Morgunblaðið - 30.11.1980, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980
61
Reksturinn verður að standa und-
ir sér fjárhagslega og það hef ég
alltaf efst í huga. Mér kon% það
einkennilega fyrir sjónir fyrir
nokkrum dögum, þegar það var
haft eftir einum af forráða-
mönnum Arnarflugs, að vitað
væri að áætlunarflug félagins
bæri sig ekki, en vinna ætti upp
tapið með leiguflugi á sumrin.
Hvers vegna leggja menn upp í
rekstur, sem þeir vita að verður
með tapi og ætla svo að eyða
tekjum af öðru til að greiða tapið?
Það finnst mér sérkennileg hug-
mynd. Ég hef aldrei auðgast á
flugrekstri, en heldur ekki tapað,
nema ef vera kynni einhverju af
eigin vinnu. Stjórnunarkostnaður
við flugið lendir að verulegu leyti
á öðru fyrirtæki mínu og sjálfur
hef ég tekið mjög lítil laun fyrir
eigin vinnu."
Sverrir telur þessi sjónarmið
ráða of litlu hjá mörgum, sem
stunda flugrekstur hér á landi.
Vitskiptasjónarmid
verda ad ráða
„Það er ákaflega gaman að
kaupa flugvélar, en þær verða að
geta borið sig. Það virðist stund-
um gleymast. Maður sér mikið af
glæsilegum auglýsingabæklingum
fyrir flugvélar og þeir eru óneitan-
lega freistandi, en það þýðir ekki
að láta tilfinningar ráða í
flugvélakaupum, frekar en öðrum
viðskiptum. Viðskiptaleg sjónar-
mið hljóta að verða að ráða, ef
reksturinn á að standa föstum
fótum. Mitt fyrirtæki hefur aldrei
fengið neina styrki eða fyrir-
greiðslu umfram það sem eðlileg
viðskiptasjónarmið ráða. Við höf-
um aldrei sóst eftir neinum
styrkjum, ekki einu sinni úr
sjúkraflutningasjóði, sem sum
flugfélög hafa þegið, þó að við
höfum vakt allan sólarhringinn
vegna sjúkraflugs."
Sverrir hefur óbilandi trú á
einkaframtakinu og er reiðubúinn
til að standa og falla með eigin
gerðum. Eins og fyrr segir byrjaði
hann á að smíða flugmódel, en tók
A-próf í svifflugi 1956, tólf ára
gamall og B og C-próf ári síðar.
Arið 1963 hætti hann að mestu
afskiptum af flugi í sjö til átta ár,
er hann starfaði við kappakstur
erlendis.
Sögufræg flugvél
Þegar Sverrir kom heim keypti
hann eins hreyfils flugvél af
gerðinni Cessna 205, sex manna
flugvél, sem hann á enn og ber
einkennisstafina TF-STP. Flug-
vélin hafði verið í lamasessi og
eftir að gert hafði verið við hana
leigði hann flugvélina flugrekstr-
araðila í Reykjavík. Þetta er
sögufræg flugvél, því að sænsk
flugkona flaug henni pólflug frá
Noregi og þaðan fyrir nyrstu odda
Grænlands og Kanada.
Veturinn 1974 keypti Sverrir
tveggja hreyfla flugvél af gerðinni
Cessna 310, af Flugstöðinni hf.
Vélin var þá skemmd eftir að
henni hafði hlekkst á í lendingu á
Grænlandi. Flugvél þessi var í
fréttum í fyrra, er franskur ferða-
langur skemmdi hana á ísafirði,
er hann ók henni á flugstöðina
þar, fyrir einhverskonar slysni.
Sumarið áður hafði hann keypt
flak af samskonar flugvél, sem
nauðlenti á sjónum við Reykjanes.
Hlutum úr flakinu tókst að bjarga
og voru þeir meðal annars notaðir
til að koma Cessna 310 flugvélinni
í lag.
