Morgunblaðið - 14.04.1981, Blaðsíða 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1981
Sérstakur eignaskattur
á verzlunarhúsnæöi:
Dæmigerður
vinstristjómarskattur
- sagði Matthías Bjarnason
Ingólfur Guónason (F) ma lti nýlega fyrir nefndaráliti stjórnarliða
i fjárhaKsnefnd neðri deildar Alþingis þar sem lagt er til ad
framlengja sérstakan 1,4% viðbótareijínaskatt á verzlunar- og
skrifstofuhúsnæði. Undir nefndarálit i þessa veru skrifar Halldór
Asgrímsson (F). Ingólfur Guðnason (F), Guðmundur J. Guðmundssón
(Abl) allir úr stjórnarliði og Sighvatur Björgvinsson (A). Fulltrúar
Sjálfstæðisflokks lögðu til að frumvarp um framlengingu skattsins
yrði fellt.
Ranglátur skattur
Matthías Bjarnason (S) minnti á
að hér væri um einn af þeim
vinstristjórnarsköttum að ræða,
sem sjálfstæðismenn hefðu heitið að
fella niður, fengju þeir aðstöðu til,
er þeir birtu kosningastéfnuskrá
sína 1979. Þeir sjálfstæðismenn,
sem nú sætu í ríkisstjórn, hefðu og
ekki tekið minna upp í sig en aðrir
þingmenn flokksins, er skattur þessi
var lagður á haustið 1978 eða
endurnýjaður 1979. Mér er því
forvitni á að heyra skýringu á því,
hversvegna frumvarp þetta er flutt
sem stjórnarfrumvarp ríkisstjórn-
ar, hvar þrír sjálfstæðismenn eru
innanborðs.
Þessi skattur er framhald þeirrar
stefnu vinstri stjórnarinnar, sem
hækkaði eignaskatta yfir 50% á
sinni tíð, auk sérsköttunar af þessu
tagi. Hér er dæmigerð vinstri stefna
á ferð. Og hvað um stöðu strjálbýlis-
verzlunar, sem framsóknarmenn
þykjast bera fyrir brjósti, eflir þessi
skattur uppbyggingu hennar?
Grundvallarbreyt-
ing á skattkerfi
Birgir ísleifur Gunnarsson (S)
minnti á þá grundvallarbreytingu,
sem gerð var á skattkerfinu fyrir
nokkrum árum, þar sem reynt var
að móta annarsvegar hverjir skyldu
vera skattstofnar sveitarfélaga og
hinsvegar hverjir skattstofnar
ríkisins. Þá var sú stefna mótuð,
sem þessi sérstaki skattur þverbrýt-
ur, að fasteignir í hverju sveitarfé-
lagi f.vrir sig skyldu vera skattstofn,
sem heyrði til tekjuöflun sveitarfé-
lags. Þessi sérstaki eignaskattur til
ríkisins ér 1,4% af skattstofni, sem
fasteignagjöld sveitarfélaga leggj-
ast á. 1979 nam þessi skattur hér í
Reykjavík 22% af öllum fasteigna-
sköttum, sem innheimtir voru hér,
bæði af verzlunar- og skrifstofu-
húsnæði og íbúðarhúsnæði, svo sjá
má, að hér er um verulegan hluta af
nýtingu viðkomandi skattstofns að
ræða.
Ég vek athygli á að fasteignamat
hefur hækkað mjög mikið, ekki sízt
í miðborg Reykjavíkur, svo að þessi
tvöfalda álagning á skattstofninn er
verulega farin að hamla notkun
húsnæðis í miðborginni. Það eru
ekki nema ákveðnar tegundir at-
vinnurekstrar sem raunverulega
standa undir því að greiða þessa háu
skatta hér í miðborginni. Þessi
skattheimta gengur því þvert á þá
viðleitni borgaryfirvalda að auka á
fjölbreytni í hjarta borgarinnar,
margbreytileika atvinnu- og mann-
lífs.
