Morgunblaðið - 14.04.1981, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 14.04.1981, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1981 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Auglýsingastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakið. Rökstudd gagnrýni á byggð „ norðan Rauðavatns Iborgarráði Reykjavíkur hafa sjálfstæðismenn lagt fram ýtarlega rökstuddar tillögur, sem fela í sér harða gagnrýni á hugmyndir vinstri meirihlutans í skipulagsmálum. Mest kveður þar að mótmælum gegn nýrri byggð upp til heiða norðan Rauðavatns. Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, Davíð Oddsson, komst þannig að orði um Rauðavatnshugmyndirnar í Morgunblaðinu á sunnudag: „Það er þannig ekki eitt, heldur allt, sem mælir gegn því að byggt verði norðan Rauðavatns." í tillögu Davíðs og Alberts Guðmundssonar í borgarráði segir „að enn séu engar forsendur fyrir hendi sem réttlæti að gera ráð fyrir“ svæðinu norðan Rauðavatns sem byggingarlandi fyrir Reykjavík á næstu árum „og reyndar sé flest sem til þess bendi að þetta svæði komi aldrei til álita sem byggingarland fyrir borgina". I greinargerð fyrir þessari tillögu er bent á ýmis atriði henni til ðtuðnings. Talið er ámælisvert að létta vatnsvernd af svæðinu, sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa komið sér saman um og félagsmálaráðherra staðfesti 1969. Athuganir vísindamanna á áhrifum þess að leggja vatnsbólin Bullaugu niður sem neysiuvatnsból á vatnasviði Elliðaánna eru ekki hafnar, þegar vinstri menn gefa sér þá niðurstöðu, að óhætt sé að létta vatnsverndinni af Bullaugnasvæð- inu og setja allt neysluvatnsforðabúr borgarinnar á Heiðmerkur- svæðið. Vinstri menn hafa auk þess látið algjörlega undir höfuð leggjast að ræða þessi áform sín við fulltrúa nágrannasveitarfélag- anna, sem eru þó aðilar að samkomulaginu, sem félagsmálaráðherra staðfesti. Jarðfræðilega er Rauðavatnssvæðið ekki rannsakað svo fullnægj- andi sé. Fram hafa komið aðvaranir þeirra jarðvísindamanna, sem gleggst þekkja til á svæðinu. Þeir telja svæðið eitthvert þéttriðnasta sprungusvæði landsins og hafa áréttað, að umfangsmiklar rannsóknir þurfi til að koma, áður en unnt sé að taka ákvörðun um að byggja á því. í greinargerð sjálfstæðismanna segir orðrétt: „Ekki er verjandi að ætla framtíðarbyggð á svæði sem er slíkum jarðfræðilegum annmörkum háð, þegar nægir aðrir kostir eru fyrir hendi." Veðurfræðileg rök mæla eindregið gegn því að byggð verði skipulögð í hálendinu norðan Rauðavatns. Með hliðsjón af þeim rökum er mun skynsamlegra að skipuleggja framtíðarbyggðina eftir ströndinni í áttina að byggðinni í Mosfellssveit, eins og sjálfstæðis- menn hafa lagt til. Þá hefur einnig komið fram af hálfu gatnamáladeildar borgarverkfræðingsembættisins, að kostnaður við að gera Rauðavatnssvæðið byggingarhæft er að minnsta kosti 170 milljón krónum (17 milljörðum gkr.) meiri en við svæðin meðfram ströndinni. Um leið og þessar tölur voru kynntar af embættis- mönnum, létu þeir í ljós það álit, að þessar tölur væru varlega áætlaðar, svo að skekkjur sem á slíkum útreikningum kunna að vera, séu Rauðavatnssvæðinu i óhag. Hér skal ekki fleira talið af þeim annmörkum, sem á þessum hugmyndum vinstri manna eru, hvert einstakt atriði, sem að ofan er nefnt, nægir til að hver sá, er fordómalaust lítur á þetta mál, hlýtur að komast að þeirri niðurstöðu, að orðið hafi skipulagsslys í Reykjavík undir forystu vinstri meirihlutans. I þrjú ár hefur hann setið aðgerðarlaus og valdið borgarbúum óbætanlegu tjóni með því sleifarlagi. Fyrir borgarbúa hefði þó verið betra, að vinstri menn hefðu setið með hendur í skauti út allt kjörtímabilið. Með Rauðavatnshugmyndunum er verið að stefna framtíð borgarinnar í óefni um langa hríð. Aðför fjármálaráðherra * Aþeim tíma, sem Ragnar Arnalds sat utan ríkisstjórnar, hafði hann áhuga á aðeins einu