Morgunblaðið - 27.03.1981, Side 34

Morgunblaðið - 27.03.1981, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981 Lýsa andstöðu við ýmsar skipulagstil- lögur á Austursvæði Sjálfstæðismenn í umhverfisráði: Á fundi umhverfismálaráðs á miðvikudag, þar sem fjallað var um tillögur að nýju skipulagi á svunefndum austursvæðum, sem Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Borgarskipulags lagði fram, lýstu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þau Elín Pálmadóttir, Magnús L. Sveinsson og Sverrir Scheving Thorsteinsson, með bókun andstöðu sinni við marga þætti tillagnanna frá umhverfis- og útvistarsjónarmiði, jafnframt þvi sem þau viku að afstöðu meirihluta ráðsins frá næsta fundi á undan. Afstaða fulltrúa Sjálfstæðisflokksins er svohljóðandi: AÐALSKIPULAG REYKJAVÍKUR LANDNOTKUN A AUSTURSVÆOUM 1981 - 1998 MKV I 10000 HRf»N I8U04*BYGCW> IÖOOARBYGGiO. ATVINNULÓOiR ALtr AO JOX SVAEOIS HttFIM AttflUIMMvwnt «— SfOf NBRAUTIR --- TENGIBRAUTW TCNGINOAR Vl»> STOfNÖRAUTIft Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins átelja harðlega vinnubrögð meiri- hluta umhverfismálaráðs við með- ferð þess á tillögum skipulags- nefndar um nýbyggð á austur- svæðum. Þessar hugmyndir skipu- lagsnefndar fela í sér grófa atlögu að mörgum þeim hagsmunum, sem umhverfismálaráð á að gæta, samkvæmt þeim lögum, reglu- gerðum og samþykktum, sem um- hverfismálaráð starfar eftir. Þrátt fyrir þetta lýsir meirihluti ráðsins sig í bókun „í meginatriðum sam- mála þeim þáttum tillögunnar, sem að verksviði ráösins lúta“. Að vísu gerir meirihlutinn í þeirri bókun í fundargerð nokkrar at- hugasemdir og fyrirvara við til- lögur skipulagsnefndar, en þar er einungis um máttlaust yfirklór að ræða, sem enga raunhæfa þýðingu hefur eftir að skipulagið hefur verið samþykkt, en er samt vís- bending um að meirihlutinn í umhverfismálaráði sé ekki alls kostar sáttur við að bera að sínum hluta ábyrgð á þessu nýja skipu- lagi, en hafi ekki kjark til að hafna þáttum, sem svo augljóslega eru í andstöðu við umhverfis- og útivistarmál. Við lýsum furðu okkar á að meirihlutinn skuli t.d. geta lýst sig samþykkan þessum þáttum: 1) Að vatnsbólin við Bullaugu verði niðurlögð sem neysluvatns- ból meðan ekki er vitað hvort vatnstaka með dælingu á Myllu- lækjar og Jaðarsvæðinu kann að koma fram sem rýrnun á vatni Elliðaánna, en svonefnd „vatns- bólanefnd" er rétt að byrja að rannsaka þann þátt. Við teljum öflun nægs, hreins neyzluvatns fyrir borgarbúa, án þess að gengið verði á vatnsforða Elliðaánna, svo mikilvægt atriði að ekki komi til mála að draga úr vatnsöflunar- möguleikum annars staðar fyrr en rannsóknir hafa farið fram, og að ekki sé verjandi að setja framtíð Elliðaánna í hættu sem veiði- svæði. 2) Að gengið verði nær Elliða- ánum með byggð en þegar er orðið og gert er ráð fyrir í fyrri samþykktum ráðsins um umhverfi og útivist. Við höfnum því alger- lega hugmynd um nýtt bygginga- svæði með íbúða- og stofnana- byggð neðan Stekkjarbakka. Þessi tillaga gengur þvert á þá hugmynd sem umhverfismálaráð hefur haft um friðun Elliðaárdals. 3) Að gerðar séu fleiri brýr yfir Elliðaárnar en áður voru taldar nauðsynlegar. Umhverfismálaráð taldi á sínum tíma að besti kostur væri að tengja hverfin beggja megin Elliðaánna og tryggja sam- gönguöryggi með brú hátt yfir dalnum, Höfðabakkabrú, en hafn- aði mörgum smábrúm. Erum við andvíg því að nú verði samt til viðbótar gerð ný brú skammt ofan við hana. 4) Að með niðurfellingu aðal- brautar sunnan Höfðabakkabrúar sé öll umferð af henni leidd inn á íbúðarsvæðin — þ.e. á nábýlisgötu við neðra Breiðholt annars vegar og í gegn um efra Breiðholt hins vegar. Við teljum eðlilegra að umferðin af Suðurlandsvegi á Reykjanesbraut fái framrás um áður fyrirhugaða braut neðan hverfanna og utan byggðarinnar. 