Morgunblaðið - 24.05.1981, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 24.05.1981, Qupperneq 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1981 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1981 21 JWtripi Útgefandi imMuliílí hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aóalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuói innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakið. Viðkvæmni forsætisráð- herra, dr. Gunnars Thor- oddsens, vegna þeirrar gagn- rýni, að kommúnistar hafi óeðlilega mikil áhrif innan stjórnar hans, kom greinilega fram í sjónvarpinu á föstu- dagskvöldið, þegar stjórnmálaforingjar svöruðu spurningum blaðamanna. Eð- lilegt er, að forsætisráðherra sé viðkvæmur í þessu máli, því að það setur mjög mikinn svip á allt starf stjórnarinnar. Alrangt er að kenna stjórnar- andstöðunni um þetta yfir- bragð á ríkisstjórninni, því að staðfestingin á neitunarvaldi kommúnista í öllum meiri- háttar stjórnarmálefnum er ekki komin frá henni heldur frá sjálfum formanni Alþýðu- bandalagsins, Svavari Gests- syni, í sérstöku bréfi til flokksmanna sinna. Ólafur Jó- hannesson utanríkisráðherra vakti raunar fyrstur manna máls á því, að við stjórnar- myndunina hefði kommúnist- um verið veitt óeðlilega mikið vald, sem samrýmdist ekki venjulegum stjórnarháttum. Með hliðsjón af því eru um- mæli utanríkisráðherra um þetta mál í viðtali við Morg- unblaðið í gær athyglisverð. Ólafur Jóhannesson segir, að af pólitískum ástæðum geti utanríkisráðherra oft talið heppilegt að fjalla um fram- kvæmdir á Keflavíkurflug- velli á ríkisstjórnarfundum, þótt þær séu alfarið á vald- sviði hans. í þeirri ríkisstjórn, sem nú situr, sé erfið aðstaða til að gera slíkt, þar sem Alþýðubandalagið sé bæði andvígt dvöl varnarliðsins og þátttöku íslands í NATO. Síð- an segir utanríkisráðherra orðrétt: „Sú afstaða ein sýnir nú, að sá maður myndi varla fyrirfinnast, sem væri að mynda ríkisstjórn og veitti Alþýðubandalaginu stöðvun- arvald, þá væri miklu nær að afhenda flokknum bara utan- ríkisráðherraembættið. Auk þess fengist varla nokkur maður utan Alþýðubanda- lagsins til að taka að sér utanríkisráðherraembættið, ef hann væri settur undir neitunarvald þess við embætt- isfærslu sína.“ Séu þessi orð utanríkisráð- herra skoðuð í ljósi þess, að við myndun núverandi stjórn- ar voru á kreiki hugmyndir um að afhenda Alþýðubanda- laginu utanríkisráðherraemb- ættið, og Ólafur Jóhannesson hefur áður sagt, að hann hafi ekki tekið þátt í samningavið- ræðunum um stjórnarmynd- unina, er ekki unnt að draga aðra ályktun en þá, að Ólafur Jóhannesson telji, að í þeim viðræðum hafi andstæðingar Alþýðubandalagsins samið af sér. Skyldu menn þá einnig minnast orða Ragnars Arn- alds á flokksfundi Alþýðu- bandalagsins um þær mundir, sem stjórnin var að fæðast, að forsætisráðherra væri „band- ingi“ kommúnista. Til þess að taka af öll tvímæli um ákvörðunarvald utanríkisráðherra varðandi endurnýjun á eldsneytis- geymakerfi varnarliðsins, þótti á sínum tíma nauðsyn- legt að flytja tillögu til þings- ályktunar um það mál. And- staða kommúnista við málið hefur koðnað niður á Alþingi. Þeir hafa viðurkennt rétt- mæti