máli, ef tekið er mið af greinum hans í Þjóðviljanum og ræðum á Alþingi, að herða á skattheimtu gagnvart fyrirtækjum í landinu. Hann gerði sér það þá til dundurs að birta langa lista upp úr skattaskýrslum til að sanna það mál sitt, að atvinnufyrirtæki greiddu ekki nægilega háa skatta. Nú hefur hann setið rúmlega eitt ár í sæti fjármálaráðherra og telur tíma til þess kominn að sanna, að hann hafi haft á réttu að standa í skattamálum. Skattalagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, sem nú er til umræðu á Alþingi, miðar að því að auka verulega skattlagninu á fyrirtæki. I frumvarpinu eru meðal annars ákvæði, sem skerða möguleika þeirra til fyrningar um 10%. Árni Árnason, framkvæmdastjóri Verslunar- ráðs íslands, sagði hér í blaðinu fyrir helgi, að hann hefði undir höndum upplýsingar, sem sýndu 100 milljón gkr. skattahækkun hjá tveimur stórum fyrirtækjum, ef frumvarp ríkisstjórnarinnar nær fram að ganga. Aðför fjármálaráðherra beinist ekki einvörðungu að fyrirtækjun- um sem slíkum, heldur veikir hún allar forsendur almenns atvinnulífs í landi auk þess sem hún kemur í veg fyrir, að íslendingar geti endurnýjað atvinnutæki sín með eðlilegum hætti. Afturhaldsstefna Alþýðubandalagsins hefur stöðnun í för með sér á öllum sviðum og er með ólíkindum, hve langt ráðamenn flokksins komast með samaðila sína að ríkisstjórn á þessum sviðum. Maxim og Dmitri Sjosta- kovitsj undir lögregluvernd í Vestur-Þýzkalandi Miinchen, 13. april. AP. MAXÍM Sjostakovitsj, sovézki hljómsveitarstjórinn, sem á sunnudaginn bað um hæli i Vestur-býzkalandi sem pólitisk- ur flóttamaður, ásamt nitján ára syni sínum, er i felum i skjóli v-þýzku lögreglunnar, að þvi er dómsmálaráðuneytið i Bayern skýrði frá í dag. Sam- kvæmt ósk Sjostakovits verður ekkert látið uppi um dvalarstað feðganna á næstunni, né heldur um það hvernig málum þeirra verður skipað. Maxím Sjostakovitsj er 42 ára að aldri. Hann er sonur tón- skáldsins Dmitri Sjostakovitsj, sem margir hafa talið merkasta tónskáld tuttugustu aldarinnar, en hann lézt árið 1975. Sonur hljómsveitarstjórans er píanó- leikari, en hann ber nafn afa síns. Dmitri hinn ungi er einka- barn, en foreldrar hans skildu fyrir nokkrum árum. Þeir Sjostakovits-feðgar komu fram á tónleikum sovézku út- varps- og sinfóníuhljómsveitar- innar í bænum Fuerth í V-Þýzkalandi, en að þeim lokn- um sneri hljómsveitarstjórinn sér til lögreglunnar og kvaðst ekki vilja fara aftur heim til Sovétríkjanna. Hann hefur á undanförnum árum verið í röð fremstu hljómsveitarstjóra þar í landi og hefur hann verið hafður í miklum hávegum. Maxím Sjostakovitsj var kall- aður til vitnis í sovézkum fjöl- miðlum fyrir tveimur árum þeg- ar ævisaga föður hans kom út á Vesturlöndum. Þar er Sovétkerf- inu og kommúnismanum hafnað, en sovézkir fjölmiðlar héldu því stíft fram að tónskáldið hefði aldrei lýst því yfir sem eftir því er haft í bókinni, heldur hefði höfundurinn, Simon Volkov, vilj- andi farið rangt með í þeim tilgangi að klekkja á sovézku þjóðfélagi. Undir þennan mál- flutning tók Maxím Sjostako- vitsj á sínum tima, en enn sem komið er hefur hljómsveitar- stjórinn ekki látið nein ummæli falla um það að ástæða sé til að taka þau orð aftur. Framkvæmdastjóri hljóm- leikahallarinnar í Fuerth tjáði blaðamönnum, að hljómsveitar- stjórinn hafi greinilega verið í miklu uppnámi. Telur fram- kvæmdastjórinn ástæðuna fyrir leynd þeirri, sem umlykur feðg- ana, vera tillitsemi við vini þeirra og vandamenn í Sovét- ríkjunum. Sovézka hljómsveitin sneri aftur til Sovétríkjanna á sunnudaginn. Við útför tónskáldsins Dmitri Sjostakovitsj í ágúst 1975. Tónskáldið Aram Katsjatúrian kyssir hönd hins látna, en drengurinn lengst á myndinni er Dmitri, píanóleikarinn, sem hefur beðið um pólitískt hæli í Vestur-Þýzkalandi ásamt föður sínum, sem á myndinni stendur við hlið hans. Bamabókaverðlaun hlutu