Morgunblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 47 éi Pétur skoraði gegn Lokeren „VIÐ LÉKUM alls ekki vel í kvöld og áttum ekki skilið að vinna. en það hafðist þó,“ sagði Pétur Pétursson i samtaii við Morgunblaðið i gær- kvöldi. Anderlecht hafði þá fyrir stundu borið sigurorð af Lokeren i belgisku 1. deildinni og skoraði Pétur eitt marka liðs sins. Hann lék nær allan leikinn með liði sinu og Arnór Guðjohnsen lék allan leikinn, nú sem tengiliður. Pétur sagði, að Lokeren hefði leikið mjög vel og haft verðskuld- aða forystu í leikhléi, 1:0, og skoraði Daninn Larsen mark Lokeren. Pét- ur skoraði síðan úr vítaspyrnu í byrjun seinni hálfleiks og í kjölfar- ið fylgdu mörk frá Brille og Geutts áður en Larsen minnkaði muninn í 3:2 skömmu fyrir leikslok. Pétur var tekinn af velli 15 mínútum fyrir leikslok og sagðist ekki vera sérlega ánægður með sinn hlut í leiknum, en það sama mætti segja um flesta leikmenn Anderlecht. Arnór Guðjohnsen lék tengilið að þessu sinni, en framherjar Larsen og Lato. Lubanski var hins vegar ekki í hópnum að þessu sinni. Arnór lét vel af stöðu sinni á miðjunni, en sagði þó, að það tæki tíma að venj- ast henni. - áij. Harka í leik deildarbikarsins TONY Morley skoraði sigurmark Aston Villa gegn Úlfunum á síð- ustu mínútu sögulegs leiks lið- anna i enska deildarbikarnum i gærkvöldi. Andy Gray byrjaði á því að skora fyrir Úlfana, en var síðar rekinn af velli fyrir gróft brot á Denis Mortimer. Þrátt fyrir það jók Joe Gallagher mun- inn áður en Des Brcmner, Andy Blair og Tony Morley tryggðu heimaliðinu sigur með þremur mörkum. Mikill hiti var einnig í mönnum í leik Notts County og Lincoln og tveimur leikmönnum County var vikið af velli. Lincoln, sem leikur í Valur tapaöi VALSMENN töpuðu 118-80 fyrir ensku bikarmeisturunum Crystal Palace í Evrópukeppninni i gær- kvöldi. Leikið var í London og þar fer síðari leikur liðanna einnig fram á föstudag. Fjórir Banda- rikjamenn leika í liði Palace og voru þeir á einni ha'ð fyrir ofan Valsmenn. í leikhléi var staðan 00-26, en síðari hálfleiknum lauk með 58-54, sigri enska liðsins. úr- slitin því 118-80. John Ramsey skoraði 39 stig fyrir Val, Kristján Ágústsson 18, Rikharður Ilrafnkelsson 13 og Torfi Magnússon. sem átti mjög góðan leik í vörninni, gerði 7 stig. þriðju deild og lék á heimavelli, náði jafntefli í leiknum. Deildar- bikarmeistarar Liverpool höfðu hins vegar yfirburði gegn öðru liði úr 3ju deild, Exeter, Ian Ruch (2), McDermott, Dalglish og Whelan skoruðu fyrir Liverpool. Úrslit leikja: MIÐVIKUDAGDR: Aston Villa — Wolves Blackburn Rovers — Sheff. Wed Bradford City — Mansfield Town Derby — West Ham Iieeds — Ipswich Lincoln — Notts County Liverpool — Exeter Man. City — Stoke Newcastle — Fulham Norwich — Chariton Sunderland — Rotherham Tottenham — Man. Utd. LRIÐJUDAGUR: Barnsley — Swansea Birmingham — Nott. Forest Bristol Rovers — Northampton Carlisles — Bristol City Doncaster — C. Paiace Colchester — Cambridge Everton — Coventry Grimsby — Watford Huddersfield — Brighton Luton — Wrexham Middlesbro — Playmouth Millwall — Oxford Oldham — Newport Preston — Leicester QPR — Portsmouth Sheff. Utd. — Arsenal Shrewsbury — WBA Southampton — Chelsea Tranmere — Port Vale UNDANÚRSLIT SKOZKA DEILDARBIKARSINS: Dundee Utd. — Aberdeen St. Mirren — Rangers 2:0 2:3 1:2 0:0 1:0 3:1 1:1 1:0 1:0 0:2 2:1 3:3 1:0 1:0 5:0 1:0 3:3 1:1 2:0 0:1 2:2 Þorsteinn í 16, manna hóp KSÍ „VIÐ höfum valið sama 16 manna hópinn gegn Wales og var gegn Tékkum með þeirri breytingu þó, að Þorsteinn Bjarnason, ÍBK, kemur inn fyrir Guðmund Ás- geirsson, Breiðabliki. Þorsteinn átti við meiðsli að striða fyrir lcikinn gegn Tékkum,“ sagði Guðni Kjartansson, þjálfari is- lenzka landsliðsins, en i gær til- kynnti Guðni skipan 16 manna landsliðshóps gegn Wales i heimsmeistarakeppninni. ís- lenzka landsliðið mætir Wales i Swansca á miðvikudag. Islenzki landsliðshópurinn sem mætir Wales er þannig skipaður: Markverðir: Guðmundur Bald- ursson, Fram, Þorsteinn Bjarna- son, IBK. Aðrir leikmenn: Viðar Halldórsson, FH, örn Óskarsson, Örgryte, Sævar Jónsson, Val, Marteinn Geirsson, Fram, Ásgeir Sigurvinsson, Bayern Múnchen, Janus Guðlaugsson, Fortuna Köln, Atli Eðvaldsson, Fortuna Dússel- dorf, Arnór Guðjohnsen, Lokeren, Pétur Ormslev, Fram, Magnús Bergs, Borussia Dortmund, Sig- urður Lárusson, ÍA, Sigurður Halldórsson, ÍA, Ragnar Mar- geirsson, ÍBK, Ólafur Björnsson, IBK. Fram skíðadeild Þrekæfingar fyrir 14 ára og eldri, konur og karla hefjast fimmtuaginn 8. október kl. 18. Mæting í Framheimilinu viö Safamýri. Þjálfari er Guðmundur Gunnlaugsson. Nýir félagar velkomnir. Pétur fer ekki til Dusseldorf *, § SAMNINGAVIÐRÆÐUR Péturs Ormslev og þýzka félagsins Diissel- ^ dorf virðast hafa siglt í strand og Pétur fer ekki utan að svo komnu máli. llann kom til landsins i gær ásamt Reinke, þýzka umboðsmann- inum, og i gærkvöldi var fundur með þeim og ráðamönnum í Fram. Þar kom fram verulegur ágrein- ingur bæði milli félaganna og einnig vildi Pétur fá ýmsa hluti á hreint hjá Þjóðverjunum áður en hann skrifaði undir samning til tveggja ára. I gærkvöldi var reikn- að með, að Reinke héldi til Þýzka- lands í dag. Pétur ætlaði til Dúss- eldorf á morgun, en af þeirri ferð verður ekki. Hvort samningavið- ræður verða teknar upp að nýju er ekki vitað á þessu stigi, en þá þurfa Þjóðverjarnir að koma veru- lega til móts við Pétur Ormslev og félag hans, Fram. Prúttmarkaóur aö Laugavegi 66, 2. hæö. Opiö í dag kl. 1—6. Lítið sýnishorn af úrvali okkar: Ullarkápur. Stakir dömujakkar. Ullarfrakkar, (lítil númer). Herrabuxur, lítil númer. Buxur: ull, flannel, slétt- flauel, kakhi, rifflað flauei (5 sniö). Hnébuxur. Alullarpeysur. Skyrtur. Blússur. Bolir. Sportblússur. Jakkaföt, (lítil númer). Pils. Sumarkjólar. Ótrúlegt úrval af alls konar efnum metrinn frá 10 kr. Ekkert dýrara en 50 kr. metrinn. H L J0MPL0TUM ARK AÐUR Viö þurfum ekki aö prútta um plötuveröið, því þaö er svo þrælskega lágt. Þú getur fengiö nýjar og gamlar plötur, á klassaprísum og þaö er bezt aö hafa hraöann á, til aö missa ekki af neinu. futute TenP°Ve it r&ti n f* W 1» tt> W.ti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.