þess, að tryggð verði viðunandi starfsaðstaða fyrir varnarliðið um leið og bægt er frá mengunarhættu og dregið úr erfiðleikum í skipulagsmál- um. Nú á utanríkisráðherra að sjá til þess að þessum varnarliðsframkvæmdum verði hraðað. Það voru ekki stjórnarsinnar, sem beygðu kommúnista í þessu máli, heldur kom þar til frumkvæði stjórnarandstöðunnar. Eins og Ólafur Jóhannesson segir í viðtalinu við Morgunblaðið í gær verður að líta á alla þætti, sem snerta hina nýju geyma, í heild. Og ráðherrann sagði: „Auðvitað er einnig nauðsynlegt að meta óskir varnarliðsins um aukið geymslurými undir eldsneyti. Ur því að liðið er hér á landi, verður búnaður þess og að- staða að vera með þeim hætti, að það geti sinnt hlutverki sínu.“ Eins og kom einnig fram hjá ráðherranum hafa ferðir sovéskra flugvéla um- hverfis ísland aukist mikið, en AWACS-ratsjárvélarnar á Keflavíkurflugvelli og orrustuþotur varnarliðsins fylgjast með ferðum þessara véla og tíðari ferðir þeirra krefjast auðvitað aukins eldsneytis. Það sýnir best hættulegar afleiðingar þess að veita kommúnistum neitunarvald, að utanríkisráðherra er ekki bjartsýnn á að reist verði ný flugstöð á Keflavíkurflugvelli í tíð núverandi ríkisstjórnar. Hann kallar afstöðu fram- sóknarþingmanna og annarra stjórnarsinna í þessu máli „þvergirðingshátt", sem hafi verið ónauðsynlegur, ef menn væru að hugsa um líf ríkis- stjórnarinnar, því að komm- únistar hefðu ekki rótað sér í stjórnarsamstarfinu, þótt ákvörðun hefði verið tekin um lántökuheimild til byggingar- innar. I sjónvarpsþættinum á föstudagskvöld sagði Stein- grímur Hermannsson formað- ur Framsóknarflokksins, að auðvitað yrði flugstöðin byggð. Hvernig ætlar Stein- grímur að standa að þeirri framkvæmd, á meðan þing- menn Framsóknarflokksins lúta neitunarvaldi kommún- ista í þessu máli? Gerir hann sér ekki grein fyrir því, að nú kunna Bandaríkjamenn að fella niður 45—50 milljón dollara fjárframlag til bygg- ingarinnar? Eltingarleikurinn við kommúnista, afturhaldssemi þeirra og sérvitringshátt, er ein af grundvallarforsendum stjórnarsamstarfsins. Utan- ríkisráðherra hefur brotist undan neitunarvaldi þeirra. Forsætisráðherra bregst hinn versti við, þegar um málið er rætt. Vingulsháttur formanns Framsóknarflokksins kemur fram í furðulegu óraunsæi. Kommúnistar nýta aðstöðu sína til hins ýtrasta en koðna fljótt niður, þegar þeim er sýnt í tvo heimana að frum- kvæði stjórnarandstöðunnar. Eðlileg viðkvæmni Birgir Isl. Gunnarsson: Orkumálin á Alþingi Orkumálin á Alþingi I þeim miklu umræðum, sem orðið hafa um orku- og iðnaðarmál á Alþingi í vikunni sem leið, kom mjög glöggt fram, hver er munur- inn á stefnu rikisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar. Samstarf tókst með Sjálfstæðisflokknum og Alþýðuflokknum um breytingatil- lögur á hinu máttlausa frumvarpi iðnaðarráðherra um ný orkuver. Þær breytingartillögur boðuðu nýja sókn í byggingu orkuvera og jafnframt að byggð skyldu ný iðjuver á sviði orkufreks iðnaðar. A sama tíma og þetta gerðist var stjórnarliðið að reyna að koma sér saman um tillögur, sem útvötnuðu enn meira hið stefnulausa frum- varp iðnaðarráðherra. Óánægja með frumvarp ráðherra Það var þegar ljóst