Morgunblaðið - 08.10.1981, Page 25

Morgunblaðið - 08.10.1981, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 25 Sjálfstæðisflokksins eiga vissan siðferðislegan rétt til að vera með. Það er hlaupinn töluverð tíska í það meðal „fína“ fólksins að vera óflokksbundinn. Flokksbundið fólk verður fyrir aðkasti á vinnu- stöðum, það er litið hornauga af atvinnurekendum, kallað allskon- ar ónefnum í blöðum og yfirleitt komið fram við það á hinn rudda- legasta hátt. Þeir sem ætla að vera flokksbundnir verða að geta bitið hressilega frá sér, þess vegna er skiljanlegt að margt stuðnings- fólk Sjálfstæðisflokksins telur það félagslega vörn fyrir sig að vera óflokksbundið. En þegar það er sett á skrá við hliðina á hinum, hver er þá munurinn? Er ekki betra að taka hér upp annað fyrir- komulag? Prófkjör fyrir flokksbundna Langbesta prófkjörsfyrirkomu- lagið virðist vera að halda það milli flokksbundinna eingöngu. Þetta á ekki síður við um aðra flokka en Sjálfstæðisflokkinn. Þátttaka utanflokkamanna og andstæðinga í prófkjöri verður eilíft óánægjuefni meðal flokks- bundinna, því réttur þeirra til að ráða framboði flokksins er alger- lega skýlaus. Allir viðurkenna líka, að ef þátttaka annarra en Sjálfstæðismanna verður nægi- lega mikil, til að verða þunginn á vogarskálinni þá verður að tak- marka hana. Það hefur hinsvegar ekki verið gert vegna þess að fram að þessu hefur ekki verið hægt að sýna fram á að þátttaka andstæð- inga hafi skekkt niðurstöðuna. En menn verða að átta sig á að eftir því sem leikurinn harðnar þá vex hættan. í fyrsta lagi er óánægja flokksbundinna Sjálfstæð- ismanna, sem finnst þeir vera settir til hliðar, vaxandi. í öðru lagi hverfur Sjálfstæðisstefnan meira og meira í skuggann þegar biðlað er til samtaka utan flokks- ins í vaxandi mæli. í þriðja lagi eru því engin takmörk sett hvert frambjóðendur geta teygt barátt- una í leit að fylgi, opið prófkjör er gífurlegt sundrungarafl. Bara út af þessu síðasta atriði þá er það spurning hvort prófkjörsflokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn get- ur nokkurn tíma verið stór flokk- ur. Hlýtur flokkurinn ekki að sundrast þegar hann hefur náð vissri stærð, það er að segja þegar þátttakendur í þessu opna próf- kjöri, þar sem allir þurfa að vera öðruvísi en hinir, eru orðnir nægi- lega margir. Undir slíkum kring- umstæðum er það besta samein- ingarmeðalið, að neyða viðkom- andi frambjóðendur til að afla sér fylgis innan hóps sem er skoðana- lega samstæður og banna sókn á önnur mið. Menn verða líka að átta sig á því, að eftir því sem sundrungin í prófkjörsflokknum vex, því meiri freisting er það fyrir óheiðarleg öfl í andstöðu- flokkunum að skipuleggja skemmdarverkaþátttöku í próf- kjörinu. Og því meiri freisting verður það líka fyrir frambjóðend- ur að höfða til utanflokkamanna og andstæðinga. Þegar þessar staðreyndir eru skoðaðar virðist nauðsynlegt að loka prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, einmitt núna eins og staðan er í dag og láta það ekki bíða. Þetta skapar vissan vanda fyrir óflokksbundið stuðn- ingsfólk, en það er líka eini vand- inn og þann