Morgunblaðið - 22.09.1981, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUOftGUR'22. SBIíTÆMBER 1981
Hægriflokkurinn i Svíþjóð:
Bohman hættir
formennskunni
Stokkhólmi. 21. M ptrmlx r. Al*.
GÖSTA Bohman. íormaftur IlaKri-
flokksins sa-nska. tilkynnti í da»{.
ad hann a tlaAi að sojíja af sór
formonnskunni á landsþinxi
flokksins í næsta mánurti. Kjcir-
nofnd flokksins hofur oinróma
madt moó því. að Ulí Adolsohn.
fyrrv. póst- ok símamálaráóhorra.
vorói næsti formaóur Ila'Kriflokks-
ins.
Gösta Bohman tók ákvörðun um
afsöfjnina þe»;ar hann þóttist viss
um, að ekki kæmi til óeininnar innan
flokksins um formannsstöðuna. Á
fundi með fréttamönnum sa»;ði Boh-
Gósta Bohman
man, að helstu ástæður hans fyrir
afsö»;ninni væru hár aldur, en hann
stendur nú á sjötugu, ok auk þess
vildi hann fá meiri tíma með fjöl-
skyldu sinni.
Gösta Bohman tók við formennsku
IlæKriflokksins árið 1970, þegar
kjörfylgi hans stóð í 11,5% og hafði
stöðuj;t verið að minnka í heilan
áratug. Undir forystu Bohmans hef-
ur flokknum hins vegar vaxið mjög
ásmegin og í kosningunum 1979 fékk
hann 20,3% atkvæða og er spáð 25%
ef gengið væri til kosninga nú.
Velgengni Hægriflokksins, sem er
stærstur borgaraflokkanna í Sví-
þjóð, er rakin til þess, að hann hefur
harist fyrir miklum skattalækkun-
um og auknu svigrúmi einstakl-
inganna í þjóðfélaginu, en margir
telja, að slíkar aðgerðir séu nauðsyn-
logar til að örva sænskt efnahagslíf.
ERLENT,
Skaðabætur
fyrir gíslana
WashinKton. 21. septcmber. AP.
SÉRSTÖK nefnd. skipuð af Banda-
ríkjaforsota. lagði til á mánudag
að handarísku gíslunum frv. yrðu
greiddir 12,50 dollarar í skaðahæt-
ur fyrir hvorn dag sem þeir voru í
haldi í Tehoran. Þingið og Ronald
Roagan forseti þurfa að samþykkja
tillöKuna. Ef það verður gert munu
Kislanir 52 hljóta 5.550 dollara
fyrir tímann sem þeir voru í haldi.
íranskir stúdentar hóldu þoim í
handaríska sendiráðinu í 111 daga.
Tillaga nefndarinnar mun kosta
ríkið 289.000 dollara. Hún lagði
einnig til að gíslarnir hljóti sömu
skattfríðindi og fangar úr Víet-
nam-stríðinu.
Brice Claggett, lögfræðingur gísl-
anna, lagði til í yfirheyrslum hjá
nefndinni að þeir fengju 1.000 doll-
ara fyrir hvern dag sem þeir voru í
haldi. Það myndi kosta ríkið 23
milljónir dollara. Hann sagði að það
væri lág upphæð ef tillit væri tekið
til hættunnar sem gíslarnir voru í
og meðferðarinnar á þeim.
„Brosandi hermenn úr fótgönguliði Bandaríkjamanna", sagði í
myndatexta sem fylgir þessari mynd frá AP-fréttastofunni. Hún var
tekin við heræfingar nærri Giessen í Vestur-Þýskalandi fyrir
skömmu.
Drakk sig
íhel
Rothorham. 18. septemher. AI'.
BREZKI vöruhílstjórinn Micha-
ol llill drakk sig i hol or hann
tók á móti viðurkonninKU fyrir
öruKKan akstur í boði, scm
borgarstjórinn. í Rothorham
hólt. Ilill lózt innan þriggja
stunda frá því hann tók fyrsta
sopann.
Að sögn lækna, kom í ljós við
krufningu, að Hill hefði drukkið
sem svaraði 11 lítrum af bjór í
boðinu, og að áfengismagnið í
blóðinu hefði verið sexfalt það
magn, sem leyfilegt er að drekka
án þess að missa ökuréttindi.
Niðurstaða krufningarinnar
var að Hill hefði dáið úr brenni-
vínseitrun, vínandamagnið hefði
stöðvað heilastarfsemina.
Ákaf ir bardagar
geisa í Kandahar
Ráðist á sovéska sendiráðið í Kabúl í f jórða sinn í mánuðinum
Quctta. I'akistan. 20. september. AI'.
