Morgunblaðið - 14.04.1981, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 14.04.1981, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1981 27 w Geysilegur almenningsáhugi er á íþróttum á Akureyri - spjallað við Þröst Guðjónsson formann skíðaráðs Akureyri hefur löngum verið þekktur skíðahær. Þaðan hefur oft komið mjög öflugt skiðafólk, aðstaða er þar góð og fyrsta alþóðlega skiðamótið var haldið þar í fyrra. Til að forvitnast um starfsemi Skiðaráðs Akureyrar og skíðamál Akureyringa almennt, iögðum við undirritaðir leið okkar til Þrastar Guðjónssonar, formanns ráðsins, og spjölluðum við hann. Geysilegur áhugi almennings Áhugi almennings á skíða- íþróttum hér á Akureyri er mjög mikill, sagði Þröstur. Álpagreinar hafa verið mun vinsælli undanfar- ið en gangan er nú á hraðri uppleið, og segja má að stökkið sé nú á byrjunarstigi hjá okkur. Aðstaðan hér er góð frá náttúr- unnar hendi en nú eru 8—9 ár síðan eitthvað hefur verið gert í lyftumálum. í dag vantar okkur lengri diskalyftu í Strompbraut- ina. Ef hún kæmi myndi hún stækka svæðið um helming; hún myndi gefa nýja möguleika bæði til norðurs og suðurs. Gömlu diskalyftuna gætum við fært niður í Hjallabraut, og myndi hún þá tvöfalda flutningsgetuna þá leið sem stólalyftan ein fer núna. Við teljum þessar framkvæmdir nauðsynlegar þar sem fólk kemur að sjálfsögðu ekki í „Fjallið" til að standa í röð, en það er nefnilega allt of algengt að langar biðraðir myndist við stólalyftuna. Þetta lyftumál er þ.a.l. alls ekki bara mál SRA eða kepnisfólksins held- ur einnig almennings. Það er langt síðan byrjað var að tala um þessar lyftuframkvæmdir, þess má geta t.d. að þetta er 4 ára gamalt kosningaloforð. Afþökkuðum al- þjóðlegt mót SRA afþakkaði fyrir stuttu boð frá Skíðasambandi íslands þess efnis að halda alþjóðlegt mót árið 1982, þar sem burðargeta lyftanna er ekki nógu mikil. Brekkurnar í Hlíðarfjalli eru í fullkomnu lagi til að halda slik mót enda hefur eitt farið fram nú þegar, á íþrót- tahátíðinni í fyrra. Þó ekkert hafi gerst í lyftumál- um lengi hafa komið 2 snjótroðar- ar í fjallið og segja má að það hafi verið bylting þegar sá seinni kom þar sem hann getur fært til snjó. Aðstaðan fyrir stökk hefur batnað mikið, nú eigum við einhvern fullkomnasta stökkpall á landinu. Eins og áður segir, hefur göngu- áhugi aukist til muna í höfuðstað Norðurlands undanfarið. Þröstur sagði að fólk notaði sér þá aðstöðu mikið að nú væru alltaf troðnar brautir fyrir fólk í fjallinu, og fólk færi einnig mikið á gönguskíði í Kjarnaskógi þar sem tekin var í notkun í vetur upplýst trimm- braut. Verksvið SRA er að sjá beint um þjálfun alpafólks, 13 ára og eldra en umsjón með 12 ára og yngri hefur foreldraráðið. SRA er ráð á vegum Þórs og KA, og sér það um uppbyggingu skíðaíþrótt- arinnar í bænum. Alpalið karla og kvenna hafa staðið sig vel í vetur. Þjálfarar hjá alpaliðunum í vetur eru Margrét Baldvinsdóttir, sem verið hefur yfirþjálfari, Guðrún Leifsdóttir og Valþór Þorgeirsson. Gönguþjálfari er Edda Her- mannsdóttir og síðustu 4 vikurnar hefur einnig verið hér finnskur gönguþjálfari, Jouko