í síðustu viku, eftir að iðnaðarráðherra lagði frumvarp sitt fram, að mik- illar óánægju gætti með frumvarp- ið, bæði hjá .stjórnarandstæðing- um og stjórnarsinnum á þingi. Gagnrýnisefni voru í meginatrið- um tvö: I fyrsta lagi var engin ákveðin stefna um byggingu nýrra orku- vera í frumvarpinu. Þar voru taldar upp þær virkjanir, sem til greina hefur komið að byggja. í frv. fólst engin stefna um það í hvaða röð skyldi byggt né hvaða skilyrði skyldi uppfylla fyrir bygg- ingu hverrar virkjunar. Þetta kom mjög á óvart, þegar hafðar eru í huga digrar yfirlýsingar ráðherra um að fyrir þinglok yrði lagt fram frv. um ákveðna stefnu í virkjun- armálum. í öðru lagi var frumvarpið botn- laust.að því leyti, að í því fólst engin stefna um nýtingu orkunnar og allt tal ráðherra hefur miðað að því, að rétt sé að fara sér hægt í uppbyggingu orkufrekra iðjuvera og að bygging þeirra sé ekkert skilyrði fyrir stórvirkjunum, eins og t.d. á Austurlandi. Er þá vandséð til hvers eigi að nota alla þá orku, sem þessar væntanlegu stórvirkjanir gefa. TillöKur sjálístæðis- manna og Alþýðuflokks í byrjun vikunnar settust því nokkrir þingmenn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks niður til að móta sameiginlegar breytingatillögur við frumvarpið. Þær tillögur voru tilbúnar á þriðjudagskvöld. Aðal- atriði þeirra eru eftirfarandi: Mörkuð er ákveðin stefna í bygg- ingu þriggja stórra virkjana og kveðið á um, hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að þessar virkjanir fari af stað. Þannig er því slegið föstu, að Fljótsdalsvirkjun skuli byggð, þegar samið hafi verið um stóriðju á Austurlandi. Gert er ráð fyrir því, að Landsvirkjun reisi og reki þessar stórvirkjanir að fengnu samþykki eignaraðila fyrirtækis- ins og að frekari ákvörðun þurfi ekki að koma til kasta Alþingis aftur öðru vísi en í formi lánsfjár- heimilda. Þá er í breytingatillögum okkar mjög tekið af skarið um nýtingu orkunnar. Sett skuli á stofn sér- stök orkusölunefnd, kosin af Al- þingi, sem hafi það verkefni að vinna að samningagerð um sölu á raforku og um byggingu og rekstur á orkufrekum iðjufyrirtækjum. Skal nefndin vinna að þvi að leita hagkvæmra sölusamninga á raf- orku til iðnaðar og miða störf sín við það, að sala raforku til orku- freks iðnaðar fjórfaldist til ársins 1999. Sérstaklega skuli nefndin hraða samningsgerð um byggingu þriggja nýrra iðjuvera, eins á Norðurlandi, eins á Austurlandi og eins á Suðvesturlandi eða Suður- landi, auk stækkana á þeim iðju- verum, sem fyrir eru. BreytinKartillöKur stjórnarliðsins Þegar sjálfstæðismenn og al- þýðuflokksmenn höfðu lagt fram sinar breytingartillögur, leit svo út um tíma, að frumvarp ríkisstjórn- arinnar næði ekki fram að ganga. í tvo sólarhringa var enginn fundur boðaður um málið í iðnaðarnefnd Neðri deildar, en iðnaðarráðherra og fleiri stjórnarliðar voru á hlaupum um allt þinghús og báru saman ráð sín í öllum skotum. Tilgangurinn var greinilega sá að breyta frumvarpinu á þá leið, að Eggert Haukdal myndi ekki greiða atkvæði gegn frumvarpinu, en hann var einn af flutningsmönnum þeirra breytingatillagna, sem stjórnarandstaðan flutti. A fimmtudagseftirmiðdag sáu breytingatillögur