5) Að tekin séu undir byggð á Árbæjarholti frátekin útivistar- svæði, sem umhverfismálaráð hef- ur haft forustu um að planta í og græða. Við teljum nú sem hingað til, að þetta svæði eigi að verða viðbót við útivistarsvæðið í Elliða- árdal og safnasvæði, borgarbúum til ánægju í framtíðinni. 6) Að léð skuli máls á því að reisa atvinnuhúsnæði á fyrirhug- uðu útivistarsvæði íbúa í Ár- bæjarhverfi, milli Hraunbæjar og Bæjarháls. Við teljum að ekki veiti af að halda þessu sem opnu svæði í nánd við fjölmennustu götu Reykjavíkur. 7) Að fallist skuli á skipulag til samþykktar áður en tryggt er nægilegt svigrúm fyrir hesta- menn. Við teljum að tryggja verði hestamönnum athafnarými og greiðar reiðgötur frá því, áður en skipulögð er önnur byggð á svæð- inu. 8) Að umhverfismálaráð ljái máls á því að rýra gæði golfvallar- ins. Á sama hátt og hestamennsku teljum við golf svo mikilvægt og gott sport til útivistar og ánægju að ekki verði gengið frá skipulagi sem rýrir möguleika þess og klíp- ur af því svæði sem það nú hefur. 9) Áð setja byggð svo nálægt Rauðavatni, án þess að umhverfis- málaráð hafi fengið til meðferðar eða umsagnar þá þætti, sem snúa að mengunarvörnum vatnsins og almennri náttúruvernd umhverfis það. Við teljum að það hefði átt að koma á borð umhverfismálaráðs, sem náttúruverndarnefndar Reykjavíkur, þegar fyrst kom til á Borgarskipulagi að setja byggð þétt að Rauðavatni og í Hólms- heiðina, þar sem umhverfismála- ráð hefur staðið að uppgræðslu og verndun, og ætlumst til að um þetta verði fjallað, þótt seint sé. Bókun meirihlutans Afstaða sú, sem þarna var vikið að, er bókun fulltrúa Alþýðu- bandalagsins, þeirra Álfheiðar Ingadóttur og Hjörleifs Stefáns- sonar, Alþýðuflokksins Hauks Mortens og Framsóknarflokksins Örnólfs Árnasonar frá fundinum á undan. Svohljóðandi: Umhverfismálaráði hefur verið kynnt tillaga að aðalskipulagi svonefndra austursvæða og lýsir sig í meginatriðum sammála þeim þáttum hennar, sem að verksviði ráðsins lúta. Lýsir ráðið ánægju með að í fyrsta sinn er greint á milli a) sérstakra útivistarsvæða og friðlanda, b) opinna svæða til sérstakra nota, c) óbyggðra svæða og d) stofnanasvæða. Hins vegar lýsir ráðið óánægju með að ekki er gerð grein fyrir göngu- og hjól- reiðastígakerfi svo og reiðgötum í tillögunni. Við afmörkun útivistarsvæða og friðlanda hefur í stórum dráttum verið tekið tillt til óska umhverfis- málaráðs sem setur fram eftirfar- andi ábendingar og fyrirvara við afgreiðslu tillögunnar nú: 1. I undirbúningi er afmörkun fólkvangs í Elliðaárdal og áskilur umhverfismálaráð sér fullan rétt til tillögugerðar í því sambandi. Frekari vegar- eða brúarlagning um dalinn (við Vatnsveitubrú og Ofanbyggðaveg) krefst náinnar skoðunar enda þarf að vanda sérstaklega til slíkra framkvæmda ef nauðsynlegar eru. Þá setur ráðið sama fyrirvara um afmörk- un safnasvæðisins í Árbæ, sem er í athugun hjá undirnefnd. 2. Forsenda fyrirhugaðrar byggðar og atvinnusvæðis norðan Grafarvogs er tenging frá Vestur- landsvegi yfir voginn. Mælir ráðið með brú á þeim stað sem tillagan gerir ráð fyrir en bendir á að á henni verður að vera mikið haf svo lífríki vogsins spillist ekki. 3. Við deiliskipulag íbúðabyggð- ar við Rauðavatn verður að tryggja greiðar gönguleiðir milli lóða niður að opna svæðinu við vatnið svo og að útivistarsvæði í Eggjunum og í skógræktinni sunnan vatnsins. 