Morgunblaðið - 27.03.1981, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981
33
haft í för með sér meiri verðbólgu
en annars, eru vitaskuld ýmsar
aðrar ástaeður fyrir verðbólgu-
vandanum, og reyndar er samspil
verðbólgu og atvinnuleysis á eng-
an hátt fullljóst.
í hagstjórn og atvinnuuppbygg-
ingu hefur ýmislegt farið á annan
veg en best hefði verið á kosið. En
það er of margþætt og flókið til að
rekja hér ýtarlega, en þó er rétt að
nefna þessu til rökstuðnings, að
þáttur almennrar hagstjórnar
með beitingu peninga- og ríkis-
fjármála til að hafa áhrif á
heildareftirspurn og þjóðarútgjöld
virðist oft hafa verið vanmetin hjá
stjórnvöldum. Gleggsta dæmið um
þetta er að finna á vaxtarskeiði
efnahagsstarfseminnar fyrir olíu-
kreppuna 1973—1974. Þá var mik-
ill uppgangur og þensla í efna-
hagslífinu og almennri eftirspurn-
arstjórn lítt beitt til aðhalds og
það í raun löngu eftir að efna-
Aðalskipulag Reykjavíkur sem
samþykkt var í borgarstjórn 1977
hefur ekki enn hlotið staðfestingu
í Félagsmálaráðuneytinu, málið
hefur verið svæft af borgaryfir-
völdum nú í langan tíma. í þessu
aðalskipulagi Reykjavíkur er
fyrirhuguð 50 þús. manna byggð í
Korpúlfsstaðalandi. Þó að aðal-
skipulag Reykjavíkur verði stað-
fest strax þá er eftir að deiliskipu-
leggja svæðið og vitað er að slíkt
tekur nokkur ár.
í fyrirspurn MR til skipulags-
stjóra ríkisins í desember 1979 er
spurt um aðalskipulag Reykjavík-
ur.
I svari skipulagsstjóra í janúar
1980 kemur fram að borgaryfir-
völd beri ábyrgð á þessum drætti
sem orðið hefur á staðfestingu.
Það segir sig sjálft að nauðsyn-
legt er að heildarskipulag til
margra ára liggi ávallt fyrir
timanlega vegna komandi kyn-
slóða.
Eins og staðan er í dag þá er
verið að úthluta í Reykjavík litlum
reitum inn á milli húsa, það er svo
sem góðra gjalda vert en er hvergi
nærri fullnægjandi fyrir íbúana.
Fjöldi úthlutaðra lóða á ári er
ekki nægilegur miðað við þann
fjölda sem Framkvæmdastofnun
ríkisins áætlar í spá sinni fram til
ársins 1985.
Samtök sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu skipuðu 5 manna
nefnd 14. maí 1977 til athugunar á
íbúðaþörf á höfuðborgarsvæðinu
með hliðsjón af framsettum hug-
myndum í spá Framkvæmdastofn-
unar ríkisins um þetta efni.
Niðurstaða nefndarinnar var í
fáum orðum sú að þörfin geti ekki
farið niður fyrir 1100 íbúðir á ári á
áætlunartímabilinu. Áætlunin er
fyrir höfuðborgarsvæðið og er
miðuð við mannfjöldaspá.
Á þessu sést að þegar verið er að
úthluta lóðum undir 200—300—
400—500 íbúðir á ári í Reykjavík
þá er það hvergi nærri fullnægj-
andi til að mæta þeirri fólksfjölg-
un sem áætluð er að verði hér í
Reykjavík.
Könnun, sem MR lét fara fram í
samvinnu við byggingarfulltrúann
í Reykjavík nú í febrúar sl. á hve
mikið væri af ómúruðum húsum í
hagskreppan var byrjuð. Hér á
landi var á þeim tíma allmiklu
seinna gripið í taumana en í
flestum öðrum löndum, sem
reyndar höfðu áður en olíuverðið
hækkaði gert ýmsar ráðstafanir,
og voru því útgjöld og eyðsla
þjóðarbúsins langt umfram raun-
verulega getu. Sama sagan endur-
tók sig síðan á uppgangstímanum
í kjölfar efnahagskreppunnar.
Þannig má rekja drjúgan hluta af
þeirri skýringunni á hinni óheilla-
vænlegu verðlagsþróun sem nú er
að tröllríða þjóðfélaginu, það er til
hagstjórnarmistaka á tveimur
vaxtarskeiðum síðasta áratugs.
