Morgunblaðið - 27.03.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.03.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981 27 Pantið myndallsta islma 19294 Sórstök Mjómgœði Góð greiðskikjör . eða staðgreiðsiuafsláttur ^ Innlfalið í verði: B Útvarp með L- M- FM-bylgjum, plötuspilerí, W megneri og hétalerer. m Gerð MC 6 með DOLBY kerfi TILBOÐ FIDELITY STEREO SAMSTÆDAN RARÐJANHF. KIRKJUSTRÆTI8 - REYKJAVlK Simi 19294 Augljóslega of langt gengið í skattlagningu — segja þrir þingmenn er lækka vilja vörugjald á gosdrykki um helming Stórhríð stöðvaði sýningu á „Dags hríðar spor“ Þrír alþinKÍsmonn. þeir Guð- mundur G. Þórarinsson. EiíBert Haukdal og Jóhann Einvarðsson, hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á vörugjaldi á gosdrykkjum og sslgæti. Vilja þeir lækka vorugjaldið i 15% úr 30%. Þeir Jóhann og Eggert voru báðir samþykkir 30% gjaldinu i desember siðastliðnum. er það var sett á, en Guðmundur G. Þórarins- son sat þá hjá við atkvæðagreiðslu á Alþingi. í greinargerð með frumvarpinu segja flutningsmenn meðal annars: „Ljóst er, að álagning 30% vöru- NÝLEGA hafa Rikisskip og Haf- skip hf. gert með sér sérstakan þjónustusamning, þar sem Ríkis- skip yfirtekur að mestu leyti alla strandflutningaþjónustu Hafskips hf.. en flutningar þessir frá Reykja- vik nema milli 10—15.000 tonnum á ári. Á saiúa tíma hefur Hafskip hf. einnig gert grundvallarbreytingu á útflutningi kísilgúrs. Er hann nú allur fluttur með Ríkisskip frá Húsavík til Reykjavíkur á plasthjúp- uðum brettum, en þaðan fer kísil- gúrinn í áætlunarskip félagsins á N-sjávarhafnir og Skandinavíu. Nemur útflutningsmagn kísilgúrs milli 20—24.000 tonnum á ári. Á árinu 1980 komu skip Hafskips hf. samtals í 208 skipti til 37 hafna á ströndinni til lestunar og losunar á vörum. Með hinu nýja fyrirkomulagi eykst þjónusta við viðskiptaaðila Hafskips hf. á landsbyggðinni til muna. Ríkisskip er með þrjú skip, Esju, Heklu og Coaster Emmy, sem annast strandsiglingaþjónustu auk tilfall- andi þátttöku Baldurs. Á árinu 1980 komu skip þessi samtals 2259 sinnum á 57 hafnir og fluttu um 75.000 tonn af vörum. Óbeinar viðkomur voru 644, en í þessum tilvikum annast Ríkisskip framhaldsflutninga á vöruflutn- gjalds á öl og gosdrykki nú um áramótin hefur valdið miklum erfið- leikum í fyrirtækjum, sem fram- leiða þessa vöru. Hjá Vífilfelli hf. var 50—60 manns sagt upp störfum, en uppsagnir voru dregnar til baka tímabundið vegna loforða fjármála- ráðherra um lækkun gjaldsins. öl- gerðin Egill Skallagrímsson hf. á einnig við verulega erfiðieika að etja vegna vörugjaldsins. Samdráttur í sölu öls og gos- drykkja er mikill frá áramótum og mikill miðað við sölu undanfarinna ára. Eftir álagningu 30% vörugjalds- ingabifreiðum milli hafna í hagræð- ingaskyni. Áætlunarhafnir Ríkisskips eru nú 33 talsins. Á síðastliðnum 3—4 árum hefur verið unnið að endurskipulagningu og eflingu strandferðaþjónustu Rík- isskips. I því skyni hefur verið tekið upp leiðakerfi þriggja skipa, ferðum fjölgað og nýjum viðkomuhöfnum bætt við. Framundan eru svo ný vöruafgreiðsla í Reykjavík og ný strandferðaskip. Höfuðmarkmið bættrar