stjórnarinnar dagsins ljós. Um þær verður varla annað sagt, en að lengi getur vont versnað. Með þessum breytingatil- lögum varð frumvarpið enn mátt- lausara og raunar ekki hægt að sjá neinn tilgang með samþykkt þess. Hvað fólst í breytingatillögum ríkissjórnarinnar? I fyrstu grein eru taldar upp virkjanir og aðgerð- ir, sem Landsvirkjun eru heimilað- ar á Þjórsársvæðinu. Síðan er ríkisstjórninni heimilað að semja við Landsvirkjun um að reisa og reka Blönduvirkjun, Fljótsdals- virkjun og Villinganesvirkjun. í næstu grein er þetta síðan allt tekið til baka, en þar segir, að tillögur um framkvæmdir við nýj- ar vatnsaflsvirkjanir og virkjunar- áfanga, þar á meðal um fram- kvæmdaröð skuli lagðar fyrir Al- þingi til samþykktar. M.ö.o. málið er jafn óleyst sem fyrr og engin stefna mótuð um næstu fram- kvæmdir. Það á allt að bíða og enginn frestur settur um það, hvenær ákvörðun eigi að taka. Enn ein bókin Þá er bætt inn í frumvarpið tveimur nýjum ákvæðum. Hið fyrra er um það, að áður en tillögur um framkvæmdir verði lagðar fyrir Alþingi, þá skuli liggja fyrir frá nokkrum stofnunum greinargerð um þjóðhagslega hag- kvæmni virkjunarleiða og þýðingu þeirra fyrir raforkukerfi landsins. Hitt ákvæðið er um það, að jafnframt skuli ríkisstjórnin leggja fram „greinargerð um þá möguleika sem fyrir liggja um nýtingu orkunnar til orkufreks iðnaðar". Takið eftir orðalaginu. Það á ekki að leggja fram stefnu eða tillögur um orkufrekan iðnað. Nei, það á að leggja fram „greinar- gerð um möguleika", þ.e.a.s? enn eina skýrslu í bókarformi. Þessar breytingatillögur gera frumvarpið ennþá óaðgengilegra. AtkvæðaRrciðsla Úrslitaatkvæðagreiðslan í Neðri deild fór fram skömmu eftir há- degi á föstudag. Aðalbreytingatil- laga Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks var felld með 19 atkv. gegn 17. Albert Guðmundsson greiddi atkvæði gegn þeirri tillögu, en Eggert Haukdal var með. Breyt- ingatillaga stjórnarliðsins var samþykkt með 19 atkv. gegn 17. Albert Guðmundsson greiddi at- kvæði gegn þeirri tillögu, en Egg- ert Haukdal með. Þar með var málið ráðið í deildinni og fram- gangur frumvarps iðnaðarráð- herra tryggður. Meö því lögfestir Alþingi, að áfram skuli ríkja sú stefna aðgerð- arleysis og afturhalds, sem ráðið hefur í orku- og iðnaðarmálum undanfarin ár. Samþykkt hefur verið frumvarp, sem feiur í sér lítið annað en að allt málið skuli koma til Alþingis að nýju ein- hverntíma síðar og að engar nýjar framkvæmdir í nýjum virkjunum megi hefjast fyrr en að því loknu. Með þessu frumvarpi hefur einnig verið hafnað nýjum stórátökum í uppbyggingu orkufreks iðnaðar. Ekki hefur ríkisstjórnin haft sóma af þessu máli né þeir þingmenn, sem veitt hafa þessu frumvarpi brautargengi. Rey kj aví kurbréf ►^Laugardagur 23. maí Ríkisstjórnin býr nú við minnkandi fylgi, vilji menn taka mark á skoðanakönnunum. Fylgi forsætisráðherrans meðal sjálfstæðismanna minnkar einnig. Meirihluti stjórnarinnar í þinginu er óviss. Félagasamtök sjálfstæðismanna álykta gegn ríkisstjórninni. Þetta er staðan í þinglok. * Ovissa um meirihluta ríkisstjórnar Á því þingi, sem lýkur nk. mánudag, hefur óvissa um það, hvort ríkisstjórnin hafi öruggan slarfhæfan