Morgunblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 5 Leiðarar Morgunblaðsins lesnir daginn eftir RÍKISÚTVARPIÐ hefur sent MorKunblaðinu bréf, þar sem frá því er skýrt, að framvegis þurfi leiðarar dagblaða að hafa borizt fréttastofu útvarps fyrir kl. 17.00 dag hvern eða fyrir kl. 20.00, ef blöðin stytti leiðarana sjálf. Morgunblaðið hefur svarað bréfi útvarpsins á þann veg, að lestur leiðara í útvarp hafi verið tekinn upp skv. ákvörðun útvarpsráðs á sinum tima, leiðarar Morgunblaðsins séu skrifaðir fyrir lesendur blaðsins til birtingar i blaðinu en ekki til lesturs i útvarp og þessi timamörk henti Morgunblaðinu ekki. Glöggt dæmi um það er leiðari blaðsins i gær um morðið á Sadat, sem augljóslega var ekki hægt að skrifa innan þessara timamarka. Þess vegna hefur Morgunblaðið bent útvarpinu á að lesa leiðara blaðsins daginn áður og hefur það fyrir- komulag þegar komið til framkvæmda. Hér fer á eftir bréf útvarpsins og svarbréf Morgunblaðsins: Bréf útvarpsins „Útvarpsráð hefur í umræðum um lestur úr forystugreinum dagblaðanna í útvarpi talið æski- legt að ritstjórar sjálfir styttu — eða létu stytta — forustugreinarn- ar í um það bil 1% mínútu lestr- arlengd. Óskum um þetta hefur verið misjafnlega tekið. Á fundi sínum þriðjudaginn 29. f.m. samþykkti útvarpsráð, að for- ustugreinarnar skyldu styttar í um það bil 1% mínútu lestrar- lengd. Skulu þær berast í frétta- stofu fyrir kl. 17.00, nema ritstjór- ar stytti sjálfir — eða láti stytta — þá fyrir kl. 20.00. Ákvörðun þessi tekur gildi frá og með 5. október nk.“ Svarbréf Morgunblaðsins „Vegna tilkynningar frá Ríkis- útvarpinu dags. 1. okt. sl. þess efn- is, að framvegis skuli leiðarar hafa borizt fréttastofu útvarps fyrir kl. 17.00 og fyrir kl. 20.00 stytti blöðin sjálf leiðara, vill Morgunblaðið taka eftirfarandi fram: Lestur leiðara í útvarp var ekki hafinn að ósk Morgunblaðsins, heldur skv. ákvörðun útvarpsráðs á sínum tíma. Leiðarar Morgunblaðsins eru skrifaðir til birtingar í blaðinu fyrir lesendur blaðsins en ekki til upplestrar í útvarp. Morgunblaðið getur ekki miðað skrif leiðara við þann tíma, sem hentar Ríkisút- varpinu. Meðan lestri leiðára er haldið áfram vill Morgunblaðið því benda Ríkisútvarpinu á að lesa leiðara blaðsins daginn áður, enda komi það skýrt fram að svo sé og komi þetta fyrirkomulag til fram- kvæmda nú þegar." Fyrstu áskriftar- tónleikarnir FYRSTU áskriftartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands á starfs- árinu 1981/’82 verða í Háskólahiói í kvöld og hefjast þeir kl. 20.30. Stjórnandi verður Jean-Pierre Jacquillat og einleikari Manuela Wiesler. Á efnisskránni verða eftirtalin verk: Páll Isólfsson: Passaraglia. Mozart: Flautukonsert í l)-dúr, Mozart: Andante, Berlios: Sinfonía Fantastique. Stjórnandinn, Jean-Pierre Jacqu- illat, er fæddur í Versölum 1935, lærði við tónlistarháskólann í París og var margsinnis sæmdur 1. verð- launum. I fyrstu stjórnaði hann sem varastjórnandi við Orchester de Par- is og stjórnaði fjölda tónleika heima og erlendis t.d. í USA og USSR og Mexikó. Síðar varð hann aðalstjórn- andi við hljómsveitina í Angers, Ly- on og við Lamoureux-hljómsveitina í París. Hann hefur stjórnað miklum fjölda óperusýninguna í Briissel. París, New York, Buenos