Morgunblaðið - 27.03.1981, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.03.1981, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FQSTUDAGUR 27. MARZ 1981 Umræður utan dagskrár um flugstöðvarmálið: Fráleitt að minnihluti alþingis- manna hafi neitunarvald í málinu — sagði Albert Guðmundsson Jón Baldvin Hannibalsson (A), varamaður Benedikts Gröndals á Alþingi, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á fundi sameinaðs Alþingis í gaer, og sagði hann tilefnið skrif í Morg- unblaöinu og Þjóðviljanum, þar sem því væri haldið fram, að Benedikt Gröndal hefði gert sérstakt samkomulag við Banda- ríkjamenn um að þeir hefðu 100% afnot af væntanlegri flugstöðvarbyggingu á hættu- og stríðstímum. Jón Baldvin sagði Benedikt nú vera í útlöndum í opinberum erindagjörðum, nánar tiltekið á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Því gæti hann ekki borið af sér umræddar fullyrð- ingar, sem Jón Baldvin sagði þingmenn Alþýðuflokksins sannfærða um að væru rangar. Jón Baldvin sagði rétt að minna á, að samkomulag um flugstöð- ina hefði verið gert í maí árið 1978, í utanríkisráðherratíð Ein- ars Agústssonar (F). nú sendi- herra. Þetta hefði meðal annars komið fram í skýrslu Benedikts Gröndals utanríkisráðherra til Alþingis í október 1978, eftir stjórnarskiptin. Varðandi fund, sem haldinn var hinn 18. júlí 1979, með íslenskum og bandarískum emb- ættismönnum, sagði Jón Baldvin hins vegar rétt að undirstrika eftirfarandi atriði: Utanríkis- ráðherra hafi ekki setið fundinn, og því ekki undirritað neitt samkomulag þar, þó ráðuneytis- stjóri utanríkisráðuneytisins hafi vissulega gert það í umboði ráðherra. Jón Baldvin sagði það hins vegar ekki rétt, að sam- komulag þetta feli í sér nýjar kvaðir, heldur hafi þar verið fjallað um eftirtalin atriði: 1. Endurskoðun á kostnaðar- áætlun við flugstöðvarbygg- inguna. 2. Bandarísku embættismenn- irnir hafi tekið fram að sam- þykki bandaríska þingsins yrði að fást fyrir fjárveitingu til byggingarinnar. 3. Islensku embættismennirnir hafi sagt að Islendingar myndu taka á sig kostnað við fyrirhugaða byggingu, um- fram 20 milljóna dollara framlag Bandaríkjamanna. — Tekið var fram að samþykki Alþingis væri að sjálfsögðu forsenda þessa. 4. Bandaríkjamenn hefðu afnot af byggingunni á tímum stríðs eða neyðarástands, sem bæði ríkisstjórn íslands og Bandaríkjanna þyrftu þó að vera sammála um. Jón Baldvin sagði, að þegar í maí 1978 hefði verið gert sam- komulag við Bandaríkjamenn um afnot af byggingunni, og um nýtt samkómulag eða auknar kvaðir íslendinga væri ekki að ræða. Málið væri hins vegar enn óafgreitt, og væri nú í höndum utanríkisráðherra, en ástæða þess að ákvörðun hefði dregist, væri meðal annars stjórnarslitin haustið 1979. Jón Baldvin sagði að lokum, að hann óskaði eftir því að Ólafur Jóhannesson utan- ríkisráðherra tæki af skarið í þessu máli, og upplýsti hvort Benedikt Gröndal hefði gert eitthvert samkomulag um málið, án vitundar og vilja samstarfs- Geir Hallgrims8on Jón Baldvin Hannibalsson manna sinna í síðari ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar. Ólafur Jóhannesson (F), utanríkisráðherra sagði, að árið 1974 hefði verið gerður samning- ur milli Islendinga og Banda- ríkjamanna, um aðskilnað far- þegaflugs og varnarliðs á Kefla- víkurflugvelli. Ljóst hefði þegar verið, að til þess að svo mætti verða, þyrfti að byggja nýja flugstöð. Bandaríkjamenn hefðu fyrst í stað tjáð sig reiðubúna til að kosta framkvæmdir þessa vegna utan dyra, en síðar, eða í maí 1978, hefði tekist samkomu- lag milli ríkisstjórna landanna um framlag Bandaríkjamanna til sjálfrar flugstöðvarbygg- ingarinnar. Á fundinum hinn 18. júlí 1979 sagði Ólafur Jóhannesson að það hefði gerst að Bandaríkjamenn hefðu lýst því yfir að þeir myndu leggja fram allt að 20 milljónum dollara til framkvæmdanna, að því tilskildu að samþykki þings- ins fengist. Á sama hátt hefðu íslenskir embættismenn lýst því yfir að Islendingar myndu greiða það sem á vantaði, að því tilskildu að samþykki Alþíngis fengist til þeirra framkvæmda. Utanríkisráðherra sagðist því ekki getað séð að Benedikt Gröndal hefði skuldbundið ís- Albert Guðmundsson Sverrir Hermannsson ólafur Jóhannesson lendinga til eins né neins í þessu máli. Það hefði á hinn bóginn alltaf legið ljóst fyrir, að sam- komulag þyrfti að gera milli þjóðanna, ef ákveðið yrði að byggja flugstöðina. Einnig hefði verið um það rætt að afnot af flugstöðvarbyggingunni yrðu í samræmi við varnarsamninginn og í samræmi við Norður- Atlantshafssamkomulagið sem Islendingar væru aðilar að. Jón Baldvin