Þegar litið er yfir þróun efna-
hags- og atvinnumála er fleira
sem veldur áhyggjum en stórfelld-
ar verðlagshækkanir og er þar um
margvísleg atriði að ræða, sem
vafalítið munu setja svip sinn á
næstu framtíð. Eftirfarandi þrjú
atriði munu eflaust vera þar
þýðingarmikii:
1. Á síðustu árum hefur hægt
verulega á vexti þjóðarfram-
leiðslu og þjóðartekna, sem
vitaskuld hefur haft það í för
með sér að svigrum til að bæta
kjör almennings hefur minnk-
að. Þjóðarframleiðsla á mann
óx um einungis 1% á árinu 1979
og 2% 1980 og horfur eru á 1%
samdrætti á þessu ári. Þjóðar-
tekjur á mann rýrnuðu bæði
1979 og 1980 og munu að öllum
líkindum einnig gera það í ár.
Þrjú samdráttarár í röð eru
alvarleg teikn um að hefja verði
öfluga sókn til bættra lífskjara.
2. Eins og tölur um þjóðarfram-
leiðslu og þjóðartekjur bera
með sér hefur lífskjörum al-
mennings verið þröngur stakk-
ur skorinn á síðustu árum.
Nauðsyn á úrbótum í þessu efni
var þó afar brýn fyrir. Kaup-
Reykjavík, upplýsti, að alls voru
182 íbúðir ómúraðar að utan og
innan, sem verður að teljast mjög
lítið með tilliti til atvinnumögu-
leika múrara!
Þessi fjöldi ómúraðra húsa nú,
gefur ekki vonir um bjartari tíð.
Eg vil geta þess að fagfélög
byggingariðnaðarmanna hafa nú
um nokkurra ára skeið fylgst með
þessari þróun í úthlutun lóða á
höfuðborgarsvæðinu og hafa
ítrekað sent frá sér ályktanir þar
að lútandi til viðkomandi bæjar-
stjórna.
Viðbrögð eru lítt sjáanleg af
hálfu borgaryfirvalda í Reykjavík
eða nágrannasveitarfélögum.
Þá hefur það valdið mér von-
brigðum að ekki hefur orðið vart
neinna raunhæfra aðgerða af
hálfu hvorki atvinnumálanefndar
Reykjavíkur eða annarra opin-
berra aðila til að koma af stað
verkefnum sem atvinnuaukandi
eru.
Ég hef á tilfinningunni að
hlutirnir eigi að leysast af sjálfu
sér með vorinu.
Þegar svo vinna fer að aukast
verða 20—30 múrarar búnir að
ganga atvinnulausir til jafnaðar í
viku hverri frá 1. desember sl.
Við þetta verður ekki unað þar
sem ráðstöfunartekjur heimila
þeirra manna sem þurfa að ganga
um atvinnulausir svona lengi
skcrðast það verulega, að til stór-
vandræða horfir.
Öryggisleysi síðari ára varðandi
atvinnumöguleika í byggingariðn-
aði er óþolandi og er það skýlaus
krafa að ríkisvald, borgaryfirvöld
og þeir sem stjórna skömmtunar-
kerfi fjármagns og hárra vaxta,
taki höndum saman og stilli
saman krafta sína svo komist
verði hjá stöðvun byggingariðnað-
ar.
Það er til hagsbóta fyrir alla að
mál þessi séu tekin til alvarlegrar
athugunar svo komist verði hjá
óþarfa sveiflum í byggingariðnaði,
þó það verði ekki til að bæta um
nú á þessum vetri heldur til að
koma í veg fyrir að þessir hlutir
endurtaki sig.
(Ræða á ráðstefnu um
ástand og horfur i atvinnu-
málum.)
geta og greidd laun eru alltof
lág, aðbúnaður á vinnustöðum
lélegur og oft hreinlega for-
kastanlegur og vinnutími er
ósæmilega langur. Þessar stað-
reyndir eiga ekki síst við um
iðnverkafólk, nema e.t.v. hefur
það öllu lakari möguleika til að
bæta sér upp lág laun með því
að lengja vinnutimann. Það er
þó síður en svo að vinnutími
iðnverkafólks' sé?"l5tuttur, því
hann er 46—48 stundir á viku,
en það er þó 4—6 tímum færra
en algengt er hjá öðrum, sem
vinna við undirstöðuatvinnu-
vegi þjóðarinnar.
3. Á síðustu árum hefur fjöldi
þeirra, sem flytjast af landi
brott umfram hina, sem flytj-
ast til landsins, verið ógnvekj-
andi. Þessi landflótti varð mest
áberandi í kjölfar fyrri olíu-
kreppunnar 1974—1975 en þá
fluttust af landi brott að jafn-
aði um 1000 manns umfram
aðflutta. Á síðustu tveimur
árum hefur þessi tala að vísu
verið hér um bil helminguð, en
það verður m.a. að skýra með
almennum efnahagserfiðleik-
um og atvinnuleysi í heiminum.