4. Lega Ofanbyggðavegar um Selás er í samræmi við samkomu- lag umhverfismálaráðs og nátt- úruverndarnefndar Kópavogs en ráðið leggur áherslu á að við brúarstæði yfir Elliðaár verður að tryggja sem minnstar fyllingar yfir Elliðaárnar. Gera þarf ráð fyrir göngum undir veginn og velja þeim stað í samráði við hestamenn. 5. Norðan Stekkjarbakka er flæmi, sem samkvæmt núgildandi skipulagi átti að leggja undir vegarstæði en á tillögunni er ætlað undir íbúðabyggð eftir alda- mót. Umhverfismálaráð telur að þessi breyting á landnotkun sé æskileg m.a. með tilliti til þess að svæðinu mun ekki verða ráðstafað á skipulagstímabilinu. 6. Vestan Bæjarháls er há- spennuloftlína á svæði sem íbúar í Hraunbæ hafa óskað eftir að gert yrði að útivistarsvæði og gerir tillagan ráð fyrir að á því megi reisa atvinnuhúsnæði á þremur lóðum. Ráðið telur brýnt að loft- línan verði sett í jörð svo svæðið nýtist og telur að þrifaleg fyrir- tæki eða verslanir gætu átt þar heima, en því aðeins að íbúar í næsta nágrenni séu því samþykk- ir. Á fundinum á miðvikudag frestaði formaður málinu til næsta fundar. Hœst ber permanent og litabreytingar NÝLEGA var sagt frá ferð hóps hárgreiðslumeistara. sem fóru til Wella Studium í Darmstadt í Vestur-Þýzka- landi og birt mynd af þeim. í framhaldi af því hafa þátttakendur ferðarinnar haft samhand við hlaðið og skýrt frá ýmsu því sem þeir lærðu og sem efst er á haugi nú í hárgreiðsiu. En það er aðallega permanent og lit- un, að þeirra sögn. — Permanent verður mikið í tísku áfram, í öllum myndum og síddum, sagði hárgreiðslufólkið. Og var í Darmstadt kennd sér- stök litatækni. Er hægt að fá litabreytingar, án þess að allt hárið sé litað, t.d. hafðar strípur í öllum regnbogans litum. Ennfremur má vekja athygli á partalitun, sem nú ryður sér mjög til rúms. En með góðri litatækni verður hárið mjög eðli- legt. Á meðfylgjandi myndum, sem teknar voru eftir að hárgreiðslu- meistararnir komu heim og tóku til starfa aftur, eru sýnishorn af því sem hæst ber, að þeirra dómi. Stutt og sítt hár, allt virðist vera í tísku, segja þeir. Skrúfudagurinn er á sunnudag ÁRLEGUR kynningar- og nemendamótsdagur Velskóla íslands — Skrúfudagurinn — er nú haldinn hátíðlegur í átjánda sinn laugardaginn 28. mars kl. 13.30-17.00. Þennan dag gefst nemendum og aðstandendum þeirra kostur á að kynnast nokkrum þáttum skóla- starfsins. Nemendur verða við störf í verklegum deildum skólans og veita þeir upplýsingar um kennslutækin og skýra gang þeirra. Auk þess halda þeir sýn- ingu á kennslubókum og öðrum kennslugögnum. Nemendur Vélskólans eru að búa sig undir hagnýt störf í þágu framleiðsluatvinnuvega þjóðar- innar og er því að vænta að marga, bæði yngri og eldri, fýsi að kynnast því með hvaða hætti þessi undirbúningur fer fram og hvern- ig búið er að nemendum. Skólinn telur mikilvægt að halda tengslum við fyrrverandi nemendur og álítur það vera til gagns og ánægju fyrir báða aðila. Kaffiveitingar verða á vegum félags vélstjó”akvenna, Kvenfé- lagsins Keðjunnar, í matsal Sjó- mannaskólans frá kl. 14.00. Að Skrúfudeginum standa þess- ir aðilar: Skólafélagið, Kvenfélag- ið Keðjan, Vélstjórafélag íslands og Vélskóli íslands. Samkoma og útifundur SAMTÖK herstöðvaandstæðinga efna til baráttusamkomu í Há- skólabíói sunnudaginn 29.marz, klukkan 14. Mánudaginn 30. marz halda samtökin síðan útifund á Austurvelli, framan við Alþingis- húsið og hefst sá fundur klukkan 18. Hinn 30. marz eru liðin 32 ár frá inngöngu íslands í Atlants- hafsbandalagið. MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRCTI • SlMAR: 17152- 17355

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.