Morgunblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981 LÍNUMAÐUR hjá Landsvirkjun slasaAist alvarlefta er hann féll 15 metra úr 23 metra mastri við Haf'avatn við Lanxjökul í gær- mortíun. Slasaðist hann alvar- lef?a innvortis í kviðar- of{ brjóst- holi, handlefíífsbrotnaði ok skaddaðist á mjaðmatírind. 1 Ka’rkvöldi var hann ekki taiinn i lífshættu. Það var laust fyrir klukkan 10 í gærmorgun, að haft var samband við Slysavarnafélag íslands af Landsvirkjun og var SVFÍ beðið að annast um að sækja mjög mikið slasaðan mann, sem fallið hefði úr mastri skammt vestan Mosa- skarðs sunnan Hagavatns við Slasaðist alvarlega við fall úr háu mastri Langjökul. Þar er verið að vinna við háspennulínu frá Hrauneyja- fossvirkjun í Hvalfjörð. Var mað- urinn, sem er tvítugur að aldri, að vinna í 23 metra háu mastri og var í 15 metra hæð er óhappið gerðist. Slysavarnafélagið leitaði til Landhelgisgæslunnar, en þar sem TF-RÁN er í eftirliti gat Gæzlan ekki sinnt þessari beiðni. Var því leitað til Varnarliðsins og beðið um að læknir yrði í för með þyrl- unni, sem héldi af stað sem allra fyrst. Klukkan 10.35 hélt þyrlan í loftið og var læknir frá sjúkrahús- inu á Keflavíkurflugvelli innan- borðs. Klukkan 11.10 var komið á slysstað og hlynnti læknirinn að hinum slasaða áður en lagt var af stað til Reykjavíkur á ný. Hvasst var við Hagavatn og sandrok. Þyrlan lenti síðan við Borgarspít- alann klukkan 12.05 að lokinni vel heppnaðri ferð, en flugstjóri þyrl- unnar í þessari ferð var John Ire- land, yfirmaður björgunarsveitar- innar á Keflavíkurflugvelli. Hvað segja þeir um ákvörðun fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um prófkjör? Fundur fulltrúaráðs sjálfstæðisflokksfélaganna í Reykjavík samþykkti í fyrrakvöld að prófkjör skuli fara fram í lok nóvember nk. til vals framboðslista flokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Samþykkt var, að atkvæðisrétt í prófkjörinu eigi meðlimir sjálfstæðisflokksfélaga i Reykiavík, sem búsettir eru i kjördæminu og hafa náð 16 ára aldri. I öðru Iagi þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem eiga munu kosningarétt i Reykjavik og undirritað hafa inntökubeiðni i sjálfstæðisfélag i Reykjavik. Tillaga stjórnar fulltrúaráðsins um svokallað opið prófkjör, eins og viðhaft hefur verið fram að þessu, varð undir á fundin- um, en tillöguna sem samþykkt var flutti Jónas Eliasson sem viðbótartillögu. Var viðbótartillagan samþykkt eftir miklar umræður og eftir að tvær frávísunartillögur höfðu verið felld- ar. Tillaga Jónasar var samþykkt með 237 atkvæðum gegn 80. Mbl. ræddi i þessu tilefni við nokkra þá sem mest komu við sögu á fundinum, Davíð Oddsson, oddvita borgarstjórnar- flokks Sjálfstæðisflokksins. Einnig var árangurslaust reynt að ná sambandi við Albert Guðmundsson, sem einnig á sæti í borgarstjórnarflokknum. Matthías Bjarnason um síldarverðsákvörðun: „Alvarleg tilraun til að ráðast á þá sem skapa grundvölliim44 „Núllstefna ríkisstjórnarinnar að sjá dagsins ljós,44 segir Kjartan Jóhannsson „SJÓMENN sætta sig ekki við annað en að fá sömu launabætur og aðrir launþegar i landinu og það er ekki við þvi að búast, að útgerðin geti tekið á sig jafn gifurlegar hækkanir og hún hefur orðið að gera á þessu ári,“ sagði Matthías Bjarnason alþingismaður og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra í samtali við Mbl. i gærkvöldi um ákvörðun síldarsjómanna og útvegsmanna að sigla skipum sinum til heima- hafna og hætta sildveiðum þar til sildarverð verði leiðrétt. „Þessi ákvörðun sjómanna og viðbrögð útvegsmanna almennt koma mér ekki á óvart. Það er eðlilegt að þessir aðilar sætti sig ekki við þetta verð, því