meirihluta á Alþingi, magnast mjög. Frá áramótum hefur þessi óvissa verið til staðar við afgreiðslu þriggja meiriháttar mála, sem ríkisstjórnin hefur lagt fyrir Alþingi, en í desember lék vafi á, að ríkisstjórnin hefði meirihluta til þess að koma fram sérstöku vörugjaldi á sælgæti og gosdrykki. Á margan hátt hefur staðan í þinginu fyrir núverandi ríkisstjórn verið áþekk þeirri, sem vinstri stjórn Ólafs Jóhannesson- ar, hin fyrri, þurfti að glíma við, þegar stuðningur Bjarna Guðna- sonar við þá stjórn var ekki Iengur vís. Nú er augljóst, að ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens, getur ekki verið örugg um stuðning Eggerts Haukdals, sem hefur átt samleið með stjórnarandstöðu Sjálfstæð- isflokksins í fleiri og fleiri málum, og vilji Alberts Guðmundssonar til þess að verja stjórnina falli er a.m.k. óljós. Þótt allir aðilar núverandi ríkis- stjórnar hafi átt hlut að máli á þessum vetri við að skapa óvissu um, hvort starfhæfur meirihluti væri til í þinginu, er sýnt, að mestar efasemdir eru komnar upp í hópi þeirra sjálfstæðismanna, sem fylgdu Gunnari Thoroddsen að málum við stjórnarmyndunina. Það voru auk ráðherranna þriggja, Eggert Haukdal, sem í upphafi lýsti afdráttarlausum stuðningi við ríkisstjórnina, og Albert Guðmundsson, sem í upp- hafi gaf yfirlýsingu um, að hann mundi verja hana falli. Eftir að ríkisstjórnin var mynduð og ráð- herrarnir hófu störf, hefur litið sem ekkert samráð verið haft við Eggert Haukdal um veigamikil mál. Óánægja hans með störf ríkisstjórnarinnar hefur magnast og braust fram í desember við afgreiðslu vörugjalds á sælgæti og gosdrykki. Hún var einnig kunn, þegar Þórshafnartogarinn var á dagskrá, en upp úr sauð, þegar ríkisstjórnin lagði fram frumvarp sitt um orkumál. Þá lýsti Eggert Haukdal yfir því, að ekkert sam- ráð hefði verið haft við hann um gerð þess frumvarps og má það furðulegt teljast, þar sem hann er þingmaður fyrir Suðurlandskjör- dæmi, sem hefur mikilla hags- muna að gæta i sambandi við Sultartangavirkjun og aðrar virkjunarframkvæmdir á Þjórs- ársvæðinu. Svo virðist, sem þeir ráðherrar í ríkisstjórninni, sem sitja á þingi fyrir Norðurlands- kjördæmi vestra og Austurlands- kjördæmi hafi fyrst og fremst hugsað um hagsmuni sinna kjör- dæma, en lítt hirt um sjónarmið Eggerts Haukdals varðandi Sult- artangavirkjun og ekki óeðlilegt, að hann kunni litt að meta þau vinnubrögð. Forsvarsmenn Framsóknar- flokks og Alþýðubandalags eru áreiðanlega farnir að velta því fyrir sér, hvort hægt sé að byggja á þessum óstöðuga þingmeirihluta til frambúðar. Þeir gera sér vafa- laust ljóst, að ekki er hægt að treysta fyllilega á þá liðsmenn, sem í upphafi lögðu af stað í þessa vegferð með Gunnari Thoroddsen. Að vísu hafa þeir sjálfsagt í huga þá yfirlýsingu Álberts Guð- mundssonar í febrúar 1980, að hann mundi verja ríkisstjórnina falli. Þeir minnast þess sjálfsagt einnig, að þegar óvíst var, hvort Guðrún Helgadóttir mundi greiða atkvæði með staðfestingu bráða- birgðalaganna, kom Albert Guð- mundsson til skjalanna og kvaðst ekki fella þessa ríkisstjórn nema önnur lægi á borðinu. Þeir hafa það vafalaust líka í huga, að þegar útlit var fyrir, að heimildarákvæði um lánsfé