Morgunblaðið - 14.04.1981, Blaðsíða 40
Síminn á afgreiðslunni er
83033
JRvrijnnliUÍtib
Síminn á afgreióslunni er
83033
JH«r0unblflbi»
ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1981
Samkomulag um undantekningartilvik
frá nýju vinnuverndarlögunum:
Lengja má vinnutíma
í 16 klukkustundir
í sérstökum tilvikum
ItráAahirKAasamkomulag heí-
ur tekist milli Vinnuvcitenda-
samhands íslands ok AJþýðu-
samhands íslands um fram-
kva'md á hvíldartímaákvæðum
nýju vinnuverndarlatfanna frá
áramótum. SamkomulaKÍð felur í
sér heimild til að lcngja vinnu-
tímann í 16 tíma og hafa hvild í 8
tíma. 10 tíma hvíld verður þó
meKÍnreKlan. en löjíin gerðu ráð
fyrir 14 stunda hámarksvinnu á
sólarhrinK.
Vinnuverndarlögin sem gengu í
gildi um áramót gera ráð fyrir 14
stunda vinnu sem hámarksvinnu á
hverjum sólarhring. Lögin heimila
þó ákveðin undantekningartilvik
sem aðilar vinnumarkaðarins eiga
að semja um. Umraeður hafa farið
fram síðustu vikur milli ASÍ og
VSI og sl. föstudag var skrifað
undir slíkt samkomulag með fyrir-
vara. Það heimilar ýmis konar
undanþágur til að mynda í sam-
bandi við fiskvinnslu, steypu-
vinnu, hafnarvinnu og vinnu sem
til fellur vegna ófyrirséðra at-
burða vegna vélabilana o.fl. Þá er
einnig samkomulag um fram-
kvæmd á töku vikulegs frídags.
Þrátt fyrir áðurnefndar heimildir
verður 10 tíma hvíld þó megin-
reglan, ef hægt verður að koma
henni við. Samkomulagið er háð
samþykki aðildarfélaga ASÍ og
VSÍ.
Eyjar:
Þýfið þakti dómsalinn
UPPVÍST hefur orðið um stór-
felldan þjófnað í Eyjum Stolið
var miklu magni verkfæra og
ýmissa hluta. svo sem fatnaði og
heimilistækjum. en þjófurinn
sem hefur verið handtekinn faldi
þýfið uppi á lofti i húsi, sem hann
hefur búið i síðan hann flutti til
Eyja fyrir fáum árum.
Mun maðurinn hafa stolið hlut-
unum á sl. tveimur árum og svo
mikið var magnið að dómssalur-
inn í Eyjurn var hlaðinn þýfinu
þegar búið var að flytja það
þangað.
Mikill hluti af þýfinu eru verk-
færi allskonar, rafmagnsverkfæri
og önnur sem maðurinn hefur
stolið á vinnustöðum ýmsum, í
Skipaviðgerðum hf. og úr bátum.
Einnig úr heimahúsum, en það
sem kom lögreglunni á sporið var
stuldur á fatnaði úr einum Eyja-
bátnum, þar sem maðurinn hafði
verið einn að vinna.
Páskahrota í Eyjum:
Allt að 800 tonn á land á dag
LANDBURÐUR af fiski hefur
verið í Eyjum að undanförnu og
hefur annar eins afli ekki bor-
ist á land þar á jafn stuttum
tíma síðan upp úr 1960 þegar
dagsaflinn var allt frá 1000—
2000 tonn á dag í páskahrotun-
um. Mestur afli á einum degi í
Vestmannaeyjum var í páska-
hrotunni 1958 þegar 2359 tonn
af fiski bárust á land og fylla
varð mörg tún með þorski. Nú
eru hins vegar talsvert færri
bátar að veiðum, og þá var
aflinn nokkurra nátta.
í fyrsta skipti um langt árabil
hefur dagsaflinn ekki komist inn
í hin stóru fiskvinnsluhús í
Eyjum og hefur orðið að setja
fisk á plön utan dyra um stund,
en unnið er að segja má nótt sem
nýtan dag við verkun aflans og
hafa margir hlaupið undir bagga
sem að öðru jöfnu vinna ekki í
fiski. Hefur verið all líflegt í
öllum fiskverkunarhúsunum í
Eyjum að undanförnu og rífandi
stemmning eins og alltaf þegar
vel fiskast. Þá hleypur fídons-
andi í mannskapinn og menn
leggjast á eitt við að bjarga
verðmætunum, gera það sem
þarf að gera.
Mesti aflinn að undanförnu
hjá bát í einni löndun hefur
verið 75 tonn, en þar var um
tveggja nátta fisk að ræða.
