Morgunblaðið - 28.03.1981, Page 1

Morgunblaðið - 28.03.1981, Page 1
48SÍÐUR OGLESBÓK 73. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 28. MARZ 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Pólland: Viðræður stjórn- ar og Samstöðu árangurslausar Pólskir verkamenn bera Lech Walesa. leiðtoga sinn, á herðum sér á fjoldafund i Varsjá í gærmorgun á meðan á verkfalli Samstöðu stóð. (Simamynd ap> Varsjá. 27. marz. AP. LECH Walesa, leiðtoxi Samstöðu, ok Rakowski, aðstoðarforsætis- ráðherra Póllands, ræddust við ásamt aðstoðarmönnum sinum i nærri f jóra tíma í dag. Samkomu- lag náðist ekki á fundum þeirra, en ákveðið var að aðilar myndu hittast að nýju á morgun, laugar- dag. Ótimabundið allsherjarverk- fall Samstöðu kemur til fram- kvæmda á þriðjudag hafi ekki náðst samkomulag fyrir þann tima. Milljónir pólskra verkamanna tóku þátt i fjögurra tíma vinnu- stöðvun, sem Samstaða boðaði til í morgun, og lá atvinnulífið í land- inu að mestu niðri þann tíma. Pólsku ríkisfjölmiðlarnir birtu mjög ítarlegar fréttir af verkfall- inu, m.a. birtust í sjónvarpinu myndir af verkamönnum í Lenín- skipasmíðastöðinni í Gdansk, þar sem þeir voru að loka hliðunum að stöðinni. Talsmenn Samstöðu sögðu í dag að fulltrúar stjórnarinnar hafi á fundinum með Walesa lagt fram 13 blaðsíðna skýrslu um atburðina í Bydgoszcz í fyrri viku, þegar lögregla lagði hendur á þrjá verkalýðsforingja. Ein helzta krafa Samstöðu nú er að þeim verði vikið frá, sem ábyrgð bera á þessu atviki. „Við munum kynna okkur inni- hald skýrslunnar rækilega í nótt,“ sagði Lech Walesa í kvöld, þegar hann kom frá fundinum með Rakowski. Hann vildi ekkert segja um niðurstöður skýrslunnar. Karl prins fær giftingarleyfi ELÍSABET II Bretadrottning gaf í dag formlegt leyfi til þess, að Karl krónprins, sonur hennar, gengi að eiga lafði Diönu Spencer þann 29. júní nk. Drottningin leyfði ljósmyndurum síðan að taka myndir af sér með hinum tilvonandi brúðhjónum í garði Buckingham-hallar. Áður er tilkynningin var gefin út hélt drottningin fund með 360 ráðgjöfum sínum, Karl er þar í hópi sem krónprins, til að ræða málið. Er þetta samkvæmt hefð og lögum frá 1772 og munu viðstaddir hafa samþykkt ráðahaginn einróma. Nokkru áður hafði lafði Diana komið til Buckingham-hallar með þyrlu sem lenti þar á grasflötinni og beið hún þolinmóð eftir niðurstöðu ráðgjafafundar- ins. Segja fréttamenn, að ekki hafi verið á henni að sjá, að hún væri smeyk um að niðurstaðan yrði þeim í óhag! helgi ræður Póllandi“ - segir Haig utanrikisráð- herra Bandaríkjanna hætta á róstum meðal þeirra, sem fengju ekki keyptan nægan mat. Weinberger, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í dag, að Bandaríkin og ýmis önnur ríki veltu nú fyrir sér ýmsum aðgerð- um, sem grípa mætti til, kæmi til innrásar Sovétmenna í Pólland. Hann sagðist aðspurður hvorki reikna með né útiloka hernaðar- legar aðgerðir af því tilefni. Sovézka fréttastofan Tass sagði í dag, að verkfallið í morg- un hefði haft lamandi áhrif á pólskt efnahagslíf. Sagði Tass að aðgerðir Samstöðu, samtaka hinna frjálsu verkalýðsfélaga í landinu, væru „greinilega stjórn- málalegs eðlis" og gaf í skyn að pólski kommúnistaflokkurinn fengi lítt við ráðið. Málgagn rúmensku stjórnar- innar lagði í dag enn áherzlu á að Pólverjar yrðu að leysa vandamál sín sjálfir án utanaðkomandi íhlutunar. Málgagn stjórnarinn- ar í Tékkóslóvakíu sakaði hins vegar forsvarsmenn Samstöðu um að beita hótunum, kúgunum og valdi gegn andstæðingum sín- um. Sendiherrar NATO-ríkjanna fimmtán komu saman til fundar í Brússel í dag til að fjalla um ástandið í Póllandi. Engin yfir- lýsing var gefin út að fundinum loknum, en talið er að sendiherr- arnir hafi skipzt á upplýsingum um ástand mála í landinu. Bretland: Rannsókn á upplýsing- um Chapman Pinchers London. 