Morgunblaðið - 22.09.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981
3
„Fálki hvarf í djúpið um leið
og við komumst í gúmmíbátinn“
_VIÐ vorum komnir í Kctjnum
Róstina þcKar aldan skall á
hátnum ok svo mikii var hún að
báturinn fór svo til allur á kaf.
Ilann iaKÖist á stjórnhoróshlið
ok rétti sík ekki af fyrr en við
keyrðum hann upp. ÝmisleKt
lausieKt brotnaði á dekkinu við
sjóinn ok hálft trollið fór út. en
eftir aó háturinn var oróinn
réttur. náúum við því inn. en það
versta var. að allir rafmótorar
i>K somuleiðis rafallinn sIóku út.
þannÍK að þeKar við snerum við
<>K héldum suður á nýjan lcik til
að komast í skjól. vorum við með
óllu Ijóslausir ok ekkert ta-ki
nema talst<)ðin. sem tengd er við
raÍKeyma. i sambandi.“ saKði
Níels Ársaelsson 22 ára skip-
stjóri á Fálka frá Bildudal. sem
sókk órskammt suður af Látra-
hjarKÍ á lauKardaKskvóId. Fimm
manna áhófn var á Fálka <>k var
þeim hjarKað um borð í eina
síðutoKara landsmanna. InKÓlf
frá Garði. en skuttoKarinn Apríl
frá Hafnarfirði aðstoðaði mikið
við hjorKunina með því að lýsa
hafsvæðið krinKum Fálka ok
InKÓlf upp.
„Þegar eftir að við snerum við,“
sagði Níels, „kom í ljós, að leki
var kominn að bátnum og við
báðum Ingólf að fylgja okkur
uppundir bjargið. Við vorum með
þrjár dælur í gangi, en fljótlega
varð ástandið þannig að þær
höfðu vart undan. Veðrið var
afspyrnuvont, um 13 vindstig, og
særokið mikið. Þegar við áttum 2
mílur eftir í bjargið ákvað ég að
senda 3 menn yfir í Ingólf i
öryggisskyni og ennfremur
skipstíkina hana Dollý. Við sett-
um annan gúmmíbjörgunarbát-
— segir Níels
Ársælsson
skipstjóri
á Fálka BA
inn okkar á flot og létum hann
síðan reka frá okkur yfir að
Ingólfi, en við höfðum ávallt taug
í bátnum. Eg hafði hugsað mér að
freista þess að komast í betra
skjól á meðan vélin væri í gangi,
því þá var meiri von um að bjarga
bátnum.
Það var svo þegar við vorum
búnir að sigla hálftíma til viðbót-
ar og við áttum aðeins hálfa mílu
eftir í bjargið, að báturinn tók
skyndilega á sig mikinn halla.
Við vorum með hinn björgunar-
bátinn tilbúinn, hentum honum
útfyrir, þannig að hann sprengdi
sig upp, en okkur gafst ekki tími
til að kalla yfir í Ingólf og láta
vita af hvernig komið var. Þegar
gúmmíbáturinn blés sig út var
hallinn á Fálka svo mikill að
möstrin voru komin í sjó og
urðum ég og stýrimaðurinn, sem
var með mér að klifra upp eftir
síðu bátsins og aftur með og
stökkva síðan um borð í gúmmí-
bátinn. Þegar við komumst um
borð í björgunarbátinn var Fálka
að hvolfa og örskömmu síðar
hvarf hann í djúpið. Okkur rak
síðan á gúmmíbátnum að Ingólfi,
þar sem vel var tekið á móti
okkur," sagði Níels.
Þegar Fálki sökk var liðinn um
2'k tími frá því að báturinn fékk
sjóinn á sig.
Þrír skipverja aí Fálka við komuna til Reykjavikur í gær ásamt
skipshundinum Dollý. Talið frá v.: Níels Ársælsson. skipstjóri. 22 ára.
Olafur Ingimarsson. stýrimaður 22 ára og Óskar Aðaisteinsson.
vélstjóri 21 árs. Fyrir vestan urðu eftir hróðir Níelsar. Tryggvi
Ársælsson lf> ára og Baldvin Ragnarsson 28 ára. l,j<Vsm. MM..ÓI.K.M.
Fálki var keyptur til Tálkna- áður Lundi og þar áður Sigurbára
fjarðar um sl. áramót og þá frá II. Að sögn Níelsar var Fálki gott
Vestmannaeyjum. Hét báturinn sjóskip og vel búinn tækjum.