Aflinn eftir eina nótt hefur verið
upp í tæplega 50 tonn og bátar af
öllum stærðum hafa rótfiskað.
Dagsaflinn hefur verið mestur
um 800 tonn á dag í Eyjum að
undanförnu, en um páskana
skellur á þorskveiðibann.
Einn af smærri Eyjabátunum, Helga Jó.. kemur til hafnar með fullfermi, um 10 tonn, enda skeiðin
drekkhlaðin og svo hefur verið nokkra daga. i.jósmynd Mbi. SiKunreir.
Flugstöðvarbyggingin felld á jöfnum atkvæðum:
Eggert Haukdal greiddi
atkvæði með tillögunni
Jóhann Einvarðsson á móti
Flugleiðir taka
DC-8 þotu á
leigu frá SAS
FI.UGLEIÐIR hafa tckið
DC-8-þotu á leigu frá skandina-
víska flugfélaginu SAS og fór
hún inn I áætlun i gærmorgun,
að sogn Sveins Sæmundssonar,
hlaðafulltrúa Flugleiða.
Sveinn sagði að vélin myndi
fljúga á Norður-Atlantshafsleið-
um félagsins, þ.e. milli Luxem-
borgar og New York og Chicago
og svo milli Luxemborgar og
Nassau á Bahamaeyjum.
Sveinn sagði ennfremur að
vélin yrði í leigu hjá félaginu
fram til haustsins.
Breytingartillaga sem fól í
sér fyrirma-li til ríkisstjórnar-
innar um allt að 5 milljóna
króna lántöku, til greiðslu byrj-
unarkostnaðar við byggingu
nýrrar flugstoðvar á Keflavík-
urflugvelli, var felld að við-
hofðu nafnakalli með 18 atkvæð-
um gegn 18 i neðri deild Alþing-
is í gær. Tillagan var flutt af
Matthiasi Bjarnasyni, Matthíasi
Á. Mathiesen, Alberti Guð-
mundssyni og Sighvati Björg-
vinssyni. Mcð tillögunni
greiddu atkvæði viðstaddir
þingmenn Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks, þar á meðaí
Eggert Ilaukdal, en gegn tillög-
unni allir viðstaddir þingmenn
Alþýðubandalags, allir við-
staddir þingmenn Framsóknar-
flokks, þar á meðal Jóhann
Einvarðsson, ásamt ráðherrun-
um Friðjóni Þórðarsyni og
Pálma Jónssyni. Fjórir þing-
menn voru fjarverandi, tveir
stjórnarliðar og tveir stjórnar-
andstæðingar þann veg að fjar-
vistir jöfnuðust út.
Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokks, gerði grein
fyrir atkvæði sínu efnislega á
þessa leið: Með því að hér er um
brýna og þjóðnauðsynlega fram-
kvæmd að ræða, allar áætlanir,
teikningar og útboðsskilmálar
fyrir hendi, öllum undirbúningi
fulllokið, og frestun ákvörðunar
stefnir samkomulagi við Banda-
ríkjamenn um kostnaðarþáttöku
og fyrirkomulag flugstöðvarbygg-
ingarinnar í tvísýnu um næstu
framtíð — segi ég já.
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sagði efnislega að aðalfundur mið-
stjórnar Framsóknarflokksins
hefði lýst yfir fylgi við byggingu
flugstöðvarinnar sem forsendu
þess að skilja megi að varnarliðs-
starf og almenna flugumferð.
Hinsvegar hefði þingflokkur
Framsóknarmanna samþykkt að
ekki skuli hefjast handa um fram-
kvæmdir nema samþykki allra
aðila í ríkisstjórn komi til, en
Framsóknarflokkurinn muni beita
sér fyrir samkomulagi í ríkis-
stjórninni um þetta efni. Þing-
menn Framsóknarflokks segðu nei
við þessari tillögu.
Jón Baldvin Hannibalsson vitn-
aði til samþykktar miðstjórnar
Framsóknarflokksins og rök-
stuðnings utanríkisráðherra í efri
deild og sagði já við tillögunni.
Eggert Haukdal (S) sagði efnis-
lega að ný flugstöð hefði fyrir
löngu átt að vera risin á Keflavík-
urflugvelli. Vel má vera að flug-
stöðin væri enn of stór miðað við
núverandi flugmarkaðsaðstæður
— og kostnaðarhluti Bandaríkja-
manna mætti gjarnan vera meiri,
til að ná fram aðskilnaði almennr-
ar flugumferðar og varnarliðs-
starfs. Eg segi já við tillögunni,
sagði Eggert.
Sjá nánar á þingsiðu
Mbl. í dag.
Vorstemmning í miðbænum
Ljosm. ól.K.M.