Morgunblaðið - 08.10.1981, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 08.10.1981, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 39 Endurfundir + Danirnir birtu þessa mynd með fyrirsögninni „Endurfundir“, og sögðu: Hér hittast tveir stórir, sem báðir eru nú horfnir. Dirch Passer og Jergen Ryg. Þeir léku báðir i Óðalsbóndanum sem Klaus Pagh sviðsetti haustið 1974. örlðgin höguðu þvi svo til að þeir höfðu ekki sést i heil fimm ár. Svo gengu þeir hvor fram á annan fyrir utan leikhúsið. Stóri Dirch með litla kaskeitið og litli Jenne. Dirch lagði hendur sínar um Jenne og þeir horfðust i augu og brustu i grát. Svo töluðu þeir saman — lengi. bað var svo margt að segja. Fimm ár án þess að sjást. Og þeir leiddust inn á fyrstu æfinguna. Litli Jenne og stóri Dirch. Risarnir. Ég er Anker + Anker Jörgensen hélt nýlega uppá 59 ára afmæli sitt. bað telst ekki hár aldur á þessum tímum, enda er Anker hinn hressasti og stund- ar líkamsrækt eins og ungur maður. Myndin var tekin af honum á bað- strönd við sumar- hús hans, þar sem hann hvíldist frá dagsins önn. Hann á bráðum 10 ára af- mæli sem forsætis- ráðherra og eru Danir mjög sáttir við Anker sinn, og sumir segja meira að segja að hann sé annar Stauning. En Anker segir: — Ég er enginn Thorvald Stauning. Ég er Anker. Anker Jörg- ensen frá Borg- bjergvej í Syd- havnskvarteret. RÓBERT SYFJAR + Róbert Mitchum er létt- lyndur maður. fslendingar sáu hann nýverið sem arftaka Ilumphrey gamla Bogarts i hlutverki Marlows í bíómynd um snjallan reyfara Chandi- ers, Farewell my Lovely. Róbert hefur leikið í fleiri en 50 Holly- wood kvikmyndum, en hann lítur ekki stórt á sjálfan sig — eins og margar stjörnurnar á þeim slóðum. — Ég gerist ævinlega grútsyfjaður, þegar ég horfi á myndir minar, sagði hann nýverið og gekk fram af aðdáendum sinum. félk f fréttum Reagan sparar ekki alls staðar + Meðan Ron- ald sker niður matarpeninga skólabarna og leggur niður heilu ráðuneyt- in. kaupir Nancy matar- stell fyrir 1.5 milljónir is- lenskar. bað segir að minnsta kosti danska blaðið BT. Matarstellið er fyrir 200 gesti og kostaði 7.500 krónur fyrir manninn — eða sem svar- ar góðum mánaðar- launum. í u< T/ • /» m • m • „Joi Tuturisti Jóhann Helgason gengur til liðs við „futurista“popp- arana á nýju plötunni sinni. Hann nýtur aðstoðar Jakobs Magnússonar og Alan Howarth í lögunum „Take Your Time“ og „Burning Love“. Jóhann er einn fremsti lagasmiður og söngvari okkar og kemur hann enn einu sinni á óvart með þessari plötu. Heildsöludreiting staiAor h# Símar 85742 og 85055 HIJOMDEIID IjfcjMARNABÆR ■ Laugavegi 66 — Gi*sib» — AuMurstr-vti /, r Simi fré sluptiborói 0SOSS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.