Morgunblaðið - 27.03.1981, Qupperneq 48
Síminn
á algreiðslunni er
83033
JRorounbI*í»it>
EKTA'
náttúruefni
Korkur a goltin fra
Nýborgí#
Ármúla 23 - Sími 86755
FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981
Smygluðu
hassolíu
í maganum
NÝSTÁRLEGAR smyglaðferðir
voru notaðar i fikniefnamáli, sem
nýlega var til rannsóknar.
Að sögn lögreglunnar viður-
kenndu tveir menn að hafa smygl-
að hassolíu til landsins í magan-
um. Þeir settu hassolíuna í getn-
aðarverjur og gleyptu verjurnar
skömmu áður en þeir lögðu upp í
flugferð til landsins. Þegar heim
var komið, hófst bið, mislöng, en í
báðum tilvikum skiluðu verjurnar
sér í gegnum meltingarveginn.
Slíkar aðferðir munu alþekktar
úti í heimi en fátíðar hérlendis.
Kaupir
Bahama-
stjórn Air
Bahama?
Veitir Flugleiðum
300 þús. dollara styrk
„STJÓRNVÖLD á Bahama hafa
heitið Flugleiðum 300 þús. doli-
ara styrk til þess að tryggja
áframhaldandi rekstur Air Ba-
hama á Bahama-flugleiðinni
fram tii 1. október með einni til
tveimur ferðum á viku,“ sagði
Sigurður Heigason forstjóri
Flugleiða i samtali við Mbl. i
gær, en Flugleiðir eiga Air
Bahama.
Sjóararabb
Þeir höíðu um margt að spjalla sjómennirnir
á Stykkishólmsbátunum þegar komið var til
hafnar eftir barninginn í ísnum.
Ljósm. RAX.
Landsvirkjun fer fram á
42,5% hækkun frá 1. maí
„Við höfum verið með hugleið-
ingar um að leggja niður Ba-
hamaflugið," sagði Sigurður, en
þegar ákveðið var fyrir skömmu
að halda áfram flugi til Chicago
og leigja eina DC-8 í Atlants-
hafsflugið ákváðum við jafn-
framt að taka stuðningstilboði
Bahamamanna og ná um leið
betri nýtingu á leiguflugvélina.
Samningar hafa staðið yfir að
undanförnu við stjórnvöld á Ba-
hama um hugsanlega þátttöku
þeirra í rekstri Air Bahama, eða
jafnvel kaup á flugfélaginu, en
þeir leggja mikið upp úr því að
við verðum með í rekstrinum.
Þessi mál eru nú til skoðunar og
verið að kanna alla möguleika í
þessum efnum.“
STJÓRN Landsvirkjunar ákvað
á fundi sínum i gærmorgun að
óska eftir því, að stjórnvöld
heimili 42,5% hækkun á raforku
til almenningsveitna frá og með
1. mai nk. Landsvirkjun telur
sig þurfa þessa hækkun ef reka
á fyrirtækið hallalaust i ár, en i
forsendum fyrir beiðninni er
miðað við 40% verðbólgu og 25%
gengissig á árinu. Ef beiðnin
verður samþykkt hefur hún um
20% hækkun á raforku i smásölu
i för með sér.
Póstur og sími hefur farið fram
á 33% hækkun frá og með 1. mai.
Hitaveita Reykjavíkur hefur far-
ið fram á 43% hækkun 1. maí og
Vatnsveita Reykjavíkur hefur
farið fram á 20,8% hækkun frá
Póstur og sími 33%
Hitaveita Reykjavíkur 43%
og Vatnsveitan 20,8%
Á milli 20 og 30 mál liggja
óafgreidd í Verðlagsráði
sama degi. Fleiri opinber fyrir-
tæki eru farin að hugsa sér til
hreyfings og má búast við að þau
sendi inn hækkunarbeiðnir til
stjórnvalda á næstu dögum.
Verðlagsráð samþykkti á dög-
unum hækkanir á unnum kjöt-
vörum, leigubifreiðum og innnan-
Albert Guðmundsson alþingismaður:
Óeðlilegt að mmnihluti Alþingis hafi
neitunarvald í flugstöðvarmálinu
ALBERT Guðmundsson alþing
ismaður sagði i gær i ræðu utan
dagskrár á Alþingi, að hann
teldi fráleitt að minnihluti al-
þingismanna, það er Alþýðu-
bandalagið, hefði neitunarvald i
flugstöðvarmálinu. Sagði Albert
það í fyllsta máta óeðlilegt að
íitill minnihluti þingmanna gæti
á þennan hátt tekið ráðin af
meirihluta Alþingis.