Það ár, 1974, stofnaði Sverrir
flugfélag sitt, sem enn rekur
fyrstu flugvél hans, Cessna 205, og
auk þess tvær tíu manna flugvél-
ar, tveggja hreyfla, af gerðinni
Cessna 402, sem bera einkennis-
stafina TF-GTI og TF-GTM.
Samanlagt bera þessar flugvélar
23 farþega í senn. Á veturna
starfa þrír flugmenn hjá Leigu-
flugi Sverris Þóroddssonar og
fjórir til fimm á sumrin. Þá er
mest að gera við flutning ferða-
manna, þó að nokkur samdráttur
hafi orðið í því í sumar, eins og í
annarri ferðamannaþjónustu.
— ágás.
HMóro;
Við sendúm þér
nýjustu plötumar
hvert á land sem er
1. The River
Bruce Springsteen 2. Saragossa Band Saragossa Band
Su
3. Kvöldvísa Ljóö: Steinn Steinarr
SLYIir
4. One Trick Pony
Paul Simon 5. Elvis.Christmas Album Elvis Presley 6. Guilty
Barbara Streisand
Nafn
Heimilisfang
Póstnúmer
Staður
Pöntunarseðill
Já takk.
Sendið mér eftir | | [2| |g
farandi plotur með'. .,. . .
póstkröfu: I__14.|___|5.|__J6.
Sendu pöntunarseðillnn strax i dag til:
Heimilistæki hf Sætúnl 8 105 Reykjavík
Hlómplötuþjónusta Heimilistækja h/f gefur þér
kost á því að panta allar nýjustu plöturnar ísíma
eða bréflega.
Merktu við plöturnar sem þú villt fá, og við
sendum þær til þín um hæl í póstkröfu. Þú getur
líka hraðpantað símleiðis. Síminn er 20455.
heimilistæki hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.
Hálfþrítugur Finni óskar eftir
pennavinum á íslandi:
Heimo J. Juntunen,
Viialankatu 2 A7,
SF-45150 Kouvola 15,
Finland.
Ensk kona, tæplega fimmtug,
óskar að eignast pennavini á
Islandi svo að hún geti fræðst um
land og þjóð, en hún segist hafa
mikinn áhuga á íslandi. Áhuga-
málin eru fjölbreytt, en lætur þó
eiginmanni sínum og þremur son-
um eftir fótboltadelluna, segir þá
mikla aðdáendur Nottingham
Forest og Notts County:
Mrs. Pamela Alsop.
74 Brandish Crescent,
Clifton,
Nottingham NG 11 9JX,
England.
Tuttugu og tveggja ára Indverji,
námsmaður, óskar eftir pennavin-
um:
M. Vinod Kumar,
1013/C, 17 D Cross,
2nd Stage,
Indiranagar, Bangalore, India.
Átján ára skozkur piltur hefur
áhuga á að eignast íslenzka
pennavini:
Ian Maclnnes.
28 Willow Drive,
Johnstone,
Strathclyde,
Scotland.
Spánverji, sem ekki gefur frek-
ari upplýsingar um sjálfan sig,
óskar eftir íslenskum pennavin-
um:
Jose M. Valles,
Trull 26,
S. Pedro Riudevitlles,
Barcelona,
Spain.
Norðmaður, rúmlega þrítugur,
óskar eftir bréfaskiptum:
öyvind Bjanesög,
Haraldsgatan 48,
5500 Haugesund,
Norge.
Franskur átján ára piltur skrif-
ar bréf á frönsku og óskar eftir
pennavinum:
Philippe Lauber,
Val-Plan La Rose Bt 35,
13013 Marseille,
France.
Tvítugur norskur piltur, sem
hefur áhuga á umhverfi og listum:
Glenn Loe,
Agronomvn. 9,
Oslo 11,
Norge.
Tuttugu og eins árs stúlka sem
leggur stund á nám í skandinav-
iskum tungum og hefur áhuga á
ferðalögum, tónlist, útiveru o.s.
frv.:
Britt Sonnerfeldt,
Vástra Nobcigatan 20,
S-70355 Örebro.
Sverige.