„Við sjálfstæðis-
menn erum ekki
nógu margir“
Albert Guðmundsson (S) tók
undir orð Birgis, varðandi sjónar-
mið borgarstjórnarmanna til þessa
skatts. Hann sagði skatta af þessu
tagi stefna í eignaupptöku.
„Við sjálfstæðismenn erum ekki
nógu margir hér á Alþingi til þess
að geta breytt hér nokkru um að
þessu sinni,“ sagði Albert, „og það
verður fólk að hafa í huga. Hópur-
inn er því miður of lítill til þess.“
„Ég ítreka að það fólk, sem þegar er
að sligast undan skattpíningu á
flestum sviðum, þarf að átta sig á
því að það á ekki talsmenn á Alþingi
í neinum öðrum stjórnmálaflokki en
Sjálfstæðisflokknum".
Ræða formanns Fram-
sóknarflokksins
Halldór Blöndal (S) vitnaði til
ræðu formanns Framsóknarflokks-
ins hinn 23. október sl., þar sem
hann sagði m.a.: „Við teljum einnig
skatta á verzlunar- og skrifstofu-
húsnæði vafasama, og þar sem
hefur dregið úr þenslu á þessu sviði
og upphaflegu markmiði með hon-
um náð. Við teljum og nauðsynlegt
að endurskoða álagningu eignar-
Seilst í skattstofn sveitarfélaga,
sagði Birgir ísleifur Gunnarsson
Svipmynd frá Alþingi
t ræðustól Lárus Jónsson (S). t
Kristjánsson (S). Til hliðar við
Thoroddsen. forsætisráðherra. Til
ritari þingdeildarinnar.
forsetastól Þorvaldur Garðar
forseta efri deildar Gunnar
hægri Davíð Aðalsteinsson (F)
skatts, einkum á einstaklinga."
Hann vitnaði og til orða Tómasar
Árnasonar, sem gengu mjög í sömu
átt. Ljóst væri hinsvegar að það
væri stefna Alþýðubandalagsins
sem réði ferð í ríkisstjórninni.
Halldór vék að því að launþegar í
verzlunarstétt væru fjölmennur
hópur og atvinnuöryggi hans tengd-
ist sómasamlegum rekstrargrund-
velli atvinnugreinarinnar. Þessi
skattur gengi ekki síður á hagsmuni
þessa hóps en verzlunarfyrirtækja,
hvort sem um samvinnu- eða einka-
verzlun væri að ræða. Þessi skattur
kæmi hvað þyngst við strjálbýlis-
verzlun, sem ætti í vök að verjast.
Þetta frumvarp væri
ekki á dagskrá ef ...
Jón Baldvin Hannibalsson (A)
mælti gegn þessari skattheimtu.
Hann vék að orðum Alberts Guð-
mundssonar (S) og sagði: „Þetta
frumvarp væri hér ekki á dagskrá
nú, og yrði hér aldrei samþykkt, ef
ekki væri fyrir þá staðreynd að það
er fram borið af ríkisstjórn þar sem
að standa a.m.k. þrír sjálfstæðis-
menn. Ég verð að skilja þessa
yfirlýsingu háttvirts þingmanns á
þá lund að guðfaðir ríkisstjórnar-
innar sé nú að afneita þessum
þremur hæstvirtu ráðherrum og
telji þá ekki lengur í hópi sjálfstæð-
ismanna."
Þá vék JBII að því hvern veg þessi
skattur léki samvinnuverzlun í
strjálbýli og vitnaði til samþykktar
svæðisfundar samvinnuhreyfingar-
innar á Suðurlandi þar um.
