Morgunblaðið - 27.09.1981, Síða 2

Morgunblaðið - 27.09.1981, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1981 „VIÐ ERUM mjög óánægöir með að miðað skuli við út- flutninKsskýrslur við ákvörð- un bóta vegna gengistaps, en eins og kunnugt er, var ákveðið, að Seðlabankinn myndi bæta útflytjendum, sem flytja á Evrópu það mikla gengistap, sem þeir hafa orðið fyrir á síðustu mánuðum,“ sagði Jón Er- lendur Lárusson hjá Útflutn- ingsfyrirtækinu Röskva, sem flytur úr ullarfatnað. „Fyrirtæki í ullarútflutningi nota póstþjónustuna mjög mikið þegar minni sendingar eru sendar á ákveðnar verzlanir ytra. Þær vörur komast því aldrei inn á út- flutningsskýrslur og fást því ekki bættar samkvæmt ákvörðun Seðla- bankans. Hjá okkar fyrirtæki er um tölu- vert stórar upphæðir að ræða, því mér reiknast til, að við flytjum um 25% af okkar útflutningi með pósti," sagði Jón Erlendur Lárus- son ennfremur. Það kom fram í samtalinu við Jón Erlend, að hans fyrirtæki flyt- o INNLENT ur um 80% af sínum vörum inn til Evrópu, en aðeins 20% til Kanada. Fyrirtækið flytur út allar tegund- ir ullarfatnaðar eins og önnur fyrirtæki í þessari iðngrein. Jón Erlendur Lárusson sagði ennfremur aðspurður, að ekki væri gerlegt að reikna í fljótu bragði hversu miklir peningar væru þarna á ferðinni, hins vegar væri alveg ljóst, að um stórar upp- hæðir væri að ræða hjá greininni í heild sinni. Nýir frysti- pokar í sláturtíðina PLASTPRENT hf. hefur nývcrið hafið framleiðslu á frystipokum eftir tilraunir með plastefni, sem ætlað er fyrir matvæli og á ckki að springa i frosti. né verða stökkt við frystingu. Límmiðamerkimiðar fylgja hverri frystipokarúllu og á límið að þola frost, svo framarlega sem miðarnir eru settir á fyrir frystinguna. Niðurstöður tilraunanna eru þær, að sögn Plastprents, að við þessa pökkunaraðferð haldist gæði frysts kjöts mun lengur. Plastpokarnir eru framleiddir í tveimur stærðum. Sú minni er svo- kölluð fjölskyldustærð, sniðin með það í huga að passa fyrir fjölskyldu- máltíðina. Plastprent hefur haft það að viðmiðun að koma pokunum út fyrir sláturtíðina. Gengistapið á ullarútflutningnum: Stór hluti tapsins verður ekki bættur Nemendur í Fellaskóla héldu hátíð í skóla sinum í gær með margs konar atriðum, en myndina tók Ragnar Axelsson af flóamarkaði nemenda i gær og var aldeilis handagangur i öskjunni. Erlend lán langt fram ERLENDAR langtímalántökur ríkis.sjóðs og Framkvæmdasjóðs á þessu ári hafa farið langt fram úr því, sem gert hafði verið ráð Drukknir menn á stolnum bíl ÞRÍR ungir menn, tveir Reykvík- ingar og einn Seltirningur, voru handteknir af Árbæjarlögreglunni í gærmorgun. þar sem þeir sátu vel við skál í jeppabifreið uppi i Ileiðmörk. Við eftirgrennslan kom í Ijós að bílnum höfðu þeir stolið frá Bílasöl- unni Braut, og ekið síðan í Heið- mörk, þar sem þeir hugðust drekka veigar sínar í næði. Þar varð bif- reiðin hins vegar bensínlaus, og ekki annað að gera en þiggja far lögregl- unnar á viðeigandi stað. Bifreiðin var óskemmd, og ekki talið að þeir hafi ekið mikið annað en um Heið- mörkina. — Að öðru leyti var tíðindalítið í Reykjavík