Aires og víðar. Ennfremur gert hljóðupptök- ur á vegum EMI, Pathé og Marconi. Hann á sæti í dómnefnd Parísar- óperunnar og hefur verið sæmdur heiðursmerki Parísarborgar. Manuela Wiesler, einieikarinn á þessum tónleikum, fæddist í Brasilíu 1955 en er af austurrísku bergi brot- in. Eftir að hún útskrifaðist sem ein- leikari frá tónlistarháskóla Vínar- borgar hefur hún sótt einkatíma hjá Alain Marion, James Galway og Aurele Nicolet. Hún hefur verið bú- sett á íslandi siðan 1973 og haldið fjölda tónleika bæði hér heima og erlendis og gert útvarps-, sjónvarps- og plötuupptökur. I vetur mun Manuela koma fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveitinni í Þrándheimi, Bergen og Stokkhólmi. Smygl fannst í Stuðlafossi: 180 flöskur af áfengi EITT hundrað og áttatíu flöskur af áfengi fundust i Stuðlafossi i Kefla- víkurhöfn á þriðjudagsmorgun, og hafa fjórir skipverjar viðurkennt að eiga smyglvarninginn. samkvæmt upplýsingum sem Morgunhlaðið fékk hjá Kristni Ólafssyni toll- gæslustjóra i gær. Sagði Kristinn í samtali við Morg- unblaðið að um helmingur varnings- ins hefði verið kominn út í bíl við höfnina þegar tollgæsluna bar að, og hefði þá bíllinn verið stöðvaður. Þá hefði hinn heimingurinn fundist við leit í vélarrúmi skipsins. Sagði Krist- inn að andvirði áfengisins væri um 43.000 krónur, og yrði málið sent saksóknara. Þá gat hann þess að samkvæmt áfengislögum væru sektir miðaðar við útsöluverð áfengis á hverjum tíma, og kvaðst hann því telja að sektargreiðslan yrði um 43.000 krónur. Aldrei glæsilegra úrval af herra velour inni- settum frá finnwear V E R Z LU N I N GEfsiBP EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AUGLYSINGA- SIMINN KR: 22480 RD-800 Utvarp/segulband-stereó/FM-AM -LW-SW/tveir innbyggðir hljóðnemar/ sjálfvirk upptaka/innstillingar mælir f/út- varpið/CrO2/220-9 volt/verð: 2050 kr. RD-745 Utvarp/kassettusegulband-stereó /FM-AM-LW-SW/10 watt/220-9 volt/inn- stillingar mælir/LCD Quartz klukka/inn- byggðir hljóðnemar/sjálfvirk upptaka/ verð: 2380 kr. RD-740 Utvarp-kassettusegulband/FM- AM-LW-SW/10 watt/innbyggðir hljóð- nemar/innstillingar mælir/220-9 volt/ sjálfvirk upptaka/verð: 1963 kr. CR 360 Útvarp-kassettusegulband/Mono/ FM-AM-LW-SW/tveir hátalarar/4.3 watt/ innbyggður hljóðnemi/sjálfvirk upp- taka/220-6 volt/verð: 1313 kr. CR 365 Útvarp-kassettusegul CS 605 Kassettusegulband-mono CS 648 Kassetusegulband-mono/ PD 551 Vasasegulbandstæki- PR 223 Vasasegulband-kassetu- band/Mono/FM-LW-AM-SW/ /chrome stilling/sjálv. upptaka/ sjálv. upptaka/innb. hljóðnemi/ kassettu-stereó/heyrnartæki stereó/með heyrnartækjum/FM- Quartz klukka/sjálfv upptaka/ innb. hljóðnemi/verð: 654 kr. CrO2/220-6 volt/verð: 826 kr. fylgir/metal og chrome/f/rafhlöð- stereó útvarp/metal og chrome hljóðnemi/220-6 volt/verð: 1687 kr. ur/verð: 1130 kr. stilling/fyrir rafhlöður/verð 1290 e AKRANES Bjarg SAUÐÁRKRÓKUR Radio og sjónv. þjónustan SEYÐISFJÖRÐUR Versl. Stál BORGARNES Kaupf. Borgf. B. AKUREYRI KEA EGILSSTAÐIR Versl. Skógar ÍSAFJÖRÐUR Póllinn SIGLUFJÖRÐUR Versl. ögn HELLA Versl. Mosfell , BOLUNGARVÍK Einar Guðf. HÚSAVÍK Bókav. Þórðar Stef. SELFOSS Radio og Sjónv stgfan. FÁLKINN SUÐUHLAN0SBRAUT-8 • •SÍMI85884'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.