Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981
21
Sex voru með
12 rétta
14.320 kr. fyrir 12 rétta
f 4. LEIKVIKU Getrauna komu fram 6 raðir með 12 rétta leiki og
var vinninKshlutinn kr. 14.320,00, en 114 raðir voru með 11 rétta
ok vinninKshlutinn þar kr. 323,00. >Tólfararnir“ voru víðsveKar að
af landinu. Akureyri. SandKcrði, Ilafnarfirði, KópavoKÍ <»K
Reykjavík.
Hatínaður Norskra
ííotrauna 1980 nam
414 milljónum
Reikningar Norsku getraun-
anna fyrir árið 1980 eru komnir
út. Heildarvelta fyrirtækisins
nam eftir 52 leikvikur alls kr.
1.121,5 millj. kr. og nettóhagnað-
ur varð kr. 414 millj., sem
skiptist til helminga á milli
íþróttamála og lista og vísinda-
starfs. Stærsta leikvikan var um
jólin, 32 millj. en sú lægsta um
verzlunarmannahelgina, 13
millj. kr. Um langt árabil hefur
hámarksvinningur á röð verið V*
millj. en hefur á þessu ári verið
hækkaður í xk millj. kr. Á
síðasta ári var vinningur fyrir 12
rétta takmarkaður með þessu
móti í aðeins 3 leikvikum af 52.
Norðmenn, sem nú eru um 4,1
millj. talsins, sendu inn á síðasta
ári alls 125 millj. getraunaseðla,
sem hver kostaði að meðaltali
tæpar 9 kr.
Norsku getraunirnar eru nú að
koma sér upp mjög fullkomnum
tölvuútbúnaði við uppgjör og
vinningaleit, og munu á næsta
ári senda íslenzkum getraunum
nokkrar vélar, sem verið er að
leggja af.
Þróttur: 0f|,01
KunzevoCA3»U* I
SOVÉSKA handknattleiksliðið
Kunzevo. sem statt er hér á
landi í boði handknattleiks-
deildar Vals. sigraði Þrótt í
fyrsta leik sínum hér á landi í
gærkvöldi. Kunzevo sigraði
með 21 marki gegn 20 ok var sá
sÍKur sanngjarn. En bæði liðin
fóru hroðaleKa með fjölda
goðra tækifæra. Staðan í hálf-
leik var 13—10 fyrir Kunzevo.
Sovétmennirnir höfðu forystu
allan leikinn og í fyrri hálfleikn-
um var sú forysta jafnan nokkuð
örugg. Virkaði liðið talsvert
• Sigurður Sveinsson skoraði
11 mörk.
11 mörk Sigurðar er
Kunzevo vann naumlega
sterkara en lið Þróttar, til dæm-
is átti liðið fjölda stangarskota
(nokkuð sem Þróttarar tóku síð-
an að sér í síðari hálfleik). Síðari
hálfleikurinn var síðan sveiflu-
kenndur, Þróttararnir söxuðu á
forskot Kunzevo framan af hálf-
leiknum, misstu þá síðan frá sér,
en hófu síðan aftur að saxa á
undir lokin með þeim afleiðing-
um að einu marki munaði þegar
upp var staöið, 21—20.
Þetta var nokkuð þokkalegur
leikur á köflum og sovéska liðið
bara nokkuð sterkt að sjá. Þrótt-
arar geta betur en þeir sýndu í
gærkvöldi og var helst til of lítil
breidd í markaskoruninni. En
besti maður liðsins var Ólafur
Benediktsson, sem lék sinn
fyrsta leik í marki liðsins. Varði
hann eins og berserkur, m.a. 3
vítaköst. Belov hinn frægi var
afar lélegur.
Mörk Þróttar: Siggi Sveins 11,
Páll Ólafsson 7, Gunnar Gunn-
arsson og Ólafur H. Jónsson eitt
hvor. — gg.
Lítiö skoraö á Ítalíu.
ÖNNUR umferðin í ítölsku
deildarkeppninni í knattspyrnu
fór fram um helgina og urðu
úrslit leikja sem hér segir:
Ascoli — Udinese 3-0
Avellino — Juventus 0-1
Cagliari — Napoli 1-1
Catanzarro — Inter Milan 0-0
Cesena — Roma 1-1
Como — Genoa 1-1
AC Milano — Fiorentina 0-0
Torino — Bolognia 1-0
Markaregn að venju í ftölsku
deildinni og leikmenn Ascoli
áreiðanlega skoðaðir sem ein-
hver viðundur þessa daganna!!
Ekki gengur vel hjá Joe Jordan.
skoska landsliðsmiðherjanum
hjá AC Milano. tveir leikir
búnir og enn ekkert mark.
Sex atvmnumenn leika
gegn Tékkum á morgun
Á MORGUN, miðvikudag. mæt-
ir íslenska landsliðið i knatt-
spyrnu liði Tékkóslóvakíu i
undankeppni HM á Laugardals-
velli. Leikur liðanna hefst kl.
