Morgunblaðið - 30.11.1980, Page 13
Bókatíðindi Iðunnar
45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
ÍSLENSKUR KRIMMI
— Margeir og spaugarinn
Gunnar Gunnarsson
— önnur
Margeirs-
bókin eftir
Gunnar
Gunnarsson
Þá er þaö önnur bókin
um rannsóknarlögreglu-
manninn Margeir. Fyrsta
starfsregla: Allir eru
óheiðarlegir þangað til
annað verður sannað.
Þetta finnst Rebekku
konu Margeirs viður-
styggileg regla: „Þú ert
aö veröa glæpasérfræð-
ingur sem læðist í kring
um fólk á gúmmísólum,
vantreystandi öllum.“
MARGEIR OG SPAUGAR-
INN er fyrst og síðast
SPENNANDI BÓK. Hún er
fagmannlega skrifuð, stíll-
inn knappur, söguþráður-
inn og persónurnar sann-
færandi, plottið gott: Til-
kynning berst um lík af
konu í fjörunni fyrir framan
útvarpshúsiö á Skúlagötu.
Allar líkur benda til
sjálfsmorðs. Allar líkur
benda til þess aö þetta sé
einfalt mál. Þá kemur
maður sunnan úr Keflavík
og kveðst vera eiginmaður
hinnar látnu. Spaugari
mikill ...
Óvænt lausn
Lausn gátunnar kemur
iesandanum á óvart en er
fullkomlega rökrétt. Við
spurðum Gunnar hvort
hann væri búinn aö hugsa
lausnina áður en hann
byrjaöi að skrifa söguna.
— Að sjálfsögðu. Glæpa-
sögur eru að því leyti
erfiðar í samningu að þær
heimta ákveðnari upp-
byggingu en margt annað.
Þær verða að hafa byrjun,
miöju og niöurlag.
— Heldur þú að það sé
markaður fyrir íslenskar
glæpasögur?
— Vitanlega. Glæpir og
afbrot gerast ekki síður
hér en annars staðar.
Kannski blómstrar tæki-
færismennskan óvíða eins
og á íslandi um okkar
daga. Glæpasaga sem
tengist raunveruleikanum í
kringum okkur er jafn
sjálfsögð og aðrar greinar
bókmennta.
— Ertu með fleiri sögur af
Margeiri tilbúnar í frysti-
kistunni?
— Já, Margeir verður á
kreiki enn um sinn.
Rímurnar
sem sigruðu
hjarta þjóðarinnar
KVÆÐI
ÞÖRARIW KLIUVRN
ÞÓRARINN EI IWÁRN
x^iarmn
....erlndi
l 9
Þórarinn Eldjárn
DISNEYRÍMUR eru komnar út
í nýrri útgáfu. Þar með eru
allar Ijóðabækur Þórarins
Eldjárn komnar út á ný eftir
margar endurprentanir.
Þjóöskáld eru þau skáld sem
þjóöin hefur mestar mætur á á
hverjum tíma. Vinsældir Þórar-
ins eru með ólíkindum. Ekkert
Ijóðskáld á síðari tímum hefur
hlotiö jafn mikla og almenna
viðurkenningu hjá íslensku
þjóöinni og Þórarinn Eldjárn.
Til þess að verða nokkru
fróöari um viðhorf skáldsins
sjálfs til velgengni sinnar,
spurðum við: „Hvers vegna
seljast bækurnar þínar svona
vel Þórarinn?“
— Ætli fólk langi ekki til að
lesa þær?
— Eru þaö ekki venjulega bara
léleg skáld sem öölast viður-
kenningu á meðan þau eru
ennþá hérna megin?
— Spurðu Halldór Laxness.
— Ertu með bók í smíðum?
— Margar.
Eins og fyrr segir eru nú allar
bækur skáldsins fáanlegar en
þær eru í réttri tímaröö:
Kvæði, Disneyrímur og Er-
indi.
Dagurinn
hans Óla
Fyrir krakka á aldrinum þriggja til fimm ára eru allir
dagar jafn merkilegir. Aö vakna, aö fara aö sofa, aö
borða, að bursta í sér tennurnar eru stórviðburöir í
hvert sinn. Aö leika sér er skemmtilegast af öllu.
Þaö er hægt aö gera hverja athöfn dagsins aö
skemmtilegum leik. Þaö getum viö lært af Óla.
Dagurinn hans Óla eru skemmtilegar og
aögengilegar myndabækur meö einföldum
texta handa áhugasömum bókaormum.