Morgunblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 22 MORÐIÐ Á ANWAR SADAT AP-HÍmamynd. Ejjypskur hermaður, sem særðist í árásinni á Sadat, er borinn í burt á börum en skammt frá sést hvar öryggisverðir leiða á milli sín ljósmyndara. Egypskir öryggisverðir lögðu hald á þær ljósmyndir af atburðinum, sem þeir komu höndum yfir. Shazli ber víur í nýja leiðtoga Nikósíu. 7. október. AP. ÚTVARPIÐ í Libýu hafði það í dag eftir Saadeddin Shazli, hershöfð- ingja og útlægum forystumanni egypskra stjórnarandstæðinga, að hann væri fús til að taka upp samstarf við nýja leiðtoga Egypta, ef Camp David-samkomulaginu yrði varpað fyrir róða. Líbýuútvarpið sagði, að Shazli teldi Mubarak, líklegan eftirmann Sadats, „ekki bera ábyrgð á mis- tökum Sadats“ og að hann skoraði á hann að leysa úr haldi alla póli- tíska fanga og aflýsa neyðar- ástandinu i landinu. Þetta er önn- ur yfirlýsingin frá Shazli en sú fyrri var lesin í útvarpinu í Alsír. Þá skoraði hann á egypska herinn að „bregðast skjótt við og binda enda á svikin og samvinnuna við zíonismann og heimsvaldastefn- una“. Fréttaskýrendur líta svo á, að ósk Shazlis um samstarf við ný stjórnvöld í Egyptalandi sé um leið viðurkenning hans á því að fyrri áskorun hans hafi engan árangur borið. Shazli var forseti egypska her- ráðsins í stríðinu við Israela 1973 og af mörgum lofaður fyrir fram- göngu sína þá. Þrátt fyrir það lét Sadat hann fara frá og skipaði hann sendiherra í Portúgal og Bretlandi. Shazli sagði skilið við Sadat vegna friðarumleitana við ísraela og hefur síðan verið í for- svari fyrir útlægum, egypskum stjórnarandstæðingum, þ.á m. kommúnistum. Egyptaland: Þjóðin sem lömuð af vantrú og hryllingi Kairó, 7. október AP. EGYPSKA þjóðin er sem lostin herfjötri, sólarhring eftir að sagt var frá voveiflegum dauða leiðtoga hennar, Mohammad Anwar Sadat. A strætum borgarinnar er annarlega hljótt og ysinn og þysinn á kaffihúsunum er undarlega fjarri. Við allar helstu byggingar og meiri- háttar vegamót eru brynvarðar bifreiðar og hermenn- irnir hafa ekki byssuna um öxl, heldur fingurinn á gikknum. „Ég get ekki trúað því að þetta hafi gerst í Egyptalandi," sagði Amira Saied, ung kona, sem býr skammt frá forsetaaðsetrinu. „Við erum rólynt og ánægt fólk, ofbeldi og blóðsúthellingar hafa ekki ein- kennt sögu okkar." „Hvernig gat þetta gerst? Þetta er eins og martröð, sem ég vildi geta vaknað upp af,“ sagði Ayman Samieh, ungur háskólastúdent. „Ég hef kynnst ofsatrúarmönnun- um við háskólann, þeir eru brjál- aðir. Aðeins þeir gætu hafa gert þetta. Það hljóta að vera þeir.“ Haft er eftir áreiðanlegum heimildum, að banamenn Sadats forseta, sex ungir hermenn, séu í flokki öfgasinnaðra múham- eðstrúarmanna, sem berjast fyrir því, að trúarbókstafurinn verði upphaf og endir alls í egypsku lífi. I þeim tilgangi eru öll meðul heil- ög, ofbeldi jafnt sem annað. Þetta er í fyrsta sinn þjóðarleið- togi er ráðinn af dögum í Egypta- landi vorra tíma. Þegar Gamal Abdel Nasser, forveri Sadats, lést af hjartaslagi 1970, einkenndust viðbrögð almennings af móður- sýkislegu æði, gráti og kveinstöf- um, við dauða Sadats er egypska þjóðin sem lömuð af vantrú og hryllingi. AP-HÍmamynd. Egypskur herforingi stendur sem lamaður og yfirkominn á heiðurspallinum þar sem Sadat forseti var veginn á meðan hermenn búa sig undir að flytja á brott þá, sem létust eða særðust í árásinni. PáJl páfi þegar hann minntist Sadats forseta: „Biöjum til gfuðs að egypska þjóðin standist prófraunina“ I 7. október. AP VIÐBRÖGÐIN við morðinu á Sadat, forseta Egyptalands, eru með misjöfnum hætti víða um heim. Á Vesturlöndum syrgja menn hug- rakkan mann og mikilhæfan leiðtoga, en meðal fjandmanna hans í ýmsum Arabaríkjum og annars staðar