myndasögunum. Maður getur sett hvað sem er inn í hugsanablöðrur. Halla og Eyvindur fóru í hugsana- blöðruleik og bjuggu til krókófíla, sem búa í hol- ræsum og vökva rætur Ijósastaura og reka þorska- spítala... Snjöll og fyndin saga (líka fyrir fullorðna). Mynd- listarkonuna Sigrúnu Eld- járn þarf vart að kynna. Teikningar og texti mynda órofa heild í hinni bráð- skemmtilegu nýju barnabók Allt í platil — Hvert er leyndarmál vel- gengni þinnar sem rithöfundar ? — Velgengni mína getur enginn metiö nema ég sjálf. Þess vegna svara ég engum öðrum um hana en mór sjálfri. Hún er mitt leyndarmál. Þaö er mitt að meta fyrir mig hvaö er velgengni. — Finnst þér gaman aö skrifa? — Já — og erfitt. — Guörúnu Helgadóttur rithöf- undi er ails staðar hrósaö upp í hástert, en mikill styrr stendur um stjórnmálamanninn Guörúnu Helga- dóttur, enda er þaö eðli málsins samkvæmt. Er þér þaö ekki tölu- verö freisting aö snúa þér alveg aö ritstörfum? — Hvort tveggja geri ég af fúsum og frjálsum vilja, af því aö mér þykir þaö mikilvægt, og hvor- ugt geri ég í von um hrós. Auövitaö gleöur þaö mig, ef einhver metur þaö sem ég geri, en það gildir um hvorttveggja. Ef ég ætti aö velja um annaö hvort, veldi ég ritstörf, af því aö mér finnst þau mikilvægari. Nú eru allar bækur Guðrúnar fáanlegar, Jón Oddur og Jón Bjarni, Meira af Jóni Oddi og Jóni Bjarna, í afahúsi, Páll Vilhjálms- son, og leikritiö Óvitar í endurskoö- aðri útgáfu. Guórún Helgadóttir Dóra í Álfheimum í FYRRA hóf löunn endurútgáfu á hinum vinsælu Dórubókum 'Ttv ’n). \ /y \ I i r DÓRA l ÁLl HI IMUM RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR Ragnheiðar Jónsdóttur. Hér kemur önnur bókin, Dóra í Álfheimum. Ragnheiður Gests- dóttir myndskreytti bókina. Endurútgáfa þessi hefur mælst mjög vel fyrir og hlaut Dóra, sem út kom í fyrra, afbragösgóöar viötökur. Jenna Jensdóttir sagöi í Morgunblaö- inu í fyrra: „... mín trú er sú, aö á öllum tímum hljóti slík lesning aö höföa til barna og unglinga." „Dórusögur Ragnheiöar Jóns- dóttur eru fallegar frásagnir af góöum unglingum í mennsku umhverfi." (Tíminn.) „Bókin um Dóru heldur enn gildi sínu, þrátt fyrir þann árafjölda, sem liðinn er síöan hún var skrifuö, eins og er um allar góöar bækur.“ (Vísir.) Cahtn Httgxhm '„h m/mmm tOTK HftafflíTSS ásmmitiuimwm Ný bók eftir Guðrúnu Helgadóttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.