strandferðaþjónustu er að bjóða landsmönnum upp á ódýra en markvissa flutningaþjónustu inn- anlands og greiða þannig fyrir lágu vöruverði og hagkvæmari atvinnu- uppbyggingu. Mikil áhersla hefur verið lögð á þjónustu Ríkisskips við millilandaskipafélög og þau tæki- færi til hagræðingar sem sérhæfð strandferðaþjónusta getur veitt þeim, enda hafa þau notfært sér þjónustu þessa í mjög auknum mæli. Samstarfssamningurinn við Hafskip hf. er mikilvægur áfangi á þessari leið og stærsti flutningasamningur sem Ríkisskip hfur gert til þessa. Það er mat Ríkisskips og Hafskips hf., að sú verkaskipting, sem í samningnum felst hafi þjóðhagslegt gildi og umtalsverðan sparnað í för með sér, sem svarar milljónum nýkróna. (Fréttatilkynning) ins nú um áramótin er hlutur ríkisins af framleiðsluverði hverrar flösku 52,74% eða góður helmingur andvirðis. Framleiðandi fær síðan tæpan helming andvirðis fyrir að sjá um framleiðsluna, leggja til hráefni, vélar og tæki til fram- leiðslu og húsakost, greiða laun, orkukostnað o.s.frv. Hér er augljóslega of langt gengið í skattheimtu. Samdráttur hefur og orðið svo mikill í sölu þessara drykkja, að ríkið mun engan veginn ná áætluð- um tekjum af þessum skattstofni. Þvert á móti má leiða sterk rök að því, að lækkun gjaldsins leiði til söluaukningar, þannig að tekjur ríkisins minnki ekki við lækkun. Rennir það stoðum undir kenningar um að of há skattprósenta minnki skatttekjur rikisins og lækkun skattprósentu geti aukið tekjur ríkisins, ef hún er orðin of há. (Sjá fylgiskjal I.) Verði vörugjald þetta ekki lækk- að, má saka ríkissjóð um það, að margt fólk, sem að framleiðslu öls og gosdrykkja vinnur, missir vinnu. Vert er að geta þess, að lækkun vörugjaldsins veldur lækkun fram- færsluvísitölu líklega um 0,1% og því nokkurri lækkun á launagreiðsl- um ríkisins. Framleiðendur öls og gosdrykkja eru bjartsýnir á verulega söluaukn- ingu í kjölfar lækkunar vörugjalds- ins, sjá bréf Félags ísl. iðnrekenda, dags. 12.03. 1981, fylgiskjal II. Náist samkomulag við EFTA og EBE um 2% hækkun jöfnunar- gjaldsins væri síðan eðlilegast að fella vörugjaldið frá 23. des. sl. af sælgæti, öli og gosdrykkjum niður.“ í KVÖLD hefst í húsi KFUM og K við Amtmannsstig i Reykjavik ráðstefna um nokkur atriði kristi- legrar siðfræði og ber hún yfir- skriftina Lif i trú. Að ráðstefnu þessari standa auk KFUM og K, Samband ísl. kristniboðsfélaga, Kristileg skólasamtök og Kristilegt stúdentafélag. Markmið ráðstefnunnar er að veita þátttakendum nokkra fræðslu um ýmis grundvallaratriði kristinn- ar trúar og siðfræði. Fluttir verða STÓRHRÍÐIN, sem gengið hefur yfir norðanvert landið undanfar- ið, hafði þau áhrif á dagskrá Þjóðleikhússins, að fresta varð siðustu sýningunni á leikritinu Dags hriðar spor eftir Valgarð Egilsson, sem vera átti miðviku- daginn 18. mars sl. Og hvernig getur svo illviðri norðanlands stöðvað leiksýningu í Reykjavík? Jú, einn leikenda, Leif- ur Hauksson, sem stundar búskap á Ströndunum, tepptist á Hólmavík fyrirlestrar og starfað í umræðuhóp- um. Meðal efnis, sem fjallað verður um, er Hvað er kristileg siðfræði?, Helgi mannlegs lífs, Fjölskyldan