er fráfalli hans fagnað og Sadat kallaður „persónugervingur svikanna við Palestínumenn“. Henry Kissinger, fyrrv. utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í New York í dag, að morðið á Sadat mætti rekja til „róttækra afla í þessum heimshluta, sem sovéskir leyniþjónustumenn hefðu þjálfað og hefðu sitt aðalaðsetur í Líbýu“. Kissinger nefndi ekki Khadafy, Líbýuleiðtoga, á nafn sér- staklega, en hann hefur fagnað morðinu á Sadat mjög ákaflega, hyllt mennina, sem drápu hann, og skorað á egypska herinn að gera byltingu. Viðbrögðin í Israel einkennast af hneyksl- un og óvissu um framtíðina, einkum friðar- samninganna við Egypta. „Ég á erfitt með að hugsa mér, að Sadat skuli vera látinn, hann var orðinn svo mikill hluti af lífi og vonum okkar allra,“ sagði Yitzhak Navon, forseti Israels. „Hann var hugrakkur her- maður og stjórnmálaskörungur og hann féll fyrir friðinn," sagði Ezer Weizman, fyrrv. varnarmálaráðherra og líklega nánasti vin- ur Sadats í ísrael. Óvinir Sadats í sumum Arabaríkjum þykjast hafa himin höndum tekið vegna dauða hans, en j)ó hvergi eins og meðal Pal- estínuaraba. Hálfum sólarhring eftir að til- kynnt hafði verið um, að Sadat væri látinn dönsuðu þeir enn á götum Beirut-borgar, skutu af byssum sínum upp í loftið og hróp- uðu ókvæðisorð um hinn íátna forseta. I hinum hófsamari Arabaríkjum hefur tíðindunum um dauða Sadats enn verið tek- ið með þögn, að undanskildu Bahrain, þar sem morðið hefur verið fordæmt. „Þótt þjóð- ir okkar greini á um Palestínumálið þá for- dæmum við allt ofbeldi,“ sagði í tilkynningu Bahrain-stjórnar. í flestum dagblöðum í ríkjunum við Persaflóa eru Egyptar hvattir til að skera á tengslin við Bandaríkin og ísrael og taka aftur upp merki samara- bískra hugsjóna. í Sovétríkjunum hafa ekki verið nein opinber viðbrögð við morðinu, en þess í stað eru Bandaríkjamenn sakaðir um áframhald- andi „grófan þrýsting" á þjóðirnar í Mið- Austurlöndum. Tass-fréttastofan sagði einnig frá því, að Brezhnev forseti hefði ítrekað andstöðu Sovétmanna við „sérsamn- inga og uppgjöf" í Mið-Austurlöndum, en með því er átt við friðarsamninga Egypta og Israelsmanna. í öðrum Austur-Evrópulöndum eru við- brögðin með ólíkum hætti. Ceausescu Rúm- eníuforseti minntist Sadats sem „náins vin- ar“ en í Tékkóslóvakíu var Sadat kallaður maðurinn, sem „gafst upp fyrir heimsvalda- stefnunni og zíonismanum, maðurinn, sem sveik Palestínumenn". Talsmenn v-evrópskra jafnaðarmanna og kristilegra demókrata, tveggja stærstu stjórnmálaaflanna, hörmuðu í dag dauða Sadats. í tilkynningu frá Sambandi jafnað- armanna innan EBE sagði, að „málstaður friðarins hefði misst einn sinna bestu manna og að mesti virðingarvotturinn við Sadat væri að tryggja, að hann hefði ekki unnið til einskis". Egon Klepsch, forseti Sambands kristilegra demókrata í Evrópu, skoraði á öll lýðræðisöfl að sameinast „til varnar heimsfriðinum og gegn ofbeldis- mönnum um allan heim“. Páll páfi II, sem í dag kom fram opinber- lega í fyrsta sinn síðan reynt var að ráða hann af dögum í maí sl., bað fólk um að biðja fyrir Sadat, „þessum mikla stjórnskör- ungi, og öðrum fórnarlömbum þessara viili- mannlegu árásar“. Leiðtogar annarra V-Evrópuríkja hafa lýst yfir hryllingi sínum vegna morðsins á Sadat og tjáð aðstandend- um hans og egypsku ríkisstjórninni samúð sína. „Við skulum biðja til Guðs, að egypska þjóðin og leiðtogar hennar standist próf- raunina, að hún geti lifað saman í sátt og samlyndi og haldið áfram leit sinni að friði, sem var æðsta ósk hins látna leiðtoga henn- ar,“ sagði páfi þegar hann ók um Péturs- torgið í opnum jeppa, þeim sama og hann var í þegar sóst var eftir lífi hans fyrr á árinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.