Parviainen að nafni. Æft er alla daga vikunn- ar í hinum ýmsu flokkum, þrivar til fimm sinnum í hverjum flokki. í göngu er æft tvisvar til þrisvar í viku, nema eftir að Finninn kom, þá hefur verið æft oftar, sagði Þröstur. Foreldraráðið sem ég minntist á áðan var stofnað upp úr 1975 til að sjá um uppbyggingu fyrir krakka 12 ára og yngri. Það hugsar mjög vel um krakkana enda eru þetta yfírleitt foreldrar þeirra krakka sem eru að keppa. Mót sem oftast Stefna okkar í SRA er að hafa mót um hverja helgi S öllum flokkum. Ef ekki er punktamót þá höldum við innanhéraðsmót. Það eru skiptar skoðanir hvort þetta sé gott, en okkar stefna er sem sagt sú, að hafa alltaf sem mest að gera, og þá fyrir alla. Þröstur sagði að það hefði varla liðið sú helgi í vetur að ekki hefði verið haldið mót hér. í vetur hefur verið svolítið um göngumót, og er það í fyrsta skipti í nokkur ár sem þau eru haldin. Þátttaka hefur að vísu verið dræm, enda er kannski ekki hægt að búast við öðru eftir eins langt hlé eins og verið hefur. Nú erum við búin að planleggja gönguna tvð til þrjú ár fram í tímann og það er mikill áhugi að koma upp í sambandi við hana. Góður kjarni Með því að halda mót eins oft og við höfum gert, hefur tekist að mynda góðan kjarna starfsfólks sem unnið hefur mjög vel i vetur. Það var sagt við okkur í fyrra að við myndum ekki getað haldið mót næstu árin eftir allt sem við vorum með á stuttum tíma í fyrravetur, Íþróttahátíðina, Landsmótið og Andrésar Andar leikana. Raunin hefur orðið önnur, við höfum ekki verið í vandræðum með starfólk. Nýjungar i mótahaldi Nú um helgina var SRA með mót fyrir fyrrverandi keppendur og aðra sem áhuga höfðu. Keppt var í tveimur flokkum: 35—40 ára flokki og 41 árs og eldri. Einnig í einum kvennaflokki. Keppt var bæði í svigi og stórsvigi og er þetta algjör nýjung hér á landi að sðgn Þrastar. Um páskana verður haldið hér hjá okkur nýtt mót sem skírt hefur verið í höfuðið á Flugleiðum — „Flugleiðamótið". Keppt verður í alpagreinum 16 ára og yngri á skírdag og á páskadag verður keppt í göngu í öllum aldursflokkum. Hugmyndin er að leggja göngubraut frá Laugalandi á Þelamörk til Skíðastaða, sem er ca. 12 km leið. Einnig verða styttri brautir bæði fyrir keppendur og fjölskyldur. Stefnt er að því að þetta verði árlegur viðburður. Andrés Önd Eins og kunnugt er, höfum við haldið Andrésar Andar leika hér á Akureyri undanfarin ár. Á sumar- daginn fyrsta verða leikarnir í sjötta skipti og nú verður í fyrsta skipti keppt í norrænum greinum á leikunum. Þegar leikarnir voru haldnir í fyrsta skipti var stofnuð nefnd til að sjá um framkvæmd þeirra og á SRA einn mann i nefndinni. Við ætlum okkur einnig að halda brunmót á næstunni en brunmót hafa átt erfítt uppdrátt- ar á iandinu á undanförnum árum. Árlegt brunmót hefur verið á skrá hjá okkur síðustu ár en það hefur engu að síður orðið horn- reka þar sem það hefur alltaf átt að vera síðast og þá hefur yfírleitt alltaf verið orðið snjólaust. Mjög ungt lið í dag erum við eitt yngsta keppnislið karla og kvenna í alpa- greinum á landinu. Eins og ég sagði