Albert Guðmundsson sagði
einnig, að ef ríkisstjórnin kæmi
ekki fram með málið á Alþingi,
þyrftu þeir þingmenn sem væru
óbundnir og óháðir, að taka sig
sarnan um að flytja málið og
fylgja því fram. Sjálfur kvaðst
hann myndu styðja slíkt frum-
varp, um að framkvæmdir yrðu
hafnar við fyrirhugaða flugstöðv-
arbyggingu.
Umræðurnar utan dagskrár á
Alþingi í gær hófust, er Jón
Baldvin Hannibalsson, varaþing-
maður Alþýðuflokksins, óskaði
eftir að utanríkisráðherra gæfi
yfirlýsingu um að Benedikt
Gröndal hefði ekki staðið að
neinu leynisamkomulagi um
flugstöðina í júlí 1979. Staðfesti
Ólafur Jóhannesson að svo væri
ekki, en skýrði jafnframt frá því
að hinn 18. júlí það ár hefðu
íslenskir og bandarískir embætt-
ismenn sarnið um, að Bandaríkja-
menn legðu fram 20 milljónir
dala til byggingar, og íslendingar
sæju síðan um afganginn. Ólafur
lagði hins vegar á það áherslu að
embættismenn beggja ríkja
hefðu haft þann fyrirvara á, að
fjárveitingar þessar yrðu sam-
þykktar í þjóðþingum landanna
beggja; það væri aðalatriði sem
ekki mætti ganga framhjá.
Nánar er skýrt frá um-
ræðunum á Alþingi á
hlaðsíðu 26 í Morgunblað-
inu f dag.
landsflugi. Ríkisstjórnin hefur
hins vegar ekki afgreitt þessi mál
ennþá. Hjá Verðlagsstofnun
liggja á milli 20 og 30 beiðnir um
hækkanir á vöru og þjónustu og
hafa sum þessara mála legið þar
nokkurn tíma.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er mikill ágreiningur í
ríkisstjórninni um það hvernig
taka eigi á þessum málum í
„hertri verðstöðvun". Verðlags-
málin voru rædd á fundi stjórn-
arinnar í gærmorgun og var þar
bæði fjallað um verðlagningu á
opinberri þjónustu og þær beiðn-
ir, sem liggja hjá Verðlagsstofa-
un. Engar ákvarðanir voru tekn-
ar á þessum fundi og var málinu
frestað til ríkisstjórnarfundar
næsta þriðjudag.
Morgunblaðið spurði Tómas
Árnason, viðskiptaráðherra, að
því í gærkvöldi hvort afgreiðslu
þeirra hátt í 30 hækkunarbeiðna,
sem liggja hjá Verðlagsráði, yrði
frestað fram yfir 1. maí; „í
lögunum um verðstöðvun er sér-
staklega kveðið á um óumflýjan-
legar verðhækkanir, sem hafa
orðið nokkrar frá áramótum og
gjörsamlega er útilokað, eins og
aðstæður eru, að komast hjá. En
það er búið að taka ákvörðun um,
að það verði mjög hert verðstöðv-
un út þetta tímabil, þ.e. til 1. maí,
en um þessi einstöku mál hefur
ekki verið tekin ákvörðun og
þessi mál eru ekki útkljáð," sagði
Tómas Árnason.
Hækka bílatrygg-
ingar enn um 50%?
TRYGGINGAFÉLÖGIN hafa
farið fram á um 50% hækkun
ábyrgðartrygginga bifreiða ofan
á þá 29,5% hækkun, sem kom til
framkvæmda 1. marz sl. Sérstök
nefnd fjallar um þessa beiðni, en
niðurstöðu er ekki að vænta næstu
daga. Liklegt er, að hækkun á
bíiatryggingum komi ekki til
framkvæmda fyrr en eftir 1. maí.
Á síðasta ári fengu tryggingafél-
ögin að hække iðgjöld reglulega í
samræmi við verðlagsbreytingar,
samtals um 29,5%. Þann 1. marz sl.
hófst nýtt tímabil hjá trygginga-
félögunum og fyrrnefnd 29,5%
voru þá reiknuð inn í iðgjaldið með
fyrirvara um frekari hækkun síðar
á árinu. Enn hefur ekki borizt
hækkunarbeiðni frá samstarfs-
nefnd tryggingafélaganna um
aðrar tryggingar, t.d. kaskótrygg-
ingar, en þær koma venjulega í
kjölfar ábyrgðartrygginganna.