Morgunblaðið - 27.03.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.03.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981 19 Hjörleifur Guttormsson: „Orkueining hjá Sultar- tanga þriðjungi dýrari44 „Á vegum ríkisstjórnarinnar er nú starfandi nefnd, sem vinnur að þvi að marka fyrir hennar hönd orkustefnu til næstu ára og áratuga og vænti ég þess að útlinur af þeirri stefnu liggi fyrir með vordögum. þannig að stjórnarandstaðan geti sagt sitt álit á henni áður en hún kemur til frekari meðferðar hjá þing- inu á komandi vetri.“ sagði Hjörleifur Guttormsson. orku- ráðherra. er hann tók til máls um frumvarp sjálfstæðismanna um þrjár stjórvirkjanir á þess- „Fljótsdalsvirkjun vann upp tveggja ára forskot Blönduvirkjunar“ um áratug í efri deild Alþingis fyrir skemmstu. Ráðherra lét ýmis ummmæli falla um þá virkjunarkosti, sem fyrir hendi eru, sem fróðlegir eru fyrir þá, er áhuga hafa á röðun verkefnanna og hvern veg verður að málum staðið. Fljótsdalsvirkjurt vinnur upp forskot Blönduvirkjunar „Þegar ég tók við embætti orkuráðherra," sagði Hjörleifur Guttormsson, „var það mat rannsóknaraðila, að það vantaði um tvö ár til að nauðsynlegum undirbúningsrannsóknum væri lokið eða að þessi virkjun (Fljótsdalsvirkjun) væri komin jafnfætis virkjun í Norðurlandi vestra, þ.e. Blönduvirkjun. — Nú gerðist það hinsvegar á liðnu ári að það tókst í senn að afla fjármagns og nýta mjög vel, hátt í milljarð gamalkróna, í tengsl- um við virkjun á Austurlandi. Og það tókst þannig að jafna metin í sambandi við tæknilegan undirbúning þessara virkjana.“ Ekki þarf að horfa til orkufreks iðnaðar Ráðherra taldi það rangt, sem fram kemur í greinargerð fyrir frumvarpi sjálfstæðismanna, að tengja Fljótsdalsvirkjun orku- frekum iðnaði á Austurlandi Engin stóriðja í tengslum við Fljótsdals- virkjun Hjörleifur Guttormsson orkumálaráðherra (Reyðarfirði). „Vegna þess,“ eins og ráðherra sagði, „að þessi virkjun er einhver sú ailra hag- stæðasta í landinu, þó svo við notum hana eingöngu til al- menns markaðar, til orkufram- leiðslu fyrir almennan markað." Sultartangi ekki í myndinni „Ég vænti þess,“ sagði orku- ráðherra, að stjórnarandstaðan geti tekið undir það stefnumið ríkisstjórnarinnar, að næst skuli ráðist í virkjun fyrir landskerfið utan eldvirkra svæða, utan Suð- urlands, og ég vil alveg sérstak- lega vara við þeim málflutningi, sem fram hefur komið, að það sé nauðsynlegt að fara í virkjun hér á Suðurlandi til þess að lenda ekki í orkuskorti svipað og gerzt hefur á yfirstandandi vetri ... Sem betur fer er ekki þörf á slíku." Hjörleifur Guttormsson, orkuráðherra, sagði ennfremur að „verðið á orkueiningu frá Sultartangavirkjun væri mun hærra, allt að þriðjungi hærra ... en frá hinum virkjunum tveimur, Blönduvirkjun og Fljótsdalsvirkjun. Það hefur að vísu verið á það bent,“ sagði ráðherra, „að það kosti sitthvað að færa sig yfir á nýtt svæði til að virkja, þar sé nokkur auka- kostnaður sem fylgi því að flytja sig á milli landshluta til virkjun- arframkvæmda. Auðvitað er hægt að vera með reiknings- kúnstir af slíku tagi. En hvenær í ósköpunum komast menn þá nær þeirri stefnu að dreifa virkjunum um landið." Sýna afkvæmi undan átta stóðhestum í vetur hafa verið fram- kvæmdar svonefndar af- kvæmaprófanir á afkvæm- um sex stóðhesta. Eins og venja er verða afkvæma- hóparnir sýndir almenn- ingi um leið og þeir verða dæmdir og verður fyrsta sýningin af þessu tagi í vor. haldin í Vík í Mýrdal á laugardaginn 28. marz nk. t>ar verða sýndir afkvæma- hópar tveggja stóðhesta en það eru afkvæmi undan Sveip 874 frá Rauðsbakka, eign séra Ilalldórs Gunn- arssonar í Ilolti og Þræði frá Eyvindarhólum, eign Stoínræktaríélagsins Fjallabels undir Eyjafjöll- um. Ilefst sýningin kl. 14 og verður við félagshest- húsið í Vík. Þriðjudaginn 31. marz nk. verða afkvæmi undan stóðhestinum Leikni frá Svignaskarði sýnd og dæmd á bænum Staðarhúsum í Borgarhreppi í Mýrarsýslu. Eig- andi Leiknis er Skúli Kristjónsson í Svignaskarði. Hefst sýningin þar eins og annars staðar kl. 14. Þann 10. apríl verða afkvæmi undan Þræði 912 frá Nýjabæ sýnd og dæmd á bænum Nýjabæ i Anda- kílsárhreppi í Borgarfirði. Eigandi Þráðar er Ólöf Guðbrandsdóttir í Nýjabæ. Næsta sýning verður 24. apríl nk. í Skálmholti í Villinga- holtshreppi í Árnessýslu en þar verða þá sýnd afkvæmi undan stóðhestinum Blæ 906 frá Hellu, eign Hrossaræktarsambands Suð- urlands. Um mánaðamótin apríl-maí verður síðasta sýningin en þá verða afkvæmi undan stóðhestin- um Glæði 918 frá Skáney sýnd í Glæsibæ í Staðarhreppi í Skaga- firði. Eigandi Glæðis er Marinó Jakobsson í Borgarnesi. Dagur fyrir sýninguna hefur enn ekki verið ákveðinn. I flestum tilvikum verða sýnd 8 afkvæmi undan hverjum stóðhesti og eru þau flest á fimmta vetri. M (il.VSINIiASIMINN KH: 22480 Jliorjjunblntiib KOMIÐ og SKOÐIÐ okkar glæsilega úrval af borðstofusettum og rúmum. Opið kl. 9-7 í kvöld og á morgun kl. 10-12. TCIYT húsgögn AVITX Langholtsvegi 111. Sími 37010 og 37144.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.