Morgunblaðið - 08.10.1981, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 08.10.1981, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 Nýjar leiðir í stjórnun Stjórnunarfélagið efnir til námskeiðs um nýjar leið- ir í stjórnun og verður það haldið að Hótel Sögu dagana 13. og 14. október kl. 09—17 hvorn dag. Meðal efnis á námskeiðinu er: — Nýir stjórnunarhættir — Markmiðsbundin stjórnun — Verkefnastjórnun — Hópvinna í fyrirtækjum — Endurgjöf til starfsmanna — Lausn starfsmannavandamála — Mælikvarðar á frammistöðu og árangur Námskeiöið er ætlaö forráða- mönnum fyrirtækja og stofnana. Leiðbeinandi verður Jack Hautalu- oma prófessor í stjórnunarfræöum við Colorado State University í Gandaríkjunum. Honum til aðstoð- ar verður prófessor Þórir Einars- son. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930 SUÓRNUNARFÉIAB ISIANDS SÍÐUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SfMI 82930 Karlmannaföt kr. 199.00 og 795.00. Terylenebuxur kr. 165.00 og 178.00. Gallabuxur kr. 145.00. Flannelsbuxur kvensnið kr. 135.00, karlmannasniö kr. 145.00. Kuldafrakkar kr. 280.00. Peysur frá kr. 74.00. Sokkar kr. 10.00. Frottesloppar kr. 150.00. Skyrtur, nærföt o.fl. ódýrt. Opiö laugardag til kl. 12. Andrés Skólavörðustíg 22 a. Pfeysumar með tiglunum nýkomnar! Litir: ljósgrátt ljósbrúnt dökkblátt BANKASTRÆTI 7 AÐALSTRÆTI4 Dýravernd í framkvæmd eftir Jón Kr. Gunnarsson Rostungurinn Valli víðförli skemmti íslenskum blaðalesend- um fyrir nokkru, er hann gerðist „stop-over“ farþegi á Keflavíkur- flugvelli á ferð sinni frá Englandi til Grænlands. Dagana á undan hafði hann verið umræddur í breskum blöðum, sem útmáluðu umkomuleysi hans, þegar hann rak upp á breskar fjörur, öllum til hinnar mestu furðu. Var vöngum velt yfir þessu ferðalagi á hónum. World Wildlife Fund tekur forustuna Dýraverndunarfólk var á þön- um og margir vísindamenn til kallaðir og spurðir álits. Engin kunni svör, svo því meira var hægt að skrifa. Fréttamenn komust í feitt, því þeim þykir vafalaust tilbreyt- ingarlítið að skrifa bara um efna- hagskreppu heimsveldisins henn- ar Margrétar Thatcher, atvinnu- leysi 3ja milljóna fólks eða svelti fanga á Norður-írlandi. Nú var hægt að ýta þessu öllu til hliðar í bili og vatna músum yfir umkomuleysi Valla víðförla. Hvað skyldi hann vilja þarna í kreppuna á annað þúsund mílur frá viður- kenndum rostungasvæðum. Dýragarður skaut skjólhúsi yfir valla til bráðabirgða. Hin heims- frægu dýrafriðunarsamtök „World Wildlife Fund“ tóku upp forustu á aðgerðum og kváðu upp úr með það, að Valli þyrfti að komast til sinna heimkynna sem snarlegast, hvað sem það kostaði. Ráðherrann Kcngur í málið Ekki vildi Valli éta, en drakk þó svolítið af vatni. Lystarleysið olli þó breskum dýraverndunar- mönnum ekki mestum áhyggjum, því Bretar eru vanir hungurverk- föllum og eiga heimsmet í þeim efnum meðal þegna sinna á ír- landi, uppí 73 daga, að því er ég besti veit. En rostungar eru líka betur gerðir frá náttúrunnar hendi til að þola svelt en mann- fólk. En hið hjartagóða dýraverndun- arfólk á Bretlandi var lánsamt. Það vildi svo til, að íslenskur ráðherra var á ferðalagi um þess- ar mundir og hefur vafalaust viknað eins og aðrir, þegar hann las í blöðum um umkomuleysi Valla. Enda vandamál Valla ekki síðri en vandamál samvinnu- manna fyrir norðan. Islenska ríkisstjórnin brást höfðinglega við, þegar það kom til álita að koma hinum ríkisfangs- lausa Valla á norðurslóðir, en lík- legt heimilisfang var talið Græn- „En nú geta allir verið ánægðir. Valli er komin til Græn- lands, og allir sem við sögu hafa komið, hafa hlotið sínar þakkir, og myndir er hægt að birta um ókomna framtíð, sem vott um makalausa gæsku og fórnfýsi þeirra, sem lögðu á sig ströng ferðalög, skítblankir, alla leið norður í Dumbshöf, í gegnum flókin pappírskerfi misviturra manna.