Morgunblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981 9 Samvinnuferðir — Landsýn: Búast við stóraukn- um fjölda erlendra ferðamanna næsta ár SÍÐASTLIÐINN fimmtudag héldu Samvinnuferðir fund með blaðamönnum i tilefni möKuleika á aukningu erlendra ferðamanna hingað tii lands. Töldu for- svarsmenn unnt að selja hintrað ódýrar ferðir, ok hafa í því sam- handi látið framleiða nýja land- kynnintcarmynd til sýninga er- lendis og gefið út ferðamanna- bækling með upplýsingum um skipulagðar ferðir innanlands fyrir árið 1982. Á fundinum var nýja land- kynningarmyndin sýnd, en í ávarpi Eysteins Hetgasonar framkvæmda- stjóra, kom í ljós að mikil vöntun hefur verið á nýrri mynd af þessu tagi síðastliðin ár. í júlí á liðnu sumri kom hingað Dani að nafni Er- ic Lohmann, í samvinnu við ferða- skrifstofuna Dansk folkeferie og dvaldi hann hér á landi í tvær vikur, ferðaðist um landið og tók myndir. Textann við myndina samdi Loh- mann einnig en hann er spilaður með myndinni af snældu og hægt að skipta um og nota hin ýmsu tungu- mál. Myndirnar eru litskyggnur sem sýndar eru samtímis í þrem sýn- ingarvélum og er kerfið tölvustýrt, þannig að samstillt myndröð kemur á tjaldið. Tónlist samdi Áskell Másson og Manuela Wiesler leikur á flautu. Innanlandsdeild Samvinnuferða hefur starfað í þrjú ár. Sagði Helgi Jóhannsson, forstöðumaður deildar- innar, í samtaii við Mogunblaðið, að með tilkomu ódýrra ferða hingað til lands hefði aukist nauðsyn skipu- lagðra ferða hér innanlands. í kynn- ingarbæklingi, sem gefinn hefur HAUSTSÝNING FÍM KJARVALSSTAÐIR 26.9. - 11.10.81 Haustsýningu FÍM að ljúka IIAUSTSÝNINGU félags ís- lenzkra myndlistarmanna að Kjarvalsstöðum lýkur á sunnu- dagskvöld klukkan 22. Á sýningunni eru verk 35 lista- manna, þar af eru fjórir gestir fé- lagsins á sýningunni: Björg Þor- steinsdóttir, Hildur Hákonardótt- ir, Hrólfur Sigurðsson og Ragnar Kjartansson. verið út, er boðið upp á margskonar ferðir um landið, gönguferðir og ýmsar aðrar skoðunarferðir. Sagði Helgi erlenda ferðamenn mjög ánægða með þá fyrirgreiðslu sem þeir fá hér á landi, og til marks um það sagði hann algengt að menn rækjust á greinar í blöðum og tíma- ritum um Islandsferðir þeirra, hefði einn ferðalangurinn meira að segja skilað inn 12 síðna handriti um ferðareynslu sína. Þessar ódýru ferðir Samvinnu- ferða eru þannig til komnar að selt er leiguflug til einhvers staðar og síðan reynt að fylla vélina til baka með fargjöldum sem eru langt undir venjulegu verði. Nægir að minna á ferð sem íslendingum bauðst til Luleá sl. páska, en þá kom hingað hópur íþróttafólks frá Svíþjóð og Is- lendingar áttu kost á ferð þangað í staðinn fyrir 1.000 krónur ísl., báðar leiðir. Sagði Helgi að lokum að fleiri siikar ferðir væru fyrirhugaðar á næsta ári sem kæmu bæði íslensk- um og erlendum ferðamönnum til góða. Eldri Eyfirð- ingum boðið í kaffi á Sögu ÞAÐ ER orðin árleg hefð, að