Hemill á fjárfestingu
Vilmundur Gylfason (A) sagði
þennan skatt hafa verið lagðan á
1978 til að vera hemill á tiltekna
grein fjárfestingar og ég styð það að
hann verði framlengdur enn um
sinn. Hinsvegar er það eðlileg
spurning hjá Matthíasi Bjarnasyni
(S), hvað hafi valdið skoðanaskipt-
um hjá Friðjóni Þórðarsyni og
Pálma Jónssyni, því ef ég man rétt
voru þeir í hópi hörðustu andstæð-
inga þessa skatts og hann verður
vart framlengdur nú nema með
þeirra stuðningi og annarra sjálf-
stæðismanna, er styðja ríkisstjórn-
ina. En þjóðin er auðvitað hætt að
botna upp eða niður í því með hvaða
hætti þessir hlutir ganga fyrir sig,
hvað er Sjálfstæðisflokkur og hvað
er ekki Sjálfstæðisflokkur.
Ilvað er Al-
þýðuflokkur?
Pétur Sigurðsson (S) sagði að
tveir kratar hefðu talað í þessu máli
á fáeinum mínútum, annar, með
hinn á móti þessu frumvarpi. Nota
má því spurningu Vilmundar en
setja Alþýðuflokkur í stað Sjálf-
stæðisflokkur: hvað er Alþýðuflokk-
ur og hvað ekki Alþýðuflokkur? En
rétt mun það að vilji er allt sem þarf
til að skipta um skoðun og sannast
það á ýmsum í þessari ríkisstjórn.
Pétur vék að því að verzlunar-
menn skipuðu stærsta stéttarfélag
landsins og þessi skattur gengi gegn
rekstraröryggi þeirrar atvinnu-
greinar, sem þeir sæktu atvinnu til.
Vera má að réttlæta hafi mátt
álagningu skattsins á sinni tíð
vegna þenslu í byggingariðnaði —
en þær forsendur eru ekki fyrir
hendi nú, þvert á móti eru atvinnu-
horfur í byggingariðnaði síður en
svo glæsilegar.
Umræður um þetta mál urðu
mjög fjörugar og tóku mun fleiri til
máls en hér hefur verið, rakið.
Friðjón Þórðarson, dómsmálaráð-
herra, sagði rétt, að hann hefði ekki
verið sérstakur talsmaður þessa
skatts, en þetta væri þó ekki í fyrsta
skipti sem sjálfstæðismaður hefði
þurft að standa að skattlagningu
sem hann væri ekki ánægður með.
Pálmi Jónsson, landbúnaðarráð-
herra, sagðist hafa fallist á að
framlengja þetta gjald til eins árs,
eins og mál stæðu, „enda þótt það sé
rétt að hér er um sérstakan skatt að
ræða, sem leggur nokkrra mismun-
un á herðar gjaldþegna og getur
ekki orðið til frambúðar".
Tvær skákir frá Tallinnmótin u
Alþjóðlega mótið í Tallinn
um daginn gekk rólega fyrir
sig. þannig að keppendur höfðu
drjúgan tíma til biðstöðurann-
sókna og undirbúnings fyrir
næsta andstæðing. Það gat því
verið hættulegt að róa oft á
sömu mið í byrjun, enda má
segja að nú séu það eingöngu
ofurmenni á borð við Fischer
sem geti leyft sér að tefla sömu
hyrjunina skák eftir skák og
hundsa þannig alveg þann
möguleika að andstæðingurinn
hafi getað kynnt sér afbrigðið
rækilega. Þannig teflir Karpov
t.d. margar mismunandi byrj-
anir vafalaust i því skyni að
koma andstæðingnum á óvart
og aðrir stórmeistarar. t.d. Jan
Timman. ganga svo langt að
tefla næstum hvaða byrjun sem
er, allt eftir því hver andstæð-
ingurinn er.