áður, höfum við náð góðum árangri í vetur, við höfum oft átt marga menn ofarlega á blaði. Það hefur verið mikil keppni í kvenna- flokki í vetur, einnig hefur verið mikil keppni innan liðsins hjá okkur, og Nanna Leifsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir og Ásta Ásmundsdóttir hafa allar unnið mót í vetur. Við horfum björtum augum á framtíðina þar sem við eigum mjög góðan kjarna í ungl- ingaflokkunum og ég tel það ólíklegt að það komi til með myndast aldurseyður í hópunum. Foreldraráðið á drjúgan þátt í þessari uppbyggingu. Það hafa verið haldin tvö punktamót í unglingaflokki í vetur og misstum við af öðru þeirra vegna veðurs. Reyndar voru það ekki við sem misstum af því heldur voru aðeins tvö lið af sex sem gátu mætt til keppni. Við buðumst til að halda punktamót fyrir þá sem ekki komust en var neitað um það. Við höfum reyndar verið tilbúin að taka að okkur öll þau mót sem þurft hafa að falla niður, bara til að þau þurfi ekki að falla niður en ekki vegna þess að vegna einhverrar frekju eins og sumir hafa viljað meina. Mjög dýr íþrótt Það er mjög dýrt að stunda skíðaíþróttir, sagði Þröstur. Fólk fer u.þ.b. fjórar ferðir í fjallið, þá þarf einnig að greiða keppnisgjöld og lyftugjöld. Ég gæti trúað að kostnaðurinn við þetta sé ríflega eitt þúsund krónur yfir vertíðina, sem stendur aðeins í þrjá mánuði. Því má svo ekki gleyma að útbún- aðurinn er mjög dýr. Það hefur verið rætt talsvert í Skíðaráðinu að reyna að finna leiðir til að lækka þennan kostnað en ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum. Til samanburðar þá er kostnaður fyrir krakka sem æfir í húsi á veturna í kringum 200 krónur, og • Formaður skiðaráðs Akureyr- ar, Þröstur Guðjónsson. það fyrir helmingi lengri tíma en skíðavertíðin stendur yfir. Aðspurður um það hvort það væri æskilegt að halda alþjóðleg mót, sagði Þröstur, að hann teldi það æskilegt vegna þess að þeir keppendur sem ætla að taka þátt í mótum niðri í Evrópu, þurfa að hafa dálítið af stigum á bak við sig til að komast framarlega í ráshóp, en kostnaðurinn væri aftur á móti gífurlegur þar sem þyrfti að greiða keppendum dagpeninga og einnig ferðir fyrir þá, svo og dómara. Fjármálin Starfsemi SRA krefst að sjálf- sögðu mikilla fjármuna eins og öll önnur íþróttastarfsemi, sagði Þröstur, er hann var inntur eftir peningamálunum. SRA hefur lifað að miklu leyti á auglýsingum á stólalyftunni og á fjölskyldu- skemmtunum, bingóum o.fí. Þá fáum við styrk frá IBA, en það er að vísu lág upphæð miðað við það sem er á öðrum stöðum. Við höfum einnig fengið styrki frá íþróttafélögunum KA og Þór og þá í formi verðlaunapeninga, en það er einmitt stór þáttur í kostnaði SRA. Misskilningur Ég held að það sé dálítið ríkjandi almenningsálit á Akur- eyri að verið sé að byggja upp aðstöðu fyrir örfáa menn í „fjall- inu“. Þetta er langmesta íþróttaaðstaðan fyrir bæinn — það fara flestir þangað. Þetta er almenningsútivistarsvæði. Ég held líka að sá misskilningur sé hjá mörgum að ef mót er í fjallinu þá geti almenningur ekki verið þar líka. Það er alltaf möguleiki að vera á einum sex til sjö