Morgunblaðið - 22.09.1981, Side 15
15
-------1. .-------;------------------------
MORGUNBLAÐÍI>r-ÞRÍÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981
bær voru léttar á íæti Linda Björnsdóttir og Rannveig \ ieid í Emstrur. beir urðu númer tvö og þrjú í
Andrésdóttir. þegar þær komu i hlað i Alftavatni. keppninni, Geir Sigurðsson og Unnar Garðarsson og
svo Vigfús Páisson og Kjartan Ingason.
Benedikt Kristjánsson og bór Ægisson við komuna i bórsmörk.
Tryggvi Páil Friðriksson, formað-
ur LHS.
Sá elzti og sá yngsti. Freyr Bjartmarz og sonur hans
Ragnar koma á leiðarenda i siðari áfanga á Fimm-
vörðuhálsi.
Við komu i Emstruskála, Andrés og Magnús framar og
Hclgi og Arnór fyrir aftan. beir eru greinilega i góðu
formi kapparnir þrátt fyrir að þeir voru búnir að vera
á ferðinni ailan daginn.
Andrés Þ. Bridde og Magnús Bárðarson
sigruðu í karlaflokki og Anna Lára Friðriks-
dóttir og Vilborg Hannesdóttir í kvenna-
flokki
hraða, sem var á keppendum fyrstu
þætti keppninnar.
Ur Álftavatni var svo haldið í
Hattfellsgil, en þar var ómönnuð
stöð, sem keppendur þurftu að koma
í, en þaðan var svo haldið í Emstru-
skála Ferðafélags íslands, sem var
síðasti viðkomustaður keppenda á
fyrra degi, áður en komið var í
Þórsmörk.
Fyrstu keppendur komu svo í
Þórsmörk um hálfsexleytið á laugar-
dagskvöld, og höfðu því verið á
ferðinni í liðlega ellefu klukkustund-
ir. Það voru þeir Andrés og Magnús
annars vegar og Arnór og Helgi hins
vegar. Töluverður tími leið síðan þar
til næstu keppendur birtust og þeir
síðustu birtust nokkrum klukku-
stundum síðar, þegar almyrkt var
orðið. Þegar upp var staðið höfðu
alls níu lið lokið þátttöku, eða
helmingur þeirra sem byrjuðu.
Óneitanlega var nokkuð dregið af
sumum keppenda, enda ekki að
undra eftir að hafa „hlaupið" liðlega
60 km á hálfum sólarhring. Menn
fengu heitt kakó og stungu sér síðan
i svefnpoka í tjaldið, en samkvæmt
keppnisreglum var ekki ætlast til
þess, að keppendur svæfu í skála.
Eftir fyrri dag keppninnar var
þegar ljóst, að mjög vel hafði verið
staðið að öllum undirbúningi fyrir
keppnina, og er óhætt að hrósa
framkvæmdaaðilum keppninnar
fyrir þeirra þátt, eigi síður en
keppendum. Það var Eggert Lárus-
son, félagi í Hjálpai^veit skáta í
Reykjavík, sem stjórnaði keppninni
af röggsemi.
I upphafi hafði verið gert ráð fyrir
að keppendur færu seinni daginn frá
Þórsmörk yfir Fimmvörðuháls niður
að Skógum, en þeirri áætlun var
breytt og ákveðið, að keppninni
sk.vldi Ijúka við skála Flugbjörgun-
arsveitar Eyfellinga á Fimmvörðu-
hálsi.
Keppendur voru síðan ræstir við
Bása sunnanvert í Þórsmörkinni
klukkan liðlega tíu á sunnudags-
morgun og voru það átta lið, sem
hófu keppni, eitt liðið frá deginum
áður hafði hætt keppni vegna
krankleika annars keppandans.
Keppendur tóku þegar til fótanna
og var greinilegt, að þeir ætluðu að
selja sig dýrt. Það var hreint með
ólíkindum hversu hratt hinir fyrstu
komust yfir. Enda kom á daginn að
sigurvegararnir, þeir Andrés og
Magnús, komu upp á Fimmvörðu-
háls aðeins tæpum tveimur tímum
síðar. Næstu keppendur komu tíu
mínútum síðar og svo hver af öðrum.
Þeir síðustu voru tæplega þrjá og
hálfan klukkutíma á leiðinni.
Frá Fimmvörðuhálsi var síðan
ekið að Skógum, þar sem Tryggvi
Páll Friðriksson, formaður Lands-
sambands hjálparsveita skáta, af-
henti keppendum verðlaun sín, auk
þess sem öllum þátttakendum var
afhentur minjagripur um þátttök-
una. Sveitir sigurvegaranna, sem í
þessu tilfelli var Hjálparsveit skáta í
Reykjavík, fékk svo bikara til eignar.
Sigurvegararnir fengu ennfremur að
launum úttekt í Skátabúðinni, 3000
krónur hvor, og þeir sem lentu í öðru
sæti fengu 1500 króna úttekt hvor.
Þetta er í fyrsta sinn, sem keppt
var í fjallamaraþoni á Islandi og er
óhætt að hrósa framkvæmdaaðilum
f.vrir þeirra framtak, en öll skipu-
lagning var til mikils sóma fyrir þá.
Það var mál allra, sem undirritaður
ræddi við, hvort heldur keppendur
eða starfsmenn, að keppnin hefði
tekizt mjög vel og bráðnauðsynlegt
væri, að halda slíka keppni árlega og
þá jafnvel fyrir almenning líka.
Sighvatur Hlondal.
Fjallamaraþon LHS og Skátabúðarinnar 1981 Niðurstöður
Karlaflokkur:
Keppendur: Andrés Þ. Bridde og Sveit Röð Heíldartími Tími fyrri ófang:
Magnús D. Bárðarson Vigfús Pálsson og HSSR 1 12,57 klst. 11,03 klst.
Kjartan Ingason Geir Sigurðsson og HSSR 2 14,33 klst. 12,20 klst.
Unnar Garðarsson Þór Ægisson og Albert 3 14,42 klst. 12,15 klst.
Benedikt Kristjánss. Einar Hauksson og FBS 4 15,14 klst. 13,11 klst.
Már Guðmundsson Freyr Bjartmarz og HSK 5 15,04 klst. 12,34 klst.
Ragnar Bjartmarz FBS 6 17,19 klst. 13,45 klst.
Lið númer 1, 2, 4 og 6 fengu 120 Kvennaflokkur: Anna L. Friðriksd. og refsistig, en 3 og 5 fengu 140 refsistig.
Vilborg Hannesdóttir Linda Björnsdóttir og HSSR 1 14,38 klst. 12,31 klst.
Rannveig Andrésd. HSSR 2 15,38 klst. 13,29 klst.
Bæði liðin tengu 120 refsistig.
Skýring: HSSR: Hjálparsveit skáta í Reykjavik.
HSK: Hjálparsveit skáta í Kópavogi
FBS. Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík.
Albert: Björgunarsveit Slysavarnafélags íslands á Seltjarnarnesi.
ítarskóli
ÓLAFS GAUKS
Innritun hafin í nýju húsnæöi aö
Stórholti 16, sími 27015 eöa 85752.
llnRÍr oft aldnir njóta þess að borða
köldu Roval búðinftana.
Braftðteftundir: —
Súkkulaði. karamellu, vanillu og
jarðarberja.
NYKOMÐ
aVÐHVIAI
MARGAR
GERÐIR
AF
LEDURSTCHJUM
sm 44544
I EFÞAÐERFRÉTT- 9) NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐENU