Morgunblaðið - 22.09.1981, Side 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981
Bayern tryggði sér
sigur á síoustu mínútunum
„FX; VAR okki í liði Bayern að þessu sinni, Breitner var orðinnjíóður
af meiAslum sínum <»« tók aA sjálfsóKAu stóAu sína á miAjunni. Ek var
á bekknum. en kom ekki inná,“ sukAí ÁsKeir SÍKurvinsson viA Mbl. um
helKÍna. en þá sÍKraAi Bayern liA Kaiserslautern 4 — 2 í miklum
baráttuieik. ÞeKar sjö mínútur voru til leiksloka var staAan 2—2, en
þá tókst Paul Breitner aA ná forystunni fyrir Bayern <>K siAan fylKdi
mark frá Dieter Höness, þriAja mark hans í leiknum. Eilenfeldt ok
BrieKel skoruAu mörk Kaiserslautern. Annars urAu úrslit leikja í
Þýskalandi sem hér seKÍr:
Werder Br. — Fort. Diisseldorf 4—1
B. Leverk. — Eintr. Braunschw. 1 —0
Bayern M. — Kaisersiautern 4—2
Arm. Bielef. — Bor. Dortmund 1—1
B. MönchenKl. — NiirnberK 4—2
StuttKart — FC Köln 1—1
DuisburK — Frankfurt 4—2
Darmstadt — Karlsruhe 2—6
Bochum — HamburKer SV 2—1
HamburKer tapaði öArum leik
sínum í röð ok hrapaði fyrir vikið
niður í sjötta sætið. Liðið sótti
Bochum heim ok Horst Hrubesch
náði forystunni fyrir HSV strax á
12. mínútu. Boqhum var hins
veKar sterkari aðilinn ok Lameck
jafnaði fimm mínútum fyrir leik-
hlé. SÍKurmarkið lét bíða eftir sér
þanKað til í síðari hálfleik, er Abel
skoraði úr vítaspyrnu á 77. mín-
útu. SÍKurinn næKði Bochum til að
skjótast í 3. sætið í deildinni, en
annað sætið skipar nú Werder
Bremen, sem KersÍKraði Fortuna
Dússeldorf á föstudaKskvöldið.
Gruber (2), Bracht ok Erwin
Kostedda skoruðu mörk Werder
áður en að Thomas Allofs náði að
svara fyrir Dússeldorf. Hið nýja
félaK Atla Eðvaldssonar, er í basli
í deildinni, hefur enn ekki unnið
leik að sjö umferðum loknum.
Borussia MönchenKladbach
virðist aftur á leið á toppinn eftir
nokkur möKur ár og var sigur
liðsins Kegi botnliði Núrnberg
afar öruggur. Núrnberg náði
reyhdar forystunni með marki
Dressel á 25. mínútu, en Theo Mill
og Hans Gunther Bruns svöruðu
með mörkum sínum nokkrum
mínútum síðar. Mill skoraði síðan
aftur fyrir leikhlé og Wilfried
Hannes bætti fjórða markinu við
áður en að Lieberwirth tókst að
svara fyrir Núrnberg.
Köln og Stuttgart skildu jöfn í
miklum baráttuleik, þar sem
meira var hugsað um varnarleik-
inn, enda hefur gengi beggja liða
verið upp og ofan í síðustu um-
ferðunum. Hansi Múller náði for-
ystunni fyrir Stuttgart í fyrri
hálfleik, en í þeim síðari tókst
Pierre Littbarski að jafna metin
og var það í samræmi við gang
leiksins.
Borussia Dortmund hafði næst-
um nælt sér í óvæntan útsigur
gegn Armenia Bielefeldt. Manfred
Burgsmúller skoraði fyrir Dort-
mund strax á 4. mínútu leiksins og
það var ekki fyrr en á 87. mínútu,
að heimaliöinu tókst að jafna
metin, en þá skoraði Riedl.