stöðum í einu í Hlíðarfjalli, þannig að nóg er af svæðum þar sem hægt er að vera þó verið sé að halda mót. Framtíðaráform SRA Nú er unnið að almennri upp- byggingu skíðaíþróttarinnar í landinu, t.d. að vinna að uppbygg- ingu á ársgrundvelli. Reynt hefur verið að fá keppnisfólkið til að æfa reglulega allt árið. Tvö síðastliðin ár hefur fólk frá okkur farið til útlanda og er það stefna okkar, en þar spila að sjálfsögðu peningarn- ir inn í eins og annars staðar. Annars er aðal framtíðaráform okkar að sjálfsögðu það að eiga frambærilegt lið í alpagreinum og norrænum greinum. — sor 23 kepptu á fyrsta borö- tennismótinu á Austurlandi Fyrsta austurlandsmót i borðtennis var haldið að Alþýðuskólanum Eiðum sunnudaginn 5. apríl á veg- úm Ungmenna- og íþrótta- sambands Austurlands (UÍA) og Borðtennissam- bands ísiands. Þátttakendur voru alls 23 og var keppt i kariaflokki, drengjaflokki (16—17 ára), svdnaflokki (13—15 ára) og opnum kvennafiokki. Kepptu aiiir við aila innan hvers flokks. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin i hverjum flokki. Verðlaunahafar voru: f karlaflokki: 1. örn Franzson UMF Eiðaskóla. 2. Hannes Sigurðsson, S.E., 3. Kári Jónasson, S.E. í drengjaflokki: 1. Eggert Brekkan. Þrótti Ncskaup- stað, 2. Guðjón Antoniusson, UMF Einherja, 3. Björn Gunnarsson. UMF Eiða- skóla. 1 sveinaflokki: Gutt- ormur Kristmannsson, S.E., 2. Magnús Steinþórsson, Detti, 3. Einar örn Jónsson, UMF Eiðaskóla. í kvenna- flokki: 1. Gréta Sigurjóns- dóttir, UMF Visi, 2. Sæbjörg Kristmannsdóttir, S.E., 3. Sigþrúður Sigurðardóttir, S g Mótinu stjórnaðl fuiitrúi Borðtennissambandsins og tókst það i alla staði vel. Það er von þeirra, sem að mótinu stóðu, að um fastan árlegan viðburð verði að ræða þar eð borðtennisiþróttin á greini- iega vinsældum að fagna á Austurlandi. Sex keppa á EM í badminton FÖSTUDAGINN 10. aprii héldu 6 unglingar tii keppni i Evrópumeistaramóti ungi- inga i badminton, sem hald- ið er i Edinborg Skotlandi, dagana 13.—18. april. Er þetta i fyrsta sinn sem fs- iendingar taka þátt i þcssari keppni og fara sömu ungi- ingar og tóku þátt i NM-ungiinga, en þau eru: Inga Kjartansdóttir TBR Laufey Sigurðardóttir í A Þórdis Eðvaid TBR Gunnar Björnsson TBR Þorgeir Jóhannsson TBR Þorsteinn P. Hængsson TBR Fararstjóri er Sigfús Ægir Árnason. Keppnin byrjar á lands- leikjum og lenda íslendingar í E-riðli ásamt Frakklandi, Ítalíu og Póllandi. Siðan tek- ur við einstaklingskeppni á miðvikudag og stendur til laugardags. Dvalið verður á Kings Mar- ior Hotel og keppnin fer fram i Meadowbank Sportcenter. Unglingarnir hafa fjár- magnað ferðina að öllu leyti sjálfir. Þeir eru væntanlegir heim aftur 21. apríl. Firmakeppni í handknattleik FIRMAKEPPNI FH í hand- knattieik fer fram i Hauka- húsinu 25. og 26. april. Leiktimi er 2x10 minútur. Veitt verða þrenn verðiaun. Þátttókutilkynningar þurfa að berast handknattleiks- deiid FH fyrir 22. apríi. Þátttoku má tilkynna i sima 54553 og 50696. • Mikill skiðaáhugi er á Akureyri, enda aðstaðan eins og hún gerist best hér á landi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.