að þeir telja sig verða að fá hækkun eins og aðrir,“ sagði Matthías. Ríkis- stjórnin hefur hins vegar sett bremsu á tekjur þessara aðila með því að festa gengið. Ég fyrir mitt leyti tel góðra gjalda vert að festa gengið, ef allar verðhækkanir hefðu um leið verið stöðvaðar og dregið væri úr ríkisumsvifum, en það hefur því miður ekki verið gert. Ríkisstjórnin hefur haldið áfram að auka ríkisumsvif, hækka skatta og gjöld til ríkisvaldsins og hún getur því ekki búist við því að fólk taki þessu með jafnaðargeði. Vitaskuld verður að skrá gengi krónunnar á réttu verði og þetta er eitt augljósasta dæmi þess að það eru falsrök sem ríkisstjórnin beitir í sambandi við að henni hafi tekist að minnka verðbólguna á þessu ári. Verðbólgan er geymd í vandamálum atvinnulífsins og með ákvörðun um síldarverð og loðnuverð er gerð alvarleg tilraun Matthías Bjarnason til þess að ráðast á þá aðila sem afla hráefnis í afla og skapa grundvöll undir allt annað sem hægt er að gera í landinu. Hins vegar er ég alltaf þeirrar skoðunar að leita beri allra leiða til þess að ná samningum og því hefði að mínum dómi verið eðli- legra að sjómenn og útvegsmenn hefðu gefið stjórnvöldum einhvern frest til þess að þeir hefðu getað skoðað þessa hluti í réttu ljósi í von um, að þeir tækju skynsam- legri ákvarðanir en gert hefur ver- ið.“ Morgunblaðið hafði einnig sam- band við Kjartan Jóhannsson, en ekki tókst að ná sambandi í gær við Steingrím Hermannsson. „Þessi ákvörðun sjómanna kem- ur mér ekki á óvart, eins og haldið hefur verið á þessum málum,“ sagði Kjartan Jóhannsson, for- maður Álþýðuflokksins og fyrr- verandi sjávarútvegsráðherra í samtali við Mbl. um ákvörðun síldarsjómanna í gær, „þegar menn keyra gengismálin eins hart og gert hefur verið að undanförnu missa menn möguleikann á því að taka tillit til fólks í landinu og þ. á m. sjómanna á síldveiðiflotan- um, þannig að þær ákvarðanir sem þeir verða að taka, bitna harkalega á fólkinu sem vinnur við framleiðslustörfin. Ríkis- stjórnin er að súpa seyðið af sinni eigin stefnu og mátti eiga von á því að til þessa atburðar drægi. Spá mín er sú, að þetta verði ekki einstakur atburður í íslenzku atvinnulífi, heldur sé að koma fram að stefna ríkisstjórnarinnar hefur beðið skipbrot. í stað þess að nota gengissveiflur sem orðið hafa í kringum okkur með eðlilegum hætti, hefur allt verið keyrt í botn á grundvelli þeirrar núllstefnu ríkisstjórnarinnar að taka aldrei ákvörðun í neinu máli og afleið- ingin er nú að sjá dagsins ljós.“ Fulltrúaráð Sjálístæðisfélaganna: Kaus 22 fulltrúa á landsfund Landsfundarfulltrúar úr Reykjavik um 400 talsins FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfé- laganna í Reykjavik kaus á fundi sínum í fyrrakvöld 22 fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn verður í lok þessa mánaðar. Áður höfðu 80 full- trúar verið kjörnir af hinum ýmsu félögum sjálfstæðismanna i horginni á almennum félagsfund- um. og 192 höfðu verið tilnefndir af stjórnum félaganna. Var til- nefning félaganna samþykkt samhljóða og án hreytinga á fundi fulltrúaráðsins i fyrra- kvöid. Auk þessara fulltrúa eru allmargir sjálfkjörnir flokks- ráðsmenn. Samtals eru lands- fundarfulitrúar úr Reykjavik um 100 talsins. Eftirtaldir voru kosnir á full- trúaráðsfundinum á fimmtu- dagskvöld, sem fram fór í Súlna- sal Hótel Sögu: Ágúst Hafberg, 202 atkvæði, Björgvin Schram 195, Björn Hallgrímsson 193, Jóhannes Zoega 192, Ragnar Haildórsson 187, Þorbjörn Jóhannesson 187, Guðmundur Guðmundsson í Víði 181, Már Gunnarsson 178, sr. Jón- as Gíslason 176, Áslaug Friðriks- dóttir 176, Gestur ólafsson. 