Morgunblaðið - 08.10.1981, Síða 48

Morgunblaðið - 08.10.1981, Síða 48
Síminná QQflQQ afgreiðslunni er OOUOO 5 krónur eintakid FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981 Síld hækkar um 19% frá í fyrra: „Get ekki séð að hægt verði að gera bátana út“ - segir Jón Sveinsson á Höfn í Hornafirði „ÉG GET ekki séð að ha‘«t verði að Kera hátana út áfram á síld. Maður átti von á 40% hækkun. en ekki 19%. Allur okkar kostnaður hefur hækkað um 50% frá því á vertíðinni í fyrra. é>{ skil ekki hvernÍK hæKt er að ætiast til þess að við Ketum sætt okkur við þetta verð,“ saKði Jón Sveinsson, útKerðarmaður á Höfn i Hornafirði, um nýja sildarverðið i samtali við MorKunblaðið i Kser. Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút- Kröfugerð Alþýðusambands Vestfjarða: 15% almenn kauphækkun Kref ja einnig ríkisvaldið um jöfnun á kostnaði við búsetu 15% ALMENN kauphækkun, ha>kkun launa þeirra er starfa við fiskvinnslu í 13. launaflokki og að Víðtækar hækkanir Á verðlaKsráðsfundi í Kær voru samhljóða samþvkktar hækkanir á ýmsum vöruteKund- um. Eru þær eftirfarandi: Unnar kjötvörur 13—15%, brauð, svonefnd vísitölubrauð, 8%, benzín 1,9%, gasolía rúmlega 3%, niðursoðnar fiskbollur og búðingar 3%. Þær hækkanir sem nema 8% eða meiru verða að staðfestast af ríkisstjórn. Undirskrift við- skiptaráðherra nægir til hækk- ana er nema lægri prósentutölu. Ríkisstjórnarfundur er í dag. Forsetinn til Noregs og Svíþjóðar FORSETI íslands fer i opinbera heimsókn til Noregs og Svfþjóðar síðari hluta mánaðarins. Vegna veikinda Kekkonens Finn- landsforseta hefur fyrirhugaðri heimsókn forsetans til Finnlands verið frestað. I tengslum við forseta- heimsóknirnar verða haldnir fundir utanríkisráðherra landanna. Heimsóknin í Noregi hefst 21. október og lýkur 23. október. Til Sví- þjóðar fer forsetinn 25. október og lýkur heimsókninni þar 29. október. nýir samningar taki gildi írá og mcð 1. nóvember nk., eru aðal- kröfur Alþýðusamhands Vest- f jarða. sem gengið var frá sl. laug- ardag. Kröfugerð ASV hefur verið send Vinnuveitendafélagi Vest- fjarða. Vinnumálasambandi sam- vinnufélaga og forsætisráðherra, en sérstiik kröfugerð er gerð á hendur ríkisvaldinu. Að sögn Pét- urs Sigurðssonar, forseta ASV, munu vinnuveitendur og alþýðu- samhandsmenn væntanlega i sam- einingu reka þá kröfugerð á hend- ur ríkisvaldinu. Kröfugerð ASV á hendur ríkis- valdinu byggjast í fyrsta lagi, að sögn Péturs á, að kostnaður við bú- setu í landinu verði jafnaður og nefna þeir sem dæmi að afnema eigi söluskatt af flutningsgjöldum, sem þeir telja dulbúinn byggða- skatt, einnig að orkuverð verði jafnað. Þá telja þeir að jöfnun megi ná með hækkun frítekjumarka skatta, hækkun barnabóta og líf- eyrisgreiðslna. — Ef ekki náist úr- lausn í þessum málum, þá verði samið um sérstaka landsbyggðar- vísitölu, sem mæli raunverulegan kostnað landsbyggðarbúa við að lifa. Pétur sagði aðrar kröfur á hend- ur vinnuveitendum vera þessar helstar: Að eftirvinna falli niður, þ.e. að eftir dagvinnu taki við yfir- vinna, reiknuð með 100% álagi á dagvinnu. Krafa um að eftir 10 ára starf hjá sama vinnuveitanda auk- ist orlofið í 27 daga. Útkall verði aldrei minna en fjórar klukkstund- ir. Auk þess nokkrar aðrar veiga- minni kröfur. vegsins ákvað lágmarksverð á síld í gær, en það á að gilda frá upphafi vertíðar til 31. des. nk. Fyrir stærsta flokkinn verða greiddar kr. 2,40 pr. kíló, en fyrir smæstu síldina kr. 0,99 pr. kíló. Nýja síldarverðið var ákveðið af oddamanni nefndarinnar, Ólafi Dav- íðssyni, og fulltrúum kaupenda, Her- manni Hanssyni og Margeiri Jóns- syni. Fulltrúar seljenda, þeir Ágúst Einarsson og Ingólfur Ingólfsson, greiddu atkvæði gegn nýja verðinu og létu gera eftirfarandi bókun: „Við undirritaðir fulltrúar sjó- manna og útgerðarmanna í yfir- nefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins við verðlagningu á síld til söltunar, mótmælum harðlega þeirri verð- lagningu, sem nú hefur átt sér stað, og felur í sér aðeins tæpa 19% hækk- un frá því á sl. hausti, þrátt fyrir að söluverð á saltsíld hafi á sama tíma hækkað um 30% í krónum talið. Við þessa verðlagningu kemur bersýnilega í ljós það hlutskipti Verðlagsráðs sjávarútvegsins að skipta þeim molum, sem eftir eru, þegar allir aðrir aðilar, sem hlut eiga að máli, hafa fengið sinn hlut að fullu upp borinn." Strokkur í Haukadal í síðdegisleik Ljósm. Krislinn Fargjöld í innanlandsflugi: Tel koma til greina að gefa þau frjáls - segir Steingrímur Hermannsson samgönguráðherra „MÉR FINNST það vel koma til greina að gefa fargjöld í innan- landsflugi frjáls, enda er nokkur samkeppni i því.