til flugstöðvarinnar yrði samþykkt, kom Albert Guð- mundsson til skjalanna og taldi þá tillögu ekki ganga nógu langt. Og þeim er áreiðanlega í fersku minni frá síðustu dögum, að þegar Egg- ert Haukdal hafði lýst eindreginni samstöðu með stjórnarandstæð- ingum í orkumálum, gaf Albert Guðmundsson til kynna, að ekki væri ljóst, hvernig atkvæði hans mundi falla. En jafnvel þótt ráðherrar og forystumenn Alþýðubandalags og Framsóknar kunni enn að sjá í Albert Guðmundssyni einhvers konar verndarengil, sem komi til hjálpar, þegar á þarf að halda, er heldur ekki ólíklegt, að þeim þyki það ekki fýsilegur kostur að eiga Iíf stjórnarinnar undir atkvæði hans. Með öll þessi viðhorf í huga má telja víst, að framsóknar- og alþýðubandalagsmenn íhugi, hvort Gunnar Thoroddsen sé sá trausti bandamaður, sem þeir hafa gengið út frá að hann væri, þegar slík óvissa hefur skapast um það, hvort hann getur staðið við sinn hluta af þeim samningi, sem gerður var í febrúar 1980. Minnkandi fylgi Til viðbótar við nagandi óvissu um það, hvort ríkisstjórnin hafi starfhæfan meirihluta á Alþingi, sjá forráðamenn Framsóknar- flokksins og Alþýðubandalagsins auðvitað, að ríkisstjórnin býr við minnkandi vinsældir og forsætis- ráðherrann einnig. Nú hafa menn að vísu mismunandi mat á skoð- anakönnunum og sýnist sitt hverj- um í þeim efnum. En þeir, sem á annað borð telja, að þær séu marktækar, hljóta að veita eftir- tekt þremur atriðum í síðustu skoðanakönnun Dagblaðsins. Samkvæmt henni er það í fyrsta lagi staðreynd, að fylgi stjórnar- innar minnkar. í öðru lagi er ljóst, skv. henni, að fylgi Sjálfstæðis- flokksins vex jafnt og þétt. Þá segja sumir. Fylgi Sjálfstæðis- flokksins vex vegna vinsælda for- sætisráðherra. Þeir, sem þessu halda fram, verða að svara því, hvernig á því geti staðið, að „vinsældir" forsætisráðherra duga ekki til þess að stöðva fylgistap þeirrar ríkisstjórnar, sem hann veitir forstöðu, en auka hins vegar fylgi þess flokks, sem er í and- stöðu við þessa sömu ríkisstjórn! Það sér auðvitað hver heilvita maður, að þessi skýring stenzt ekki. Meðan ríkisstjórn undir for- sæti Gunnars Thoroddsens býr við minnkandi fylgi almennings, hlýt- ur fylgisaukning Sjálfstæðis- flokksrns að byggjast m.a. á and- stöðu hans við þá ríkisstjórn. Þá segja sumir: Þessar skoðana- kannanir benda einnig til þess, að Gunnar Thoroddsen njóti mun meira fylgis meðal sjálfstæð- ismanna en Geir Hallgrímsson. Nú segir Dagblaðið, að fylgi Gunnars meðal sjálfstæðismanna sé 2 á móti 1 hjá Geir. Ef menn vilja taka mark á þessum tölum, er augljóst, að það dregur saman með þeim en ekki sundur, af þeirri einföldu ástæðu, að áður hefur sama blað sagt, að fylgi Gunnars sé 3 á móti 1 hjá Geir. Samkvæmt þessu fer fylgi Gunnars minnk- andi í hlutfalli við fylgi Geirs og er það í samræmi við minnkandi fylgi ríkisstjórnarinnar og vax- andi fylgi Sjálfstæðisflokksins í stjórnarandstöðu. Og þeir, sem vilja taka mark á skoðanakönnun- um sem þessum, hljóta líka að staðnæmast við þá tölu, að Albert Guðmundsson njóti fylgis innan við 6% sjálfstæðismanna og er þá ljóst, að ekki blandar hann sér í forystumál Sjálfstæðisflokksins, eins og raunar hann sjálfur hefur