Morgunblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981
Hveragerði:
Kjörís framleidd-
ur, en ekki seldur
IIveraKorAi. 29. sopt.
HÉR t Hverajferði er fyrirta-ki scm
Kjörís heitir ok framleiðir marjcar
Korðir af is í pökkum. pinnum ok
istertum. Öll er framleiðslan til
s<jma enda er fyrirtækið vel rekið
ok t>ar rikir þrifnaður ok snyrti-
mennska bæði innan dyra ok utan.
Okkur húsmæðrum finnst þvi al-
vck kjörið að fara ok kaupa Kjöris
í annarri hvorri matvöruverslun-
inni hér. en fáum þá þetta svar:
„Því miður. hann fæst ekki. bara
Emmessis.“ Ék skil ekki hver hefur
ávinninK af þvi að flytja isinn sem
hér er framleiddur út um allt land.
en flytja Emmessis hinKað i stað-
inn. ja ekki við húsmæðurnar. Auð-
vitað er sjálfsaKt að háðar teKund-
irnar seú á hoðstólum.
Að vísu er hægt að kaupa Kjörís í
verksmiðjunni á vinnutíma, en
hvorki á kvöldin eða um helgar. En
þá er þess að gæta, að þeir einir geta
keypt mikið magn af ís í einu, sem
eiga góðar frystikistur, því raf-
magnið hér er svo óstöðugt að illt er
við að búa, og hefur í sumar oft
verið rafmagnslaust frá miðnætti
til kl. 7 að morgni, vegna tenginga.
Þá er allt orðið heldur ómatarlegt í
frystihólfum kæliskápanna.
Framkvæmdastjori Kjöríss, Haf-
steinn Kristinsson hefur tjáð mér,
að ekkert sé til fyrirstöðu frá sinni
hálfu að selja verslununum ísinn og
hafi hann ætíð staðið þeim til boða.
Heiti ég á ráðamenn þeirra að ráða
bót á þessu og bæta þar hag okkar
Hvergerðinga.
Sigrún
Hið íslenska bókmenntafélag:
Gefur út bók um bókfræði
ÚT ER komin hjá hinu islenska
h<>kmenntafélaKÍ. Islensk b<jkfræði,
eftir þá Einar G. Pétursson og Ólaf
F. Hjartar. Undirtitill bókarinnar
er „helstu heimildir um islenskar
ba-kur og handrit". <>k gefur nafn
b<jkarinnar nokkuð KÓða visbend-
ingu um innihald hcnnar.
Fremst í bókinni er kaflinn Um
b<>kaskrár eftir Ólaf, en þar er gerð
grein fyrir bókaskrám almennt og
höfð hliðsjón af erlendum ritum. I
frétt frá Hinu íslenska bókmennta-
félagi segir annars, að aðalmarkmið
þessarar bókar sé að geta skráa sem
til eru um íslensk rit í öllum grein-
um. Þess vegna séu í bókinni al-
mennar bókaskrár, skrár um ein-
staka efnisflokka, ritaskrár ein-
staklinga, efnisskrár tímarita, skrár
frá einstökum útgáfustöðum, bók-
menntasögur, almenn mannfræðirit
og stéttatöl og margt fleira.
Oft fylgir titlum umsögn til
glöggvunar á efni skránna. Efnið er
flokkað, en efnisorðaskrá og registur
auðvelda notkun bókarinnar. Sér-
stakur kafli er um handrit, sem er
fyllsta greinargerð um skrár um ís-
lensk handrit, hérlendis sem erlend-
is, sem völ er á, segir í fréttatilkynn-
ingu Bókmenntafélagsins um hina
nýju bók.
SÖFNUÐIR landsins munu halda
dag fatlaðra á sunnudaginn kem-
ur. Viða munu fatlaðir prédika
og gerðar verða ráðstafanir til
þess að fatlaðir geti átt greiðari
aðgang að guðþjónustum.
Sérstök nefnd skipuð þeim sr.
Jóni Dalbú Hróbjartssyni, Krist-
ínu Sverrisdóttur, sérkennara og
Sigurði Björnssyni, menntaskóla-
nema, hefur sent margvíslegt efni
til presta og safnaða til nota
þenna dag, bæði við guðsþjónustur
og aðra fundi í söfnuðum. Annar
sunnudagur í október hefur um
skeið verið hinn alþjóðlegi dagur
fatlaðra víðast um hinn kristna
heim.
