Morgunblaðið - 28.03.1981, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.03.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1981 29 ,Ó hve margur yrði sælT: Samsvarar sextíu kauplaus- um dögum hafnarverkamanns - segir Sighvatur Björgvinsson Þingsíða Mbl. birti i vikunni íyÍKÍskjal með nefndaráliti Sig- hvats Björgvinssonar. formanns þingfloks Alþýöuflokksins, um bráðabirgðalög rikisstjórnarinn- ar. Nokkrar línur féllu úr fylgi- skjalinu i vinnslu og er þvi hluti þess birtur hér á ný, en Sighvat- ur hafði áður i fylgiskjali þessu sýnt tölulega fram á það að skerðing á kaupmætti launa i rikisstjórnartið Alþýðubanda- lagsins þýddi það að „Jón Jóns- son. hafnarverkamaður i Reykja- vík“ hefði unnið kauplaust sem næmi 54 dögum á núverandi launakjörum „fyrir Alþýðu- bandalagið“. Síðan átti að koma orðrétt: „En þessir 54 kauplausu dagar fyrir Jón Jónsson, hafnarverkamann, er ekki lengur talið nógu mikið. Með bráðabirgðalögunum um 7% kauplækkun, sem kom til fram- kvæmda 1. marz sl., eru dagvinnu- laun Jóns Jónssonar enn lækkuð um 27.172 krónur á mánuði. Hann fær þá frá og með 1. marz 411.000 krónur á mánuði, en hefði átt að fá 438.272 krónu kaup, ef kaup- skerðingin hefði ekki komið til framkvæmda. Mismunurinn nemur 27.172 krónum á mánuði eða 81.516 krónum á næsta þriggja mánaða tímabili, en sú kauphækkun sam- svarar því að á næstu þremur mánuðum verði Jón Jónsson lát- inn vinna kauplaust í sex daga til viðbótar þeirri kjaraskerðingu sem hann hefur áður orðið fyrir. Svona „tafarlausum árangri" skil- ar atkvæði greitt Alþýðubanda- laginu!" Síðan vitnar Sighvatur í nokkur kosningaslagorð Alþýðubanda- lagsins: „Vinni Alþýðubandalagið kosningasigur er kaupránsmúrinn hruninn"! „Sigur fyrir Alþýðu- bandalagið tryggir samningana í gildi“!! „Atkvæði greitt Alþýðu- bandalaginu tryggir tafarlausan árangur". En þetta vóru allt til- vitnanir í Þjóðviljann í júní 1978. „Alþýðubandalagið vann kosn- ingasigur, komst í ríkisstjórn og hefur verið þar síðan. En stóð það ekki við stóru orðin? Hvað munar miklu? Hér að framan hefur verið sýnt að verkamann, sem unnið hefur samkvæmt 3. taxta Dags- brúnar, skortir 6590 nýkrónur til þess að svo hafi orðið, sem sam- svarar því að hann hafi unnið 54 daga kauplaust, og með kjara- skerðingunni 1. marz hefur sex kauplausum dögum verið bætt við.“ Þetta kallar Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra, formaður Al- þýðubandalagsins, „slétt skipti“ í Þjóðviljanum 3. janúar sl. hin^fréttir í stuttu máli Flugrekstur ríkisins undir einn hatt Vörugjald á gosdrykki lækki Þrír þingmenn, Guðmundur G. bórarinsson (F), Eggert Haukdal (S) og Jóhann Ein- varðsson (F), hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem felur í sér: 1) að aflétta 7% vörugjaldi af sjúkrafæði, 2) að lækka vöru- gjald (úr 30% í 15%) á gos- drykkjum og öðrum vörum sem falla undir B-hluta 1. gr. laga nr. 77/1980. Flugrekstur ríkisins Þrír þingmenn Alþýðuflokks, Magnús H. Magnússon, Árni