Morgunblaðið - 27.09.1981, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1981
19
Álensk samtímalist
íbúar Álandseyja eru víst ekki
nema einhvers staðar á milli
20—25.000 talsins, en samt eru þar
starfandi 50 virkir myndlistarm-
enn í myndlistarfélagi er telur 300
meðlimi. I samanburði við þetta
litla þjóðfélag erum við Islend-
ingar stórþjóð en munurinn er þó
alls ekki svo mikill og ætla mætti.
En hér kemur einnig til að Álenzk
menning er af eldri toga en sú ís-
lenzka og til eru þeir sem vilja
rekja slóðina fimm þúsund ár aft-
ur í tímann. Fámennið hefur þó
eðlilega valdið því að menningin
hefur aldrei verið stór í sniðum en
merkilegar fornminjar hafa fund-
ist, sem renna stoðum að því, að
menning Álandseyinga hafi þró-
ast samhliða Evrópskri menningu
og ekki verið eftirbátur hennar í
kjarna sínum. Fundist hafa m.a.
menjar er minna á hliðstæður á
Möltu, og hlutir notagildis er leiða
hugann að Etrúskum og hnífur
nokkur frá bronsöld er svo nú-
tímalegur, að hann stendur sízt að
baki hönnun frá verkstæði Sig-
vard Bernadotte. Þá er sumt í
menningu Álandseyja einstakt á
Norðurlöndum t.d. veggmálverk
frá lokum 12 aldar, en hliðstæða
finnst ekki á þessum breiddar-
gráðum í Skandinavískri list.
Þannig hafa Álandseyjingar sitt-
hvað fram að færa líkt og íslend-
ingar er þeir eiga út af fyrir sig og
fegurðartilfinningu hafa þeir ríka
svo sem rekja má til elstu forn-
minja. Engann skyldi raunar undra
þótt fegurðartilfinningin sé fyrir
hendi, jafn fagrar og Álandseyjar
eru, en þær liggja miðs vegar á
milli Finnlands og Svíþjóðar.
Álandshafið skiptir skerjagörðun-
um milli Stokkhólms annarsvegar
og Ábo hinsvegar og mun siglingin
frá Stokkhólmi um Álandshafið
og til Ábo vera ein sú fegursta sem
menn vita. Eitt uppsláttarritið
segir mér að Álandseyjar séu 300
talsins en annað 10.000 (!), en
sannleikurinn mun sá að þær eru
meir en 6.500 og eru þá hólmar og
sker meðtalin. Landslagið er hæð-
ótt og mun hæsti punktur vera 132
metrar yfir sjávarmáli...
Þetta ætti að duga um sögulega
viðmiðun og menningarlegt sam-
hengi en þó má bæta við að íbúar
Marinenhamn, sem er höfuðborg
Álandseyja munu vera ívið færri
en íbúar t.d. Akureyrar eða Kópa-
vogs.
— Listaskólar í nútímaskiln-
ingi eru engir á eyjunum en lista-
félagið efnir til reglulegra nám-
skeiða og þeir eiga sinn Handíða-
skóla, sem kennir þjóðlegar hand-
íðir (Hemslöjdskolan). Myndlist-
armenn, sem á annað borð eru
ekki sjálfmenntaðir en þeir eru
allnokkrir, hafa þannig orðið að
sækja menntun sína til útlanda og
þá aðallega Svíþjóðar en Álands-
eyingar eru sænskumælandi Finn-
ar (fengu heimastjórn árið 1920).
Á nákvæmlega sama hátt og á
íslandi er Listasafn Álands stað-
sett í Þjóðminjasafni þeirra og eru
yfir 300 verk í eigu þess. En á milli
skilur, að húsnæði, sem er til um-
ráða er sérhannað sem listasafn.
Sé litið á allar aðstæður þá má
vera ljóst að framtak Álands-
eyinga á myndlistarsviði er um
margt rosalegt afrek, sem ber
þjóðarmetnaði þeirra fagurt vitni
og sé vitnað í skrif John Donne
„No Man Is an Island", — „Enginn
er eyland" mætti sjálfkrafa halda
áfram að segja „Allt er Áland .. “
— Kjarni málsins er, að um
þessar mundir gistir Norræna
húsið fyrsta myndlistarsýningin
frá Álandi, en áður höfðum við
kynnst listmennt Álands í sam-
bandi við Álandsviku á sama stað
árið 1975.
Það eru þrettán myndlistar-
menn sem sýna verk sin að þessu
sinni og greinast þau í olíumál-
verk, vatnslitamyndir, tréristur
(ekki tréstungur svo sem er rang-
þýtt í sýningarskrá), klipp- túsk-
og akrílmyndir.