Á Tallinn-mótinu voru sam-
ankomnir margir vel upplýstir
byrjanafræðingar og flestir sov-
ézku stórmeistararnir áttu það
sameiginlegt að hafa verið að-
stoðarmenn mjög öflugra meist-
ara. Bagirov var t.d. lengi vel
þjálfari Petrosjans, Gufeld var
jafnan aðstoðarmaður Gellers
hér áður fyrr og frami Maju
Chiburdanidze, heimsmeistara
kvenna, er ekki síst honum að
þakka. Eistlendingurinn Ivo Nei
var lengi þjálfari Spasskys og
kom m.a. með honum hingað til
Reykjavíkur árið 1972. Gipslis
hefur lengi haft hönd í bagga
með Nonu Gaprindashvili, fyrr-
um heimsmeistara kvenna, en
hún er eina konan sem náð hefur
að verða stórmeistari í karla-
flokki. Jafnvel Tal hefur upp á
síðkastið fengist nokkuð við að
vinna fyrir aðra, en vinnuveit-
andi hans er -auðvitað enginn
annar en heimsmeistarinn sjálf-
ur.
Á Tallinn-mótinu lögðu flestir
sig fram við það í skákum sínum
við Tal að halda stöðunum sem
einföldustum, enda orðstír hans
sem leikfléttusnillings annað og
meira en orðin tóm. Honum
tókst þó að vinna eina skák á
s^rfega kraftmikinn hátt. Þar,1
héfndi hann sín á Eistlendingn-
um Gunnar Uusi, sem vann hann
óvænt árið 1972.
Hvítt: Uusi (Sovétríkjunum)
Svart: Tal (Sovétríkjunum)
Enski leikurinn
1. d4 - Rf6, 2. RÍ3 - e6, 3. c4
— c5, 4. g3 — cxd4, 5. Rxd4 —
d5, 6. Bg2 - e5, 7. Rc2
(Tal hefur valið hvasst af-
brigði sem Kasparov hefur einn-
ig dálæti á. Venjulega er hér
leikið 7. Rb3 eða 7. Rf3.)
- d4, 8. 0-0
Mikhail Tal, fyrrum heims-
meistari, vann verðskuldaðan
sigur á Tallinn-mótinu.
(Athyglisvert er hér hið
hvassa framhald 8. f4!? og svart-
ur verður að gefa peð, annað-
hvort með 8. — exf4, 9. Bxf4 —
Rc6, 10. Bxc6 — bxc6, 11. Dxd4,
eða strax 8. — Rc6!?)
- Rc6, 9. e3 - d3!
(Öflugir biskupsleikir sem
fylgja í kjölfarið réttlæta þessa
djörfu framrás.)
10. Rel - e4,11. Rc3 - Bb4!
(Hugmynd svarts. Eftir 12.
Margeir Pétursson
Rxe4? - Rxe4, 13. Bxe4 - d2
vinnur hann mann.)
12. Bd2 - Bg4, 13. f3 - exf3,
14. Rxf3 - 0-0, 15. Db3 - De7,
16. a3 - Bxc3,17. Dxc3
Nú veltur bardaginn á því
hvort peðið sé veikara, peð hvíts
á e3, eða hinn djarfi fótgönguliði
svarts á d3)
- Hfd8, 18. Rd4 - Re5, 10. b4
- Be2, 20. Rf5?
Þessi vafasama áætlun stenst
ekki eins og Tal sýnir fram á.
Hvítur varð aðsætta sig við
nokkru lakari stöðu og leika 20.
Rxe2)
- De6, 21. Bxb7 - Bxfl, 22.
Hxfl - Hab8, 23. Bg2 - Rxc4!
(Vafalaust hefur Uusi talið
þetta dráp ómögulegt vegna
næsta Ieiks síns sem setur svart
í nokkuð óþægilega aðstöðu. En
Tal hefur séð lengra)
24. Bh3
- Rxd2!
(Svartur kemur til með að fá
meira en nægilegt lið fyrir
drottninguna. Aðrir leikir voru
miklu lakari, t.d. 24. — Da6, 25.
b5 — Dxb5, 26. Rxg7 — Rxd2, 27.
Dxf6 - Rxfl, 28. Rf5 - Dxf5, 29.
Bxf5 — d2, 30. Dh6 og hvítur
vinnur.)