ÁKAF'IR bardagar gcisa nú í
Kandahar. na'ststærstu borg
Afganistans. og hafa gert síðustu
12 dagana oða síðan stjórnvöld
tilkynntu. að allir fyrrvorandi
hormonn a'ttu að koma til her-
þjónustu. Þossar fréttir eru hafð-
ar eftir Afgönum. sem hafa kom-
ið til Pakistan síðustu dagana.
Hermt er, að mikið mannfall
hafi orðið meðal óbreyttra borg-
ara í loftárásum Sovétmanna og
allt að 500 byggingar verið eyði-
lagðar. Að sögn vitna laumuðust
um 300 skæruliðar inn á aðal-
markaðstorgið í Kandahar á sama
tíma og hundruð manna, sem
neyða átti í herinn, forðuðu sér úr
borginni.
„Við skutum ofan af þökum
húsanna allt um kring og felldum
35—40 stjórnarhermenn og vopn-
aða félaga kommúnistaflokksins
þegar þeir gengu eftir markaðs-
torginu," sagði Mohammed Qasim,
25 ára gamall skæruliði.
Svo virðist sem Rússar séu
hættir að beita brynvögnum í
baráttunni við skæruliða, enda
eru þeir síðarnefndu sagðir mjög
vel vopnum búnir gegn þeim.
Rússar beita þess í stað stórskota-
liði í auknum mæli, 122 mm
fallbyssum, sem skjóta má af úr
a.m.k. 20 km fjarlægð.
í fréttum frá Nýju-Delhi segir,
að afganskir frelsissveitarmenn
hafi unnið allnokkrar skemmdir á
sovéska sendiráðinu í Kabúl í
eldflaugaárás á það. Það mun vera
fjórða árásin á sendiráðið í þess-
um mánuði. Engar fregnir fara af
mannfalli. Einnig eru fréttir um,
að eyðilagðar hafi verið fjórar
miðstöðvar afganska kommún-
istaflokksins í Kabúl í síðustu
viku og mikið af vopnum tekið
herfangi.
Sendinefndir Sovétmanna og
afganskra stjórnvalda á allsherj-
arþingi SÞ, sem nú er í þann
veginn að hefjast, vinna nú að því
bak við tjöldin að sýna fram á
aukinn sveigjanleika hvað varðar
umræður um hugsanlegan brott-
flutning sovésks herliðs frá Afg-
anistan. Vestrænir stjórnmála-
skýrendur telja engar líkur á að
um slíkan brottflutning verði
samið og líta á þessar aðgerðir
sem lið í þeim ásetningi Rússa að
koma í veg fyrir aðra samþykkt
allsherjarþingsins gegn þeim.
Pólverji leitar
hælis í Svíþjóð
Nokkrir gislanna við komuna til Alsír eftir að þeir voru látnir lausir
21. janúar sl.
Stokkhólmi. 20. scptcmhcr. AI'.
TALSMAÐUR sa'nska utanríkis-
ráðuneytisins tilkynnti i dag.
sunnudag. að fyrsti sendiráðsritari
pólska sendiráðsins. Wit Wojtow-
icz. hefði bcðist hælis í Svíþj<)ð sem
pólitískur flóttamaður.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins vildi ekki tjá sig frekar um þetta
mál og ekki er vitað hvar Wojtowicz
er niðurkominn. Kona hans og barn
hafa einnig farið fram á hæli í
Svíþjóð.
Eftir pólskum heimildum er haft,
að Wojtowicz hafi verið þriðji efstur
í virðingarstiganum í sendiráðinu í
Stokkhólmi, þar sem hann hafi
Gullið streymir á
land úr Edinburgh
Eigandi bjorgunarféJagsins orðinn margfaldur milljónamæringur
London. 21. scptcmbcr. Al'.
BRESK stjórnvöld tilkynntu sl.
lauKardag. að tekist heíði að
bjarga 100 gullstonKum úr
breska skipinu EdinburKh. sem
Þjóðverjar sokktu á stríðsárun-
um. en það ligKur á 8flfl íeta dýpi
i koldum sjónum í Barentshafi.
Þessar hundrað gullstangir eru
metnar á Iflfl milljónir króna.
Þeir, sem vinna við að bjarga
gullinu, telja, að eftir tíu daga
verði þeir búnir að ná því, sem
eftir er af því, en það er metið á
240 millj. kr. Það voru þýskir
tundurspillar, sem sökktu beiti-
skipinu Edinburgh árið 1942 þeg-
ar það var að flytja rússneskt
gull til Bandarikjanna, en með
því ætluðu Rússar að greiða fyrir
vopnakaup sín vestra. Edinburgh
sökk norður af Noregi, 170 mílur
fyrir norðan sovésku hafnarborg-
ina Murmansk, ásamt líkum 30
manna af þeim 60, sem fórust í
árás tundurspillanna.
