Morgunblaðið - 08.10.1981, Síða 12

Morgunblaðið - 08.10.1981, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 Af fundi alþjóöasambands jafnaðarmanna: Takmörkun vígbúnaðar og eftirlit með vígbúnaði Kjartan Jdhannsson „Alþjóðasambandið og jafnaðarmanna- flokkarnir mótmæla þannig frekari aukn- ingu skammdrægra kjarnavopnaí Evrópu af hálfu beggja aðila, hvort heldur eru SS-flaugar Sovétríkj- anna eða hugmyndir um nifteindasprengjur og eru andvígir fram- leiðslu hennar. í stað þess viljum við jafnað- armenn og samband okkar, að báðir aðilar komi sér saman um ákveðna takmörkun á hernaðarmætti sínum í Evrópu.“ Kjarnorkuvopna- laus svæði Alþjóðasamband jafnaðarmanna telur með sama hætti, að ákvörðun um kjarnorkuvopnalaus svæði eigi að vera liður í heildarsamkomulagi um takmörkun vígbúnaðar. Slík svæði verða þá að fela í sér tilslak- anir af beggja hálfu þannig að jafn- vægi raskist ekki. Það kom glögg- lega fram i máli manna á fundinum í París að fundarmenn voru sam- mála okkur norrænum jafnaðar- mönnum um það, að yfirlýsing um áframhaldandi kjarnorkuvopnaleysi á Norðurlöndum gæti verið gagnlegt innlegg til þess að knýja á um víð- tækara samkomulag um takmörkun vígbúnaðar, en fyrir slíka yfirlýs- ingu þyrfti að koma tilslakanir og samdráttur i kjarnavopnum af hálfu Sovétríkjanna. Einhliða yfir- lýsing af hálfu Norðurlanda án samhengis við umhverfið og ann- arra tilslakana er ekki á dagskrá hjá flokkunum eða forystumönnum þeirra. Þetta er rétt að menn hafi í huga vegna villandi málflutnings, sem sumir aðilar hafa uppi hér- lendis. Sýklahernaður og vopnasendingar til þriðja heimsins Á þessum fundi Alþjóðasambands jafnaðarmanna í París komu líka fram áhyggjur vegna efna- og sýkla- hernaðar. Var krafist tafarlauss banns gegn þessum vopnum. Ennfremur vildu fundarmenn skora á allar ríkisstjórnir að stöðva allar vopnasendingar til þriðja heimsins. Ríkisstjórnirnar einbeiti sér á hinn bóginn að því að koma á friðsamlegum lausnum á þeim vandamálum, sem leiða til vopnaðra átaka í þessum löndum, enda er knýjandi þörf á því fé sem í vopnin fer, til þess að vinna að efnahags- legri og félagslegri uppbyggingu í þessum löndum. eftir Kjartan Jó- hannsson, formann Alþýðuflokksins Takmörkun vígbúnaðar, eftirlit með vígbúnaði og afvopnun er eitt af aðaláhugamálum jafnaðarmanna og Alþjóðasambands jafnaðar- manna. Þessi mál voru m.a. til um- fjöllunar á fundi Alþjóðasambands- ins í París nýlega, sem ég sat. A fundinum- kom fram að jafnvægi yrði að ríkja í hernaðarmætti milli austurs og vesturs ef takmarka ætti vígbúnað og ná fram afvopnun. Jafnframt yrði að eyða tortryggni milli aðila. Það væri hin raunhæfa leið til árangurs. Einhliða sam- dráttur af annars hvors hálfu mundi ekki koma að notum. Yfirlýs- ingum um kjarnorkuvopnalaus svæði í hinum frjálsa heimi, eins og t.d. á Norðurlöndum, yrðu að fylgja tilsvarandi tilslakanir af hálfu Sov- étmanna. Meginhugmyndin er sú að slík ákvörðun um kjarnavopnalaus svæði geti orðið liður í víðtækara samkomulagi um takmörkun víg- búnaðar. Tilboð okkar norrænu jafnaðarmannanna um yfirlýsingu um áframhaldandi kjarnorkuvopna- leysi á Norðurlöndum er ætlað að koma hreyfingu á málin og sækja á um samhliða takmarkanir af hálfu Sovétmanna og knýja á um víðtæk- ara almennt samkomulag um tak- mörkun vígbúnaðar. Framlag Willy Brandts Allt frá því að Willy Brandt, fyrr- um kanslari Vestur-Þýskalands, tók við formennsku í Alþjóðasambandi jafnaðarmanna, hefur sambandið beitt sér af auknum þrótti að tak- mörkun vígbúnaðar á þessu sviði. Flestir kannast við framlag Willy Brandts. Slökunarstefnuna (det- ente) og svonefnda austurstefnu (östpolitik) má rekja til hans. Kalevi Sorsa í formennsku í lok september hélt Alþjóðasam- band jafnaðarmanna fund í París undir forsæti Willy Brandts, sem ég sat. Þar var takmörkun vígbúnaðar tekin til sérstakrar umfjöllunar. Kalevi Sorsa, formaður finnska al- þýðuflokksins og fyrrum forsætis- ráðherra, gerði þar m.a. grein fyrir stöðu vígbúnaðarmála, en hann er formaður nefndar á vegum Alþjóða- sambandsins, sem vinnur sérstak- lega að þessum málum. Fáir þekkja núorðið þessi mál betur en Kalevi Sorsa. Þær umræður, sem þarna fóru fram, voru mjög athyglisverðar og sýndu skýrt stefnu jafnaðarmanna í vígbúnaðar- og afvopnunarmálum. Takmörkun víg- búnaðar og eftirlit með vígbúnaði Aðalmarkmiðið er að fá stórveld in til þess að taka upp að nýju við- ræður um takmörkun vigbúnaðai og koma á eftirliti með vigbúnaði. máli manna kom fram að það vær verulegur áfangi að draga úr víg búnaðarkapphlaupinu og viðvarandi aukinni vopnaframleiðslu. Það mundi varða veginn til samdráttar í vígbúnaði. Þessu vilja allir jafnað- armenn einbeita sér að á þessu stigi vegna þess að þeir gera sér Ijóst, að afvopnun er því miður harla fjar- lægt markmið. Jafnframt er lögð höfuðáhersla á að jafnvægi verði að ríkja í hernaðarmætti milli austurs og vesturs, annars tekst engin takmörkun. Báðir aðilar, Banda- ríkjamenn og Sovétríkin, verða að geta unað samkomulagi um hernað- armátt og vera sannfærðir um að jafnvægi ríki í herstyrk. í þessu sambandi er lögð áhersla á að eyða verði tortryggni stórveldanna í milli. Það er m.a. þessi tortryggni sem knýr vígbúnaöarkapphlaupið áfram. Alþjóðasamband jafnaðar- manna vill beita sér fyrir því að eyða ríkjandi tortryggni. Takmörkun á hernaðar- mætti Evrópu Innan þessa ramma og til þess að stuðla að því, að hreyfing komist á viðræður um takmörkun og eftirlit með vígbúnaði eru svo ræddir ýmsir sérstakir þættir. Alþjóðasambandið og jafnaðar- mannaflokkarnir mótmæla þannig frekari aukningu skammdrægra kjarnavopna í Evrópu af hálfu beggja aðila, hvort heldur eru SS-flaugar Sovétríkjanna eða hugmyndir um nifteindasprengjur og eru andvígir framleiðslu hennar. í stað þess viljum við jafnaðarmenn og samband okkar, að báðir aðilar komi sér saman um ákveðna tak- mörkun á hernaðarmætti sínum í Evrópu. Þessi mörk ættu þá helst að vera lægri en nú er. Um þetta viljum við að stórveldin geri þegar bráða- birgðasamkomulag, meðan frekari viðræður fara fram. Sveltandi heimur Brauð eða vopn Vígbúnaðarmálin verða menn að skoða í því samhengi að það er ekki hægt að kaupa frið með auknum vígbúnaðarkostnaði og þeim 500 milljörðum dollara, sem varið er árlega til vígbúnaðar er betur varið í þróunarverkefni þegar stór hluti mannkyns sveltur. Innflutningsdeild SÍS; Aðstoðarfram- kvæmdastjóri Frá og með 1. nóvember nk. hefur Snorri Egilsson verið ráð- inn aðstoðarframkvæmdastjóri Innflutningsdeildar Sambands- ins I stað Sigurðar Gils Björg- vinssonar, sem hverfur til ann- arra starfa á aðalskrifstofu Sam- handsins. segir i frétt frá SÍS. Snorri Egilsson er fæddur í Reykjavík 30. október 1944. Hann lauk prófi frá Samvinnuskólanum 1966. Starfaði hjá Kaupfélagi Snæfellinga á árinu 1967, réðst þá til Loftleiða hf., síðan Flugleiða og starfaði þar til 1976. Starfaði síð- an við sjálfstæðan atvinnurekstur þar til í mars 1978 er hann réðst til Samvinnuferða-Landsýnar sem skrifstofustjóri og starfaði þar til 15. sept. 1980 er hann var ráðinn skrifstofustjóri Innflutningsdeild- ar Sambandsins og hefur starfað þar síðan. Samþykkt að taka næst lægsta til- boði i búnings- klefa