Það er mildur og ferskur blær
yfir sýningunni og hér koma í
senn fram finnsk og sænsk mynd-
listaráhrif sem og samruni þeirra
ásamt álenzkri ábót.
Máski má finna þjóðlegasta
svipmótið í tréristum Tage Wilén,
sem eru bráðskemmtilegar og ekki
sakar að listamaðurinn vitnar í
forna málshætti og vinnur út frá
þeim t.d. „Sá sem tekur flagð fyrir
gull, situr uppi með flagðið þegar
gullið er farið ...“
Alþjóðlegasti listamaðurinn í
honum er máski Britta Gustavs-
son og sá nútímalegasti Kurt Sim-
ons. Fyrrnefndi listamaðurinn
sýnir svipmiklar klippimyndir en
sá síðarnefndi myndir unnar í
akríl og vatnslitum og gætu þær
fyrir sumt talist til svonefndrar
„nýlistar".
— Það er næm tilfinning og
frískleg meðhöndlan vatnslita í
myndum Guy Frisk, svipur raun-
sæis í myndum Ilenriks Nylund,
ferskleiki ljóðrænnar alþjóðlegrar
abstrakt-listar í hrifmiklum
myndum Hildar Stenbáck, sænsk
hefð í olíumyndum Bo Ilögnás og
'ASGEIR L'ARUSS
HB
BiaKTTT
^FRAM
RAUTT
4
44 4
44 4 4
4 4 4 4 4
y&y.íí
V V
y
Nils Byman. hressileg túsk-
vinnubrögð í myndum Kaj Lind-
ström, súrrealistísk kimni í lág-
myndum Olle Kangas, menning-
arleg vinnubrögð í olíumyndum
Charles Hemmingsson, — vottar
fyrir dönskum áhrifum í olíu-
myndum Roberts Ilanock frá
Suður-Frakklandi, olíumyndir Al-
got Nordlund eru mjög fínlegar
og myndvefnaður Keathy Eriks-
son-Jourdan er í háum gæðaflokki
einkum myndin „Svelti", sem er í
senn einföld og nútímaleg.
— Það eru ánægjuleg kynni af
Álenzkri myndlist sem getur að
líta í kjallarasölum Norræna
hússins fram til 4. október, og í
anddyri svo og bókasafni á hæð, er
menning lands og þjóðar kynnt
svo sem tök eru á. Þar uppgötvar
gesturinn m.a. að 30% af verzlun-
arflota Finnlands er í eigu
Álandseyinga. Já, þeir eru oft
Myndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
stórtækir þeir smáu er þeir á ann-
að borð fá tækifæri til að takast á
við hlutina!
Eg þakka með virktum fyrir
ánægjulega viðkynningu og tek
undir þá ósk Önnu-Lenu Drejer í
sýningarskrá að framtakið stuðli
til aukinna samskipta milli ís-
lands og Álands á sviði lista.
Bragi Ásgeirsson
i MihfcMd
„Hlátt áfram rautt“
IÐUNN hefur gefið út litla bók
eftir Ásgeir Lárusson sem nefnist
Blátt áfram rautt. Þetta eru sam-
klipptir textar og má kalla bókina
leik með orð og uppsetningu texta.
Textarnir eru úr ýmsum áttum og
að prentgerð með ýmsu móti. Höf-
undur raðar textunum saman á
óvæntan hátt og nokkrum þeirra
fylgja teiknimyndir, teknar úr
blöðum. — Ásgeir Lárusson er
' myndlistarmaður, en Blátt áfram
rautt er hið fyrsta sem frá honum
kemur í bókarformi. Kverið er
fjörutíu blaðsíður, Prentrún prent-
aði.
(FrHtatilkynninK.)
FHABÆH FRAKKI
Framhjóladrifinn og ótrúlega sparneytinn. Kjörinn bíll ársins — í Evrópu
— 1978/1979. Nú í aukinni og bættri lúxus útfærslu — árgerö 1981.
Frönsk þægindi og aksturseiginleikar, sem þekktir eru.
Pláss fyrir fimm stóra og hundinn. Fáöu þér frakka fyrir
veturinn, foröastu lélegar eftirlíkingar.
Ath. í sparakstri BÍKR fyrr í sumar þá varö
Talbot Horizon sigurvegari og eyösla
pr. 100 km aöeins — 5,5 lítrar.
Verö — Talbot Horizon GL — ’82
kr. 117.500 á götu.
Verö miöað víð gengi 1.9. 1981.
víökull hf.
ÁRMÚLA 36, Símar 84366 - 84491
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
Þl Al'GLYSIR l'M Al.LT LAND ÞEGAR
Þl' AIGLYSIR I MORGINBLAÐIM