Morgunblaðið - 27.09.1981, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 27.09.1981, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1981 Eiginmaöur minn og faöir okkar, HAFSTEINN BERGÞÓRSSON, lést 25. þ.m. Marargötu 6 Rvk. Magnea I. Jónsdóttir, Helga Hafsteinsdóttir, Jón B. Hafsteinsson, Gunnar I. Hafsteinsson, Hafsteinn Hafsteinsson. t Faöir minn, GUDBRANDUR J. JÓNASSON, Glaöheimum 8, Reykjavík, lést á heimili sínu 24. september. Jaröarförin auglýst síöar. Fyrir hönd aöstandenda, Ingigerður Guöbrandsdóttir. t KRISTÍN VIKTORÍA GÍSLADÓTTIR, Jaóri, Geröum, veröur jarösett, þriöjudaginn 29. september frá Útskálakirkju, kl. 2.00 e.þ. Aðstandendur. + Útför eiginmanns míns,^ DAGNÝS BJARNLEIFSSONAR, skósmiös, veröur gerö frá Fossvogskapellu kl. 13.30 nk. þriöjudag, 29. þ.m. Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hins látna, er bent á líknarstofanir. F.h. aöstandenda, Steinunn Siguröardóttír. + Utför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, VALGERÐAR ANDRÉSDÓTTUR, Framnesvegi 5, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 28. sept. kl. hálf tvö. Lýöur Björnsson, Guöbjörg Óskarsdóttir, Ólafur Björnsson, Elínborg Björnsdóttir, Hans Rödtang, Sigurbjörg Björnsdóttir, Höskuldur Stefánsson, Örn Grundfjörö, barnabörn og barnabarnabörn. + Maöurinn minn, faðir, tengdafaöir og afi, ÁRSÆLL KRISTINN KJARTANSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 29. septem- ber kl. 3. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Krabba- meinsfélagiö. Ingveldur Ingvarsdóttír, Pétur Ó. Ársælsson, Lilja Pálsdóttir, Svava Pétursdóttir. + Faöir okkar og tengdafaðir, ÞÓRLEIFUR BJARNASON, fyrrv. námstjóri, Kolgerðí 3, Akureyri, sem andaöist 22. þessa mánaöar, veröur jarösunginn frá Akranes- kirkju, þriöjudaginn 29. september kl. 14.15. Þóra Þórleifsdóttír Mothes, Christian Mothes, Höröur Þórleifsson, Svanfríöur Larsen, Friörik G. Þórleifsson, Sigríöur Sigurðardóttir, Björn Þórleifsson, Júlíana Lárusdóttír. + Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir, systir, amma og lang- amma, ELÍSABET J. BRAND, Barmahlíö 48, Reykjavik, andaöist á gjörgæsludeild Landakotsspítala aö kvöldi 18. sept. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Þökkum innilega veitta samúö og hlýhug. Thor J. Brand. Carl Brand, Hlín Eiríksdóttir, Svava J. Brand, Haukur Jósefsson, Þorbjörg Halldórs frá Höfnum, barnabörn og barnabarnabörn. Kári Pálsson Völlum - Minning Fæddur 2. april 1909. Dáinn 5. scptember 1981. Nafni minn, Kári Pálsson á Völlum, hefur kvatt hinstu kveðju. Þeim tekur nú að fækka sem settu svip á Suðurbæinn um það leyti sem ég var að alast þar upp. Kári í Hulduhól, eins og hann þá var nefndur, var einn þeirra manna. Hann ól allan sinn aldur í Suður- bænum ef frá eru skilin fyrstu þrjú á ævinnar, en þá dvaldist hann í Aðaldal þar sem hann var fæddur. Mér er sérstaklega ljúft að minnast þess fólks sem bjó í Suðurbænum þessi árin og ekki síst þeirra sem Bakkanum voru tengd. Flest hafði þetta fólk lifi- brauð sitt af sjónum enda var það undirstöðuatvinna í plássinu. Samhjálp þessa fólks var einstak- lega mikil og skipti þá ekki máli hvort deildar meiningar væru að ýmsu leyti t.d. í stjórnmálum. Ég hygg reyndar að samhjálp og samvinna húsmæðranna hafi ver- ið einstök. Mikill samgangur var milli fólksins i Steinholti, en þar bjuggu foreldrar mínir, og fólks- ins í Hulduhóli. Ég var jafnan heimagangur hjá foreldrum Kára, þeim Páli Jónssyni smið og Guð- nýju Friðbjarnardóttur. Kári var elstur þriggja barna þeirra. Hann fór, eins og þá var algengt, snemma að vinna og sjórinn dró hann til sín. Hann gerðist meðeig- andi í mótorbátnum Maí, sem var happafleyta og síðar keypti hann í félagi við aðra mótorbátinn Krist- inn. Kári var jafnan landformaður og gegndi því með mikilli prýði. Hann var mjög samviskusamur og einstakt snyrtimenni. Hann átti reyndar oft til að finna að við okkur sem yngri vorum ef honum fannst við ekki ganga nógu vel um. Það var oft glatt á hjalla í skúrn- um hjá Kristinsmönnum og keppni gat orðið mikil milli þeirra sem í landi voru ekki síður en þeirra sem reru. Nafna var ekki um að láta hlut sinn í þeim efnum og bros hans var ærið kankvíst þegar þeir á Kristni höfðu betur. En þó að Kári ynni lengst af störf sem tengd voru