MSV Duisburg burstaði Ein-
trakt Frankfurt og Frankfurt-
liðið hefði varla komist á blað
hefði heimaliðið ekki slakað á
undir lokin, eftir að hafa náð 4—0
forystu. Rudi Seliger, Fruck,
Bernd Dietz og Kurt Helmes
skoruðu mörk liðsins, þrjú þau
fyrstu í fyrri hálfleik. En undir
lok leiksins tókst Frankfurt að
rétta hlut sinn dálítið þó svo að
sigri Duisburg hafi aldrei verið
ógnað. Nachtweih og Borchers
skoruðu mörk Frankfurt.
Stærsta sigur helgarinnar vann
Karlsruhe gegn Darmstadt 98.
Edvin Mattern náði forystunni
fyrir heimaliðið með marki úr
vítaspyrnu á 9. mínútu og fleiri
urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik.
En eftir leikhlé fóru leikmenn
Karlsruhe á kostum. Gúnther
jafnaði og fyrirliðinn Bold skoraði
tvívegis og breytti stöðunni í 3—1.
Cestonaro minnkaði muninn, en
það dugði skammt, Bold bætti
þriðja marki sínu við og fjórða
marki Karlsruhe, Gúnther skoraði
síðan annað mark sitt í leiknum
áður en að Gross innsiglaði yfir-
burðasigurinn með sjötta marki
KR nokkrum mínútum fyrir
leikslok.
Loks má geta leiks Bayer
Leverkusen og Eintrakt
Braunschweig. Bayer-liðið sigraði
naumlega en þó eftir atvikum
örugglega, Arne Larsen Okland
skoraði eina mark leiksins og
Sigurður stórbætti
metið í maraþon
SIGURÐUR Pétur Sigmundsson
úr FH varð íslandsmeistari í
maraþonhlaupi á nýju Islandsmeti
á sunnudag. Bætti Sigurður ís-
landsmet Sigfúsar Jónssonar ÍR
um rétt tæpar sjö mínútur. Sjö
hlauparar luku maraþonhlaupinu,
sem háð var í vesturbæ Reykja-
víkur og á Seltjarnarnesi í norðan
næðingi á sunnudag. Tólf hlaupar-
ar lögðu af stað, en fimm heltust
úr lestinni af ýmsum ástæðum.
Þetta er í fyrsta sinn, 'að keppt er í
maraþonhlaupi á Meistaramóti ís-
lands í frjálsíþróttum.
Sigurður Pétur tók strax for-
ystu í hlaupinu og hljóp létt og
tiltölulega jafnt. Hann getur vafa-
laust bætt þennan árangur sinn í
meiri keppni, við betri aðstæður
og með góðan undirbúning að
baki. Sigurður virðist annars í
góðri æfingu.
Jóhann Heiðar Jóhannsson
læknir úr ÍR, hljóp einnig mjög
vel og stórbætti sinn fyrri árang-
ur. Stillti hraðanum í hóf framan
af og var vel á eftir fremstu
mönnum, en dró síðan jafnt og
þétt á hlauparana seinni hluta
hlaupsins. Jóhann hleypur mjög
vel, heldur sama hrynjandanum
út í gegn.
Það er ekki hægt að segja annað
en að allir keppendurnir hafi sýnt
af sér fádæma hörku, og þeir létu
sig hafa það þótt þreytan settist
að í líkáma þeirra þegar enn voru
15 kílómetrar í mark. Seiglan var í
fyrirrúmi, en þeir sem neyddust
til að stíga af brautinni, gerðu það
vegna eymsla, en hefðu annars
vafalaust þraukað í gegn.
Lengst framan af var Stefán
Friðgeirsson IR í öðru sæti, en
Jóhann og Gunnar Snorrason
drógu á hann fyrir rest. Þá héldu
einir fimm til sex hlauparar hóp-
inn tæpa 25 kílómetra, en eftir það
teygðist úr hópnum. Hlaupið fór
annars vel fram, og á fullan rétt á
sér. Urslitin urðu annars sem hér
segir:
klst.
