Morgunblaðið - 08.10.1981, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981
Úr þessari korngeymslu fá ís-
lendingar það korn, sem flutt er
ósekkjað frá Bandarikjunum
hingað til lands.
Svo lan>ít sem augað eygir er
breiða af kolavögnum við hafn-
irnar i Norfolk. Newport News
og Portsmouth. Kolin eru flutt
með járnbrautum frá námunum
inni í landi og síðan sjóleiðis
bæði til Japan og Vestur-Evrópu.
Umsvifin í kolaflutningum hafa
margfaldast siðustu ár.
Fyrir tilstuðlan fyrirtæk-
isins A.L. Burbank, sem er
umboðsaðili Eimskipafélags
íslands í Kandaríkjunum og
hefur 8 manns í skrifstofu
sinni í Norfolk í Virginíu-
ríki, flaug ég í þyrlu yfir hið
gífurlega hafnarsvæði, sem
er umhverfis Norfolk.
Svæðið skiptist milli að
minnsta kosti þriggja hafna,
í Norfolk. Portsmouth og
Newport News.
Hvert sem augað eygir blasa
við skip af hinum margvíslegustu
gerðum, herskip, flutningaskip
og farþegaskip. Risavaxnar
skipasmíðastöðvar og flotkvíar
setja einnig svip sinn á hafnar-
svæðið. Eimskipafélagið heldur
uppi reglubundnum ferðum til
Norfolk og koma skip þess þang-
að á viku til 10 daga fresti. Ung-
ur maður Richard H. Behrens
veitir skrifstofu A.L. Burbank
forstöðu, en allt starf skrifstof-
unnar í Norfolk snýst i kringum
þjónustu fyrir Eimskipafélagið
og viðskiptavini þess. Thomas
Neale hefur um langt árabil ver-
ið burðarásinn í Bandaríkjunum
fyrir Eimskipafélagið en vegna
veikinda hefur störfum verið af
honum létt. í sumar afhenti
Hans G. Andersen sendiherra í
Washington Thomas Neale
fálkaorðuna fyrir góð störf í
þágu íslenskra hagsmuna. Þá var
Pétur Johnson um margra ára
skeið fulltrúi Eimskipafélagsins i
Norfolk en hefur nú látið af
störfum fyrir aldurs sakir.
í Norfolk eru höfuðstöðvar
bandaríska flotans á austur-
strönd Bandaríkjanna og þaðan
er því fluttur meginhluti varn-
ings til varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli. Eins og menn
muna hefur á stundum verið
hörð samkeppni um þessa flutn-
inga og nýlega hóf Hafskip sigl-
ingar til Norfolk.
Því er betur lýst með orðum en
myndum, sem fyrir augun bar í
Norfolk og er því vísað til þeirra.
Auk þess sem umboðsmenn Eim-
skipafélagsins kynntu mér stað-
hætti hafði ég tækifæri til þess
að fara um herskipahöfnina með
Howard Matson skipherra, sem á
sínum tíma var blaðafulltrúi
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli en er nú annar æðsti stjórn-
andi fréttadeildar flotans í Nor-
folk. Birti ég einnig myndir úr
þeirri för og frá flugvelli flotans
skammt frá Norfolk.
Bj.Bj.
í þyrlu yíir Norfolk og
skoðunarferð um herskip
Eitt nýjasta skipið í bandaríska
flotanum er tundurspiilirinn
USS KIDD, sem enn er við
reynslusiglingar, þar sem áhöfn-
in er þjálfuð í meðferð hinna
flóknustu rafeindatækja og þol
skipsins reynt við erfiðustu að-
stæður, til dæmis með þvi að
sprengja öflugar dýnamit-
sprengjur rétt við kinnunginn á
því. USS KIDD er fyrsta skipið af
þessari gerð tundurspilla, sem
ráðist var í að smiða fyrir ír-
anskeisara en Bandarikjastjórn
yfirtók smiðasamningana eftir
fall hans. Skipið er búið tækjum
til gagnkafbátahernaðar, um
borð í þvi er þrívíddarratsjá, sem
notuð er til að finna og miða á
flugvélar, þá flytur skipið tvær
LAMPS-þyrlur. Það er 9300 lest-
ir, áhöfnin telur um 350 manns,
það er knúið áfram af gastúrbin-
um og getur siglt á meira en 30
hnúta hraða.
í brúnni á USS KIDD, til vinstri er Iloward Matson upplýsingastjóri og
við hlið hans William J. Flanagan skipherra, sem sagðist hafa komið tii
íslands og minntist stuttrar dvalar sinnar hlýjum orðum. Skipherrann
hefur lokið háskólaprófum bæði i raunvisindum og hugvisindum og er
þar að auki útskrifaður úr Harvard Business School.
Það voru ekki mörg herskip i höfninni i Norfolk þessa daga um miðjan
september vegna þess, hve viðtækar flotaæfingar stóðu þá yfir á öllu
Atlantshafi.