Morgunblaðið - 14.04.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. Af*RÍL 1981
19
För Kolumbíu - nýtt tímabil geimferöa hafiö
„Stór-
kostleg
• / 44
sjon
- sagði Regan þegar
Kólumbia hófst á loft
Washington. 13. apríl. AP.
„ÞETTA er stórkostleg
sjón,“ varð Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta að orði
þegar hann ásamt fjöl-
skyldu sinni horfði á eld-
flaugina með geimskutl-
unni Kólumbíu hefja sig
til lofts, en þessum merkis-
atburði var sjónvarpað um
öll Bandaríkin eins og
trúlegt má teljast og raun-
ar um heim allan.
Reajjan kom heim af sjúkrahús-
inu deginum áður og er þess gætt,
að hann fái sem mest næði meðan
hann er að jafna sig eftir banatil-
ræðið á dögunum. Einkalæknir
Reagans, dr. Daniel Ruge, sagði,
að forsetinn væri „stálsleginn" en
honum hefur þó verið ráðið frá því
að vinna nokkuð þessa vikuna og
frestað verður ferðalögum fyrst
um sinn.
Reykjarstrókurinn stendur aftur úr
eldflauginni þegar hún geysist i átt að
náfangastaðu. 100 milum ofar jörðu. Með för
Columbiu lauk sex ára hléi á geimkönn-
un Bandarikjamanna, með mönnuð-
um farartapkjum.
LAGT AF STAÐ. Eldflaugin ásamt geimferjunni Columbiu hafa kvatt og eru lögð af stað upp
í loftin blá með Crippen og Young innanborðs.
Kísilflísar losnuðu
frá geimferjunni
- en vísindamenn segjast ekki hafa áhyggjur af því
Houston. Texas, 13. apríl. AP.
ÞEGAR þeir John Young
og Robert Crippen opnuðu
dyr farangursgeymslu
geimferjunnar Kolumbíu
kom í ljós, að níu kísilflís-
ar við miðhreyfil geimferj-
unnar höfðu losnað frá, og
að 4 til 6 flísar höfðu
losnað við vinstri hreyfil
geimferjunnar. Vísinda-
menn sögðu að þrátt fyrir
þessar skemmdir, þá væri
geimferjunni á engan hátt
hætta búin. Skemmdirnar
væru á svæði, sem tiltölu-
lega Iítið mæddi á þegar
geimferjan fer í gegn um
gufuhvolfið á leið sinni til
jarðar. Þeir sögðu, að kís-
ilflísar þær, sem verja
neðri hluta geimskutlunn-
ar, væru óskemmdar en
ástæða hefði verið til ótta
hefðu þær skemmst.
„Á milli 13 og 15 flísar hafa
losnað frá, en við höfum ekki
áhyggjur af þessum skemmd-
um,“ sagði Neil Hutchinson hjá
bandarísku geimferðastofnun-
inni á fundi með fréttamönnum
í morgun. Um 30 þúsund kísil-
flísar verja geimferjuna hita á
leið í gegn um gufuhvolf jarðar.
Hönnun þeirra hefur valdið vís-
indamönnum miklu erfiðleikum,
og er ein meginorsök tafar, sem
orðið hefur á áætluninni um
geimferjuna. í tilraunum með
geimferjuna kom hvað eftir
annað fyrir. að kísilflísar losn-
uðu frá. Þá olli hönnun hreyfla
og tölvubúnaðar miklum erfið-
leikum, en engra bilana hefur
þar orðið vart.
bessi mynd. sem tekin er aí geimferjunni á braut um jörðu. sýnir hvar kísilflísarnar hafa
losnaö en þær eiga að koma í veic fyrir að Keimferjan ofhitni á leið til jarðar.
Viðbrögðin erlendis:
„Söguleg ferð... nýr
tími í geimkönminum"
13. april. AP.
SJÓNVARPSSTÖÐVAR um heim allan sýndu þá sögulegu stund
þegar geimskutlunni Kólumbiu var skotið á loft í gær, sunnudag.