171, Gunnar Snorrason 162, Gunnar Guðmundsson 159, Lýður Björns- son 157, Þorsteinn Gíslason 153, Haraldur Sumarliðason 151, Bragi Hannesson 146, Gísli V. Einarsson 143, Arinbjörn Kolbeinsson 139, Einar Ingvarsson 139, Jón Þórar- insson 137 og Gunnar Hansson 136. Næstir að atkvæðatölu urðu: Skúli Sigurðsson 128 atkvæði, Sveinn Guðmundsson verkfræð- ingur 122, Helgi Steinar Karlsson 114, Sverrir Áxelsson 108, Páll Stefánsson 97 og Páll S. Pálsson Árni Sigfússon, for- maöur Heimdallar: Á öndverðri skoðun, en sætti mig við það Mér sýnist að mikill meirihluti flokksbundinna sjálfstæðismanna telji rangt að halda áfram á þeirri braut sem prófkjör sjálf- stæðismanna voru kominn inn á, Sjálfur er ég á öndverðri skoðun og greiddi atkvæði gegn þeirri til- lögu að takmarka prófkjörið við flokksmenn og þá sem innrita sig í sjálfstæðisfélag, er þeir taka þátt í prófkjöri. Ungir menn börðust fyrir prófkjörum og fengu þau í gegn árið 1970. Reynsla meirihlutans virðist nú vera sú, að þeim beri ekki að viðhalda í þeirri mynd sem verið hefur. Við sættum okkur við það, enda er kominn tími til þess að menn virði ákvörðun meirihlut- ans og taki því eins og menn þótt skoðun þeirra verði í minnihluta. Ég óttast hins vegar, að slík til- raunastarfsemi sem nú hefur ver- ið samþykkt, geti haft neikvæð áhrif á niðurstöður borgarstjórn- arkosninganna. Hér á ég við, að margir stuðningsmenn Sjálfstæð- isflokksins í borgarstjórnarkosn- ingum styðja aðra flokka í alþing- iskosningum. Þeir eru því varla tilbúnir til þess að undirrita yfir- lýsingu um inngöngu í Sjálfstæð- isflokkinn og gætu þar með ekki tekið þátt í prófkjörinu. Gild mót- rök eru þau að sjálfstæðismenn hafi haft ótvíræðan meirihluta í borgarstjórn, löngu áður en prófkjörin komu til sögunnar. Ég tel þó, að áhrifa fjölmiðla gæti nú mun meir og það virðist vera ýms- um í hag að skæla allar samþykkt- ir og gerðir Sjálfstæðisflokksins, þannig að þær séu túlkaðar sem gerræði og ofstjórn, allt í þeim til- gangi að fæla kjósendur frá Sjálfstæðisflokknum. Slík hegðun gæti að þessu sinni breytt mynd- inni, en væntanlega getur almenn- ingur fylgst með þessu næstu mánuði. Á fulltrúaráðsfundinum komu fram alvarlegar ásakanir um að nú þegar væri farið að ræða stuðning flokksbundinna manna í öðrum flokkum um að koma mönnum að í okkar prófkjöri og ég tel víst að margir fulltrúaráðs- meðlima hafi látið þetta vega þyngst, er þeir tóku sínar ákvarð- anir. Sjálfur kaus ég að halda í vonina og trúna á, að enginn fé- laga okkar gangi svo langt að leita til annarra flokka um stuðning. Steingrímur Davíðsson fv. skólastjóri látinn STEINGRÍMUR Árni Björn Dav- íðsson, fyrrverandi skólastjóri, iést á Sólvangi í Ilafnarfirði í gærmorgun, 89 ára að aldri. Steingrímur var fæddur á Neðri- Mýrum í Engihliðarhreppi í A-Húnavatnssýslu þann 17. nóv- ember 1891. Foreldrar hans voru Davíð Jónatansson og Sigriður Jónsdóttir. Steingrímur lauk prófi frá Kennaraskólanum 1915. Hann var skólastjóri barnaskólans á Blönduósi frá 1920 til 1959. Hann sat í hreppsnefnd Blönduóss frá 1928 og var oddviti 1937—38 og 1948—58. Hann var um árabil formaður stjórnar sjúkrahússins á Blönduósi og formaður undir- búningsnefndar rafveitu A-Húna- vatnssýslu og átti sæti í stjórn hennar. Þá átti Steingrímur sæti í stjórn fræðsluráðs Húnavatns- sýslu og um fjögurra ára skeið sat hann í stjórn Kaupfélags Hún- vetninga. Éinnig sat hann um ára- bil f stjórn héraðssambands Húnvetninga. Auk þess sat hann í stjórnum ýmissa félaga. Steingrímur lét mikið að sér kveða í þjóðmálaumræðu og ritaði m.a. margar greinar í Morgun- blaðið. Kona hans var Helga Dýr- leif Jónsdóttir og áttu þau 14 börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.