Morgunblaðið - 14.04.1981, Síða 5

Morgunblaðið - 14.04.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1981 5 Fjölbreytt dagskrá á 40 ára afmælisgleði Liljunnar Miðhúsum, 13. apríl. KVENFÉLAGIÐ Liljan í Reyk- hólasveit hélt upp á 40 ára afmæli sitt sl. laugardagskvóid meó hófi að Mjólkurvöllum, en félagið var stofnað 16. marz 1941. Dagskráin hófst með því að formaður félagsins ávarpaði sam- komuna og lesin var starfssaga félagsins. Þá var sýndur hluti úr leikritinu Maður og kona eftir Jón Thoroddsen frá Reykhólum, Norræna lög- fræðingaþingið FRESTUR til að tilkynna þátt- töku í norrænu lögfræðingaþingi, sem haldið verður í Stokkhólmi 19.—21. ágúst nk. er til 27. apríl. Björn Helgason hæstaréttarritari veitir tilkynningum viðtöku. stjórnandi var séra Valdimar Hreiðarsson. Konur úr kvenfélag- inu sungu nokkur lög eftir þá frændur Emil Thoroddsen og Skúla Halldórsson undir stjórn organista Reykhólakirkju. Sungin voru tvö frumsamin ljóð eftir Bjargeyju Arnórsdóttur og lesið Ijóðið Reykhólasveit eftir Helgu Halldórsdóttur, Dagverðará. Fé- laginu voru færðar gjafir og kveðjur á afmælishátíðinni. Kvenfélagið Liljan hefur jafnan starfað að menningarmálum og hjá kvenfélagskonum hafa margar hugmyndir fæðst sem hafa orðið að veruleika svo sem í ræktunar-, kirkju- og skólamálum. Stundum hefur fjallið virst ókleift og skoð- anir skiptar um leiðir, en Lilju- konur hafa komist upp á tindinn með blómstrandi liljur í barmin- um. Núverandi formaður félagsins er Kristrún Marinósdóttir. Sveinn i Miðhúsum íbúasamtök Vesturbæjar: Fundur um húsakost bamaskóla í Vesturbænum ÍBÚASAMTÖK Vesturbæjar halda almennan fund um húsakost barnaskóla i Vesturbænum á Hall- veigarstöðum i kvöld kl. 20:30. Fræðsluráð Reykjavíkur stefmr að því að fá betri húsakost fyrir barnaskóla í Vesturbænum og kem- ur þar ýmislegt til greina. Meðal annars er spurning • hvort byggja eigi alveg nýtt og þá hvar, hvort bæta eigi við þar sem nú er kennt við Öldugötu og hvar eigi að kenna Eiðsgrandabörnunum. Til fundar- ins er boðað með vitund foreldrafé- laga Vesturbæjarskóla og Haga- skóla og foreldraráðs Melaskóla. Fræðslustjóri mun koma á fundinn og gera grein fyrir því sem er til athugunar í þessu efni. Stjórn samtakanna hefur óskað eftir því að fulltrúar í fræðsluráði komi á fundinn. Að loknum umræðum um barna- skólamálið verður aðalfundur sam- takanna haldinn á sama stað. Unnið að fisklöndun á bryggjunni i Höfn i Hornafirði nú fyrir helgi. Ljósm: Einar. Höfn í Hornafirði: Landburður af fiski Hötn. Uornatirði, 13. april 1981. LAUGARDAGINN 11. apríl var enn einn metlöndunar- dagurinn hér á Höfn. Þá lönduðu Hornafjarðarbátar samtals um 674 tonnum. Eldra löndunarmetið var að- eins um viku gamalt. en þá var landað rúmum 480 tonn- um. Þann 11. apríl var heildar- aflinn frá áramótum orðinn 8174 tonn rúmlega, og er það töluvert meiri afli en á sama tíma í fyrra. Aflinn, sem landað var á laugardaginn skiptist þannig á milli vinnslustöðva: Til Fiskvinnslu KASK fóru 434 tonn, en þar starfa nú um 300 manns við fiskvinnslu. Til Söltunarstöðv- arinnar Stemmu hf. um 170 tonn. Þá fóru einnig um 70 tonn til Djúpavogs með bíln- um. Vel hefur hafst undan að vinna aflann, enda unnið nær allan sólarhringinn. Eins og fram hefur komið í fréttum var vertíðin einstaklega léleg fram til loka marsmánaðar, en um mánaðamótin mars-apríl fór veiðin að glæðast heldur betur, og til marks um það bárust á land hér á Höfn fyrstu 11 dagana í apríl um 3.100 tonn af 19 bátum. Afla- hæsti báturinn þann 11.4. var Hvanney SF 51, með 677 tonn rúm. Á sama tíma í fyrra var Hvanney með 558 tonn. Næst- ur er Gissur hvíti, með 653 tonn, þar af heimalandað um 618 tonn. — Einar Prestastefnan í byrjun júlí PREST ASTEFN AN 1981 verð- ur um mánaðamótin júní og júli í Reykjavík, að því er fram kemur í fréttabréfi biskups- stofu. Aðalmál prestastefnunn- ar verður kristniboðsárið og framkvæmd þess. Að sögn fréttabréfsins hefur sú hefð komist á að prestastefn- an sé haldin um þetta leyti eða í lok júnímánaðar. Síðasta aldar- fjórðung hefur hún þó verið haldin tvívegis á öðrum tíma. í ágúst 1963 þegar minnst var tveggja alda afmæli Hóladóm- kirkju og í septemberbyrjun 1965 þegar stjórnarnefnd Lútherska heimssambandsins hélt fundi sína hérlendis. Prestastefnan í ár verður sú síðasta sem dr. Sigurbjörn Ein- arsson stýrir. Aðalfundur Prestafélagsins verður haldinn um sama leyti. Siglfirðing- ur landaði 100 tonnum Siglufirði, 13. apríl. SIGLFIRÐINGUR er að landa hér 100 tonnum. Bátar eru almennt að taka upp veiðarfæri vegna þorskveiðibannsins sem hefst á morgun. Frekar léleg vertíð hefur verið hjá grá- sleppukörlum það sem af er. Fólki fjölgar hér í bænum með hverjum klukkutímanum, en skíðalandsmótið hefst hér á morgun. Fréttaritari Endalaus Rimini - ein af allra vinsælustu baðströndum Evrópu - iðandi af lífi og fjöri allan sólarhringinn. Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir og næturklúbbar skipta þúsundum og alls staðar er krökkt af kátu fólki. Leiksýningar og hljómleikar listamanna úr öllum heimshornum eru daglegir viðburðir farandsirkusar koma ístuttarheimsóknirogvíða troða upp ólíklegustu skemmtikraftar - jafnvel þegar þeirra er síst von! Einstaklega ódýrir og góðir veitinga- staðir ásamt fyrsta flokks íbúðum og hótelum fullkomna velheppnað sumar- leyfi á Rimini. Reyndir fararstjórar benda fúslega á alla þá fjölbreyttu mögu- leika sem gefast til stuttra ferða meðfram ströndinni. Róm - 2ja daga eða vikuferðir Feneyjar - ,,Hin sökkvandi borg“ Flórens - listaverkaborgin fræga San Marinó - „frímerkja-dvergríkið" ofl. ofl. • Tívolí • Skemmtigarðar Sædýrasöfn Leikvellir • Hjólaskautavellir • Tennisvellir • Mini-golf • Go-cars kappakstursbrautir • Hestaleigur • Rennibrautasundlaugar AJERADRiA Adriatic Riviera of Emilia - Romagna (Italy) Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 líf og fjör allan sóla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.