og hjónabandið, Að vera kristinn í nútímaþjóðfélagi. Ráðstefnan hefst í kvöld kl. 20.30 á erindi sr. Guðmundar Óla Ólafsson- ar í Skálholti um efnið Hvað er kristileg siðfræði?, og á morgun flytja erindi þeir sr. Gísli Jónasson skólaprestur, Gunnar Jóhannes Gunnarsson guðfræðingur, sr. Karl og komst ekki suður. Nú er veður að ganga niður og færð að lagast og er þá ekkert því til fyrirstöðu að sýna leikritið. Eina hlutverka- breytingu þurfti að bera, þar eð Herdís Þorvaldsdóttir hefur fengið leyfi frá störfum. Jóhanna Norð- fjörð mun því leika hlutverk próf- essors Þjóðlaugar á þessari loka- sýningu. Síðasta sýningin á Dags hríðar sporum verður laugardaginn 28. mars kl. 15.00. Sigurbjörnsson og umræðuhópar starfa. Á sunnudag hefst ráðstefnan með messu hjá sr. Karli Sigur- björnssyni í Hallgrímskirkju, eftir hádegi tala þau Kristín Sverrisdóttir kennari og Sigurður Pálsson náms- stjóri og að því loknu verða almenn- ar hringborðsumræður og ráðstefn- unni lýkur á sunnudagskvöld með samkomu sem hefst kl. 20:30, en ræðumaður þar er Ástráður Sigur- steindórsson skólastjóri. Ríkisskip og Hafskip hf.: Gera þjónustusamn- ing um strandf lutninga Ráðstefna um líf i trú: Umræður og fyrirlestrar um kristna siðfræði „Sérskattar furðulegir og nánast kjánalegir“ Veitingamenn mót- mæla hækkun á aðgöngumiðum BÚIST er við, að veitingamenn muni harðlega mótmæla fram- komnu stjórnarfrumvarpi um nýjan skatt á aðgöngumiða veit- ingahúsa. en veitingamenn halda fund um þetta mál i dag. Ef frumvarpið nær fram að ganga hækka aðgöngumiðar að vinveit- ingahúsum úr 13 krónum i 23 krónur og álagið á hvern miða á að hækka f samræmi við verðlags- visitölu. Þessi nýja skattheimta á að renna i Framkvæmdasjóð al- draðra. Veitingamenn, sem Morgunblað- ið ræddi við, sögðu m.a. að því virtust ekki vera nein takmörk sett hve langt ríkið gæti gengið í skattheimtunni og einnig í því að láta veitingamenn innheimta þessa skatta fyrir sig. ólafur Laufdal, veitingamaður í Hollywood, sagði að það væri táknrænt, að veit- ingamenn hefðu ítrekað sótt um hækkanir á aðgöngumiðum, en yfirleitt fengið synjun. Þá sjaldan þeim hefði verið leyft að hækka verð á aðgöngumiðum hefði verið um einnar krónu hækkun eða svo að ræða. „Þegar ríkið þarf svo á auknum fjármunum að halda er það ekkert mál að hækka miðaverðið um 10 krónur eða um tæplega 80%. Þetta verður til þess, að bæði dregur úr aðsókn að húsunum og öðrum viðskiptum og ég trúi varla að frumvarpið verði samþykkt," sagði Ólafur Laufdal. Konráð Guðmundsson, hótel- stjóri á Sögu, sagðist einnig telja að þessi skattur myndi draga úr aðsókn að stöðunum. „Annars verður viðskiptavinurinn að fá að svara því,“ sagði Konráð. „En af hverju er verið að taka þessa peninga af fólki, sem fer út að skemmta sér? Af hverju ekki af fólki sem fer á skíði í Bláfjöll eða á bíó? Mér finnst svona sérskattar furðulegir og nánast kjánalegir og finnst ekki rétt, að einhver sér- stakur hópur standi straum af þessu þarfa málefni. Ég held að þetta hafi neikvæð áhrif og lögin nái ekki tilgangi sínum,“ sagði Konráð Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.