vanda er hægt að leysa. tJnnið er að seinni hluta undirganganna undir Reykjanesbraut á móts við hesthús Fáks, og er umferðinni vikið út í miðeyjuna á meðan. Um þau fer gangstígur frá Miklubraut og upp í Breiðholt. Við Rauðavatn er Vegagerðin að gera undirgöng undir Suðurlands- veg, svo að hin mikla umferð hesta og hestamanna komist þar klakk- laust í gegn. Unnið að þrennum undir- ^öngum á umferðarvegum UM ÞESSAR mundir eru á fram- kvæmdastigi þrenn undirgöng undir aðalbrautir í og við Reykja- vík en þessi göng voru áætlun um umhverfi og útivist 1974, og eru nú að komast í framkvæmd. Þessa dagana er unnið að siðari helmingi undirganga á Reykja- nesbraut á móts við Fákshúsin. en fyrri helmingur þeirra var gerður 1974. Þá er á vegum Vega- gerðar ríkisins verið að gera göng undir Suðurlandsbrautina á móts við Rauðavatn, vegna um- ferðar hestamanna þar. Og í þriðja lagi var í gær samþykkt í framkvæmdaráði heimild til að semja við Illaðbæ um gerð gangna undir Breiðholtsbraut milli Breiðholts I og Breiðholts II, sem ljúka á fyrir 1. des. Samkvæmt samningi við verk- takana við göngin undir Reykja- nesbrautina, Árna Jóhannsson, á verkinu að ljúka fyrir 1. nóvember næstkomandi, að sögn gatnamála- stjóra. Til þess að koma í veg fyrir umferðarhnút á þessum stað verð- ur tvöföld akrein austari brautar- innar flutt í miðju. Verður þetta bráðabirgðaframhjáhlaup malbik- að í dag, 8. október, þannig að morgunumferð úr Breiðholti ætti ekki að verða fyrir frekari töfum vegna verksins, að því er Ingi Ú. Magnússon sagði. Kostnaðurinn við þessi göng er um 0,7 m. króna. Þetta er liður í gangstígum vegna áætlunar um umhverfi og útivist frá 1974 og eiga þeir stígar, sem lagðir voru i sumar að tengja gangstíg frá Miklubraut, með Ell- iðaánum og upp í Breiðholt. Á Suðurlandsbraut hefur verið unnið að undirgöngunum undan- farna daga. Vegagerðin stendur sjálf að þeim framkvæmdum, og hyggst ljúka því í haust. Búið er að leggja framhjáhlaup, sem varð að vera með varanlegu slitlagi. Kostnaður er áætlaður um 1 millj. kr. Mikil umferð hestamanna er þarna yfir veginn, sem er geysileg umferðargata og því eru þessi ungirgöng lögð fyrir umferð hesta og gangandi. Göngin undir Breiðholtsbraut eru við Stöng, rétt á móts við Kóngsbakka og verða unnin á þessu hausti, ætluð gangandi fólki sem þarf að komast á milli hverf- anna. í haust verða gerð undirgöng undir Breiðholtsbrautina á móts við Stöng (rétt hjá Kóngsbakka), til að taka umferð gangandi fólks milli Breiðholts II til vinstri og Breiðholts I til hægri á myndinni. Ljósm. Emilia. „Björgvin sífellt í mót- sögn við sjálfan sig“ BJÖRGVIN Guðmundsson, borg- arfulltrúi Alþýðufiokksins skýrði frá því á fundi útgerðar- ráðs Bæjarútgerðar Reykjavíkur í gær, að hann gæti ekki, eins og fram kom í Mbl. i gær, tekið við starfi framkvæmdastjóra Bæjar- útgerðar Reykjavikur fyrr en um áramót. Hefði borgarstjórn fall- ist á það fyrir sitt leyti og Mar- teinn Jónasson fallist á að gegna starfi framkvæmdastjóra til þessa tíma. Á útgerðarráðsfundinum gagn- rýndi Ragnar Júlíusson útgerðar- ráðsmaður, Björgvin harðlega fyrir - segir Ragnar