17.30. Guðni Kjartansson lands-
liðsþjálfari tilkynnti i Kær-
kvöldi þá 16 leikmcnn sem hann
hefur valið til leiksins. Eru það
eftirtaldir leikmenn:
Guðmundur Baldursson, Fram
Guðmundur Ásgeirsson, UBK, nýliði
Örn Óskarsson, Örgryte
Viðar Halldórsson, FH
Ólafur Bjðrnsson, UBK
Marteinn Geirsson, Fram
Saevar Jónsson, Val
Sigurður Lárusson, ÍA
Sigurður Halldórsson, ÍA
Ásgeir Sigurvinsson, Bayern Miinchen
Janus Guðlaugsson, Fortuna Köln
Atli Eðvaldsson, Fortuna Dusseldorf
Magnús Bergs, Borussia Dortmund
Arnór Guðjohnsen, Lokeren
Pétur Ormslev, Fram
Ragnar Margeirsson, ÍBK
Liðið sem hefja mun leikinn
verður að öllum Ííkindum skipað
þessum leikmönnum. Markvörð-
ur Guðmundur Baldursson.
Varnarmenn Örn Óskarsson,
Sævar Jónsson, Marteinn
Geirsson, Viðar Halldórsson.
Miðjuleikmenn Magnús Bergs,
Ásgeir Sigurvinsson, Janus Guð-
laugsson, Atli Eðvaldsson.
Framlínumenn Arnór Guðjohn-
sen og Pétur Ormslev.
Fyrri leik liðanna, sem fram
fór í Tékkóslóvakíu, lauk með
yfirburðasigri Tékka, 6—1. En
þá fékk íslenska liðið á sig fjögur
mörk síðustu fjórar mínútur
leiksins. Guðni Kjartansson
sagði í gærkvöldi að hann óttað-
ist ekki skell á móti Tékkum. Við
getum leikið mjög vel og nú
erum við með eitt okkar alsterk-
asta landslið sem við getum teflt
fram. Þá ættu aðstæður að vera
okkur hagstæðar. Landslið
Tékkóslóvakíu er eitt af albestu
landsliðum í heimi og hefur
reyndum og sterkum leikmönn-
um á að skipa. Forsala að
leiknum hefst í dag kl. 12 við
Utvegsbankann.
. - ÞR.
Evrópumeistarar Celtic sigruðu
örugglega 3—1 og sýndu góðan leik
— þeir hafa einhverntíma veriö góðir þessir karlar
varö einum áhorfenda aö oröi er hann horföi á leik þeirra
Evrópumeistarar Celtic frá
árinu 1967 sýndu að lengi lifir í
gömlum gla'ðum. er lið þeirra
sigraði úrvalslið fyrrverandi
landsliðskappa i Keflavík á
sunnudag, 3—1. Staðan í hálf-
leik var 3—0 fyrir Celtic.
Skosku leikmennirnir. sem
flestir eru komnir yfir fertugt
<»K í lítilli a'fingu. léku á als
oddi <»K sýndu goðan samleik og
agaðan varnarleik. Einum
áhorfanda varð að orði er hann
horfði á leik liðanna: ,.Þ< ir hafa
einhvern tíma verið K<»ðir þess-
ir karlar.“
Framan af leiknum sótti úr-
valsliðið öllu meira en átti fá
tækifæri. Harry Hood skoraði
fyrsta mark Celtic og skömmu
síðar skoraði hinn frábæri leik-
maður Bobby Lennox en hann,
ásamt Jimmy Johnstone, var
besti maður Celtic. Þriðja mark
skoraði svo Joe McBride.
Snemma í síðari hálfleik skoraði
svo Ingi Björn Albertsson eina
mark íslenska liðsins. Magnús
Torfason var mjög nálægt því að
skora er hann átti gott skot í
þverslá.
Það var alveg ótrúlegt hversu
snjallir þeir voru og úthaldsgóð-
ir, sögðu íslensku leikmennirnir
eftir leikinn. Og víst var að
Celtic-liðið kom ekki aðeins leik-
mönnum á óvart, heldur líka
þeim 900 áhorfendum sem leik-
inn sóttu og skemmtu sér vel.
Leikmenn Celtic voru mjög
hrifnir af ferð sinni til landsins
og hafa fullan hug á að endur-
gjalda hana með því að bjóða
íslenska liðinu til Skotlands. ÞR
jÆ m
r it'Jw' '
r „ ‘ í-
• Evrópumeistarar Celtic frá árinu 1967, léttir í lund. Myndin er tekin fyrir utan Hóltel Holt, en þar
bjó liðið á meðan á dvöl þess stóð hér á landi. Með Celtic-leikmönnunum á myndinni eru Ilalldór
Einarsson (Henson), sem hafði veg og vanda af heimsókn Celtic til landsins, Guðmundur Ilaraldsson
dómari og Einar Hjartarson línuvörður. Ljósm. Kristján Einarsson.