í fyrrinótt, en ölvun þó talsverð að sögn Miðborgarlögreglu, en það telst varla til stórtíðinda í höfuðborginni. Minningarsjóður Ólafs Ólafssonar kristniboða úr áætlun fyrir. Fyrstu sjö mánuðina námu þessar lántökur um 226 milljón- um króna. en til samanburöar má geta þess, að á sama tíma í fyrra var húið að taka 75 milljún- ir króna af þeim 200, sem ráð var fyrir gert. í fjárfestingar- og lánsfjár- áætlun fyrir árið 1981 er gert ráð fyrir því, að erlendar langtíma- lántökur nemi tæplega 289 millj- ónum króna, og er því meginhluti þess þegar kominn, eða 226 millj- ónir króna fyrstu sjö mánuðina eins og áður sagði. Löng erlend lán námu 5.940 milljónum króna í árslok 1980. Fært til meðalgengis er það rúm- lega 35% af vergri þjóðarfram- leiðslu ársins, en þetta hlutfall var næstu fjögur árin á undan 32—34%. í fjárfestingar- og láns- fjáráætlun ársins 1981 er gert ráð fyrir, að þetta hlutfall fari í 36—37%, en miðað við gang mála má telja víst, að það fari nokkru hærra. Að síðustu má geta þess, að lík- legt er talið, að erlend vörukaupa- lán innflytjenda hafi aukizt nokk- uð að undanförnu miðað við fyrri tíð. Ullarniðprgreiðslurnar koma aðeins SÍS og Alaf ossi til góða „ÞAÐ ER í raun alveg oskiljanlegt hvernig að þessum málum er stað- ið. Það eru aðeins Álafoss og Sam- handið. sem hafa hag af þcssu." sagði Jón Erlendur Lárusson hjá ullarútflutningsfyrirtækinu Röskvu. í samtali við Mhl., er hann var inntur eftir því hvort rétt væri. að niðurgreiðslur rikisins á ull. sem tilkvnntar voru fyrir skömmu. kæmu aðeins stóru fyrirtækjunum Álafossi. sem er ríkisfyrirtæki. og Iðnaðardeild Sambandsins til g<>ða. — Þessar niðurgreiðslur eru mið- aðar við tímabilið júní—ágúst, og því stenzt það ekki, sem menn vilja halda fram, að þetta komi til frá- dráttar hinu nýja ullarverði, sem ákveðið var í byrjun september, STOFNAÐUR hefur verið Minninjíarsjóður ólafs sagði Jón Erlendur Lárusson enn- fremur. Þá kom það fram hjá Jóni Er- lendi, að hann hefði haft samband við stjórnarráðið til að fá skýringar á þessu, og hefði honum þá verið vísað milli ráðuneyta fram og aftur og hefði hann engin haldbær svör fengið um málið. Ólafssunar. kristniboða, en einn af vinum Ólafs afhenti á liðnu sumri stjórn Sam- bands ísl. kristniboðsfélaga kr. 10 þúsund, sem stofnfé sjóðsins. í reglugerð fyrir sjóðinn segir m.a. að stofnfé skuli varðveitt á vísitölutryggðum reikningi til 10. júlí 1986 og skuli þá innstæðan öll vera talin höfuðstóll sjóðsins. Þá segir að stjórn SÍK skuli heimilt að verja arði sjóðsins til þeirra málefna er Ólafur Ólafsson hafi haft áhuga fyrir, en hann var um margra ára skeið kristniboði í Kína. Gjöfum til sjóðsins og áheitum er veitt móttaka á skrifstofu SIK að Amtmannsstíg 2B í Reykjavík. ROSTUNGUR - frið- samt dýr og staðbundið Eru rostungar á flótta í ætisleit til suðurs? „ÞAÐ ER greinilega ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón,“ sagði Sólmundur Einarsson, fiskifræðingur, í samtali við Mbi. í gær, en hann kvaðst telja miklar likur á því að ungi rostungurinn, karldýr, sem kom með Flugleiðavél til landsins i gær