við Laug- ardalslaugina BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum i gær með þremur atkvæð- um gegn einu, þá tiilögu innkaupa- stofnunar. að taka næst lægsta tii- boði I byggingu búningsklefa við sundlaugarnar I Laugardal. Átti ístak þetta tilboð sem hljóð- aði upp á 6,14 milljónir, en lægsta tilboðið átti Sveinn V. Jónsson verk- taki, og var það upp á 5,83 milljónir. Samkvæmt upplýsingum sem Morg- unblaðið fékk hjá Gunnari Eydal skrifstofustjóra borgarstjórnar, er tilboð Istaks um uppsteypu hússins og glerjun, en innréttingar eru ekki með í þessum útboðþætti. Brldge Umsjóni ARNÓR RAGNARSSON Bridgeklúbbur Akraness Aðalfundur Bridgeklúbbs Akraness var haldinn fimmtu- daginn 17. septémber sl. í stjórn voru kosnir formaður Eiríkur Jónsson, gjaldkeri Baldur Ólafsson, og ritari Bjarni Guð- mundsson. Fráfarandi stjórn voru þökkuð vel unnin störf sem voru venju fremur fjölbreytt og unnin af miklum glæsibrag. Firmakeppni hófst síðan 24. september og var spilað tvö kvöld. Úrslit urðu sem hér segir: Skagaradíó, spilari Jósef Fransson 113 Skartgripaversl. Helga Júlíussonar, spilari Björgvin Bjarnason 109 Almennar tryggingar, spilari Guðjón Guðmundsson 109 Síldar- og fiskimjölsverksm. hf., spilari Oliver Kristófers. 109 Stillholt, spilari Vigfús Sigurðsson 109 Meðalskor var 90 stig. Firmakeppnin var jafnframt einmenningskeppni og urðu úr- slit þessi: Jósef Fransson 216 Björgvin Bjarnason 206 Guðjón Guðmundsson 206 Björgúlfur Einarsson 206 Vigfús Sigurðsson 204 Bridgefélag kvenna Siðastliðinn mánudag lauk þriggja kvölda tvímennings- keppni hjá Bridgefélagi kvenna. Sigurvegarar urðu Alda Hansen og Nanna Ág- ústsdóttir. Þær fengu samtals 762 stig, en meðalskor er 630. Næstu sæti skipuðu: Ester Jakobsd. — Erla Sigurjónsd. 732 Steinunn Snorrad. — Þorgerður Þórarinsd. 718 Júlíana ísebarn — Margrét Margeirsd. 699 Ingibjörg Þorsteinsd. — Kristjana Kristinsd. 295 Kristín Þórðard. — Guðríður Guðmundsd. 694 Ósk Kristjánsd. — Guðrún Bergsd. 680 Katrín Þorvaldsd. — Guðbjörg Jónsd. 675 Síðasta kvöldið urðu efstar í A-riðli: Steinunn Snorrad. — Þorgerður Þórarinsd. 242 Halla Bergþórsd. — Kristjana Steingrímsd. 240 Ósk Kristjánsd. — Guðrún Bergsd. 233 Ester Jakobsd. — Erla Sigurjónsd. 232 í B-riðli urðu þcssar efstar: Ingibjörg Þorsteinsd. — Kristjana Kristinsd. 295 Ásgerður Einarsd. — Rósa Þorsteinsd. 256 Gunnþórunn Erlingsd. — Ingunn Bernburg 249 Nína Hjaltad. — Una Thorarensen 229 Á mánudaginn kemur hefst 8—9 kvölda Barómeter tvímenn- ingur. Þær konur sem ekki hafa þegar látið skrá sig tali við Ing- unni Hoffmann. Fyrirlestur um Tónskáld Frakka af yngri kynslóð Vctrarstarf Alliancc Francaisc hefst fimmtudaginn 8. október með fyrirlcstri Philippe Olivier um tónskáld Frakka af yngri kynslóð. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 í Franska bókasafninu, Laufásvegi 12. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Orð Rousseau um að Frakkar ættu enga tónlist og gætu aldrei eignast, eru nú óðum að verða hon- um til skammar því óvíða er gróskumeira tónlistarlíf en í Frakklandi, jafnt í sköpun sem flutningi. Hér eru Frakkar að upp- skera ávöxt markvissrar tónlistar- kennslu, uppbyggingar hljómsveita og tónverkamiðstöðva. Tónskáld þau sem Philippe Olivier mun fjalla um og kynna eru ein afurð þessarar þróunar. Með myndum og tóndæm- um eru tónskáldin kynnt, grein gerð fyrir sérkennum þeirra, verkefnum og áhrifavöldum. Þótt Philippe Olivier sé aðeins 33 ára, hefur hann þegar öðlast nafn í Frakklandi sem tónlistarkynnir, blaðamaður og þýðandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.