Níels, sem er 22 ára að aldri, er
sonur Ársæls Egilssonar skip-
stjóra og aðaleiganda að skuttog-
aranum Sölva Bjarnasyni. Níels
hóf sjósókn 12 ára gamall og
hefur stundað sjóinn síðan að
undanskyldum þeim vetrum sem
hann var í stýrimannaskólanum.
Fyrst var hann skipstjóri 17 ára
gamall, en síðustu tvö árin hefur
hann eingöngu verið skipstjóri.
Þegar Fálki sökk voru þeir með
sólarhrings afla um borð, 7 lestir.
Við spurðum Níels hvort hann
ætlaði sér að reyna að ná í annað
skip. „Já, við munum reyna að
finna annað skip, svo fljótt sem
auðið er. Það var fyrir skömmu
stofnuð fiskverkun heima sem
heitir Kópavík. Þar hafa unnið
15—20 manns undanfarið og vor-
um við á samningi hjá þessari
stöð um að leggja þar upp afla til
vertíðarloka í vor. Ef við getum
ekki fengið annað skip þá verður
lítið að gera hjá fyrirtækinu. Að
vísu landar þar annar bátur, en
mun minni og afkastaminni en
Fálki*
Þá sagðist Niels vilja þakka
Kjartani Ingimundarsyni skip-
stjóra á Ingólfi og áhöfn hans
fvrir mikla hjálp og góðar mót-
tökur, en þess má geta að sjálfur
er Kjartan Tálknfirðingur. Einn-
ig sagðist Níels vilja þakka Abso-
lon Olsen skipstjóra á Apríl fyrir
aðstoðina. „Það má segja að sú
aðstoð sem Apríl veitti hafi verið
hálf björgunin. Skipið er búið
geysisterkum ískösturum og
komu þeir að ómetanlegu gagni,
því hægt var að lýsa allt svæðið
upp,“ sagði Níels.
Nú getur þú fengið nýja
Sinclair Pínutölvu
fyrir aðeins
1795.- krónur!
Sinclair tölvan er á staerð við tvö súkkulaðistykki,
16,7 cm x 17,5 cm x 4 cm, og aðeins 350 gr. á þyngd.
Ótrúleg örtölvutækni gerir nú hverjum sem er kleift að
kaupa sér pínutölvu og nota hana bæði í gamni og alvöru.
Heimilisbókhaldið, bankareikningurinn, innkaupalistinn
og jafnvel símaskráin em leikur einn í pínutölvunni!
Sinclair Pínutölvan hefur vakið heimsathygli. Á síðast
liðnu ári seldust rösklega 50,000 pínutölvur í Bret-
landi, en í ár hefur framleiðsla og sala Sinclair margfaldast
enda er eftirspumin gífurlega mikil. Skólar, heimili,
námsfólk og félagasamtök notfæra sér möguleika
Sinciair Pfnutölvunnar til margvíslegra hluta. Ódýrara
tölvutæki er varla til!
Hvað gerir Pínutölvan?
Næstum þvf hvað sem er. Hún aðstoðar þig við:
Heimilisbókhaldið
Bankareikninginn
Fjárhagsáætlun heimilisins
Víxla og skuldabréfalistann
Afmælisdagabókina
Símaskrána
Jólakortalistann
Plötu, bóka og blaðasafnið
Birgðabókhald eldhússins
Stærðfræðinámið og skólann
Stigatöflu knattspymunnar
og aðstoð vegna getrauna o.fl. o.fl. o.fl. o.fl.
Beint í sjónvarp
Sinclair Pínutölvuna má nota hvar sem er. Mota má hvaða
sjónvarp sem er fyrir skerm. Þú stingur henni bara í
samband í loftnetstengilinn, og keyrir af stað!
heimilistæki hf
Sætúni 8.
Pínuminni
Ef þú villt auka getu Sinclair pínutölvunnar er hægt að
kaupa viðbótarminni, sem eykur afköstin.
Pínuprentari
Sinclair pfnutölvan er alvörutölva. Þú getur keypt við
hana prentara, sem prentar úrlausnir tölvunnar á strimil.
Pínuleikir
Þú notar Pínutölvuna til að kenna þér og fjölskyldunni
að notfæra sér tölvur - mikilvægt uppeldisatriði. En svo
er líka hægt að leika sér við pínutölvuna með sér-
stökum tölvuleikjum.
Leiðbeiningar
Með hverri tölvu fylgir 212 síðna leiðbeiningabók, sem
útskýrir möguleika Sinclair pínutölvunnar á einfaldan
hátt
Eaii ii__lair" zxö i
Pínutölva fyrír þá, sem aldrei hafa
kynnst töivum áður — og hina líka!