Ekki er auðvelt að finna nær-
tækari ástæður fyrir þessum
landflótta en slaka afkomu-
þróun. Vart er raunhæft að
ganga út frá öðru en vaxandi
tilhneigingu í þessa átt á næstu
árum, ef ekki tekst að rífa upp
lífskjörin hér á landi.
Fleira má auðvitað telja til í
þróun síðustu ára, sem vekur upp
þá áleitnu spurningu: Erum við á
réttri leið? Én nóg um fortíðina í
bili.
Er eitthvað að sjá í nánustu
framtíð, sem getur gefið vonir um
betri tíð með blóm í haga? Nýting
fiskimiðanna er á endimörkum
síns vaxtar. Afar ólíklegt er að
aukið aflamagn geti um fyrir-
sjáanlega framtíð staðið undir
hagvexti og batnandi lífskjörum.
Til viðbótar við líffræðilegan
vanda hvað afla snertir eru ýmsar
blikur á lofti varðandi fiskmark-
aði okkar erlendis. Samkeppnin
fer nú harðnandi á Bandaríkja-
markaði, sem hefur verið á síðustu
30 árum hornsteinn að velgengni
íslendinga, vegna vaxandi fram-
boðs á fiski einkum frá Kanada-
mönnum. Það er vart nokkrum
vafa undirorpið, að á næstu árum
mun verð á fiski á Bandaríkja-
markaði lækka í hlutfalli við
aðrar vörur. Þó einhver frávik
kunni að verða til skamms tíma
verða Islendingar óhjákvæmilega
að taka á sig þá skerðingu eða
finna aðra jafn gjöfula markaði.
Af þessu samanlögðu verður að
draga þá ályktun, að harla ólíklegt
er að sjávarútvegur geti á næstu
árum staðið undir vaxandi hag-
vexti og aukinni velmegun lands-
manna.
íslendingar eru þó um margt
betur settir en margar aðrar
þjóðir og er þá verið að höfða til
vatnsaflsins og jarðvarmans.
Þessar orkuauðlindir, guðsgjöf,
sem eru möguleikar framtíðarinn-
ar, eru engan veginn auðnýttar.
Uppbygging stóriðju í litlu og
viðkvæmu þjóðfélagi er vanda-
verk, sem verður að ígrunda vel.
Það er þó ekkert áhorfsmál, að út
á þessa braut verður að leggja, ef
sækjast á eftir bættum lífskjör-
um. En samhliða uppbyggingu
orkufreks iðnaðar er þjóðarnauð-
syn að leggja áherslu á aðrar
atvinnugreinar og þá einkum al- n
mennan iðnað. Þetta er nauðsyÁ=r e
legt til að tryggja fjölbreytt at-
vinnutækifæri og jafnframt styrk-
ir það efnahags- og atvinnulífið
almennt.
Af þessu má ráða að róðurinn
til bættra lifskjara verður erfiður
á næstu árum. Miklu skiptir að
koma á jafnvægi í þjóðarbúskapn-
um, draga úr verðbólgu og tryggja
hagkvæma uppbyggingu atvinnu-
veganna. Vöxtur framleiðslu er
nauðsynleg forsenda þess, að hægt
verði að ná sambærilegum lífs-
kjörum og aðrar þær þjóðir, sem
okkur standa næst. Vandinn er
ekki eingöngu að finna arðbær
atvinnutækifæri, þó það sé mikil-
vægt, heldur einnig að tryggja
jafnvægi í uppbyggingu atvinnu-
starfseminnar og þjóðlífsins í víðu
samhengi. Tryggja verður að
manneskjuleg viðhorf verði ráð-
andi í því uppbyggingarstarfi.
Aðbúnaður og starfsskilyrði á
vinnustöðum þarf að vera meira
gildandi þáttur en verið hefur,
einkum í undirstöðuatvinnuveg-
unum, en þar er aðbúnaður víða
eins og í grárri forneskju. Til að
tryggja nútíma viðhorfum aðgang
að uppbyggingu atvinnulífsins er
nauðsynlegt að auka áhrif og
þátttöku starfsfólks á rekstri
fyrirtækja. Vinnustaðurinn er
einn þýðingarmesti þátturinn í lífi
hvers manns. I þessu skyni þarf að
taka upp eitthvert form af at-
vinnulýðræði, sem tryggir starfs-
mönnum hvers fyrirtækis raun-
veruleg áhrif á vinnustað sínum.
(Ræða á ráðstefnu Verka-
lýðsráðs um ástand og horfur
í atvinnumálum.)
<r
Hvergi meira úrval af
skíðabogum
mmmmm _ . • 5
£
Nýjung
9 Þrælöruggar
skíöahöldur
Engin
geymslu-
vandræöi
lengur
Sýniö skíö-
um ykkar
umhyggju
Bílavörubúðin Skeifunni 2
FJÖÐRIN.82944
Púströraverkstæöi
83466