Morgunblaðið - 27.09.1981, Síða 21

Morgunblaðið - 27.09.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1981 21 Námskeið á vegum SÁÁ — nýjung í starfínu: „Ætlað að vera stuðmngur á leiðinni til betra lífs“ - rætt við Önnu Þorgrímsdóttur deildarstjóra hjá SÁÁ SÁÁ er að fara af stað með tvö fræðslunámskeið fyrir aikóhóiista dagana 5.—G. október næstkom- andi. Af þessu tilefni áttum við viðtal við Önnu Þorgrimsdóttur. deildarstjóra hjá SÁÁ, sem hefur yfirumsjón með námskeiðunum. en hún hefur kynnt sér nám- skeiðahald sem þetta i Bandarikj- unum. Við spurðum Önnu nánar út i námskeiðin. Leiðrétting Sú villa slæddist í frétt Mbl. í gær, að Þóra Kristjánsdóttir, listráðu- nautur, var titluð forstöðumaður Kjarvalsstaða. Hið rétta er, að Al- freð Guðmundsson er forstöðumað- ur, en Þóra hins vegar listráöunaut- ur. Biðst Mbl. velvirðingar á þessum mistökum. „Þau eru einkum ætluð fólki, sem hlotið hefur meðferð og er hugsað sem áframhaldandi stuðningur á leiðinni til betra lífs,“ sagði Anna. „Námskeiðin standa yfir í þrjá mánuði í senn með mætingum einu sinni í viku í tvo og hálfan klukku- tíma. Byrja námskeiðin klukkan 18 og 19.30 og verður svo allan ársins hring. Á fyrri hluta námskeiðanna er fjallað um alkóhólisma sem sjúk- dóm. Sjúkdómurinn er skilgreindur og rætt um það hvernig hægt er að halda honum niðri, meðal annars með því að byggja manneskjuna upp tilfinningalega og auka sjálfsvirðingu hennar. Á seinni hluta námskeiðsins verður farið út í það hvernig alkó- hólistinn getur starfað sem best í þjóðfélaginu. Inn í þá umræðu eru meðal annars tekin samskipti hans við fjölskyldu, vinnuveitanda og samstarfsfólk. Einnig verður rætt um ýmsar ranghugmyndir, sem geta komið upp að meðferð lokinni. Rauði þráðurinn í gegnum þessi námskeið eru AA-samtökin, hug- myndafræði þeirra og saga.“ — Er mikil þörf fyrir námskeið sem þessi? „Já, það teljum við, en það hefur ekki verið möguleiki að koma nám- skeiðunum á fyrr vegna húsnæðis- leysis, en núna er SÁÁ komið í nýtt og rúmgott húsnæði að Síðumúla 3—5, þar sem allar upplýsingar um námskeiðin eru veittar." — Hvernig er fyrirkomulag námskeiðanna? „Það verða fluttir fyrirlestrar og þá flytja Anna Friðrikka Jó- hannsdóttir ráðgjafi og ég. Síðan er unnið í hópum og verða 15 í hverjum hópi. Mun hópurinn sjálf- Anna Friðrikka Jóhannsdóttir grimsdóttir deildarstjóri. ur leita að lausnum á vandamálum þeirra einstaklinga, sem eru innan hans. Þannig eru þessi námskeið til þess að hjálpa fólki til að hjálpa sér sjálft. Hér er um nýjan þátt í starfsemi SÁÁ að ræða og er þetta fyrsta námskeið sinnar tegundar hér á ráðgjafi til vinstri og Anna bor- landi. Það má taka það fram í þessu sambandi, að námskeiðunum er engan veginn ætlað að koma í staðinn fyrir AA-samtökin, heldur eru þau til þess að dýpka skilning alkóhólistans á vandamálum sínum og gera hann betur hæfan til að takast á við þau,“ sagði Anna Þorgrímsdóttir. Æfingabúningar i serflokki fra Gonso, vestur-þýzk gæöavara. Sffl rfM UTIUF Glæsibæ, simi 82922. Gerir þú kröfur? Dá velur þú MEST SELDA LITSJÓNVARPSTÆKIÐ Á MARKAÐNUM BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI 27099 SJÖNVARPSBÚMN CM CM Verð: 9.950.- Staðgr.: 9.450.- Útborgun: 1/3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.