margsagt. Samþykkt- ir sjálf- stæðismanna Hér hefur verið sýnt fram á, að staða ríkisstjórnarinnar í þinginu er tæp, fyrst og fremst vegna þess að ríkisstjórnin getur ekki treyst á stuðning þeirra tveggja þing- manna, sem lögðu upp í síðustu pólitísku vegferð Gunnars Thor- oddsens. Hér hefur einnig verið sýnt fram á, fyrir þá, sem taka mark á skoðanakönnunum Dag- blaðsins, að þær sýna minnkandi fylgi ríkisstjórnarinnar og minnk- andi fylgi Gunnars Thoroddsens meðal sjálfstæðismanna. Til við- bótar þessum vísbendingum koma samþykktir félagasamtaka innan Sjálfstæðisflokksins, sem sýna hvert stefnir fyrir ríkisstjórnina og þá sjálfstæðismenn, sem hana hafa stutt innan Sjálfstæðis- flokksins. . Geysifjölmennur aðalfundur Heimdallar, samtaka ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, fyrir skömmu, vakti mikla athygli. Sá fundur sýndi, að Sjálfstæðisflokk- urinn er í mikilli sókn meðal æskunnar og er það staðfesting á þeim fregnum, sem borizt hafa um undanhald vinstri manna og framsókn sjálfstæðismanna meðal ungs fólks. Á þessum fundi var kosið milli tveggja ungra manna í formannssæti í þessu merka félagi og var athyglisvert, að í málflutn- ingi þeirra kom fram, að báðir hljóta að teljast stjórnarandstæð- ingar. Þessi fundur, sem að líkind- unrer fjölmennasti aðalfundur í sögu Heimdallar, samþykkti sér- staka stjórnmálaályktun, þar sem sagði m.a.: „Aðalfundur Heimdall- ar, haldinn 10. maí 1981, telur, að aldrei hafi verið eins brýnt og nú að sjálfstæðismenn standi saman um þær hugsjónir, er bundið hafa þá saman í einum flokki í meira en hálfa öld. Aldrei áður hefur heill og framtíð íslenzku þjóðarinnar verið eins undir því komin, að hugsjónir sjálfstæðisstefnunnar verði leiddar til öndvegis hér á landi. Um leið er ljóst, að svo mun ekki verða, nema þeir sjálfstæð- ismenn, sem nú sitja í ríkisstjórn í óþökk meirihluta sjálfstæð- ismanna, segi sig úr ríkisstjórn- inni.“ Um sömu helgi og þessi fjöl- menni aðalfundur var haldinn í Heimdalli, stóð þing Landssam- bands sjálfstæðiskvenna. Þar var einnig samþykkt stjórnmálaálykt- un og í henni sagði m.a.: „Lands- þing sjálfstæðiskvenna varar við þeirri hættu, sem frjálsu atvinnu- lífi er búin af stefnu núverandi ríkisstjórnar ... Landsþing sjálf- stæðiskvenna átelur harðlega að- gerðarleysi stjórnvalda í uppbygg- ingu atvinnulífsins .. . Það verður að hefja djarfhuga sókn í nýtingu orkunnar og koma á fót stóriðju, sem skapar skilyrði fyrir almenn- an iðnað og aukna tækniþekkingu. Það verður ekki gert með þeirri afturhaldsstefnu, sem nú ríkir ... Landsþing sjálfstæðiskvenna átel- ur harðlega þá lýðræðissinna, sem leiða kommúnista til slíkra áhrifa í málefnum þjóðarinnar, ekki sízt öryggis- og varnarmálum lands- ins, sem raun ber vitni, og er í engu samræmi við kjörfylgi þeirra." Við setningu Landsþings sjálf- stæðiskvenna, flutti Margrét S. Einarsdóttir, formaður samtak- anna, ræðu, sem vakti verulega athygli, þar sem hún fjallaði m.a. um stjórnarmyndunina og störf núverandi ríkisstjórnar og sagði: „Það segir sig sjálft, að aðstaða þeirra manna, sem ekki hafa heilsteyptan stjórnmálaflokk eða þingstyrk að baki sér, hlýtur að vera veik innan ríkisstjórnarinn- ar, enda