Hannibalsson (A) tók aftur til máls og þakkaði utanríkisráðherra fyrir að hafa skorið úr málinu, í ljós hefði komið eins og alþýðuflokksmenn hefðu talið, að Benedikt Gröndal hefði ekki gert neitt samkomu- lag um þetta mál, eins og þó hefði verið haldið fram í blöðum þeim er hann áður vitnar til, leiðara Morgunblaðsins á þriðju- dag og fréttaskrifum Þjóðviljans í framhaldi af því. Ólafur Ragnar Grímsson (Abl) tók næstur til máls. Sagð- ist hann fagna því að ráðherra hefði nú upplýst málið. Hann sagðist einnig vilja minna á það, að Þjóðviljinn hefði ekki átt upptökin í máli þessu, þvert á móti, þá hefði Morgunblaðið borið það á Gröndal að hafa gert samkomulag um þetta mál án Friðrik Sophusson Ólafur Ragnar Grimsson vitundar samráðherra sinna. Þjóðviljinn hefði aðeins farið fram á að utanríkisráðherra bæri þetta til baka. Það hefði hann nú gert, og komið væri í ljós að Morgunblað- ið hefði farið með rangt mál, þetta hefði ekki verið rétt frekar en svo margt annað í því ágæta blaði sagði þingmaðurinn. Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins kvaðst ekki telja að leiðari Morgunblaðsins hefði verið skrifaður í þeim tilgangi að ráðast á Benedikt Gröndal, heldur aðeins til að vekja athygli á margumræddu samkomulagi frá 1979. Geir sagði það á hinn bóginn athyglisvert, að það kæmi nú enn einu sinni í ljós, að Alþýðu- bandalagið gerði ekki athuga- semdir við annað á Keflavíkur- flugvelli eða í varnarsamningn- um við Bandaríkjamenn, en byggingu flugstöðvarinnar. Væri þetta raunar skýrt tekið fram í stjórnarsáttmálanum, að við flugstöðvarbygginguna gerðu þeir fyrirvara, en ekki um annað í sambandi vif /arnir Islands. Geir sagði að lokum, að að- skilnaður varnarliðs og farþega- flugs væri mikilvægt hagsmuna- mál allra íslendinga. Því vildi hann hvetja til að þegar í stað yrði lokið við að gera samkomu- lag um flugstöðina, framkvæmd- ir yrðu síðan hafnar og þeim hraðað. Sagðist Geir einnig vænta þess, að formaður þing- flokks Álþýðubandalagsins teldi það ekki fyrir neðan virðingu sína að ræða þessi mál á Alþingi. ólafur Ragnar Grímsson (Abl) tók aftur til máls, og sagðist vilja upplýsa Geir Hall- grímsson um það, að hann eða aðrir stjórnarandstöðuþingmenn réðu því ekki eða stjórnuðu hvenær rætt væri um innra samkomulag eða starfshætti í ríkisstjórninni. Geir kallaði þá fram í, og sagði: „Þú er þó að minnsta kosti kominn í ræðustólinn núna.“ Ólafur Ragnar svaraði því, og spurði hvort þetta væri ef til vill mesta stjórnmálaafrek Geirs síðustu vikur, að fá þingmenn upp í ræðustól Alþingis. Væri vonandi að þetta afrek yrði í minnum haft í haust er sjálf- stæðismenn veldu sér nýjan for- ingja. Friðrik Sophusson (S) tók næstur til máls, og sagðist hann vilja þakka Ólafi Ragnari fyrir sérstaklega fróðlegar og miklar upplýsingar í síðustu ræðu hans. Albert Guðmundsson (S) tal- aði næstur. Sagði hann meðal annars, að um það væri ákvæði í stjórnarsáttmálanum, að ekki skyldi hefja framkvæmdir við flugstöðina nema með samþykki allra stjórnarliða, eða að minnsta kosti ekki nema að allir ráðherrar væru því sammála. Þetta sagði Albert vera mjög óeðlilegt. Vitað væri að meiri- hluti væri á Alþingi fyrir flug- stöðvarbyggingunni, og enginn flokkur ætti að hafa neitunar- vald í svona máli. Hér hefði það raunverulega gerst að lítill minnihluti alþingismanna hefði neitunarvald fyrir hönd alls Al- þingis. Sagði Albert, að ef ekkert gerðist í þessu máli yrðu þing- menn þeir er væru frjálsir og óbundnir, að taka sig saman um að koma málinu í gegn. Sverrir Hermannsson (S) tók þessu næst til máls, og kvaðst aðeins vilja segja það, „að ég skildi ekki aukatekið orð af því sem hin forkláraða afturbata- píka Alþýðubandalagsins sagði áðan“. Geir Hallgrímsson (S) tók aftur til máls, og sagðist vilja vitna til ummæla Tómasar Árnasonar viðskiptaráðherra, við afgreiðslu fjárlaga í vetur. Þá hefði Tómas sagt um breyt- ingatillögu Lárusar Jónssonar (S) og Friðriks Sophussonar (S) við fjárlög, sem gerði ráð fyrir framlagi til flugstöðvarinnar, að eðlilegt væri að ræða þau mál fremur við afgreiðslu lánsfjár- áætlunar. Þá hefði því ekki annaö verið að skilja, en ríkis- stjórnin ætlaði að taka málið fyrir í vetur. Rétt væri einnig að minna á að Tómas Árnason hefði á þessum tíma gegnt emb- ætti utanríkisráðherra í fjar- veru Ólafs Jóhannessonar. Sagði Geir það að lokum skoðun sína, að þetta mál ætti að koma fyrir Alþingi sem fyrst, það hlyti að vera þingsins að taka til þess endanlega afstöðu. Fleiri tóku ekki til máls í umræðunni. * ii

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.