Morgunblaðið - 28.03.1981, Síða 46

Morgunblaðið - 28.03.1981, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1981 Handknattleikur Úrslitakeppni yngri flokka t DAG hefst úrslitakeppni ynj?ri flokka í handknatt- leik. Keppnin í 3. fl. kvenna fer fram á Seltjarnarnesi. Keppni í 3. fl. karla fer fram á laugardag i íþróttahúsinu i Hafnarfirði og á sunnudag i Laugardalshöliinni. 5. fl. karla keppir í iþróttahúsinu að Varmá i Mosfelissveit. Og loks keppir 4. fl. í iþrótta- húsinu Asgarði i Garðafw. Keppni yngri fiokkanna er ávallt mjög spennandi og skemmtileg á að horfa og því óhætt að hvetja foreldra drengjanna og aðra áhugamenn að sækja leiki liðanna. — þr. Landsleikur í Borgarnesi í dag kl. 14.00 Þriðji landsleikur tsiend- inga og Finna fer fram i íþróttahúsinu í Borgarnesi í dag. Leikur liðanna hefst kl. 14.00. Fyrri leikir liðanna hafa verið mjög skemmtileg- ir á að horfa og sérlega vel leiknir. Körfuknattleiksunn- endur i Borgarnesi fá því góða gesti í dag. Og vonandi hvetja þeir landann til sig- urs í leiknum. — þr. Bikarmót SKÍ og Rvk-mót Keppt verður flokki fullorð- inna. í Skálafelli fer fram Reykjavikurmót i alpagrein- um unglinga. í dag verður keppt i stórsvigi en á morg- un i svigi. Keppnin í Skála- felli hefst háða daganna kl. 11.30. Handknattleikur: Leikið í 2. deild Nú er lokaspretturinn að hefjast i 2. deildar keppn- inni í handknattleik. Um helgina fara fram þrir leikir sem allir eru mjög mikiivæg- ir. Á Akureyri leika Týr og Þór, og í Laugardalshöllinni mætir lið Breiðabliks iiði Ármanns. Sigri Breiðablik á liðið g»)ða möguleika á að verða í efsta sætinu í deild- inni. Lið Ármanns er hins- vegar fallið niður i 3. deild. Leikur liðanna hefst kl. 14.00. Að Varmá í Mosfellss- veit leika ÍR og UMFA. Hefst leikur liðanna kl. 15.00. ÍR þarf að sigra í leiknum til þess að eiga möguleika á sæti i 1. deild. Enginn mætti á völlinn RACING og Boca Jouniors, argentinsku knattspyrnuliðin kunnu. ákváðu að leika vin- áttuleik eigi alls fyrir löngu, töldu vist að áhorfendur myndu flykkjast á vóllinn. En fimm minútum áður en leik- urinn átti að hefjast, var ekki einn einasti áhorfandi mætt- ur! Var því ákveðið að hætta við allt saman og leikmenn fóru heim! Undankeppni HM í knattspyrnu: Margir kallaðir en fáir útvaldir AUSTURRÍKI. Belgía, Ítalía og Wales hafa sett stefnuna ákveðið að lokakeppni IIM i knattspyrnu sem fram fer á Spáni á næsta ári. Undankeppnin er langt á veg komin og þó litið sé hægt að fullyrða, er staðan i sumum riðlunum farin að taka á sig mynd. Að þessu sinni verða liðin i lokakeppninni mun fleiri en áð- ur, eða 24 i stað 16 áður. Þar af verða 13 frá Evrópu auk Spán- verja sem eru sjálfsagðir í keppn- ina sem gestgjafar. Við skuium staldra við og athuga stöðuna i Evrópuriðlunum og einnig renna yfir þá leiki sem eftir eru og skipta máli. 1. A-riðill: Austurríki Búlgaríka V-Þýskaland Albanía Finnland 3 3 0 0 8-0 6 32015-44 1 1 0 0 3-1 2 4 1 0 3 3-9 2 2 0 0 2 0-3 0 29. apríl: V-Þýskal. — Austurríki 28. maí: Austurríki — Búlgaría 14. okt.: Austurríki — V-Þýskal. 