Morgunblaðið - 14.04.1981, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍJþ 1981
21
Ármann fékk
14 verðlaun
af 18 í flokki
fullorðinna
Reykjavíkurmót í alpa- greinum fór fram í Skála- felli um helgina. Keppt var í flokki barna og fullorðinna. Á laugardag var keppt í stórsvigi og á sunnudag í svigi. Á sunnudag var ófært i Skálafell frameftir dcgi og þvi hófst keppni þá ekki
fyrr en kl. 14.00. Keppt var
á tveim stöðum. Fullorðins-
flokkar við skálann cn
harnaflokkar við lyftu 3.
Gekk mótið mjög vel fyrir sig og var keppni spennandi
og skemmtileg. Hér helstu úrslit: cru
Drentcir 10 ára o* ynteri: StórsvÍK: Matthías Frióriksson Á 63,6é
Bgiti In^i Jonsson ÍR 65.27
Brnedikt Rúnarsson ÍR 67,03
Svír: EjííH Intfi Jónsson ÍR 61.71
RaRnar Sverrisson IR 64,20
Jóhann Steinn Ölafs. KR 64,30
Alpatvíkeppni: ESftiil tnKÍ Jónsson ÍR
Ra«nar Sverrisson IR Itenedikt Rúnarsson ÍR
Stúlkur 10 ára yniiri: Stórsviit: Geirný Gcirsdóttir KR 67,81
Hrafnhildur Mone.v Á 74,89
Harpa Vídisdóttir KR 76,71
Svík: Harpa Vídisdóttir KR 68,56
Auður Arnardóttir ÍR 70.73
Hrafnhildur Money Á Alpatvikcppni: Harpa VíöÍHdottir KR Hrafnhildur Money Á Auóur Arnardóttir ÍR 72,84
Preiglr 11 —12 ára: StórsviK: Sveinn Rúnarsson KR 74,09
GuÖjon Þór Mathiesen KR 76,44
Bjarni Pétursson KR 78,26
Sveinn Runarsson KR 70.00
Arnór Amason KR 73,16
Baldur Brajiason KR 74,26
Alpatvíkcppni: Sveinn Rúnars84>n KR Arnór Arnason KR Baldur Rrajjason KR
Stúlkur 11—12 ára: StórsvÍR: Kristín Olafadóttir KR 75,04
Auöur Jóhannsdóttir KR 81,80
In«a K. Guömundsdóttir Á 82,47
Svig: Kristín Ólafsdóttir KR 68,63
Auður Jóhannsdóttir KR 83.91
Sif Heigadóttir KR 83,91
AÍpatvíkeppni: Kristín Olafsdóttir KR Auöur Jóhannsdóttir KR Sif HelKadóttir KR
Konur: StórsvÍK: Asdís Alfreösdóttir Á Haildóra Björnsdóttir Á 107,86 112.52
Guörún Björnsdóttir Vík. 114,68
Svík: Ásdís Alfreösdóttir Á 102.10
Halidóra Bjornsdóttir A 105,19
Guörún Bjórnsdóttir Vík. 109,91
Aipatvikeppni: Ásdís Alfreósdóttir Á Halldóra Björnsdóttir A Guðrún Bjömsdóttir Vík.
Karlar: StórsvÍK: IIcIkí GeirharÖHHon Á 99,57
Hafþor Jóliusson ÍR 102.05
Kristinn SÍKurösson \ 102.31
Svík: HeÍKÍ Geirharösson Á 92,63
Kristinn SÍKurösson A 93,10
Rinar Olfsson Á 94,93
Alpatvikeppni: HcIkÍ Geirharösson A Kristinn SÍKurÖsson Á Einar IMfsson Á
Meistarabikarana fennu l>vi Hcltri
Geirharösson ok Asdís Alfreósdóttir
fyrir sijjur í svtgi o« stórsvÍKÍ.