Fréttaskýrendur í austri og vestri vöktu einnig athygli á því, að
atburðurinn átti sér stað samdægurs því, að Rússar minntust
þess, að 20 ár eru liðin frá því að Juri Gagarin varð fyrstur manna
til að fara út í geiminn. Sumir lýstu áhyggjum sinum yfir
hugsanlegri hernaðarlegri þýðingu skutlunnar, einkum þó
Tass-fréttastofan rússneska, sem sagði írá skotinu nokkrum
minútum eftir að það átti sér stað.
í Vestur-Þýskalandi var ítar- hefði hafist „söguleg ferð ... nýr
lega sagt frá ferð Kólumbiu í
sjónvarpi og útvarpi og kom
mönnum saman um, að þó að
Rússar hefðu verið með menn úti í
geimnum nú nýlega þá væri hér
um að ræða einhvern mesta
áfanga í geimvísindum á þessari
öld.
Breska sjónvarpið, BBC, birti
með hjálp fjarskiptahnatta mynd-
ir af skotinu og fagnandi mann-
fjöldanum á Canaveral-höfða og
var komist þannig að orði, að nú
tími í geimkönnunum". Breska
blaðið Sunday Times lét þó í ljós
efasemdir um framtíð skutlunnar
og taldi, að í of mikið hefði verið
ráðist þar sem kostnaðurinn væri
nærri 10 milljarðar dollara.
í Líbanon, þar sem krbtnir
menn og Sýrlendingar hafa borist
á banaspjót að undanförnu, horfði
stór hluti þjóðarinnar á atburðinn
í sjónvarpi. Sumir leiðtogar þjóð-
arinnar létu þau orð falla, að leitt
væri að mennirnir, sem nú hygðu
Vaktir með sveitasöng
Houstun. 13. april. AP.
ÞAÐ fyrsta sem áhöfn geimskutlunnar heyrði frá stjórnstöðinni
á mánudag var sveitasögnur (country and western) sem saminn
hafði verið i tilefni geimfarar Kólumbiu.
Söngurinn hófst þannig: „Við höfum tekist á loft, það er
stórkostlegt."
Áframhaldandi segir m.a. í textanum: „Það tók margar
klukkustundirnar að undirbúa þetta. Vel að verki staðið hjá þeim
sem unnu við geimskutluna. Það er ekki hægt að segja að hún sé
rennileg og mjúk en ég segi það hér og nú að hún er stórkostlegt
tæki hún Kólumbía.“
Jerry Rucker verkfræðingur á Canaveral-höfða samdi lagið en
Roy McCall sveitasöngvari frá Titusville söng. Titusville er næsti
bær við Kennedyhöfða.
á „landvinninga" í óravíddum
himinhvolfsins, kynnu þó enn ekki
að búa saman í sátt og samlyndi á
jörðu niðri.
Tass-fréttastofan rússneska
sagði, að tilgangurinn með skutl-
unni væri að reyna nýtt leysisvopn
og til að koma á braut um jörðu
njósnahnöttum og öðrum vopna-
búnaði. Þessar ásakanir þykja
sumum hlálegar vegna þess, að
Rússar stæra sig mjög af því að
ráða yfir „drápshnöttum", sem
eytt eiga að geta öðrum gervi-
hnöttum, t.d. þeim, sem vara eiga
Bandaríkjamenn við yfirvofandi
kjarnorkuárás.
Rússar höfðu
skip á staðnum
Canavrralhufða. 13. apríl. AP.
SOVÉSKUR togari sigldi í
gær um svæði þar sem tvö
handarísk skip voru við leit
að nothæfum hlutum úr burð-
arílaug Kólumbíu. Áformað
er að nota þessa hluti að nýju
og er það í fyrsta skipti sem
hirt er um að bjarga hlutum
úr burðarflaug geimskips.
Sovéski togarinn sást fyrst á
þessu svæði á föstudag, en hann
hvarf eftir að brottför Kólumbíu
hafði verið frestað. Strax um
hádegisbil á sunnudag var togar-
inn kominn aftur á svæðið, en hélt
á brott að nýju samkvæmt ósk
bandarísku strandgæslunnar.
Togarinn hefur ekki sést síðan.