11. nóv.: Búlgaría — Austurríki 21. nóv.: V-Þýskaland — Búlgaría 2. riðill: Belgía 5 4 1 0 8-3 9 írland 6 3 12 12-7 7 Frakkland 3 2 0 1 9-1 4 Holland 4 2 0 2 5-3 4 Kýpur 6 0 0 6 4-24 0 29. apríl: Frakkland — Belgía 9. september: Holland — Irland • Manfred Kaltz sækir að velsku vörninni i landsleik eigi alls fyrir löngu. Bæði Vestur-Þjóðverjar og Wales-búar eiga góða möguleika á þvi að komast i lokakeppnina á Spáni 1982. Hætta 6 leikmenn Hauka í vor? ALLAR likur eru á þvi, að margir af fastamönnum hand- knattleiksliðs Hauka verði ekki meðal leikmanna liðsins á næsta keppnistimahili og kemur ýmis- legt til. Þannig segir sögusögnin, að eldri mennirnir i liðinu, þcir Viðar Sfmonarson, Sigurgeir Marteinsson, Stefán Jónsson og Svavar Geirsson ihugi allir aö hætta handknattleik, hafi reynd- ar flestir ef ekki allir ætlað að hætta i haust, en látið til leiðast að vera með einn vetur enn. Þá munu þeir Árni Hermannsson og Július Pálsson vera á förum til náms á Norðurlöndum og mark- vörðurinn ólafur Guðjónsson ihugar að gera slíkt hið sama. Það gæti því farið svo, að Haukar stilli upp geróliku liði á næsta keppnistimabili. — gg Meistaramótið í fimleikum hefst í dag kl. 14.00 fslandsmeistaramótið i fimleik- um fer fram um helgina og hefst i dag í iþróttahúsi Kennarahá- skóla íslands kl. 14.00. í dag verður keppt i skylduæfingum karla og kvenna. En á morgun verður keppt í frjálsum æfingum. Keppendur á mótinu verða frá Reykjavík, Kópavogi, Hafnar- firði og Akureyri. Von er á mjög spennandi og tvisýnni keppni i öllum greinum. Mikil framför er hjá mörgum keppendum og hafa undanfarin fimleikamót sýnt að gróska er i fþróttagreininni. 9. september: Belgía — Frakkland 14. október: Holland — Belgía 14. október: írland — Frakkland 18. nóv.: Frakkland — Holland 3. riðill: Wales 4 4 0 0 10-0 8 Rússland 2 2 0 0 7-1 4 Tékkós. 2 1 0 2 2-1 2 ísland 4 1 0 3 4-12 2 Tyrkland 4 0 0 4 1-10 0 30. maí: Rússland — Wales 9. sept.: Tékkóslóvakía — Wales 28. okt.: Rússland — Tékkósl. 18. nóvember: Rússland — Wales 30. nóv.: Tékkósl. — Rússland Sviss 2 0 0 2 2—4 0 Ungverjal. 0 0 0 0 0-0 0 29. apríl: England — Rúmenía 13. maí: Rúmenía — Ungverjaland 3. júní: Noregur — Rúmenía 6. júní: Ungverjaland — England 9. september: Nregur — England 23. sept.: Rúmenía — Ungverjal. 31. okt.: Ungverjal. — Noregur 18. nóv.: England —Ungverjaland 5. riðili: Ítalía Júgóslavía Grikkland Danmörk Luxemborg 44008-0 8 3 3 0 0 9-1 6 32013-2 4 3 1 0 2 5-3 2 3003 0-11 0 4. riðill: England Noregur Rúmenía 2. maí: Júgóslavía — Grikkland 3 2 0 1 7-3 4 17. október: Júgóslavía — Ítalía 3 111 3-6 3 14. nóvember: Italía — Grikkland 2 1 1 0 3-2 3 29. nóv.: Grikkland — Júgósl. Heilsaði með nazistakveðju og fékk átta leikja bann BELGÍSKI