Júlíusson að skýra frá þessu nú, 7 dögum eftir að hann átti að taka við starfi fram- kvæmdastjóra. Benti Ragnar m.a. á að þó svo að Björgvin hefði haldið í ferð til útlanda þann 20. september, þá hefði ferð hans verið ákveðin í júní. Á fundinum lét Ragnar bóka eftirfarandi: „Ég átel harðlega þau vinnubrögð formanns útgerðarráðs, Björgvins Guðmundssonar, að tilkynna útgerð- arráði fyrst í dag, 7. október, ákvörð- un sína um að koma ekki til starfa sem framkvæmdastjóri BÚR fyrr en um áramót. Rétt er að minna formanninn á eigin tillögu frá 29. apríl sl.: Útgerð- arráð samþykkir að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra Bæjarútgerðar Reykjavíkur lausa til umsóknar. Staðan veitist frá 1. október nk. Um- sóknarfrestur verði til 17. maí nk.“ Þá tók Ragnar fram í sinni bókun að hann treysti Marteini Jónassyni nú sem fyrr sem framkvæmdastjóra BÚR. Þá krafðist Ragnar þess ennfrem- ur, að Björgvin léti í té bréf borgar- stjóra, þar sem hann samþykkir að Björgvin taki ekki við framkvæmda- stjórastöðunni fyrr en um áramót og gerði Björgvin það að lokum. í bréfi borgarstjóra til Björgvins segir: „Vísað til bréfs þíns frá 17. þ.m., þar sem óskað er eftir sam- þykki mínu við því, að þú takir við starfi framkvæmdastjóra Bæjarút- gerðar Reykjavíkur 1. janúar 1982 í stað 1. október nk. í bréfinu er tekið fram, að Marteinn Jónasson hafi fallist á að gegna starfi fram- kvæmdastjóra til þess tíma. Með vísan til þess, að fram- kvæmdastjórn Bæjarútgerðarinnar á því tímabili, sem að framan grein- ir, verður að teljast trygg með þess- um hætti get ég fyrir mitt leyti fall- ist á þessa tilhögun. Upphaf ráðn- ingartíma nýs forstjóra Bæjarút- gerðarinnar var ákveðið af útgerð- arráði. Tel ég því rétt, að breyting þessi verði lögð fyrir útgerðarráð." í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi sagði Ragnar Júlíusson að á þessu öllu sæist bezt að Björgvin væri sífellt í mótsögn við sjálfan sig, enda ermar hans fullar af loforðum. \ i \ Deilan milli Garða- bæjar og Hafnar- fjarðar enn óleyst DEILUMÁL Garðabæjar og Haínarfjarðar um staðsetningu stór- markaðar Fjarðarkaupa við endamörk ba'jarfélaganna er enn óleyst, en eins og komið hefur fram i Mbl., telja Garðbæingar, að Hafnfirð- ingar brjóti með þessari lóðaúthlutun samning sem gerður var í milli bæjarfélaganna við makaskipti á löndum árið 1978. Á kortinu hér til hliðar má sjá staðsetningu stórmarkaðarins. Húsið, sem er 1.800 fermetrar að stærð, stendur við Hólshraun 1, merkt með krossi á uppdrættin- um. Eins og sjá má, er húsið stað- sett rétt við endamörk bæjarfélag- anna, sem merkt eru með brota- strikum og punktum á milli. Breiðari brotastrikin afmarka svæðið, sem Garðbæingar telja að loforð hafi verið gefið um að yrði eingöngu undir iðnað og þjónustu í tengslum við hann. Hafnfirðingar segja aftur á móti, að samningur- inn hafi eingöngu hljóðað upp á að iðnaður skyldi „að mestum hluta“ vera á svæðinu. Telja Garðbæ- ingar, að með staðsetningu stór- markaðar á þessum stað muni uppbygging fyrirhugaðs miðbæjar í Garðabæ enn dragast á langinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.