Morgunblaðið - 27.09.1981, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1981
45
í stað stöðugra átaka við ísra-
eismenn hefur hann kosið frið; í
stað sovésksinnaðs hlutleysis
hefur hann hallað sér að Banda-
ríkjamönnum; í stað sósíaiisma
hefur hann beitt sér fyrir óheftri
einkaneyslu — a.m.k. fyrir þá
fáu, sem eiga peninga, — og að
síðustu metur hann meira hags-
muni Egypta en samarabískar
hugsjónir.
Sadat hefur oft komið um-
heiminum á óvart, en það, sem
býr að baki kúvendingum hans,
er skynsamlegt mat. Það voru
ekki duttlungar, sem réðu því að
hann hvarf frá stefnu Nassers,
heldur réttur lærdómur af þeim
veruleika, sem við honum blasti.
Israelsmenn yrðu ekki sigraðir á
vígvellinum, og höfðu enda
Bandaríkjamenn á bak við sig;
hinn mikli olíuauður í höndum
íhaldssamra fursta benti síður
en svo til sósíaliskrar framtíðar
og, eftir fjóra ósigra og miklar
blóðsúthellingar var egypski al-
þýðumaðurinn búinn að fá sig
meira en fullsaddan á samarab-
ísku hugsjóninni.
Eitt atriði er það þó í stefnu
Nassers heitins, sem Sadat getur
undir engum kringumstæðum
ýtt til hliðar. Það eru örlög Pal-
estínuþjóðarinnar, mál, sem er
svo samofið arabískri sjálfsvit-
und, að ekki verður fram hjá því
komist. Sá Arabaleiðtogi, sem
það reyndi, myndi ekki kemba
hærunar á valdastóli.
Eitt 11 ár á valdastóli horfir
Sadat ékki aðeins fram á þá um-
bun erfiðis síns að endurheimta
allt egypskt land, heldur verður
hann einnig að komast að viðun-
andi samningi um réttindi Pal-
estínumanna. Það sem heldur
vöku fyrir Sadat um þessar
mundir er óttinn við, að þrátt
fyrir vinalætin við Bandaríkja-
menn muni Reagan ekki styðja
hann nógu dyggilega, að Begin
muni komast upp með það að
innlima Vesturbakkann smátt
og smátt og að sjálfur verði
hann auðmýktur frammi fyrir
arabískum andstæðingum sín-
um.
Um þetta er Sadat að hugsa,
þessi mál, sem skipta svo miklu
fyrir framtíð Egypta og orðstír
hans sjálfs. Það er því ekkert
skrýtið þó að Sadat renni í skap
þegar erlendir fréttamenn, sem
ættu að sýna honum samúð og
skilning að honum finnst, fara
að gera veður út af því að nokkr-
ir vandræðagemlingar eru tekn-
ir úr umferð. — sv.
Northampton,
NNl 3PU,
England.
Indverskur piltur, 22 ára, óskar
eftir pennavinum. Hefur áhuga á
tónlist, frímerkja- og póstkortas-
öfnun o.fl.:
Paul Jai Sharma.
Sadar Bazar Samana 147101,
India.
Fyrirliggjandi
Rauðarárstíg 1,
sími 11141.
stiginn
Hversvegna aö láta sérsmíöa stiga, þegar
hægt er aö kaupa Ljusdals stiga tilbúinn til
uppsetningar? A myndunum sézt hversu
lítiö fer fyrir stiganum ósamsettum, og
hvernig hann veröur, tilbúinn til notkunar.
Ljusdals stigann getur þú sett upp sjálfur og
þaö á stuttum tíma.
Furulímtré
Ljusdals stiginn er unninn úr massivri furu,
svokölluöu límtré. Furan er límd saman í
bitum sem gefur stiganum mikla mótstööu
gagnvart raka og hitastigsbreytingum.
Furu-límtréö er bæöi fallegt og veitir hlýlega
tilfinningu.
Stadalstærðir
Ljusdals stiginn er framleiddur í 7 geröum,
— „beinir“, — „L“ laga og „U“ laga. Þar aö
auki eru þeir framleiddir í mismunandi
hæöum (240—270 sm). Alls veröa þetta 48
mismunandi geröir stiga svo aö einhver
þeirra ætti aö henta þér.
Uppsetning
í pökkunum er ekki bara stiginn heldur
einnig allt sem þarf til þess aö ganga frá
stiganum á sínum staö, — skrúfur, lím og
tréfyllir. Þaö eina sem vantar er hamar og
skrúfjárn.
Fylgihlutir
Meö Ljusdals stiganum má fá handriö,
rimlaverk og lokanir viö stigapalla, allt úr
límtré.
Allar upplýsingar ásamt myndlista veita,
ka|mar
innréttingar hf.
SKEIFUNNI8, SÍMI82011.