landsliðsmaðurinn Renquin, félagi Ásgeirs Sigur- vinssonar hjá Standard Liege, var nýlega dæmdur i 8 leikja bann i Evrópukeppninni. Renquin var rekinn af leikvelli nýlega þegar FC Köln og Standard kepptu í UEFA-keppninni í Köln í Þýzkalandi. Brottreksturinn var ekki orsök þessa langa keppnis- banns heldur framioma Renquin eftir atvikið. Þegar hann var að yfirgefa leikvanginn sneri hann sér skyndilega við og heilsaði áhorfendum með nazistakveðju! Þetta olli miklum úlfaþyt, bæði á vellinum og í Þýzkalandi, því atvikið var margsýnt í sjónvarp- inu. Viðbrögð aganefndar Evrópu- sambandsins voru líka hörð og Renquin fær eitt lengsta keppnis- bann, sem þekkst hefur. Ekki er ólíklegt að a.m.k. tvö ár líði þar til kappinn getur leikið í Evrópu- keppninni að nýju. Samkomulag Renquin og stjórn- ar Standard hefur ekki verið upp á það bezta upp á síðkastið og er ekki talið ólíklegt að hann verði seldur frá félaginu í vor. • K nattspyrn ustjarnan Enrique Quini hágrét er hann hitti forseta FC Barcelona, Jose Luis Nunes (t.v.). Simamynd AP. Hræðileg lifsreynsla sagði markaskorarinn RÚMLEGA þrjú þúsund manns voru mættir á leikvöll FC Barce- lona Nou Camp I fyrradag er spánska knattspyrnustjarnan Enrique Quini mætti á sina fyrstu æfingu eftir að hann hafði sloppið úr höndum mannræn- ingja sinna. Quini brast i grát þegar aðdáendur hans hrópuðu nafn hans i sifellu, og hneigði sig hvað eftir annað fyrir framan fólkið. Hinn 29 ára gamli Spánverji er markahæsti leikmaðurinn í 1. deildinni á Spáni, hefur skorað 18 mörk í 26 leikjum með liði sínu Barcelona. Quini var rænt eftir að Barcelona hafði sigrað Osasuna frá Pamplona 6—0. Quini skoraði tvö mörk í leiknum. Það voru þrír bifvélavirkjar sem rændu knatt- spyrnumanninum. í 24 daga var honum haldið sem fanga í kjall- araholu undir bifreiðaverkstæði þeirra í Zaragoza. Það var svo síðastliðinn þriðjudag að lögregl- an hafði upp á felustaðnum eftir að hafa fengið upplýsingar frá lögreglunni í Sviss. Einn þre- menninganna hafði farið þangað og ætlaði að opna bankareikning fyrir lausnargjaldið og leggja inn hluta af því. Þegar fréttist að Quini væri fundinn, heill heilsu og ómeiddur, brutust út mikil fagnaðarlæti í Barcelona. En um þessa helgi fer fram mjög mikilvægur leikur á milli Barcelona og Real Madrid í deildarkeppninni. Barcelona er í öðru sæti í deildarkeppninni með 36 stig en Real Madrid er í þriðja sæti með 35. Atletico Madrid er í efsta sæti með 40 stig. Quini hefur sagt að þeir 24 dagar sem hann var í haldi hjá mannræningjunum hafi verið hræðileg lífsreynsla. Og það urðu miklir fagnaðarfundir þegar hann hitti konu sína og tvo syni aftur. Quini hefur leikið 30 landsleiki fyrir Spán í knatt- spyrnu og er mjög dáður um allt landið sem íþróttamaður. Hann þykir sérlega prúður leikmaður en um leið er hann einn af bestu knattspyrnumönnum Spánar í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.