er æ betur að koma í ljós, hverjir ráða ferðinni á skútunni. Það er undarlegt, ef þeir, sem kalla vilja sig lýðræðissinna, sjá ekki þá hættu, sem er því samfara að leiða kommúnista til slíkra valda og áhrifa, sem nú ber vitni í þjóðfélaginu." Til enn frekari glöggvunar á ríkjandi viðhorfum innan Sjálf- stæðisflokksins til núverandi rík- isstjórnar, má nefna nýja ályktun Sambands ungra sjálfstæð- ismanna, þar sem segir m.a.: „Sú ríkisstjórn, sem nú situr, mótar enga heildarstefnu í atvinnu- og efnahagsmálum. Síðasta kák- frumvarp orkumálaráðherra ber þess glöggt vitni, svo og síðasta útspil ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálum, sem sýnir berlega, að ríkisstjórnin hefur enga fastmót- aða efnahagsstefnu, en miðar við það eitt að stjórna frá degi til dags.“ Þessi ályktun Sambands ungra sjálfstæðismanna er at- hyglisverð og í þessu sambandi ekki úr vegi að minna á, að varaformaður SUS er aðstoðar- maður Gunnars Thoroddsens. Allir þeir, sem fylgjast með málum innan Sjálfstæðisflokks- ins, vita, að þær samþykktir, sem hér hefur verið vitnað til, lýsa vel þeim sjónarmiðum,. sem ríkjandi eru innan Sjálfstæðisflokksins til ríkisstjórnarinnar. Þau eru ótví- ræð og afdráttarlaus. Innan Sjálf- stæðisflokksins er sterk og vax- andi andstaða við núverandi ríkis- stjórn og frumhlaup Gunnars Thoroddsens og félaga hans. Gunnar er að einangrast Þær ályktanir, sem hér hefur verið vitnað til hjá félagasamtök- um sjálfstæðismanna, óvissan i þinginu og minnkandi fylgi í skoðanakönnunum, sýna, að Gunnar Thoroddsen er óðum að einangrast innan Sjálfstæðis- flokksins. Þeir verða færri og færri á vettvangi flokksins, sem eru tilbúnir til þess að halda uppi vörnum fyrir ríkisstjórnina, störf hennar og stefnu, raunar ekki aðrir en ráðherrarnir sjálfir. Fyrir u.þ.b. ári var mikið veður gert út af því, að Gunnar Thor- oddsen ætti vaxandi fylgi að fagna innan Sjálfstæðisflokksins og m.a. var á það bent, að fylgismenn hans hefðu tekið við stjórn Sjálf- stæðisfélagsins á Sauðárkróki. Það hefur hins vegar ekki farið eins hátt, að eftir síðasta aðalfund þessa sama félags, eru stjórnar- andstæðingar i ótvíræðum meiri- hluta í stjórn þess. Vaxandi andstaða við ríkis- stjórnina innan flokksins og með- al almennings, og þverrandi fylgi Gunnars Thoroddsens sjálfs, hlýt- ur að verða umhugsunarefni þeim þingmönnum Sjálfstæðisflokks- ins, sem ljáð hafa núverandi ríkisstjórn stuðning með einum eða öðrum hætti. Hafi stuðningur við stjórnarmyndunina að„ mati þessara þingmanna verið í sam- ræmi við sjónarmið flokksmanna í þeirra kjördæmum, þegar stjórnin var mynduð, er óhætt að fullyrða, að á því hefur orðið veruleg breyting, svo að ekki sé meira sagt, í sumum kjördæmum a.m.k. Það hlýtur líka að verða þessum þingmönnum nokkurt íhugunar- efni, að stöðugur tvískinnungur í afstöðu til ríkisstjórnarinnar og málefna hennar, er ekki til þess fallinn að efla trú og traust kjósenda til þeirra. Stuðn- ingsmenn ríkisstjórnarinnar í þingliði sjálfstæðismanna standa því á nokkrum tímamótum við lok þessa þings og vonandi, að þeir hugsi sitt mál vel og rækilega yfir sumarmánuðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.