Samkvæmt upphafiegum vá-
tryggingarskilmálum munu Sov-
étmenn fá tvo þriðju af gullinu en
Bretar þriðjunginn. Bandaríkja-
menn fá ekkert því að trygg-
ingarfélögin bættu þeim skaöann
á sínum tíma. Sá einstaklingur,
sem mest hagnast á þessum
„gullgrefti" í Barentshafinu, er
Keith Jessop, 48 ára gamall
forstjóri og eigandi björgunarfé-
lagsins, sem unnið hefur verkið.
Hann er nú orðinn margfaldur
milljónamæringur og hermt er,
að hann hafi sagt þegar fyrsta
gullstöngin kom upp úr djúpinu:
„Þessi er passleg upp í túlann á
þeim, sem hafa kallað mig bölv-
aðan bjána."
starfað í tæpt ár. Hann var áður
starfsmaður pólska kommúnista-
flokksins í Podhale í Suður-Pól-
landi.
Sjö farast
í flugslysi
Indian Sprincs Novada. 21. sept. Al’.
BANDARÍSK herflutninKaflugvél,
með 68 manns innanborðs, brotlenti
skammt frá herflugvelli í Indian
Springs í Nevada snemma í dag.
Eldur kom upp ! vélinni eftir brot-
lendinKuna ok er hermt, að sjö menn
hafi farist en aðrir sloppið með
minniháttar meiðsli.
BjörKunarmenn þustu á vettvang
strax eftir slysið en þrátt fyrir
slökkvistarfið logaði mikill eldur í
vélinni í fjórar klukkustundir. Að
söKn embættismanna fórust sjö
menn en öðrum tókst að bjarga án
mikiila meiðsla. Þegar fluKslysið átti
sér stað fóru fram sameiginlegar
heræfinKar á veKum landhers ok
fluKhers í Nevada í Bandaríkjunum.
Hugmyndir um
friðarverðlaunin
Osló. 21. M'ptl'IllIht. A I*
IIAFT ER eftir ónafnKreindum
heimildum í Osló að Desmond Tutu,
svarti biskupinn í Suður-Afríku, sé
meðal 77 sem koma til Krcina sem
þÍKKÍendur friðarverðlauna Nóbels í
ár.
Aðrir sem hafa verið nefndir eru
m.a.: Robert Mugabe, forseti Zimb-
abwe, Helen Suzman, frá S-Afríku,
Iæch Walesa, leiðtoKÍ Samstöðu í
Póllandi, Alva Myrdal, sænski friðar-
sinninn, Robert McNamara, fv. yfir-
maður Alþjóðabankans ok sænski
sendiráðunauturinn Raoul Wallen-
berK.
Flugfreyja
kremst
til bana
l,«mdon. 21. scptcmbcr. Al*.
FLUGFREYJA hjá Wurld
Airways [higlélaginu fórst þeK-
ar opin lyíta um borð í DC-lfl
þotu fór af stað og hún varð á
milli KÓlfsins í lyftunni og
loftsins. að sögn starfsmanns
handarísku fluKumferðarstjórn-
arinnar. Talsmaður fluKfélags-
ins sagði AP-fróttastofunni að
hrjóstkassi Karen Williams,
sem var 24 ára. hefði kramist og
of lítið væri vitað um lildrog
slyssins til að fullyrða nokkuð.
Vólin var yfir Atlantshafi á leið
frá Baltimore til London þegar
slysið varð. Ekki var vitað
hvernÍK það vildi til.
Talsmaður fluKÍélagsins saKði
að aðrir í áhöfn vélarinnar yrðu
spurðir síðar um málavexti en
þeir hefðu orðið fyrir miklu
áfalli. Tvær lyftur eru í þotunni
milli farþegarýmis og geymslu-
pláss. Áhöfnin notar aðra lyft-
una til að flytja mat frá neðri
hæð vélarinnar en hin er notuð
fyrir farangur og verkfæri.
Slysið varð um klukkustund
áður en lent var á Gatwick-
flugvelli í London. Talsmaðurinn
sagði að sumir farþeganna, sem
voru 300 talsins, hefðu vitað að
eitthvað væri að en ekki gert sér
grein fyrir að flugfreyja hefði
látist. Lík Williams var tekið úr
vélinni í London en áhöfnin hélt
fluginu áfram til Frankfurt
þangað sem ferðinni var heitið.