Morgunblaðið - 10.10.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981
5
Karpov vann fjórðu skákina
Það blés ekki byrlega íyrir
áskorandanum. Viktor Koreh-
noi. þegar í jórða skákiní heims-
meistaraeinviginu i Merano fór
i bið á fimmtudaginn. Með
djarfri taflmennsku hafði
Korchnoi veikt stöðu sina um of
fyrir bið og Karpov gekk jafnt
ok þétt á lagið. Flestir séríræð-
ingar töldu biðstöðuna unna
fyrir heimsmeistarann og fljót-
lega eftir að biðskákin hófst
kom á daninn að staða svarts,
Korchnois, væri vonlaus. Þrátt
fyrir að hann gæfist ekki upp
fyrr en mát blasti við varð
Skák
Margeir Pétursson
biðskákin aðeins 13 ieikir og
eftir 53. leik Karpovs var ekki
um annað að ræða en gefast
upp. Það tók aðeins 20 minútur
að tefla biðskákina.
Eftir aðeins fjórar skákir hef-
ur Karpov því náð þriggja vinn-
inga forystu og það er allt útlit
fyrir að einn mánuður dugi til að
ljúka einvíginu.
Svart: Korchnoi
Eins og spáð var í Mbl. i gær
reyndist biðleikur Korchnois
vera 41. — d3. í stað 42. Rd4 eins
og búist hafði verið við valdi
Karpov mjög öruggt og sterkt
framhald sem hann hefur vafa-
laust kannað til botns ásamt að-
stoðarmönnum sínum nóttina
áður. Biðskákin tefldist á þessa
leið:
41. - d3, 42. Dd7+
Eftir 42. Rd4 — d2, 43. Re6+ —
Kh6, 44. Dxd2 — He8 er sigur
hvíts ekki eins auðveldur.
- Df7,43. Re7! - Kh7, 44. Kg2
- He8, 45. Ilhl+ - Rh4+, 46.
gxh4 — Dxe7
Eða 46. — Hxe7, 47. hxg5+ —
Kg8, 48. Dxd3
47. Dxf5+ — Kg7, 48. hxg5 —
Db7+, 49. f3 - He2+, 50. Kfl!
Hvíti kóngurinn er sloppinn
úr skákunum og þar með er kom-
ið að skuldadögunum hjá
Korchnoi.
- Kg8, 51. Dxd3 - He6, 52.
Dd8+ - Kg7, 53 Dd4+
* V
Tré voru allaufguð er snjónum tók að kyngja niður, en unga kynslóðin
tók vetrarkomunni vel og hyggur eflaust gott til glóðarinnar í hús-
byggingum, skíðaiðkunum og snjókasti i hófi.
ÓvenjumikiU snjór
miðað við árstíma
- Stóráföll eyfirskra kartöflubænda
Akureyri, 8. október.
ÓVENJUMIKLUM snjó, miðað
við árstíma, hefur kyngt niður á
Akureyri og nágrenni undan-
farna daga. Snjódýptin mun vera
orðin um hálfur metri miðað við
jafnfallinn snjó enda er færð viða
þung á götum bæjarins og hálka
flWtöfóJRK-----r—I
"fllðFOR fóMR W£(mft
WffTWmðfl ZIH'ötM'1
i
mikil. Helztu umferðargötur
voru þó ruddar i dag. Flugsam-
göngur á vegum Flugleiða hf.
lágu alveg niðri á mánudag og
þriðjudag.
Vegna úrhellisrigninga síðari
hluta speptembermánaðar reynd-
ist kartöÚuupptaka mjög seinleg
enda garðarnir rennblautir og illir
yfirferðar með upptökuvélar.
Reyndin varð líka sú, að fæstir
bændur höfðu lokið uppskeru-
störfum, þegar frostin komu og
jörðin huldist snæbreiðu og sumir
voru lítið eða ekki byrjaðir. Talið
er, að um 500 lestir af kartöflum
séu enn í jörðu, eða um þriðjungur
uppskerunnar eins og hún hefði
getað orðið. Vonlaust er að ná
þessu magni upp héðan af nema
því aðeins að skjótt bregði til asa-
hláku og þá stórskemmdu. Ekki
bætir úr skák, að spretta var yfir-
leitt mjög léleg í sumar við Eyja-
fjörð. Ljóst er að eyfirskir kart-
öflubændur hafa orðið fyrir stór-
áföllum að þessu sinni.
Til marks um það hve snemma
og óvænt veturinn gekk í garð nú,
þrem vikum fyrir veturnætur, má
nefna að trjágróður stóð yfirleitt
með fullu og ósölnuðu laufskrúði,
þegar snjónum tók að kyngja
niður. Sv.P.
Markús með björg-
unaræfingu við
Ingólfsgarð
MARKÚS B. Þorgeirsson verður
með björgunaræfingu i króknum
við Ingólfsgarð i dag og hefst æf-
ingin klukkan 15.30.
Honum til aðstoðar verða sjó-
deild björgunarsveitar Ingólfs í
Reykjavík, Landhelgisgæslan,
ásamt nemendum úr Stýrimanna-
skólanum og Vélskólanum og
krani ásamt kranamanni frá Eim-
. skipafélagi Islands hf. .........
Pelsar, loðskinnshúfur
og treflar í miklu úrvali
Útborgun lA, eftirstöðvar á 6. mán. — Póstsendum.
fttSWN
MFMUtWLÍ S>"ZP/60
0TÍÞ>/~6AUAM6A
/AV6AKÞA6A WAKL/0-fe
i imi