á kostnað ríkisstjórnarinnar og Flugleiða, sé sama dýrið og reynt var að fá leyfi fyrir til millilendingar á íslandi sl. vetur, en þá var ungur rostungur á hrakhólum i Hollandi. Var dýrinu sleppt þar eftir þriggja vikna bið þar sem strandaði á að íslendingar og Danir næðu samkomulagi um ferðir fulltrúa Norðurs- ins. Hafði þá verið ráðgert að Goðinn flytti rostunginn að miðlinunni milli íslands og Grænlands, en þegar til kom þótti það kosta of mikið og ekki fékkst leyfi til þess að dýrið kæmi til íslands. „Það er ljóst, að ráðherrastig hefur þurft,“ sagði Sólmundur, „en það er gott ef málið leysist.“ Umræddur rostungur hefur á undanförnum mánuðum sést af og til, m.a. við Danmörku. Aðspurður kvaðst Sólmundur telja að þetta unga dýr hefði villst frá hjörð sinni eða orðið fyrir ein- hverri röskun, því rostungar eru ekki mikil ferðadýr og aðeins vitað til þess að eldri karldýr leiti úi. fyrir hjörðina. Sólmundur kvað það hins vegar vekja athygli dýra- fræðinga að mikil hreyfing hefði verið á undanförnum árum á norð- lægum selategundum suður með Noregi, sérstaklega vöðusel. Taldi Sólmundur líklegt að hér spilaði ætisleit inn í og mögulega raskaði sífellt aukin veiði á norðlægum slóðum lífríkinu þar þannig að heimadýrin væru farin að leita á önnur mið. Hér við land hafa rostungar sést stöku sinnum, síðast í Húnaflóa fyrir nokkrum árum. Rostungar eru tilkomumiklar skepnur sem eru víðast hvar al- friðaðar, aðeins veiðimenn í Græn- landi og Kanada hafa leyfi til að veiða mjög takmarkaðan fjölda dýra. Karlrostungur getur orðið 4 m langur og tennurnar geta orðið 60 sm að lengd og veiðihárin geta orðið 30 sm að lengd. Rostungurinn fellir veiðihár í nóvember og er ekki kominn með fullan pels fyrr 65 ára gamall rostungur, veidd- ur í Disko-flóa við vesturströnd Grænlands. en í marz. Hann er ólíkur selum að því leyti að hann syndir með bæði fram- og afturhreifum. Hann hef- ur löngum verið eftirsóttur í sam- bandi við vigtennurnar, sem eru mjög verðmætar. Tvær tegundur rostunga eru til, önnur í Norður- Atlantshafi, hin Kyrrahafsmegin á norðurslóðum, að sögn Sigurðar Richter, náttúrufræðings. Rostungurinn ferðast lítið, stundar einkvæni og fæðast ung- arnir í sjó á tímabilinu apríl—júní. Kvendýrin eignast unga annað eða þriðja hvert ár, en aðalfæða rost- unga er skelfiskur, kuðungar, íg- ulker, krossfiskar og annað slíkt sem hann rífur laust með vígtönn- unum. Við Grænland sækir rost- ungurinn fæðu allt niður á 40 faðma dýpi. Ýmsar sagnir eru til um rost- unga, seladráp þeirra og jafnvel að þeir hafi gengið af ísbjörnum dauðum, en það algenga er að rost- ungurinn á enga óvini og hann mun vera eina dýrið sem ekki flýr þegar háhyrningar vaða um, held- ur aflar sér áfram fæðu í róleg- heitunum. Stundum geta rostung- ar lent í vandræðum ef ís frýs sam- an og dæmi eru um kalin dýr eftir langa ferð á ís til að komast í vak- ir, en þrátt fyrir það að rostungur- inn sé lítið ferðadýr, hefur hann sést eins og fyrr getur á suðlægum slóðum, við Holland, Danmörku, Hjaltlandseyjar, Noreg og víðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.