“ sagði Stein- grimur Hermannsson, sam- gönguráðherra, i samtali við Mbl. „Það er alltaf verið að kenna stjórnvöldum um hið mikla tap, sem er á innanlandsfluginu. Segja ástæðuna vera hömlur á eðlilegum hækkunum fargjalda. Með frjálsu verði væri ekki hægt að segja slíkt," sagði Steingrímur Her- mannsson ennfremur. „Það hafa verið nokkrar um- ræður í gangi um innanlandsflug- ið og m.a. óskað eftir upplýsingum frá Fiugleiðum um hvernig mætti minnka hið mikla tap sem þeir segja að sé um 2 milljónir dollara á innanlandsfluginu. Ég hef t.d. nefnt hvort ekki mætta hafa lægra flugfargjald á veturna en á sumrin, þegar bif- reiðaumferð er auðveldari og fleiri útlendingar, sem fljúga innan- lands. Þetta telja Flugleiðamenn ekki koma til greina. Sömuleiðis hefur komið fram sú hugmynd, sem tíðkast erlendis sums staðar, að selja eitt fargjald, hvaðan af landinu sem er, til út- landa, og jafna þannig aðstöðu- mun manna. Þetta telja Flugleiða- menn heldur ekki rétt,“ sagði Steingrímur Hermannsson, sam- gönguráðherra að síðustu. Ólafur Gunnarsson framkvæmdastjóri, Neskaupstað: „Óskhyggja og óraunsæi duga skammt til að takast á við vandamál fískvinnslunnar44 „ÞAÐ SEM fram hefur komið I blöðunum undanfarna daga um rekstrarafkomu fiskvinnslunn- ar, er ekki í neinu samræmi við raunverulegar aðstæður þessa atvinnuvegar,“ sagði Ólafur Gunnarsson, franikvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað. í samtali við Morgunblað- ið í gær. en hann var þá spurð- ur hvort hann teldi afkomu fiskvinnslunnar vera i sam- ræmi við tölur Þjóðhagsstofn- unar. „í fyrsta lagi er tap frystihús- anna meira en fram kemur, sam- kvæmt útreikningum Þjóð- hagsstofnunar, og í öðru lagi er hagnaður af skreiðar- og salt- fiskverkun minni en Þjóðhags- stofnun telur. Það, sem mestu máli skiptir, er, að hagnaður þessara verkunaraðferða, sér- staklega saltfisks er að lang- mestu leyti kominn af síðustu vetrarvertíð og ef einhverjir halda að hægt sé nú að bæta af- komu frystihúsanna með því að salta eða hengja upp fisk, er það mesti misskilningur. Að salta smáan togarafisk skilar engum arði og hjálpar ekki frysting- unni. Að verka fisk í skreið nú undir veturinn er varasamt og víða um land mjög óráðlegt, svo ekki meira sé meira sagt.“ „Það er því rangt að leggja saman tap á frystihúsunum og hagnað af saltfiski og skreið og segja síðan, að fiskvinnslan sé ekki rekin með tapi nú á haust- mánuðum. — Oskhyggja og óraunsæi dugar skammt til þess að takast á við þau vandamál, sem fiskvinnsian á nú við að stríða," sagði Ólafur að lokum. Gaskútssprenging: Tveir menn brenndust illa Sá þriðji fótbrotinn ÞAÐ SLYS varð I verkfæraskúr brúarsmiða að Kollabúðum í Reykhólasveit i gærmorgun, að kósangaskútur sprakk i loft upp og slösuðust þrir menn, sem voru að störfum í skúrnum. Tveir þeirra brenndust mikið, mest á andliti og handicKgjum. sá þriðji fótbrotnaði og brcnndist einnig lítilsháttar. Mennirnir voru flutt- ir flugleiðis til Reykjavikur og eft- ir aðgerð á slysadeild Borgarspít- alans voru þeir fluttir á Landspit- alann. Liðan þeirra var sögð eftir atvikum i gærkvöldi. Slysið varð á níunda tímanum í gærmorgun og virðist leki hafa komist að tengiröri á kútnum með fyrrgreindum afleiðingum. Eldur kviknaði en fljótlega tókst að slökkva hann. Skemmdir urðu nokkrar. Læknar úr Búðardal fóru á staðinn en síðan var flogið með mennina þrjá til Reykjavíkur með vél frá Flugfélaginu Örnum á Isa- firði. Að sögn Gunnars Gunnarssonar lögfræðings Vegagerðar ríkisins er orsök slyssins í athugun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.