Á ári fatlaðra hefur hann að
sjálfsögðu fengið enn meiri
áherzlu. Við útvarpsguðsþjónustu
á sunnudag prédikar sr. Valgeir
Ástráðsson, sem er stjórnarfor-
maður Sólheima í Grímsnesi, en
þar rekur þjóðkirkjan heimili
fyrir vangefna, eins og kunnugt
er.
Víða í kirkjum eru nú heyrnar-
tæki fyrir heyrnarskerta, en mjög
skortir á að nægilega auðveld að-
koma sé að kirkjuhúsum fyrir
fatlaða. Má geta hér fordæmis
Langholtssafnaðar í Reykjavík, en
safnaðarheimilið þar var byggt
með aðstæður fatlaðra í huga.
Lögð er áhezla á, að hinar nýju
kirkjur sem eru í byggingu geri
allar ráð fyrir þörfum fatlaðra.
(FréttatilkynninK.)
Dagur fatlaðra í kirkj-
um landsins á sunnudag
Útgáfunefnd hulsturbókarinnar eru bröstur Lýðsson t.v., sem er gjaldkeri JC i Mosfelissveit, næstir
honum eru: formaður útgáfunefndarinnar Hlynur Árnason, Árni Átlason gjaldkeri fjáröflunarnefnd-
ar og Guðmundur Lúðviksson blaðafulltrúi Landsstjórnar JC.
Athyglisverð nýjung:
Hulsturbók um slysavarnir
JC-Mosfellssveit hefur gefið út
ítarleg upplýsingakort um
skyndihjálp i nýstárlegum og
handhægum umbúðum. Hér er um
að ræða kort, sem eru i plast-
hulstrum og eru ekki stærri um
sig en spilastokkur. Iiulsturbókin
er 42 blaðsiður að stærð og i
henni eru upplýsingar um flest
þau óhöpp og slys, sem kunna að
henda i daglegu lífi ásamt leið-
bcininKum um hvernÍK eigi að
bregðast við þeim. Meðal þeirra
slysatilfclla. sem fjallað er um
eru: brunasár, drukknum, eitrun,
eldsvoði, gaseitrun, lost, kal,
oíkælinK. skordýrabit, umferð-
arslys og margt fleira.
Sögðu forsvarsmenn útgáfunnar,
sem boðuðu til blaðamannafundar
í tilefni útkomu hulsturbókarinnar
að hugmyndin að henni væri kom-
in frá Noregi en bílgreinasam-
bandið þar í landi hefði gefið slíka
bók út. Að sögn forsvarsmanna þá
beittu JC-menn sér fyrir því verk-
efni á þessu ári, að leggja öryrkj-
um lið, tengdist þessi útgáfa vel
því markmiði. Því þeir legðu
áherslu á að rétt viðbrögð í upp-
hafi slyss gætu komið í veg fyrir af
afleiðingar slysa verði alvarlegri
en á horfir í fyrstu.
Því væri nauðsynlegt fyrir hvern
og einn að hafa þekkingu á skyndi-
hjálp og upplýsingar og leiðbein-
ingar við hendina, því enginn vissi
hvenær til þeirra þyrfti að grípa.
JC-Mosfellssveit stefnir að því,
að hulsturbókunum verði komið í
hvern bíl á íslandi. Til að byrja
með hefur bifreiðaumboðunum
verið boðin hulsturbókin til kaups
og hugmyndin er að þau láti eina
slíka bók fylgja hverjum nýjum
bíl, sem seldur er. Þá hafa lyfja-
búðir sýnt þessum bókum áhuga og
til greina kemur að ein svona bók
verði meðal annarra nauðsynja í
sjúkrakössum.
Upplýsingar í bókinni eru mjög
aðgengilegar. Fremst er efnisyfir-
lit, síðan er mjög fljótlegt, að fletta
upp á hverju efnisatriði og oftast
fylgir mynd með. Spjöldin varð-
veitast mjög vel til dæmis í bíl þar
sem búast má við að þau verði
fyrir hnjaski.
Ef ágóði verður að útgáfu hulst-
urbókarinnar mun hann renna til
verkefnisins „Leggjum öryrkjum
lið“.
