Morgunblaðið - 27.09.1981, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.09.1981, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1981 Nýja greiðslan í níu útgáfum FLOU 157 heitir nýja línan í hárgreiðslu, sem Haute Coiffure Francaise var að kynna í París á sýningu í Porte Maillot 6.-7. sept- ember. Nafnið gefur til kynna að í ár sé ætlast til þess að hárið sé létt og frjátslegt. íslenska hár- greiðslufólkið, sem sótti lín- una til Parísar, var að æfa sig með 9 sýningarstúlkur eitt kvöldið í vikunni, enda má búast við að nú fari að berast myndir í erlendum blöðum með nýju hár- greiðslulínunni fyrir vetur- inn, og ljósmyndari Mbl. RAX greip tækifærið til að taka myndir og vera þannig á undan útlendu blöðunum með „línuna". Um kl. 10 um kvöldið voru stúlkurnar loks tilbún- ar, nýlagðar og sérstaklega snyrtar af Ólöfu Ingólfs- dóttur, sem sagði að nú væri aftur farið að nota dökkt um augun og mikil strik. Frá því hárgreiðslu- stofurnar lokuðu síðdegis þann dag höfðu hár- greiðslumeistararnir Bára Kemp, Lovísa Jónsdóttir, Elsa Haraldsdóttir, Guð- björn, Dúddi, Sævar, Mart- einn R. Guðmundsson og Hanna Kristín Guð- mundsdóttir verið að bera sig saman um það sem þau höfðu séð á Parísarsýning- unni. Klippa, lita og leggja hárið í samræmi við það. Þarna var útkoman nú komin í 9 útgáfum. Og hvað sáu þau þá? Hár- greiðslan er ýmist á stuttu eða síðu hári, en það er samt ekki stutt að aftan. Miðað er við að höfuðið sýn- ist stórt, hárið allt hátt að framan, klippt í styttur og töluvert þynnt við andlitið. í því er milt permanent og litlar strípur litaðar fram- an í. Á tískusýningunni í Porte Maillot, þar sem hár- línan var kynnt, voru að venju líka sýningar á nýju fatatískunni. Þar var mikið um að notað væru sjöl eða treflar. Nú brugðið um öxl- ina og endum stungið undir pils- eða buxnastrenginn eða festir með nælu. — Ódýrasta nýjung í tízkunni sem við höfum séð, sögðu þau. Annars skiptist tísku- fatnaðurinn í tvö horn, sá sportlegi með pokabuxum, buxnapilsum, prjónakjól- um, prjónakápum og slám, og hins vegar samkvæm- isklæðnaðurinn, íburðar- mikill úr tafti eða tjulli og kjólarnir gjarnan svartir. En myndirnar tala sínu máli um hárgreiðsluna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.