Gunnarsson og Vilmundur Gylfason, hafa lagt fram þings- ályktunartillögu þess efnis, að sameina allan flugrekstur ríkis- ins undir yfirstjórn Landhelgis- gæzlunnar með það að markmiði að auka á hagræðingu og sparn- að í rekstri. Nú annast Flug- málastjórn flugprófanir, leitar- flug, sjúkraflug o.fl., Land- græðslan sáningu og áburðar- dreifingu úr lofti og Landmæl- ingar mælingaflug með leigu- flugvélum. Á vegum Landsvirkj- unar er ýmiskonar eftirlitsflug, auk þess sem ýmsar opinberar stofnanir kaupa þjónustu af einkaaðilum í flugrekstri. Nýt- ing flugvéla í eigu ríkisins er mjög lítil að dómi flutnings- manna. Markmið og leiðir á uppeldisstofnunum Guðrún Helgadóttir (Abl.) flytur frumvarp um sérstaka námsskrá, er menntamálaráðu- neytið láti gera, „er kveði nánar á um markmið og leiðir í uppeld- isstarfi á dagvistarheimilum í samráði við þá aðila, er að uppældis- og skólamálum vinna". í greinargerð segir m.a. að „dagvistarheimilin hafi að veru- legu marki tekið við því uppeld- isstarfi, sem áður var unnið á einkaheimilum". Barnalögin aftur til neðri deildar Frumvarp til barnalaga, sem nú er flutt í fimmta sinni, virðist stefna í það að fá lagagildi fyrir þinglausnir. Frumvarpið hafði hlotið samþykki neðri deildar Alþingis og efri deildar með minni háttar breytingu, sem veldur því að það þarf aftur til meðferðar í neðri deild. Hér er um að ræða mjög viðamikinn lagabálk, sem þingheimur sýnist munu samþykkja nú, eftir að málið hefur verið til meðferðar á fimm þingum, þrátt fyrir nokk- urn ágreining um einstaka frum- varpsþætti, í trausti þess að hin væntanlegu lög verði tekin til endurskoðunar fljótlega í ljósi þá fyrirliggjandi reynslu, eins og Salome Þorkelsdóttir (S) komst að orði í umræðu í efri deild nýlega. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar húsnæöi : í boöi i Til sölu 3ja herb. íbúö aö Víöigrund 4. Sauöárkróki. Uppl gefur Þor- björn í síma 95-5470, eftir kl. 18. Húsnæöisskipti Viö bjóöum i ágúst nk. gamalt hús allt endurbætt í Fererias (Menorca eyju) meö 10 rúmum í staöinn fyrir hús í Reykjavík fyrir 4 manneskjur ásamt bíl. Hafiö samband sem fyrst viö Jordi mas, Milanesado, 14 - Barcel- ona 17, SPAIN. Náhvalstönn Borga 5000 kr. fyrlr tönn úr náhveli 200 cm eöa lengri. Sendiö upplýsingar á ensku eöa þýzku til augl.deildar Mbl. merkt: „Náhveli — 9808“. Kvennadeild Rauöa kross íslands Konur athugiö Okkur vantar sjálfboöaliöa til starfa fyrir deildina. Uppl. í sfmum 34703, 37951 og 14909. □ Glmll 59813307 — Inns.Stm. □ Helgafell 598128032 — VI Kökubazar ofl. aö Hallveigarstööum í dag kl. 14. Gerlö góö kaup. Borgf irðingafélagið Fíladelfía Suöurnesjum Barnaguösþjónustu laugardag kl. 14. Hafnarskóla. Sunnudag kl. 11 Njarövíkur- skóla. Grindavikurskóla kl. 14. Öll börn velkomin. Munlö svörtu börnin. Kristján Reykdal. Heimatrúboöiö Óöinsgötu 6a Vakningasamkoma í kvöld og annaö kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. Krossinn Æskulýössamkoma í kvöid kl. 20:30 aö Auöbrekku 34, Kópa- vogi. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFELAG ÍSLANDS _ ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Námskeiö fyrir fjallgöngufólk Feröafélag íslands heldur nám- skeiö fyrir fjallgöngufólk n.k. sunnudag 29. marz. Leiöaval veröur meö tilliti til snjóflóöa- hættu og kennd veröur notkun á ísöxi og göngubroddum. Leiö- beinendur veröa Torfi Hjaltason og Helgi Benediktsson. Fariö frá Umferöarmiöstööinni kl. 9 f.hog gengiö á Skarösheiöina, þar sem kennslan fer fram. Þátttakendur veröa aö vera van- ir fjallgöngum og ennfremur aö hafa þann útbúnaö, sem aö ofan getur. Verö kr. 70.- Ferðafélag íslands. Dagsferðir sunnudaginn 29. marz: 1. kl. 1J Tröllafoss í Leirvogsá í vetrarskrúöa. Fararstjóri: Baldur Sveinsson. 2. kl. 13 Skíöaganga á Mos- fellssheiöi. Fararstjóri: Tryggvi Halldórsson. Verö kr. 40. Farlö frá Umferöar- miöstööinni austanmegin. Far- miöar v/bíl. Ferðafélag íslands. • J ÚTIVISTARFERÐIR Sunnud. 29.3. kl. 10 Gullfos* í klakaböndum. Verö 100 kr. Kl. 13 Esja eöa Esjuhlíöar, verö 40 kr., frrtt f. börn m. fullorönum. Fariö frá B.S.Í. vestanveröu. Páskaferöir: Snæfellanes. gist á Lýsuhóli, sundlaug. Tindafjallsjökull Skíöaferö tll Noröur-Svíþjóöar, ódýr ferö. Útivist. Auglýsing frá Félagi kaþólskra leikmanna 30. marz í systraheimilinu Garöabæ kl. 20:30. Sýndar veröa litskyggnur, meö skýring- um frá Píslarleikunum i Ober- manergau. Stjórnin. radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar kennsla Sumarnámskeiö í þýsku í Suöur-Þýskalandi Hér býöst skólafólki jafnt sem fullorönu gott tækifæri til aö sameina nám og sumarfrí í mjög fögru umhverfi í SUMARSKÓLA SONNEN- HOF í Obereggenen — Markgreifalandi. Námakeiö í júnf, júlf og ágúst. 15 kennslustundir á viku. Sérstök áhersla lögö á talþjálfun. Vikulegar skoöunarferöir. Fæöi og húsnæöi á staönum. Sundlaug, stór garóur, sólsvalir. Flogiö tll Luxemborgar, móttaka á flugvellinum. Upplýsingar á íslandi í síma 91-53438. óskast keypt Óskum að kaupa góöa öl- og sælgætisverslun. Upplýsingar í síma 33042. Sumarbústaður Félagssamtök óska eftir aö kaupa sumarbú- staö eöa land undir bústaö. Tilboö sendist í pósthólf 218 Hafnarfirði. nauöungaruppboö Nauöungaruppboö sem auglýst var ( 111., tölublaöi Lögbirtingablaösins 1979 og 5. og 10. tölublaöi sama blaös 1980, á jöröinnl Hvítanesi I, Skilmanna- hreppi, Borgarfjaröarsýslu, þinglesinni eign Guöna Þóröarsonar fer fram á eignlnni sjálfri aö kröfu Inga R. Helgasonar hrl. föstudaginn 3. aprfl 1981 kl. 14. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjardasýslu. | húsnæöi i boöi Verslunarhúsnæði ca. 40 fm til leigu strax miösvæðis við Laugaveg. Tilboð sendist Mbl. fyrir mánudag 30.3. merkt: „Laugavegur — 9520“. húsnæöi óskast Verslunarhúsnæöi óskast í Reykjavík 500—800 fm, jaröhæö ásamt efri hæð. Æskilegt svæöi, rniðborgin austur aö Grensásvegi. Traustur kaupandi. Aöalfasteignasalan, sími 28888. Aö kvöldi 51119.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.