1. Siicuróur P. SÍKmundsson. FII 2:31.33
2. Jóhann llrióar Johannss.. ÍR 2:50.05
3. (>unnar Snorrason. UBK 2:54,43
I. Stríán FriÓKcirsson. ÍR 2:55.34
5. I^iknir Jónsson. Á 3KKI.23
fi. SÍKurjón Andrósson. ÍR 3.-01.05
7. Uuómundur Gfslason. Á 3:02.48
4
Sigurður Pétur Sigmundsson FII kemur í mark á nýju íslandsmeti í
maraþonhlaupi.
Þreyttir en ána>gðir maraþonhlauparar að þrekvirki loknu. Á
myndinni eru (fv) Gunnar Snorrason, UUK, Stefán Friðgeirsson ÍR,
Sighvatur Dýri Guðmundsson IIVÍ, hættj eftir rúma 30 km vegna
meiðsla. Sigurður P. Sigmundsson FII. Árni Kristjánsspn Á, hætti
eftir rúma 30 km vegna meiðsla, Leiknir Jónsson Á. Sigurjón
Andrésson ÍR. Guðmundur Gislason Á og Jóhann lieiðar Jóhannsson
IR. I.ji'wm. Mbt Kristján
sigurmark BL með þrumuskoti af
20 metra færi. Skoraði hann
markið dýrmæta en fimm mínút-
ur voru liðnar af síðari hálfleik.
Staðan í þýsku deildarkeppninni
er nú sem hér segir:
1. Itavi rn Miinchen 7 6 0 1 22:11 12
2. Wi-rdrr Ilromrn 7 12 1 11:8 10
3. VFI. Bochum 7 5 0 2 11:9 10
1. Burussia Mön. 7 12 1 16:12 10
5. KC Koln 7 1 1 2 12:8 9
T). llamhurKer SV 7 3 2 2 16:11 8
7. VFB StuttKart 7 3 2 2 10:8 8
8. Bayor Lcvcrkuscn 7 3 2 2 9:13 8
9. F(’ Kaiscrslauti rn 7 2 3 2 15:11 7
10. Eintr. Frankfurt 7 3 1 3 11:11 7
11. Bor. DuishurK 7 3 1 3 13:13 7
12. Bor. Dortmund 7 2 2 3 9:10 6
13. Karlsruhe SC 7 2 2 3 13:15 6
11. Darmstadt 98 7 1 3 3 11:15 5
15. Armcnia Biclcfcld 7 1 3 3 6:11 5
16. Eintr. BraunschwcÍK 7 2 0 5 8:12 1
17. Fortuna Dtisscldorf7 0 3 1 8:15 3
18. FC Nurnhcrjt 7 0 1 6 6:18 1
Anderlecht og Lok-
eren eru efst
PÉTUR Pétursson og félagar hjá
Anderleeht sigruðu nýliða Ttmg-
eren 2—0 á útivelli í helgisku
deildarkeppninni. I.ék Pétur
lokakafla leiksins, en skoraði
ekki. Arnór og kumpánar hjá
I.okeren töpuðu hins vegar fyrsta
leik sínum. fengu Standard I.iege
í heimsókn og lokatölurnar urðu
2—0 fyrir Standard. Úrslit leikja
urðu sem hér segir:
Beringen — Antwerpen 0—1
Winterslag — Ghent 0—3
FC Liege — Waregem 2—1
Molenbeek — Beveren 1—0
Tongeren — Anderlecht 0—2
Lokeren — Standard 0—2
Kortrijk — Waterschei 2—1
Lierse — Cercle Brugge 2—4
FC Brugge — FC Mechelen 2—2
Fjögur lið skipa L—4. sæti með
7 stÍK hvert, Standard, Lokeren,
Anderlecht og Lierse. Tveir ís-
lendingar eru því í toppslagnum í
upphafi mótsins. Neðst er Bering-
en með ekkert stig, en liðið hefur
aðeins leikið tvo leiki, tók nýlega
stöðu Beerschot í deildinni, sem
var dæmt niður í 2. deild vegna
mútuhneykslis...
Jóhann Heiðar með dætrum sínum sem hvöttu hann til dáða meðan á
hlaupi stóð og tóku á móti honum i markinu.