Aö ofanjcreindu er Ijóst, að Ármenn-
in«ar i'itra 14 vcrftl. af 18 i flokki
fullordinna. KK-in«ar oitía Z2 vcrðl. af
í fiokki barna.
líDrðHlrl
ísland tapaði
fyrir Portúgal
eftir framlengingu
ÍSLENSKA landsliðið í körfu-
knattleik lék í gærkvöldi við lið
PortÚKals ok tapaði eftir fram-
lengdan leik 94—91. Eftir
venjulegan leiktíma var staðan
jöfn 84—84. Jón Sigurðsson
jafnaði fyrir íslenska liðið þeg-
ar 2 sekúndur voru eftir af
leiknum. í framhaldinu var lið
Portúgals sterkara oj? marði
sigur. Að sögn Agnars Frið-
rikssonar eru öll liðin í riðlin-
um mjög jöfn að getu og allt
getur gerst. Til dæmis sigraði
lið Alsír lið Skota í gærkvöldi
með 80 stigum gegn 79.
Leikur íslands og Portúgals var
æsispennandi allan tímann og
geysilega mikil barátta í honum.
Islenska liðið lék vel framan af
og hafði yfir í hálfleik 44—38.
En lenti snemma í miklum
villuvandræðum og í fyrri hálf-
leik voru dæmdar 18 villur á
liðið, og 10 í síðari hálfleik.
Pétur Guðmundsson var kominn
með 4 villur á 9. mínútu leiksins
og varð þá að fara útaf. Pétur,
Kristján og Símon fengu allir 5
villur í leiknum og háði það
liðinu verulega. Þá meiddist Jón-
as illa í hné og leikur ekki meira
með í mótinu að sögn Agnars.
Þegar ein mínúta var til leiks-
loka hafði íslenska liðið foryst-
una 82 stig gegn 80. En það háði
liðinu á lokasprettinum að allir
stóru leikmennirnir voru farnir
útaf með 5 villur og reið það
baggamuninn í leiknum. Allir
íslensku leikmennirnir stóðu sig
mjög vel. Sér í lagi var varnar-
leikurinn sterkur. Sóknarleikur-
ísland — Portúgal
91:94
inn var hinsvegar nokkuð mis-
tækur. Stig liðsins skoruðu þess-
ir leikmenn: Pétur 27, Jón 17,
Kristján 10, Símon 9, Torfi 8,
Gunnar 7, Kristján 6, Jónas 5,
Ríkharð 2. —ÞR.
Horatm
• Fyrsti meiri háttar sigur Þróttar í handknatt-
leik í ein 30 ár er í höfn, fyririiði liðsins og
þjálfari. ólafur H. Jónsson, hampar bikarnum.
Enginn með
12 rétta
Kr. 19.920 - fyrir 11 rétta
í 32. Ieikviku getrauna komu fram 4 raðir með 11
rétta leiki og var vinninjjur fyrir hverja röð kr.
19.920.-. Með 10 rétta voru 90 raðir og koma kr. 379.-
fyrir hverja röð.
Eins o>? verið hefur síðustu árin verður gert hlé hjá
getraunum yfir páskana, en síðan verða getrauna-
seðlar með leikjum næstu tvo laugardaga.
Ármann sigraði
Jón Sigurðsson fyrirliði ís-
lenska liðsins jafnaði leikinn á
siðustu sekúndunni.
EINN leikur fór fram í
Reykjavíkurmótinu í
knáttspyrnu í gærkvöldi.
Lið Ármanns sigraði Val
2—1. Lið Vals átti mun
meira í leiknum en tókst
ekki að ná fram sigri. Sigur-
mark Ármanns skoraði
Egill Steinþórsson úr víta-
spyrnu.
Hnefaleikakappinn Joe Louis látinn
JOE LOUIS, einhver mesti
íþróttamaður allra tíma, lést á
sunnudaginn á sjúkrahúsi einu
í Las Vegas, Nevada. Hann var
66 ára gamall. Ilann fór ferða
sinna í hjólastól síðustu æviár-
in, eða eftir hjartauppskurð
árið 1977. Hjartameinið var
ásamt nokkrum öðrum kvillúm
hanamein hans. Louis var geysi-
lega öflugur hnefaieikamaður-
inn fyrr á árum. Hann var
dökkur á hörund og gjarnan
nefndur „The Brown Bomber“.
