Morgunblaðið - 27.03.1981, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981
5
Jón Ásgeirsson, tónskáld:
Ávarp í tilef ni af Alþjóða
leiklistardeginum 1981
Jarðarkringlan ukkar er eitt
stórt hrinnsvið. i hrikalegri um-
Kerð óendanleikans. Leikverkið er
miskunnarlaus upplifun au^na-
blika, er safnast siðan saman í
óskýra mynd fortíðarinnar.
Framvinda leiksins er barátta
mannsins við sjálfan sig og um-
hverfi sitt. Hvort sem atburðurinn
snertir heilar þjóðir, eða er svo
smár, sem sungið er yfir vöggu-
barni, er mikilvægi hans fyrst og
fremst fólgið í upplifun einstakl-
ingsins og rétti hans til að varð-
veita sjálfan sig. Ef leikstjórnin
verður miskunnarlaus, fær leikur-
inn yfirbragð fáránleikans og allt
fer að lokum úr bondunum, svo að
gera verður smá leikhlé. Síðan
heldur leikurinn áfram, næstum
eins og ekkert hafi skeð. Það kemur
þó stöku sinnum fyrir, að gömul
saga er endursögð, því svo virðist
sem þessi gamla sögn sé í rauninni
að ské þá stundina. Sagan getur
aldrei verið nákvæm upplifun lið-
ins tíma, heldur er hún túlkuð og
lifuð í nútiðinni hverju sinni. I
sögum, söngvum og myndum eru
minni fortíðarinnar varðveitt og
þannig er fortíðin samferða líðandi
nútíð og því eins konar leikrit í
leikritinu.
í einum afkima þessa stóra
hringsviðs, hér uppi á Islandi, var
leikurinn í leikritinu, fyrr á öldum,
fluttur af sagnamönnum og söngv-
urum. Sviðsmyndina þurfti hver
hlustandi að ímynda sér, en samt
er munurinn á baðstofunni og
leiksviði nútímans í rauninni vart
merkjanlegur og sögumaðurinn
hinn sami og leikarinn í dag. Að
segja sögu, túlka tilfinningar og
flytja boðskap er enn framvinda
fortíðar og nútíðar. Leikurinn í
leikritinu, leikhús nútímans, fjall-
ar um einstaklinginn, drauma hans
og veruleika, gleði hans og sorg,
baráttu hans og örlög og
áheyrendur taka þátt í leiknum,
hlæja eða gráta. Hvort sem vett-
vangurinn er baðstofa, illa búin
ljósum, eða fullkomnasta leiksvið
Jón Ásgeirsson.
veraldar, er hver leikur aðeins
tímabundin og staðfærð afmörkun
þeirra umsvifa mannlífs, er alls
staðar blasa við, ein stund, eða einn
dagur í leikhúsi mannkynsins.
Skilafrestur
framlengdur
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
rikisskattstjóra:
Ríkisskattstjóri hefur í dag
ákveðið að framlengja áður ákveð-
inn skilafrest skattframtala ein-
staklinga, sem hafa með höndum
atvinnurekstur eða sjálfstæða
starfsemi, frá 31. mars til og með
30. apríl 1981.
Ingvar Gíslason
í heimsókn til
Sviþjóðar
Menntamálaráðherra, Ingvar
Gíslason, hefur þegið heimboð
menntamálaráðherra Svíþjóðar,
Jan-Erik Wikström, dagana 26.—
28. mars.
Er hér um að ræða endurgjald
heimsóknar sænska ráðherrans til
íslands í nóvember sl.
Stúdentaráð:
Vinstrimenn
ræða við
umbótasinna
VINSTRIMENN innan Háskóla
íslands hafa nú tekið boði um-
bótasinna um opinberar viðræð-
ur um stjórnarmyndun innan
stúdentaráðs. Áður höfðu um-
bótasinnar hafnað boði Vöku um
slíkar umra-ður. þar til nánari
skýringar fengjust á ýmsum at-
riðum, sem fram höfðu komið i
óformlegum viðræðum þeirra og
þar til kannað hefði verið hvort
málefnalegur umræðugrundvöll-
ur við vinstrimenn væri fyrir
hendi.
Enn er þó ekki ljóst á hvern
hátt meirihluti innan stúdenta-
ráðs verður myndaður, þar sem
ljóst er að umbótasinnar vilja
kynna sér mögulegt samstarf
beggja hinna fylkinganna áður en
þeir taka afstöðu og virðast þann-
ig ætla að nýta sér oddastöðu sína
til að ná sem flestum málum
sínum fram. Því virðist stjórn-
armyndunin velta á því hvor stóru
fylkinganna er reiðubúin til að
fórna meiru til að komast í stjórn,
en úr því ætti að fást skorið innan
skamms, því stjórnar- og nefnda-
kjör skal fara fram ekki síðar en 1.
apríl næstkomandi.
Árni Reynis-
son hættir
hjá Náttúru-
verndarráði
ÁRNI Reynisson, framkvæmda-
stjóri Náttúruverndarráðs, hefur
sagt upp störfum hjá ráðinu og
hættir 30. júni næstkomandi.
Mbl. hafði samband við Árna,
og spurði hann hvers vegna hann
væri að hætta og hvað hann
ætlaði að fara að gera. Hann sagði
að þetta væri búinn að vera mikill
sprettur í 10 ár og einhvern tíma
þyrfti að binda enda á hann. Á
þessum áratug væri búið að frið-
lýsa 60 svæði og feikilega mikið
hefði verið unnið við að leysa
árekstra við mannvirkjagerð og
aðra röskun. Hvergi hefði sér þótt
skemmtiiegra að vinna. En gífur-
legt aðstreymi væri af verkefnum
og ekkert hefði ræst úr með
mannafla og fjármuni til að leysa
þau.
Árni sagði að uppsögn sín væri
endanleg. Hvað við tæki væri
óljóst. Hann vissi það blátt áfram
ekki.
'--------------------------------------------
'‘Ví-r'l' •VV<Á
■ . ' -
: #• í- 1 ’