sjónum, þá vann hann nokkuð við smíðar. Þar hafði hann tekið í arf handlagni og verkhyggni. Þegar hafnargarð- urinn var í byggingu á Húsavík varð nokkur samdráttur í útgerð- inni. Hafnargarðurinn var mikið stórvirki og tók til sín fjölda verkamanna. Kári varð þar fljót- lega verkstjóri og sýnir það með öðru hvers trausts hann naut. Síð- ustu árin sem hann vann var hann hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur, en hann lét þar af störfum fyrir fáum árum sökum vanheilsu. Með þeim almennu störfum sem hér hafa verið talin hafði Kári alltaf nokkurn búskap. Fjárhús voru skammt frá Hulduhóli. Þar var ég löngum tíður gestur. Þar kynntist ég nafna mínum best. Við fjárhúsið var hesthús. Þeir feðgar Páll og Kári voru mjög elskir að hestum. Aðbúnaður þeirra að skepnum og umhirða var framúrskarandi. Enda voru afurðir eftir því. Alveg var sömu sögu að segja um hey- skap, að hirðusemin var einstök og snyrtimennskan. Ég þreyttist seint á því að fylgja nafna mínum í húsunum og hann er vissulega sá maður sem mestan þátt átti í því að glæða áhuga minn á hrossum og hestamennsku. Glaður og Blakkur voru æskuvinir mínir og er ég nafna mínum afskaplega þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast þeim. Þó Kári virkaði ekki mann- blendinn maður hafði hann af- skaplega gaman af félagsskap og var traustur þar sem annars stað- ar. Hann hafði gaman af því að ræða við menn og kynnast þeirra sjónarmiðum. En það var ekki þar með sagt að hann væri þeim sam- mála. Hann hafði sínar skoðanir og þorði óhræddur að halda þeim fram. Hann var metnaðarfullur vegna starfa sinna og vegna bú- smala síns og hann var það einnig þegar hann var að verja málstað sinn eða skjólstæðinga sinna. Kippti honum þar í kyn forfeðra sinna en Kári var þriðji maður frá Skarða-Gísla. Árið 1936 giftist Kári eftirlif- andi konu sinni, Laufeyju Vigfús- dóttur frá Jörfa á Húsavík. Þau hófu búskap í Hulduhóli. Húsnæð- ið var ekki stórt, ein lítil stofa og smá eldhúskytra. Þau hjónin voru samvalin í þrifnaði og snyrti- mennsku. Lengst af hafa þau búið á Völlum og hygg ég að ekki sé ofmælt að segja, að á fáum heimil- um getur að líta jafn frábæra um- gengni. Laufey og Kári eignuðust þrjár dætur, Öldu, bóndakonu á Helgastöðum í Reykjadal, gift Friðriki Jónassyni, Hrönn, hús- móður á Húsavik, gift Jónasi Sig- urmundssyni og Guðrúnu, sem er í föðurgarði. Oft kom ég í Velli og var þar alltaf vel tekið. Mér hlotnaðist sú ánægja að vinna lítillega með þeim hjónum að fjáröflunarstarfi fyrir Sólborg á Akureyri. Þau hafa reynst því heimiii afbragðs vel. Laufey hafði forystu um það starf og var hún dyggilega studd í því starfi af eiginmanni sínum. Ég vil með þessum fátæklegu línum kveðja vin minn og nafna. Ég sé hann fyrir mér kominn á bak á Blakk. Hrafn hleypur við hlið hans og um öxl er veiðistöng- in og ferðinni heitið fram í dali. Ég veit honum verður vel fagnað í þeim dal eilífðarinnar þar sem við munum að lokum öll hleypa fáki okkar. Ég sendi Laufeyju, dætrunum, eiginmönnum þeirra og öðrum ættingjum innilegustu samúð- arkveðjur. Kárj Arnórsson Afmælis- og minningargreinar ÁTHYGLI skal vakin á því, aö afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. + Maðurinn minn, sonur okkar, faöir, tengdafaðir, afi og bróöir, BJARNI H. SIGURÐSSON bólstrari. Melgeröi 22, Kópavogi. andaöist á Borgarspítalanum föstudaginn 25. september. Kristjana H. Siguröur Kristjánsson, Kristján Á. Bjarnason, Kristjana Bjarnadóttir, Ólöf Bjarnadóttir, Ása Bjarnadóttir, Elín Bjarnadóttir, Birna Bjarnadóttir, Guömundsdóttir, Kristjana Bjarnadóttir, Kristín Sveinbjörnsdóttir, Jón G. Harðarson, Báröur Á. Gunnarsson, Árni V. Árnason, barnabörn og systkiní. + Faöir okkar, bróöir minn, tengdafaöir og afi, AXEL BJÓRNSSON bryti, Hverfisgötu 59 R., lést aö heimili sínu 24. þessa mánaöar. Jarðarförin auglýst síöar. Auður Axelsdóttir, Jóhanna Axelsdóttir, Axel Axelsson, Sigrún Axelsdóttir, Edda Axelsdóttir, Björn Axelsson, Jón Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. Snorri Sigjónsson, Pétur Ólafsson, Dagbjört Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Daníelsson, Vilborg Ölversdóttir, LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöföa 4 — Sími 81960

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.