Eyfirð- ingafélagið í Reykjavík hefji vetr- arstarfið á hverju hausti með kaffi- deginum á Hótel Sögu, þar sem sér- staklega er boðið eldri Eyfirðingum á höfuðborgarsvæðinu og hverjum þeim, sem kann að vera staddur í heimsókn syðra. Kaffidagurinn verður að þessu sinni nk. sunnudag, 11. október, í Súlnasal Hótel Sögu og verður húsið opnað kl. 14.00. Mezzoforte í NEFS í kvöld IIIJÓMSVEITIN Mezzoforte mun flytja hlandað efni á tónleikum i Félagsstofnun stúdenta, laugar- daginn 10. október kl. 21—23. Hljómsveitin er nú nýkomin frá London, þar sem hún vann við upp- tökur á þriðju plötu sinni. Eins og kunnugt er náði fyrri plata þeirra „I hakanum", umtalsverðum vinsæld- um þar ytra og komst meðal annars í 5. sæti á sölulista yfir diskótónlist. Segja má að næsta plata þeirra sé í rökréttu framhaldi af „I hakanum", en þeir eru trúir þeirri tónlistar- stefnu sem þeir hafa getið sér gott orð fyrir, þ.e. jazzrokk-bræðingnum, og kunnugir segja að nú sé bjartari tíð í vændum fyrir slíka tónlist. Undanfarna daga hafa strákarnir verið við æfingar á tónleikadagskrá sem þeir flytja í fyrsta sinn á laug- ardaginn í NEFS-klúbbnum, en síð- an hyggjast þeir leggja land undir fót og heimsækja m.a. framhalds- skólana víðs vegar um landið. (FréttatilkynninK) Birgir Schiöth með gamla og nýja „prófíla“ BIRGIR Schiöth teiknikennari heldur sýningu á málverkum og teikningum i húsgagnaversluninni Tréborg að Reykjavikurvegi 68 í Iiafnarfirði. Á sýningunni eru rúmlega eitt hundrað myndir og má segja að sýningin sé þríþætt. Þar eru olíu- málverk, teikningar, einkum af gömlum húsum og götum i llafnar firði. Þá eru þar gamlir og nýir _prófílar". Sýningin stendur til 11. okt. og er opin alla daga frá kl. 9 — 22. Á myndinni eru, frá vinstri, Ilelgi Jóhannsson, Ilildur Jónsdóttir og Lára Pétursdóttir, en þau starfa öll i innanlandsdeild Samvinnuferða, og Eysteinn Ilelgason. Á milli þeirra má sjá hina þreföldu tölvustýrðu litskyggnumyndasýningarvél. Prúttmarkaður aö Laugavegi 66, 2. hæö. Opiö í dag kl. 9—12 étö' 'e'Á^ur t)°rö'nVi' á30^'e^8Ö> ó'\ö £>> nv"; ■er#h. 'nn'9 é'tý/4')?*r'öf ^ f<t*n/d- "O °,r> '/<5 - Lítið sýnishorn af úrvali okkar: Ullarkápur. Stakir dömujakkar. Ullarfrakkar, (litil númer). Herrabuxur, lítil númer Buxur: ull, flannel, sléttflauel, kakhi, riflaö flauel (5 sniö). Hnébuxur. Alullarpeysur. Skyrtur. Blússur. Bolir. Sportblússur. ’ Jakkaföt, (lítil númer). Pils. Sumarkjólar. Otrúlegt úrval af alls konar efnum metrinn frá 10 kr. Ekkert dýrara en 50 kr. metrinn SíöastJ prúttið pru^prútt\ö HLJÓMPLÖTUMARKAÐUR Við þurfum ekki aö prútta um plötuveröiö, pví þaö er svo þrælslega lágt. Þú getur fengiö nýjar og gamlar plötur, á klassaprísum og þaö er bezt að hafa hraöann á, til aö missa ekki af neinu. Gillan Future Shock Blondie Auto American , Só* sro- uyn*, „ vnwW,on t«npo'e]“gob Eddie. 0'° **

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.