27. marz. AP. THATCHER, forsætisráðherra Bretlands, greindi frá þvi i dag, að hún hefði ákveðið að láta fara fram sérstaka rannsókn á þvi, hvernig blaðamaðurinn Chap- man Pincher, varð sér úti um upplýsingar, sem benda til þess að sovézkir njósnarar hafi starf- að innan brezku leyniþjónust- unnar. Af hálfu brezku stjórnarinnar var í dag gefið í skyn, að ætlunin væri að sækja Pincher til saka fyrir brot á reglum um meðferð ríkisleyndarmála, gæfi rannsókn- in tilefni til þess. Pincher gaf í skyn í nýútkom- inni bók sinni, að Sir Roger Hollis, sem var yfirmaður brezku gagn- njósnanna frá 1956—1965 hafi verið njósnari Sovétmanna. Thatcher neitaði þessum ásökun- um í garð Sir Rogers í þinginu i gær og Sir Harold Wilson, fyrrum forsætisráðherra, tók í sama streng, þót. bæði segðu að óger- legt væri að sanna að maðurinn hefði verið saklaus. Pincher sagði í dag, að hann mundi alls ekki gefa upp heimild- armenn sína fyrir upplýsingunum í bókinni. Sagði hann, að það væri afar iila ráðið að hefja sérstaka rannsókn á því, hvernig hann hefði orðið sér úti um þessar upplýsingar. Hann fullyrti jafn- framt að í bókinni væri ekkert sem sakað gæti öryggishagsmuni Bretíands. Thatcher tilkynnti í þinginu í gær, að önnur sérstök og gagnger rannsókn mundi gerð á öllu skipu- lagi brezku leyniþjónustunnar. Flugvél rænt í Honduras Manavcua. 27. marz. — AP. FARÞEGAÞOTU á leið frá Hond- uras til New Orleans í Bandarikj- unum var í dag rænt og snúið til Managua i Nicaragua. í vélinni voru 81 farþegi og 6 manna áhöfn. Flugræningjarnir, sem talið er að séu fimm talsins, hafa krafizt þess að 16 vinstri menn frá EI Salvador, sem i haldi eru i Honduras, verði látnir lausir. Opinber sendinefnd frá Hondur- as var væntanleg til Managua i kvöld til að semja við ræningj- ana. Vélinni var rænt örfáum minút- um eftir að hún hóf sig til flugs í Honduras. Við komuna til Man- agua voru ein kona og börn hennar tvö, sem verið höfðu á leið til Bandaríkjanna til lækninga, látin laus. Líkur voru i kvöld taldar á því, að fleiri konur og börn verði látin laust í Managua en flugvélinni síðan flogið til Kúbu, Guyana eða Alsír, þar sem frekari samningar yrðu teknir upp. „Komandi úrslitum í Hóta f jölda- sjálfsmorðum Genf. 27. marz. AH. FJÖRUTÍU og tveir verkamenn frá Tyrklandi hafa hótað að fyrirfara sér sameiginlega fái þeir ekki dvaiarleyfi í Sviss sem pólitískir flóttamenn. Mennirnir tilheyra allir minnihlutahópi Kúrda í Tyrk- landi. Þeir hafa ýmist komið til Sviss með ólöglegum hætti eða hafa útrunnin dvalarleyfi. Mennirnir eru nú í umsjá mót- mælendasafnaðar í Genf, sem sér þeim fyrir fæði og húsa- skjóli, en fyrr í mánuðinum lögðu þeir undir sig kirkju í borginni og fóru í skammvinnt hungurverkfall. Af hálfu svissn- eskra yfirvalda hefur það eitt verið sagt um mál þetta, að það sé til athugunar. Wmihinston. MoNkvu. Urassel. 27. marz. AP. ALEXANDER Haig. utanrikis- ráðherra Bandarikjanna, sagði i dag, að atburðir i Póllandi nú um helgina mundu ráða úrslit- um um það, hvort friður héldist í landinu eða hvort þar kæmi til vopnaviðskipta. Ilaig sagði að innan kommúnistaflokks Pól- lands væri „mjög mikill og hættulegur“ ágreiningur milli harðlínumanna og hinna, sem koma vilja frekar til móts við kröfur verkalýðsfélaganna. Haig sagði að hann hefði það m.a. til marks um að úrslitastund nálgaðist, að heræfingum Var- sjárbandalagsríkjanna í Póllandi hefði verið haldið áfram lengur en upphaflega hafði verið ákveð- ið. Hann bætti því við að vegna matarskortsins í landinu væri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.