Hulsturbókin var prentuð í 4000
eintökum, þýðandi texta er Bogi
Arnar Finnbogason, en Haukur
Kristjánsson læknir á slysadeild
Borgarspítalans las handritið yfir.
Um 15% hækkun á kísiljárni, en verulega minnkandi sala:
Ýmis teikn um batnandi
tíð þegar á næsta ári
- segir Jón Sigurðsson, forstjóri íslenzka járnblendifélagsins
„ÞVf er ekki að neita, að markað-
urinn hefur vcrið fremur daufur
að undanförnu. Það varð að visu
um 15% hækkun fyrir skömmu.
en hún kcmur niður á magninu,"
sagði Jón Sigurðsson, forstjóri is-
lenzka járnhlendifélagsins, i sam-
tali við Mbl., er hann var inntur
íslenzkar listakonur sýna í Þrándheimi
Nú stendur yfir listahátíð i
Þrándheimi sem borgin stendur
að. t Listasafni Þrándheims er
ein stærsta kynning á islenskri
nútímalist til þessa. Eru þetta
tvær myndlistasýningar, ann-
arsvegar Nýlist svokölluð og
hinsvegar grafík.
Forráðamenn Listasafnsins
komu hér í vetur sem leið og
völdu þá listamennina, síðan
hefur undirbúningur átt sér
stað.
Þessir 5 grafíklistamenn
voru valdir: Björg Þorsteinsdótt-
ir, Ekida Jónsdóttir, Jóhanna
Bogadóttir, Ragnheiður Jóns-
dóttir og Valgerður Bergsdóttir.
Sýna þær milli 30 og 40 verk á
Aðdragandi að þessari kynn-
ingu á íslenskri grafik í Noregi
er Félagssýning íslenskrar graf-
íkur ’79 en hún fór víða og vakti
mikla athygli meðal annars í
New York og Þýskalandi. Tvær
af Ustakonunum eru margverð-
launaðar á alþjóðlegum grafík-
sýningum. í kjölfar þessa voru
svo þessar 5 listakonur valdar á
sýningu þessari sem er hin veg-
legasta.
listahátíðina í Noregi. Þess má í
lokin geta að Félagssýning ís-
lenskrar grafíkur verður opnuð á
laugardaginn kemur í Norræna
húsinu, og gefst þá fólki kostur á
að sjá það nýjasta í íslenskri
grafík.
BjörK ÞorHteinsdóttir
Edda Jónsdóttir
Jóhanna BoKadóttir
RaKnheiður Jónsdóttir
ValKerður BerKsdóttir
eftir stöðu mála I sambandi við
sölu á kísiljárni.
Jón Sigurðsson sagði, að vænt-
anlega myndi framleiðsla fyrir-
tækisins á þessu ári verða í kring-
um 35 þúsund tonn, sem er nokkru
minna, en gert hafði verið ráð
fyrir. Sérstaklega hefur verið
dregið úr framleiðslu nú upp á síð-
kastið og verður út árið. Áfkasta-
geta verksmiðjunnar er vel yfir 50
þúsund tonn á ári, þegar báðir
ofnar hennar eru í gangi.
Járnblendifélagið hefur á þessu
ári sent nokkuð magn af kísiljárni
á Bandaríkjamarkað, þrátt fyrir
að aðalmarkaðssvæðið sé í Evr-
ópu. Nýverið fór t.d. 3500 tonna
farmur vestur. Með stöðugt
sterkari dollar hefur verðið á
Bandaríkjamarkaði farið hækk-
andi miðað við Evropu, en það
nýtist hins vegar ekki þar sem
fyrirtækið fær jafnaðarverð fyrir
framleiðslu sína.
Aðspurður um framtíðarhorfur
sagði Jón Sigurðsson ýmis teikn á
lofti um batnandi tíð á næsta ári.
— „Það er allt útlit fyrir, að bæði
Bretland og Þýzkaland séu komin
yfir mestu erfiðleikana og séu á
uppleið. Það er hins vegar spurn-
ing hversu hröð sú þróun verður.
Þá eru Japanir greinilega á upp-
leið og þessir fyrrgreindu markað-
ir eru þeir mikilvægustu," sagði
Jón Sigurðsson, forstjóri íslenzka
járnblendifélagsins að síðustu.