Hreið- ar og Þorsteinn frá Hamri ÁRLEG barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur voru af- hent í Höfða á laugardag. Að þessu sinni hlaut Hreiðar Stef- ánsson, höfundur bókarinnar Grösin í Glugghúsinu, verðlaun fyrir bestu frumsömdu barna- bókina, sem út kom árið 1980. Og fyrir bestu þýðinguna á barnaefni hlaut verðlaunin Þorsteinn frá Hamri fyrir þýðingar sínar i hókinni Gestir í gamla trénu. Verðlaunin eru 7500 kr. fyrir frumsömdu barnasöguna en 5000 kr. fyrir þýdda barnaefnið. í dómnefnd áttu sæti Geir A. Gunn- arsson, formaður, Teitur Þor- Ieifsson og Jenna Jensdóttir, en við val á frumsömdu bókinni kom i hennar stað Þórhallur Runólfs- son. Sigurjón Pétursson, forseti horgarstjórnar, afhcnti verðlaun- in. „Hreiðar Stefánsson er enginn nýgræðingur í því að skrifa barna- bækur," sagði Geir A. Gunn- laugsson er hann gerði grein fyrir vali á bestu frumsömdu barnabók- inni. Grösin í glugghúsinu er þriðja bókin sem hann skrifar einn, en auk þess hafa komið út eftir hann og konu hans Jennu Jensdóttur 26 barnabækur. Það er heldur ekki í fyrsta sinn, sem Hreiðar er hér kominn til þess að veita þessum verðlaunum viðtöku. En árið 1973 fengu þau hjón, Hreiðar og Jenna, þessi sömu verðlaun, þegar þau voru veitt í fyrsta skipti. En Hreiðar hefur ekki aðeins skrifað bækur fyrir börn, segja má að hann hafi helgað starf sitt börnum, fyrst á Akureyri og síðar hér í Reykja- vík. í rúmlega 20 ár, frá 1942 til 1963, hélt hann skóla fyrir 6 ára börn á Akureyri, svonefndan Hreiðarsskóla, og svo segir mér hugur að þar hafi margar bækurn- ar orðið til sem sögur, sem sagðar voru krökkunum. Mér er sagt að ekki hafi alltaf verið stuðst við hefðbundnar aðferðir í Hreiðars- skóla. Stafirnir voru sungnir og ef það dugði ekki þá voru þeir bakaðir* sem brauð og borðaðir. Hvað um það, á þessum tímum voru víst fá börn með lestrarerfiðleika á Akur- eyri. Hreiðar og fjölskylda hans fluttu hingað til Reykjavíkur árið 1963 og hafa börn í Langholtsskóla orðið þess aðnjótandi að hafa hann sem krakka og ennþá kennir hann yngstu börnunum. Útgefandi bók- arinnar er Iðunn og má segja að þeir hafi nú bætt enn einni skrautfjöður í hatt sinn.“ Sagan í „Grösin í glugghúsinu" gerist fyrir hálfri öld og er sögð í annarri persónu. Hún segir frá 10 ára gömlum dreng, Garðari, sem á heima í kaupstað, en dvelst um sumar á sveitabæ. Þetta eru erfiðir tímar og á herðar drengnum leggst þungbær reynsla þetta sumar. „Þorsteinn frá Hamri, sem hér veitir viðtöku verðlaunum Fræðsluráðs fyrir þýðingar sínar í bókinni „Gestir í gamla trénu", er eflaust þekktari sem ljóðskáld og rithöfundur fyrir fullorðið fólk en þýðingu bóka fyrir börn, þótt Gestir í gamla trénu sé engan veginn frumraun hans,“ sagði Geir A. Gunnlaugsson. Á undan Gestir í gamla trénu hafði meðul annars komið út í þýðingu Þorsteins „Ber- in á lynginu". í báðum bókunum er úrval margs hins besta í barnabók- menntum heimsins, ævintýrum, Ijóðum, leikjum og sögum. Á Þor- steinn heiður og þakkir skildar fyrir framlag sitt til íslenzkra barnabókmennta fyrir þýðingar sínar. Útgefandi á Gestir í gamla trénu er Bjallan." Þessar tvær bækur eru úr bóka- seríu, sem í eru 8 bækur, þær hafa komið út á Norðurlöndum öllum, 4 sérfræðingar um barnaefni hafa valið efnið og fengið góða dóma. Þorsteinn hefur þýtt mikið af efninu og bætt í íslenzku þar sem honum þótti hæfa. í bókunum er mikið myndaefni, og Norræni menningarsjóðurinn hefur styrkt þýðinguna. Hreiðar Stefánsson þakkaði, sagði að það gleddi sig að bók hans Grösin í glugghúsinu hefði vakið þessa athygli. „Hún hefur að geyma lífsreynslu mína frá löngu liðinni tíð. Það líf, sem ég og samtíð mín lifðum og frásagnir af kjörum, sem stór hluti þjóðarinnar bjó við á þeim tíma. Er ég skrifaði handrit að sögunni stóð mikill stormur kringum rammíslenzkar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.