Árangur kappans talar sínu
máli. hann sigraði i 68 keppn-
um sem atvinnumaður og tap-
aði aöeins þremur.
Joe Louis skaust í sviðsljósið
árið 1937, aðeins 23 ára gamall,
er hann rotaði heimsmeistarann
James Braddock og tók við
tigninni. Þá hafði hann keppt 36
sinnum sem atvinnumaður, tap-
að aðeins einu sinni, en rotað 31
af keppinautum síhum. Árið
1949 hætti Louis, hann var þá
heimsmeistari í þungavigt og
tjáði fólki þá, að þar sem hann
treysti sér ekki lengur 'til að
verja titil sinn, kysi hann að
hætta frekar en að tapa titlinum
í hringnum.
En 27 mánuðum síðar mátti
hann til að reyna á nýjan leik,
enda hrjáði hann auraleysi og
skattyfirvöld gáfu honum engan
frið. Heimsmeistari þá var Ezz-
ard Charles og Louis hafði ekki
undirbúið „come back“ sitt nógu
vel, Charles lamdi hann sundur
og saman. „Ég fer aldrei í
hringinn aftur," var þá haft eftir
Louis, en það átti eftir að
breytast eins og annað, hann var
byrjaður að keppa á nýjan leik
aðeins tveimur mánuðum síðar
og það var ekki fyrr en árið 1951,
að ferli hans lauk með miklum
ósigri gegn Rocky Marciano. Þá
hafði hann verið í eldlínunni í 17
ár. Og hann var 37 ára gamall er
Marciano sendi hann rotaðan í
gólfið.
Margar keppnir Louis verða
lengi í minnum hafðar meðal
hnefaleikaaðdáenda, engin þó
frekar en síðari viðureign hans
við Vestur-Þjóðverjann Max
Schmeling. Schmeling var einn
af þremur sem tókst að sigra
Louis og var það í 29. hnefaleika-
keppni Louis sem atvinnumanns.
Hafði Louis unnið hina 28 með
meiri og minni yfirburðum. En
Louis náði aftur heimsmeistara-
titlinum. Þó gleymdi hann ekki
ósigrinum gegn Schmeling og
haft var eftir honum eitthvað á
þá leið, að hann yrði aldrei
alvörumeistari fyrr en hann
næði að klekkja á Schmeling.
Fyrri viðureign þeirra fór fram
19. júní 1936, en þeir hittust
aftur í hringnum 22.júní 1938.
Fyrstu lotunni lauk aldrei,
Schmeling var þrívegis sleginn í
gólfið á fyrstu tveimur mínútun-
um og eftir það þurfti ekki
lengur vitnanna við, Joe Louis
var óumdeilanlega sá besti.
Ix)uis var ákaflega vinsæll,
enda örlátur í meira lagi á fé
sitt. Fyrir vikið var hann stór-
skutdugur, því ekki voru allir
menn til að endurgreiða lánin.
„Joe var stórkostlegur hnefaleik-
ari, sá besti sem ég hef*átt við
um daganna. Hann var leiðarljós
og tákn bandarískra blökku-
manna á sínum tíma. Hans líkar
skjóta aðeins upp kollinum einu
sinni á öld,“ sagði Max Schmel-
Hnefaleikakappinn Joe Louis.
ing í samtali við fréttastofu AP
er hann frétti lát Louis. Sugar
Ray Robinson er einn frægasti
hnefaleikari allra tíma, hann
sagði eftirfarandi í viðtali við
sömu fréttastofu: „Hann var
stórkostlegur persónuleiki og
besti vinur minn. Hann kom
ferli mínum af stað á sínum
tíma, yrði það eitt seint full-
þakkað."