“ land. Kostnaður skyldi greiddur að nokkru af íslenska ríkinu. Bresk blöð fögnuðu ákaft um allt heimsveldið, því nú var Valli orð- inn víðfrægur. Bresk skólabörn voru látin benda á ísland á landakortinu og blaðalesendur sem lesið höfðu um Valla, fengu að vita um leið, hvað íslenski forsætisráðherrann heit- ir, svo þeir gætu nefnt hann með nafni. Slíkt hafði aldrei skeið fyrr. Þetta varð mikil landkynning. Sendibíll skyldi bjarga málinu Þrátt fyrir, að Valli var á fast- andi maga, var hann talinn al- heilbrigður og ferðafær, að áliti breskra iækna. Hann var látinn í kassa. Það var hugulsamt að hafa hann stóran, enda varð að vera pláss fyrir auglýsinga-plaköt velgjörðarfólks á hliðunum. komst nafn Flugleiða meira segja á kass- ann. Nú varð að hafa hraðar hendur og Valla var tryggt pláss í næstu flugvél til Islands. Þess var ein- hversstaðar getið í leiðinni, að ís- lenski forsætisráðherrann væri í sömu vél. Valli var þegar lagður af stað til Islands og umboðsmaður „World Wildlife Fund“, var þegar önnum kafinn í Reykjavík. Hann pantaði sendibíl, því, ekki er um margar fastar ferðir að ræða til Græn- lands. Málin tóku að vandast. Það kom meira að segja til orða að geyma Valla í Sædýrasafninu, ef á þyrfti að halda í nokkra daga. Ekki þótti bresku verndunarfólki það nógu gott og íslenskum afleitt. Dýraverndunarfólkið mætti ekki Ég varð áheyrandi að símtölum verndunarfólks suður á Keflavík- urflugvelli. Gekki á með símhring- ingum tii forsætisráðherra og aðmírálsins á Keflavíkurflugvelli, en þeir tveir voru líklegastir taldir til að greiða fyrir framhaldsferð- um í augum peningalausra um- boðsmanna „World Wildlife Fund“. Umboðsmaður samtak- anna í Reykjavík lét hins vegar ekki sjá sig, en sendi í sinn stað litla sendibílinn og var það hans framlag til Grænlandsferðar. Aðalfundur Kaupmannafélags Austfjarða: Itrekar beiðni til stjórnvalda um að koma í veg fyrir frekari samdrátt í verslunarþjónustu AÐALFUNDUR Kaupmannafé- lags Austfjarða var haldinn í Vala- skjálf, Egilsstöðum, laugardaginn 12. sept. sl. Fundurinn samþykkti einróma eítirfarandi ályktanir: Fundurinn bendir á, að höfuðskil- yrði eðlilegra viðskiptahátta og samkeppni eru frjáls og óheft verð- myndun, en meðan núverandi verð- lagskerfi er við Iýði telur fundurinn það grundvallarþýðingu fyrir smá- söluverslunina að álagning verði raunhæf í öllum vöruflokkum og að við ákvörðun hámarksálagningar verði fullt tillit tekið til minni veltuhraða verslana á landsbyggð- inni. Fundurinn ítrekar þá beiðni til stjórnvalda að þegar í stað verði gerðar sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir enn frekari sam- drátt í verslunarþjónustu á lands- byggðinni. I því sambandi er bent á lækkun rekstrarkostnaðar með niðurfellingu á opinberum álögum s.s. aðstöðugjaldi, sérstökum skatti á verslunarhúsnæði, jöfnun orku-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.